Elding - 14.04.1901, Síða 3
ELDING.
67
gamall. Afskifti hans af þessum
starfa nrðu þó ekki langgæð. Hon-
um runnu svo til rifja aðfarirnar í
stríðinu, að hann sagði af sér em-
bættinu þegar árið var úti og fór
heim aftur.
Skömmu síðar komst hann af til-
viljun í kynni við mann nokkurn,
Woodruff að nafni, sem hafði fundið
upp svefnvagninn; hann var ekki
lengi að gera sér grein fyrir fram-
tíðargildi þessarar hugmyndar, og
gekk þegar í stað í félag við
manninn. Þar með var hann
komiun inu á þá braut, sem síðar
leiddi hann til fjár og frama. I
fyrstunni hafði hanu ekki miklu úr
að spila, en það kom brátt í ljós
að hann hafði rekist þarna á sannar-
lega fóþúfu. Um sama leyti fundust
steinolíuuppspretturnar í Pennsyl-
vaníu; Carnegie var ekki iengi að
slá sér saman við 2 menn aðra til
að freista hamingjunnar. Þeir
keyptu jörð fyrir 140 þús. kr. til
að leitast fyrir um olíuuppsprett-
ur. Það fór hvorki betur né verr
en svo, að þeir á einu ári stungu
8,600,000 kr. í vasann í skærum
skildingum. Slíkt má heita lán í
lagi!
Carnegie hélt sér nú við olíuna og
járnbrautarvagnana þangað til hann
var kominu um þrítugt.
I umsjónarstarfi sínu við Pennsyl-
vaníu-járnbrautina hafði Carnegie
veitt því eftirtekt, að menn voru
farnir að gera tilraunir til að nota
járn í staðinn fyrir tré við brúar-
byggingar. Það datt í hann, að hér
mundi vera um hugmynd að ræða,
sem ætti framtíð fyrir höndutn; hann
réðist því óðar í að koma þessu
á framfæri. Með 2 af vinum sínum
herjaði hann út bankalán og stofn-
aði. verksmiðju til að byggja járn-
brýr. Lánið elti hann nú eins og
endraDær. Honum var falið á hend-
ur að smíða 100 metra langa járn-
brú yfir Ohiofljótið. Hann þóttist nú
ekki lengur mega vera í vist hjá
öðrum, og sagði af sér umsjónar-
starfinu til þess að geta gefið sig
allan við brúarsmíðinu.
1868 skrapp hann yfir til Eng-
lands og sá á þerrri ferð að meun
voru þar farnir að reyna .stál í járn-
brautarteina í staðinu fyrir járn.
Pittsburg, þar sem Carnegie átti
heima, liggur miðlendis innan um
auðugustu járu- og kolanáinurnar í
heiminum; að nokkrum tíma liðnum
voru allar beztu námurnar í höndum
Carnegies. þegar fram liðu stundir
keypti hann einnig beztu námurnar
við Efravatn og lagði sérstaka
járnbraut milli námanna og járn-
smíðastöðvanna. Carnegie hefur
ætíð lialdið því fram, að verksmiðju-
eigandiun þurfi að eiga sjálfur alt,
sem hann þart á að halda við iðn
sína. Þetta hefur verið frumregla
hans frá fyrstu byrjun; hann var
líka fyrir löngu orðinn nokkurs kon-
ar einvaldur í iðnaðargrein sinni,
stálvörusmíðinni.
Nú er hann þá loks búinn að af-
sala sér eignarréttinum og yfirráð-
unum yfir öllum þessum stórfyrir-
tækjum og selja þau geysistóru
hlutaféJagi í hendur. Það sem eftir
er æfinnar ætlar hann að gefa sig
allan við því starfi að koma eigum
sínum svo fyrir, að þær geri sem
mest gagn í almeunings þarfir.
Að hann á gróðaárum sínum hafi
ekki eingöngu hugsað um að hauga
saman peningum, ber Carnegie-stofn-
unin í Pitssburg ljósastan vott um.
Það er geysistór skrautbygging með
2 háreistum turnum, sem hann hef-
ur gefið bæ sínum, og er í henni
stórt bókasafn, fjölskrúðugt gripa-
safn, fagurt listasafn og stór söng-
salur. Til þessarar einu byggingar
varði hann 26 mill. kr., og nýlega
bætti haun við gjöfina 4 mill. í pen-
ingum. Pæðingarstað sínum á Skot-
landi gaf hann bókasafn, sem kost-
aði 150 þús. kr. Og ekki alls fyrir
löngu gaf haun Midlandsliáskóla í
Birmingham 1 mill. kr. til þess að
gera kensluna sem bezta og full-
komnasta að verða má.
Annars hefur Carnegie enga sér-
lega tröllatrú á tramtíðargengi Breta.
„Ekkert land getur til lengdar hýst
íleira fólk, en það getur alið á sín-
um eigiu afurðum11 er skoðun hans.
Hann er helst á því, að Englend-
ingar megi til að fara að lifa á ný-
lendum sínum, þegar þeir séu búnir
að tæma kola- og málmnámur sínar,
að þoir „fari á sveitiua11. Hann
ræður þeim til að íhuga þetta vel
og vaudlega.
Carnegie hefur þannig sinar eigin
skoðauir; hann er ópennalatur mað-
ur og ritar töluvert í ýras tímarit.
Meðan ófriðúrinn um Kúba og
Eilippseyjar stóð yfir, barðist hann
ötullega gegn ofríkis- og ásælnis-
stei’nuuui hjá Bandarikjamönuum.
Hann hefur að mörgu leyti haldið
fast við æskudrauma sína og æsku.
hugsjónir og er lýðstjórnarsinni af
heilum hug. Hann er sannur Skoti
bæði til orðs og æðis, blátt áfram í
lifnaðarháttum og stálhraustur. Að
einu leytinu er hann þó ólíkur lönd-
um sínum: hann er alveg laus við
alt djúpsett og dapurlegt trúarvingl.
Það getur vel átt við við hann, sem
skáldið Walt Whitman segir um
skepnurnar: „Þær liggja ekki and-
vaka og gráta syndir sínar“. Hann
heíur aldrei haft neitt að segja af
sjúkdómum og andstreymi. Meðan
móðir hans var á lífi, hugsaði hann
ekki til að kvongast; hann gerði
það fyrst fyrir 4 árum. Alt hefur
leikið í lyndi fyrir honum. Það er
þessvegna eðlilegt, að hann líti létt-
um og vonglöðum augum á lífið og
heiminn. Hann hefur sterka trú á
framtíðarþroska og framtíðargengi
mannkynsins.
Hann hefur alla sína daga verið
vinnuvargur. Nú liggur fýrir honum
sjálfkosið starf, sem ef. til vill verð-
ur honum erviðara en alt strit hans
til að afla sér auðæfanua. En það
er ekki að sjá sem miljónirnar of-
þyngi honum; hanu er orðinn vanur
að velta þeim í höndunum án þess
að láta sér bregða. Og ekki eru
lífskröfurnar stórar hjá honum.
Hann hefur aldrei verið tóbaksmað-
ur og þykir ekliert gott í staupinu,
þó hann að vísu sé enginn bindindis-
postuli. Mesta skemtun hefur hann
af að ferðast og skoða sig um.
Hann var um tíma fremur uppstökk-
ur og ör 1 lund, en það kvað hafa
lagast með aldrinum. Hann hefur
gaman af að spjalla við menn, sem
liafa lag á að vekja hjá honum nýj-
ar hugmyndir; sjálfur hefur hann
þá aftur á inóti djúpa lífsreynslu og
margvíslega þekkingu að miðla öðr-
um af. Hann er mikið gefmn fyrir
að spjalla um fyrirtæki sín og fram-
kvæmdir, og það er houum satt að
segja ekki láandi. Það er nokkuð,
sem vert er um að tala.
Oi’ bænum og grendinni.
Fyrir bæjarþingsréttinum. 11. þ.
m. var kveðinn upp dómur í málinu:
Siy. Thoroddsen yeyn W. Ó. Breiðjjörð
út af, 2 greinum í blaðinu „Reyk-
víking“, liinni fyrri í 5. tbl. X. árg.
(1. maí f. á.) með íýrirsögn „Umtalið
á götunum um nýju fulltrúana11, en