Á morgun - 30.01.1918, Síða 1
M
R G
KOSNINGABLAÐ ALÞÝÐUFLOKKSINS
I, ái\
lleykjavíb, miðrikudaginn 30. janúar 1918.
1. tbl.
Kosning'in á morg'un.
Á morgun.
Kosningin hefst kl. 10 árdegis.
Þegar kjósandi kemur inn í herbergi kjörstjórnarinnar, og kjör-
stjórnin heíir gengið úr skugga um, að hann standi á kjörskrá, er
honum afhentur kjörmiði, með nöfnum þeirra manna, sem í kjöri
eru, og mun hann líta út svipað þessu:
A-listi B-listi C-Iisti
Þorv. Þorvarðsson Ólafur Friðriksson Jón Baldvinsson Sigurjón Ólafsson Kjartan Ólafsson Guðm. Davíðsson Jónbjörn Gislason Sveinn Björnsson Inga L. Lárusdóltir Guðm. Ásbjörnsson Jón Ólafsson Jón Ófeigsson Guðm. Eiríksson Jón Kristjánsson Einar Helgason Gísli Guðmundsson Jóh. Jósefsson Árni Thorsteinsson Jón Hafliðason Gunnl. Pétursson Jóhannes Nordal
Fer kjósandi ineð kjörseðilinn inn í kjörklefann, sem er aftjaldað
horn í herberginu, og gerir kross X bókstaf þess lista, sem hann
ætlar að kjósa, með blýanli, sem kjörstjórn á að hafa þar. Þegar
kjósandi hefir kosið, á kjörseðillinn að líta þannig út:
X A-listi B-listi C-listi
Þorv. Þorvarðsson Ólafur Friðriksson Jón Baldvinsson Sigurjón Ólafsson Kjartan Ólafsson Guðm. Davíðsson Jónbjörn Gíslason Sveinn Björnsson Inga L. Lárusdóttir Guðm. Ásbjörnsson Jón Ólafsson Jón Ófeigsson Guðm. Eiríksson Jón Kristjánsson Einai- Kelgasen Gísli Guðmundsson Jóh. Jósefsson Árni Thorsteinsson Jón Hafliðason Gunnl. Pétursson Jóhannes Nordal
hjá þeim sem kjósa alþýðulistann, A-listann; en varast skulu menn
að gera nokkurt annað merki á seðilinn en blýantskrossinn framan
við bókstaf þess lista, sein menn ætla sér að kjósa. Þó er heimilt að
raða mönnum, sem eru neðan undir bókstaf listans sem kosinn er,
t. d. selja löluna 1 við neðsla manninn, töluna 2 við sjötta og svo
framvegis. Sömuleiðis má strika- nafn út af listanum. En þessar breyt-
ingar má að eins gera við þann lisla sem maður kýs, því sé nokkurt
merki gert við bókstaf annars lista, eða nokkurn mann á honum, þá
er seðillinn ógildur. Þó að þessar breytingar, að raða mönnum eða
strika út nöfn á þeim lista sem kosinn er, séu heimilar, þá er þó langréttast
af mönnum að fást ekkert við slíkt, því margra ára reynsla hefir sýnt,
að það verður þráfaldlega til þess að ónýta seðilinn, af því að menn
geta ekki alment gert þessar breytingar, án þess að skemma seðilinn
svo, að hann verði ógildur. Taki kjósandi eftir því, að hann hafi
eyðilagt seðilinn, t. d. kosið öðruvísi en hann ætlaði sér eða gallað
kjörseðilinn, þá getur hann krafist þess að fá nýjan kjörseðil hjá
kjörstjórninni.
Þeir, sem vegna sjóndepru eða annars ekki treysta sér til að
gera blýantskrossinn svo, að örugt sé að liann verði tekinn gildur,
geta beðið einhvern mann úr kjörstjórninni að koma með sér inn í
kjörklefann og kjósa fyrir sig.
A-listiim er listi alþýðunnar.
Kjósið hann!
Á morgun á að kjósa sjö menn
í bæjarstjórn Reykjavikur.
Á morgun eru tímamót í sögu
Reykjavíkur.
Á morgun er í fyrsta sinni, síð-
an Reykjavíkurbær fekk kaupstað-
arréttindi, kosið um tvœr stefnur í
bæjarmálum.
Á morgun er fyrsta sinni kosið
um það tvent, hvort auðvald fárra
manna á að ráða bæjarmálum —
þeim einum til hagsbóta, eða hvort
alþýðan á sjálf að ráða þeim —
öllum bæjarbúum til hagsbóta.
Á morgun ætlar auðvaldið
grímuklætt að reyna að lirifsa
undir sig völdin í þessum bæ —
til þess að drottna síðan yfir þeim
ibúurn hans, er eiga óhægri að-
stöðu í lífsbaráttunni, með ójöfn-
uði og grimd.
Á morgun er það á valdi al-
þýðumanna í Reykjavík að afstýra
því, að það nái þvílíkum yfirtökum
í bænum.
Á morgun gefst alþýðu manna
í Reykjavík færi á að lýsa yfir
pvf, nvort hún vill heldur lúta
kúgandi auðvaldi, slerku og grimmu,
og þola ójöfnuð þess eða ráða
hollráðlega hag sinum í frjálsu
bróðerni og fullkomnum jöfnuði
fyrir alla, alda og óborna.
Á morgun fær alþýða manna í
Reykjavík tækifæri til að sýna það,
að hún vilji ekki kjósa þá menn i
bæjarstjórn, senr vísir eru til, ef
þeir geta því við komið, að svifta
hana með yfirgangi og rangindum
öllu því, er við hana verður los-
að, megni og mannréttindum.
Á morgun er timinn kominn
fyrir sjómenn, verkamenn, verka-
konur og iðnaðarmenn til að skera
úr því, hvort bærinn megi ekki
ráðast i arðberandi fyrirtæki allri
alþýðu til gagns og hags, fyrirtæki
slík sem þau, er auðvaldsmenn
sækja nú í aflið til ójafnaðarverk-
anna.
A morgun, er sá örlagadagur, að
hið auðunnasta og léttasta verk,
það að setja kross (X) við A-list-
an, verður hið affarasælasta verk
°g þyngsta á metunum allri alþýðu
manna í hag í nútíð og framtíð.
Á morgun á að kjósa um A-list-
an (lista allrar alþýðu), B.-Iistann
(lista auðvaldssinna og brodd-borg-
ara) og C-listann (óþarfan og
marklausan lista).
Á morgun á alþýða manna að
láta C-listann afskiftalausan.
Á morgun mega þeir einir kjósa
R-listann, sem með núlegum liugs-
unarhætti sínum væru fyrir alla
tilveruna betur farnir kosningar-
réttarlausir.
Á morgun má alþýða manna
ekki kjósa B-listann.
Á morgun á öll alþýða að
hafnn B-listanum, lista auðmanna-
félagsins »Sjálfstjórnar«.
Á morgun á að kjósa A-listann!
Á morgun á A-listinn að fá
öll atkvæði allra alþýðuinanna.
Á morgun á A-listinn að fá öll
atkvæði allra góðra manna.
íhald og-
framsókn.
Kosningar standa enn einu sinni
fyrir dyrum og nú á nokkuð öðru
vísi grundvelli heldur en endranær.
Verkamannasamtökunum, Alþýðu-
flokknum, hefir aukist svo fylgi
hin síðustu ár, að stórborgararnir
eru orðnir hræddir við, að hann
fari að hafa verulega hönd í bagga
með sijórn þessa bæjar. Grimm
ustu púlitisku fjantimennirnir falF
ast þá í faðma til að koma í veg
fyrir þetta. Þeir menn, sem um
langan tíma hafa svarið og sárL
við lagt, að þeir bæru hag alþýð-
unnar fyrir brjósti, mynda nú
svínfylking til þess að koma í veg
fyrir að alþýðan stjórni þeim mál-
um, sem hana varðar mest. Kaup-
menn og aðrir peningamenn leggja
til stórfé í sama tilgangi. »Sjálf-
stjórn« er fædd.
Alþýðuflokkurinn er ekki hrædd-
ur við þessa samsteypu, heldur
þvert á móti. Það er gleðilegt að
sjá þessa herra kasta grímunni og
sýna sinn innri mann. Svo langt
er nú komið að hver inaður sér
að hann verður að taka afstöðu i
bæjarmálum eftir stefnum, en ekki
eftir nöfnum eða nafnbótum. Stefn-
urnar eru hér eins og erlendis að
eins tvær, íhald og framsókn.
Alþýðuflokkurinn liefir hér eins
og annarsstaðar mætt íhaldinu,
samábyrgð broddborgaranna,
»Sjálfstjórn«.
111 var þess félags fyrsta ganga.
Efstur á lista stendur þar sá mað-
ur sem hefir tvívegis vegið í hinn
sama knérunn, Sveinn Björnsson.
í haust við niðurjöfnunarkosning-
ar var hann meðal þeirra manifa,
er voru þess valdir, að alt vinnu-
fólk bæjarins var strikað út af
kjörskrá. Nú leikur liann í kjör-
stjórn sömu listina, að svifta alla
þá menn kosningarrétti, er ekki
hafa greitt gjöld sín í bæjarsjóð.