Alþýðublaðið - 04.01.1964, Síða 3

Alþýðublaðið - 04.01.1964, Síða 3
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 4. janúar 1964 3 Barry Goldwater gefur kost á sér til framboðs Pliönix, Arizona, 3. jan. NTB-R. Barry Goldwater, hinn íhalds- sami öldung-adeildarbingma'ður í Þjó'ðþingi Bandaríkjanna, tilkynnti í dag, að hann hefði ákveðiff að gefa kost á sér til framboðs við næstu forsetakosningar í Banda- ríkjunum svo fremi, að Repub- likanar vcldu hann til franiboðs fyrir sig. Jafnframt þessu tilkynnti Goldwater að hann mundi einn- ig gefa kost á sér til endurkjörs sem öldungadeildarþingtnanns fyr ir Arizona fyrir næstu 6 ár. Verði hann fyrir valinu sem forseta- frambjóðandi repáblikana mun hann þó vafalaust ekki fara í þing framboðið. Goldwater hefur lengi verið tal inn ætla sér í forsetaframboð — enda hefur hann ekki dregið af í áróðri fyrir sér undanfarið. Fráfall Kennedy forseta virð- ist þó hafa dregið talsvert úr und- irtektum þeim, er hann hafði, en hann hafði beitt sér mjög gegn hinni framfarasinnuðu stefnu hans. Nokkrir dagar eru nú liðnir síðan að Nelson Rockefeller ríkis stjóri í New York tilkynnti að hann gæfi kost á sér sem fyrir repúblikana. Þá er talið að þeir Richard Nixon fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna og Hen- ry Cabot Lodge ambassador Banda ríkjanna í Saigon muni eiga mikið fylgi sem forsetaframbjóðendur innan flokks repúblikana. Ríkisútvarpið er nú að nnd- irbúa dagskrá fyrir þrett- ándann. Verður ýmislegt til skemmtunar. Viff litum nið- ur í Ríkisútvarp í gær, og var þá verið að taka upp leik hljómsveitar Hauks Morthens, sem mun spila í danslagatímanum að kvöldi þrettándans. Á myndinni sjáum við Hauk framan vi9 hljóðnemann og aðra hljóm- sveitarmenn í kringum hann. amningur allra ríkja um að halda friðinn MOSKVU, 3. jan, (NTB-RT). Sovézka ríkisstjjórnin hefur sent öllum ríkisstjórnum heims- ins orðsendingu þar sem hún legg- forsetaefni ur til að þær geri með sér samning um að forðast valdbeitingu vegna landamæradeilna að því er sov- ézka fréttastofan TASS skýrðt frá í kvöld. Tillagan um samning þenn an kemur fram í boðskap frá Krústjov forsætisráðherra er Viðræður serm um fastar tak- markaðar samgöngur í Berlín BERLIN, 3. jan. (NTB-RT). Bandaríkin, Bretland og Frakkland hafa tilkynnt Willy Brandt borgarstjóra Vestur- Berlínar að þau hafi ekkert á móti því að hann semji við aust ur-þýzk yfirvöld um framlcng- ingu umferðar Vestur-Berlínar búa til Austur Berlínar Skýrðu talsmenn ríkja þess- ara frá því í dag að ieitað yrði eftir fastara og lengra formi á umferð þessari. Búizt er vi'ð að hinar fyrirhuguðu viðræður Brant og austur-þýzkra yfir- valda mn mál þetta muni standa nokkrar vikur. Sagt er aff Willy Brandt sé mjög umhugað um að forðast allt það er túlka mætti sem við urkenningu á austut'-þýzku stjórninni. í samningunum mun hann reyna að fá til lciðar kom ið tilliögun sem allir Vestur- Berlínarbúar gætu notað sér til farar inn í Austur-Berlín en WILLY BRANDT ekki aðeins þeir sem eiga þar skyldmenni eins og nú er. Hann mun einnig vonast til þess að þeir geti fengið vegabréf í A- Berlín er gildi í lengri tíma en nú er sem er frá kl. 7 að morgni til kl. 12 á miðnætti. Samkvæmt upplýsingum er fyr ir liggja hafa 1,3 milljón vega- bréf verið gefin út til A-Berlín- arfarar. Á laugardag er búist við að 240 þús- manns fari til Austur-BerHnar og 250 þús. manns á sunnudag. Walter Ulbricht tilkynnti í dag að ríkisstjórn hans væri reiðubúin til að halda álram við ræðum sínum viff yfirvöld V- Berlínar um umferð þessa. Ber- línar-samningur þessi hefur lagt grundvöllinn að öðrum samningum sagði hann. Við er- um þeirrar skoöunar að hann leiði til minni spennu í alþjóða málmn og minnki hættuna á styrjöld og það er báðmn aðil- um fyrir beztu sagði hann. hann sendi öllum forsætisráðlierr- um heimsins á nýárskvöld. í boðskap þessum leggur Krúst- jov áherzlu á að svo sé nú skipað málum í heiminum í dag að unnt sé að komast hjá beitingu vopna- valds í landamæradeilum og sting ur í því sambandi upp á alþjóða- sáttmála í fjórum aðalliðum: 1. Öll ríki eiga að lofa því há- tíðlega að beita ekki valdi til að breyta landamærum. 2. Þau skulu samþykkja að beita aldrei innrás, árásum, hernámi eða öðrum vopnuðum yfirgangi í skiptum sínum, hvort heldur það yrði í pólitiskum, efnahagslegum eða hernaðarlegum tilgangi- 3. Ríkin skulu samþykkja að mismunandi stjórnmálakerfi og þjóðfélagskerfi, fáskipti milli ríkja eða annað slíkt skuli aldrei notað sem yfirvarp til valdbeitlng ar. 4. Þau skulu skulbinda sig til a'ð leysa allar landamæradeilur með friðsamegu móti einu saman, t.d. með viðræðum, samningum, og öðrum sáttatilraunum. 1 orðsendingunni segir ennfrem- ur að sovétstjórnin sé sannfærð um að samningur sem þessi i/iuni verða þýðingarmikið spor vl at- heimsfriðar. Tillögu Krústsjovs um ekki-ár- ásarsamning er tekið dræmt í nöf uðborgum vestrænna ríkja. Banda ríska utanríkisráðuneytið telur til boð þetta ekki fullnægjandi svar við hvatningu Johnsons forseta um að halda áfram í átt til friðar- Frétt aritarar í Moskvu telja að tilboð þetta sé sett fram til að reyna að hafa áhrif á hlutlausu ríkin og auka velvilja í garð Sovétrikj- anna jafnframt því sem það skal skýra nánar túlkun Krústjovs á hugtakinu „friðsamleg sambúð'*. Jafnframt eigi það að binda hend- ur Vesturveldanna ef til átaka kæmi út af Berlín. í London sagði talsmaður brezka utanríkisráðu- neytisins að tilboð þetta virtist helst vera endurtekning á göml- um slagorðum. Fréttamenn 1 Moskvu eru margir þeirra skoðun- ar að Krústjov sé með tilboði þessu að leita sér stuðnings við „sam- búðarlínu" sína. Stjórnarkjör í Sjómanna- félagi Reykjavíkur Kosið verður í Sjómannafélagi Reykjavíkur í dag, Iaugardag frá kl. 10-12 og 2-7 og á morgun, sunnudag, frá kl. 2-8. — Kosningin fer frain í skrifstofu félagsins í Alþýðuhúsinu viff Hverfisgötu. Félagsmenn eru áminntir um að koma og neyta atkvæðisréttar síns. SAS... Framh. af 1 síðu sagði Glöersen, því að menn geta flogið jafn ódýrt með þotum. Það er ekki í fyrsta sinn sem svo er ástatt hjá IATA sem verður 1. apríl, en það mun ekki hafa í för með sér klofning IATA, sagði Glöersen. Við munum sjá til þess. að þróunin fari ekki úr böndum, við munum sjálfir stýra verðþró- uninni, sagði hann. Hin nýju 21- dags fargjöld svokölluð verða svo lág, samkvæmt hinni nýju gjald- skrá, að ekkert flugfélag hefur nokkru sinni boðið jafn lág gjöld. Ennfremur munu hin nýju gjöid giida allt árið- Reiknað er með af hálfu SAS, að farþegaaukning hjá SAS vegna þessa verði allt að 20- 25 %. Að lokum er rétt að benda á að þótt svo mikil óeining sé innan SAS um farmiðaverð, þá náðist fullt samkomulag 15-20% lækkun á vöruflutningaverði. wwwMwiMtwMnwnMMw „Ekkert hægt að segja enn" Reykjavík, 3. jan. GO. Blaðið hafði samband við Jakob Jakobsson fiskifræð- ing í dag. Hann sagðist ekk- ert geta sagt um horfurnar, eins og nú stæðu sakir. — Hátíðisdagarnir nýliðnir og Þorsteinn þorskabítur nýfar- inn út. Spáin væri slæm og óvíst að nokkuð yrði hægt aff segja fyrr en veður batna og hægt verður að leita af sér allan grun. Nokkrir bátar fóru aust- ur í Meðallandsbugt I gær, en lentu þar í slæmu veðri, svo ekki varff af veiði. Flest- ir bátarnir Iágu inni { dag. WWWWWWWMMIWWWMé

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.