Elding - 14.04.1901, Blaðsíða 4
68
E LDINGr.
hitmi síðari í 1. tbl. XI. árg. (1. jan.
þ. á.) með fyrirsögn „Hina stóri
borgarafundur í Reykjavík 17. des.
1900“. Hafði því í greinum þessum
verið dróttað að Sig. Tlióroddsen að
hann færi seint á fætur og væri
sagður latur. Blaðinu var dæmd 30
kr. sekt og 12 kr. roálskostnað og
ummælin dauð og ómerk.
Sama dag var og kveðinn upp
dómur í öðru máli milli Sig. Thor. og W-
0. Breiðjjörö út af móðgandi ummæl-
um hinn fyrnefnda í öðru tbl. XI.
árg. „Reykvíkings“ ( 1. febr. þ. á.).
Stefndi skyldi greiða 20 kr. sekt og
12 kr. í málskostnað, og ummælin
dæmd dauð og ómerk.
Tíðarfar um páskana hefur verið
mjög stirt. Skipin hafa fengið óvenju
hrakviðri og skemst mörg að mun
og skipverjar meiðst.
Skólaballið, þessi mikla fagnaðar-
hátíð yngismeyja bæjarins, var haldið
á miðvikudaginn.
Dömurnar hefðu skemt sér mjög
vel og ekki sízt við ræðu, sem hald-
in var fyrir minni rektors og kenn-
ara — á latínu!
Erá útlöndum komu með „Skál-
holti“ þann 11. þ. m. þeir Guðjón
úrsmiður Sigurðsson, Björn kaupm.
Guðiriundsson og Jón kaupm. Dórð-
arson.
Séra Eriðrik Hallgrimsson frá Út-
skálum er hér á ferð og séra Ólaf-
ur Helgason á Stórahrauni.
Slysfarir hafa verið með mesta
móti. Maður úr Þorkötlustaðahverfi
í Grindavík gekk með hlaðnabyssu;
skotið hljóp í mauninn og beið hann
bana eftir stuttan tíma.
Jón Laxdal, sonur Saura-Gísla,
skáldsins, sem orti kesknisvísurnar
alkunnu, datt eða fleygði sér útbyrðis
af fiskiskipinu „Christopher11 2.
þ. m.
Á páskadaginn druknaði maður
af fiskiskipinu „Jósefínu11 og rotað-
ist annar. Þar að auki meiddust
þrír menn af sama skipi.
Aðfaranótt föstudagsins druknuðu
8 menn hér á höfninni. Tveir þeirra
voru af Akranesi, einn úr Kjósinni.
Voru þeir á leið út í skip — komn-
ir að skipssíðunni; báturinn ofhlað-
inn enda hvassviðri.
Eæreyskur skipstjóri fótbrotnaði
í ryskingum á „Hotel ísland“ nú í
vikunni.
Dáin er hér í bænum Anna Guð-
mundsdóttir, kona Sigurðar búfræð-
ings Þórólfssonar, og á Álftanesi
Erlendur Erlendsson á Breiðabóls-
stað, merkisbóndi og alkunnur sóma-
maður.
------------*
Mormóna-uppþotið. Maður sá, sem
minnst var á í síðasta blaði í sam-
bandi við Mormóna-fundinn, biður
þess getið, að hann hafi ekki að
fyrra bragði gefið tilefni til neins ó-
seiur KRISTJÁN ÞORGRÍMSSON.
Ágætan Rikling
solur
Matthías Matthíasson.
fagnaðar. Segir hann að ærslin
hafi verið byrjuð áður en hann kom
til sögunnar, og hafi hann aðeins
talað nokkur orð, en þó komist lítt
að með þau fyrir hávaða. Yér verð-
um að játa að vér áttum hálf bágt
með að trúa því um þennan umrædda
mann, að hann hefði gengist fyrir
uppþotinu. Hefurbann auðsjáanlega
verið látinn kenna þess, að hann
var nokkuð við þessa skrílssamkomu
riðinn.
„Vesta" kom hingað í nótt, hafði
ekki komist lengra en norður að
Horni sökum íss. Leggur þegar af
stað austur fyrir, sunnan lands.
í verzlun Jóns Þóröarsonar
með „Skálholt11 margar sortir af
vindlum frá 8—20 aur. stykkið
sömuleiðis reyktóbak í langar og
stuttar pípur.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Jón Jónsson, cand. phil.
Félagaprentsmifijan.
VERZLUN
J. P. T. BRYDES
Nýkomið með „Skálholti".
Prjónaðar peysur.
Barnakjólar.
Barnahúfur og kýsur.
Hörléreft tvíbreitt.
Sirz af öllum litum.
Kamgarn. Duffel. Cheviot.
Buxnaefni afpössuð margar tegundir.
Kjólatau -----------
Gardínutau -----------
Klæði -----------
Húsgagnafóður ------------
Tvisttau ---- ------
Flonel ---- -——
Peque -----------
Brodersilki af ýmsum litum.
Léreft bl. og óbl.
Borðdúka og handklæðadregla.
Rúmteppi.
Borðdúka mislita og hvíta.
Axlabönd.
Brússelteppi smá og stór.
Sumar og vetrarsjöl inargar tegundir.
Herðasjöl og Kvennslifsi margar tegundir.
Hatta margar tegundir.
Sportskyrtur.
Hálslín og slaufur margar tegundir.
Nærfatnað kvenna og karla margar tegundir
— og margt fleira —
Wlenduvörur allslionar.
Ofaa oi eliMar
Nýkomið