Á morgun - 30.01.1918, Qupperneq 4
4
Það er vissara að koma
nógu snemma á Alþvöu-
flokksfund í Bárubúð í
kvöld. Hann bvriar kl. 8.
lijálpar væri leitað, og í þessu efni
væri verkefni fyrir konur til að
beita sér fyrir. Gat frúin þess enn
fremur, að hún hefði heyrt tvo
bæjarfulltrúa vera að tala um þetta,
og telja bæjarstjórn skylt að kynna
sér og hafa ætíð sem gleggsta vit-
neskju um afkomu bæjarbúa.
Ætla mætti nú, að konur hefðu
tekið þessari tillögu vel, og það er
alveg vist að allur þorri kvenna á
fundinum hefir litið sömu augum
á þetta mál og húsfrúin, sem flutti
tillöguna. En hvað skeður? For-
maður bandalagsins rís öfugur
gegn tillögunni, biður tillögumann
að taka tillöguna aftur, og ef hún
geri það ekki, þá verði hún að fá
meðmœlendur með tillögunniH For-
maðurinn, frú Steinunn Bjarnason,
er eins og kunnugt er, einna æst-
ust allra kvenna í bænum með
því að konur kjósi með »Sjálf-
stjórn«. Hún hefir búist við, að það
mundi ekki »Sjálfstjórnar«-klíkilnni
geðþekt, að farið væri að vasast í
því að kynna sér heimilisástæður
fátæklinganna í bænum, og reyna
í tæka tíð að koma i veg fyrir að
þeir líði neyð. Þessi framkoma
formanns sambandsins bregður ó-
neitanlega skýru ljósi yfir það hvað
hann býst við að »Sjálfstjórnar«-
liðið ætli sér að vinna.
Með þessari frekju sinni gegn
tillögunni gat form. fengið tillögu-
mann til þess að taka hana aftur.
Enn fremur las frú Steinunn
Bjarnwson áskorun lil kvenna um
að kjósa nú allar »Sjálfstjórnar«-
listann. Hún var beðin um að láta
þessa áskorun koma til atkvæða,
en svo viss var frúin um fylgis-
leysi kvenna með áskorun þessari,
að hún neitaði að láta bera hana
undir atkvæði; þorði það ekki,
enda alveg víst, að slík áskorun
hefði ekki fengið meira en ofurlít-
ið brot af atkvæðum fundarkvenna.
En furðu bíræfið má það kalla af
formanni þessa sambands kvenna,
að leyfa sér að fara fram á það
við mikinn meirihluta kvenna í
bænum að þær kjósi með þeim, er
vinna beint á móti þeim málum,
er þær vildu styðja. Slík framkoma,
af hvaða ástæðum sem er. er víta-
verð.
Konur snertið ekki B-listann.
Hann er stórborgaralisti og ekkert
annað. Kjósið allar A-listann.
Hvep einasti alþýðukjó^andi
þessa bfejar yerður að kjósa á
mor^un.
HLverii af li^tiiiium alþýðu-
kjósendur eiga að kjóna |>ai*í
ekki að taka íram, það er syo
sjálísagt.
Állir alþýðumeim kjósa
*
A-Iistann!
Prentað í Gutenbcrg.
Komið að kjósa!
Pað má telja alveg- víst, að engum verði meinað að
kjósa fyrir það, þó hann hafl ekki greitt aukaútsvar. Kom-
ið því á morgun, þór, sem enn ekki hafið verið teknir á
kjörskrá vegna ofbeldis kjörstjórnarinnar. Ykkur verður
áreiðanleg’a bætt inn á kjörskrána í kvöld.
Kjósið A~Iistann!