Alþýðublaðið - 17.03.1964, Blaðsíða 3
Tyrkjastjórn heimilað að
senda herlið til Kýpur
! Ankara og Nicosla, 16. marz.
(NTB-Reuter).
TYRKNESKA þingið samþykkíi í
dag í einu hl'jóði tillögu um að
gefa ríkisstjórninni fulla og ótak-
markaða heimild til þess að setja
herlið á land á Kýpur, ef nauðsyn
krefur. Var samþykkt þessi gerð
á lokuðum fundi beggja þing-
deilda. Góðar heimildir skýra frá
því að 487 þingmenn hafi greitt
tiliögunni a kvæði, en 4 þingmenn
hafi setið hjá. Sagt er að hinn
mikli einhugur, er varð um til'Iög-
una, sé mjög óvanalegur í stjórn-
málalífi Tyrklands.
Stjórnmálð-
skóli FUJ
NÆSTA erindi, sem flutt
verður á vegum stjórnmála-
skóla FÚJ í Reykjavík og
Hafnarfirði, verður næst kom
andi fhnmtudag, 19. marz
klukkan 8.30 Þá flytur Þor-
steinn Pétursson, skrifstofu-
stjóri erindi um Kommún-
istaflokkinn. Félagar eru
hvattir til að mæta vel og
stundvíslega.
mWWWvmwMMMWMWW
Jarðskjálftar
Framhald af síðu 1G
Þegar blaðið hafði samband við
Veðurstofuna um kl. 7 í kvöld,
höfðu engir jarðskjálftar komið
fram á jarðskjálftamælunum í
Reykjavík eða Akureyri síðan
kippurinn, sem mældist í Reykja-
vík á föstudagskvöld. Á Kirkju-
bæjarklaustri hafði ekki enn ver-
ið lesið af mælinum.
Ismet Inönu forsætisráðherra
Tyrkja mun hafa haldið því fram
á fundinum, að yfirlýsing grísku
stjórnarinnar um að landsetning
tyrkneskra hersveita á Kýpur
myndi þýða styrjöld, leiddi m. a.
til þess að ríkisstjórn Tyrkja teldi
rétt að afla sér heimildar þings-
ins til þess að setja tyrkneskar
hersveitir á land á Kýpur, ef nauð
syn krefði, þrátt fyrir þær alvar-
legu afleiðingar er slíkt gæti haft
fyrir NATO.
Fyrstu 200 kanadisku hermenn-
irnir í friðarher SÞ á Kýpur komu
i kvöld til eyjarinnar. Er senn
von á 800 hermönnum í viðbót. í
Stokkhólmi var í dag tilkynnt að
700 sænskir hermenn myndu halda
til Kýpur og er búizt við að þeir
verði komnir þangað fyrir 10.
apríl. — Brezki samveldisráðherr
ann Duncan Sandys sagði í' neðri
deild þingsins í dag, að brezka
stjórnin væri mjög ánægð yfir
því að tekizt hefði að stofna al-
þjóðlegan friðarher á Kýpur.
3460 manns sóttu
starfsfræðsluna
Reykjavík, 16. marz - GG.
Fleiri sóttu starfsfræðsludaginn,
hinn níunda í röðinni, en nokkru
sinni fyrr sl. sunnudag. Starfs-
fræðsluna sót'u 3460 manns, sem
er 688 fleira en á almenna starfs-
fræðsludeginum í fyrra. Að þessu
sinni voru kynntar nálega 190
starfsgrcinar, skólar, stofnanir og
vinnustaöir, og hefur fræðslan aldr
ei verið eins víðtæk á einum degi
og nú. Starfsgreinarnar, sem nú
voru kynntar, voru 34 fleiri tals-
ins en í fyrra.
í fréttatilkynningu frá forstöðu-
manni starfsfræðsludagsins, Ólafi
Gunnarssyni, segir m. a., að áber-
andi sé, að stúlkur hugsi nú mun
meira um að afla sér ákveðinnar
menntunar en áður var og muni
nú „tæpast vera um það að ræða
að vel greind stúlka hugsi sér
hiónaband sem eina örugga fram-
tíðargrundvöllinn”.
Rannsóknarleiðangur í
umsátri villtra Indíána
Lima, 16. marz (NTB-Reuter). t
Jarðfræðileiðangur sem er við
rannsóknir í Austur-Peru sendi í'
dag út hjálparbeiðni í gegnum loft I
skeytatæki leiðangursins. Er beðið '
um tafarlausa hjálp þar sem leið-'
angurinn hafði orðið fyrir árásum
fjandsamlegra Indíána. Veröi leið-
angursmenn strádrcpnir fljótlega,
ef ekki berst hjálp mjög skjótt,
segir þar.
Leiðangursmenn segja í skcyti
sínu að þeir hafi numiö staðar
vegna liitans. Séu sumir þeirra
komnir á fremstu brún vitfirring-
arinnar. Þúsundir Indíána lialdi
uppi samfelldum ópum inni í
frumskóginum og taki það sann-
arlega á taugarnar. Leiðangurinn
sé kominn á hæð nokkra við Gal-
vez-á og sæki Indíánarnir, er liafi
umkringt þá, hægt fram. Tveir
leiðangursmenn eru látnir og fjór-
ir eru særðir. í leiðangrinum eru
samtals 30 manns og auk þeirra
eru 10 liermenn. Indíánarnir eru
vopnaðir byssum, bogum og örv-
um.
Yfirvöldin sendu í dag vopna'ð
lið frá bænum Reguena til að
leysa umsátrið en vafasamt er að
það komist í tæka tíð. Því hefur
perúiski. flugherinn flogið yfir
hæðardragið og varpað þar niður
vistum jafnframt því sem her-
þotur liafa skotið í frumskógana
kringum hæðina til þess, með því,
að dreifa Indíánunum. Þá reynir
flotabátur nokkur að komast til
hinna innikróuöu eftir Galvez-
ánni. Lögreglan telur að um það
bil 30 Indíánar séu fallnir.
j Þá segir, að ekki hafi enn bor-
| izt skýrslur frá öllum leiðbein-
i endum á starfsfræðsludeginum, en
nokkrar tölur eru þó nefndar, og
verður nokkurra þeirra getið hér.
Fræðslusvningu Landhelgisgæzl-
nnnar sót.tu 1565 og álíka margir
fræðslusýningu Eimskip og SÍS
500 sóttu fræðslusvningu járniðn-
aðarins. sem Vélaverkstæði Sig-
urðar Sveinbjörnssonar og Stál-
vík hf. stóðu fyrir. Fræðsludeild
landbúnaðarins sóttu 600 og 127
kvikmyndasýningar hans.
í flugmáladeildina komu 316
stúlkur og 689 piltar á fyrsta
klukkutimanum. en eftir bað munu
menn hafa gefizt uno við að kasta
tölu á gesti. Tiltöluleea miög fáir
snurðu um Stýrimannaskólann,
eða aðeins 36. en 75 snurðu um
Loftskevtaskólann og um 100 um
Vélskólann. Segir í fréttatilkvnn-
inaunni, að ýmsum hafi brugðið í
brún. er þeir hevrðu, að undir-
búningnr undir nám í beim skóla
tæki fiögur ár í smiðiti. Tiltölu-
lega fáir sDurðu og um iðngreinar,
12 um húsasmíði, 4 múmn. 3 pipu-
löen, 5 málun. 6 vegefóðrun, en
hinsvegar varð tölu ekki komið á
bá. sem sourðu um rafvirkiun. Um
bifreiðavirkjun spurðu 25, 8 um
blíkksmiði, 21 um skósmiði, 11
j ljósmyndun, 13 úr'-miði, 8 hár-1
I skurð og 246 hárgreiðslu, þar af,
6 piltar.
Um hinar ýmsu greinar lang- |
skólanáms spurðu mismunandi
marair, flestir um læknisfræði, 85,
og þá um sálarfræði. guðfræði,
vélaverkfræði tannlækningar og
dýralækningar.
T.istaáliugi beindist nú mest að
leiklist og ræddu 125 við fulltrúa
Leikskóla Þjóðleikhússins. Ekki
eru tök á að rekia hér frekar
greinar þær, sem spurt var um.
Brennd lifandi
í Auschwifz
Frankfurt, 16. marz
(NTB - Reuter).
KONA nokkur var brennd lifandi
í Auschwitz-fangabúðunum eftir
að hún hafði reynt að flýja í SS-
herbúningi, kom fram í réttar-
höldunum yfir stríðsglæpamönn-
um, sem nú fara hér fram. Komu
upplýsingar þessar fram í bréfi
frá öðrum fanga er lifði stríðið af.
Segir fangi sá, frú Mehler, að einn
þeirra, er nú stendur fyrir rétt-
inum, hinn 57 ára gamli Wilhelm
Boger, hafi fyrst óskað þess að
mega hengja fyrrumgetna konu í
gálga en ekkert liafi orðið úr því
og varð það til þess að síðar var
liún brennd lifandi á báli. Hafði
hún þá áður reynt að svipta sig
lífi.
Hinn látni bréfritari segir frá
því, að hún hafi séð hvernig Bog-
er, sá, er nú stendur frammi fyrir
réttinum í Frankfurt, liafi reynt
með ýmiskonar pyndingaraðferð-
um að fá fanga til að játa það, er
á þá var borið. Segir hún ennfrem
ur, að Boger hafi einnig tekið þátt
í aftökum og hafi þá jafnan borið
skammbyssu á sér. Er hann átti
leið um fangabúðirnar sögðu fang-
arnir hver við annan: Þarna fer
dauðinn sjálfur. — Ákæran á
hendur honum fjallar meðal ann-
ars um það, að hann hafi tekið
þátt í fjöldaaftökum, valið fanga
t.il að fara í gasklefana og mis-
þyrmt föngum við yfirheyrslur.
Nýtt tryggingar-
félag stof naö hér
VANDID VALIÐ -VELJIÐ VOLVO
★ Heidelberg: — Sovézk yfirvöld
| hafa tilkynnt Bandaríkjamönnum
að einn flugmannanna á RB-66
i flugvél’inni, er skotin var niður á
| lögunum, liggi í sjúkrahúsi í
| Magdeburg og sé amerískum her-
j lækni heimilt að heimsækja hann.
i Ekki er hann sagður mikiö særð-
! ur. Ekkert liefur verið sagt um
I hina flugmennina tvo.
HINN 22. febrúar s.l. var stofnað
hér í borg „Tryggingafélagið
Heimir h.f.“ Hlutverk þess er að
annast hvers konar trygginga-
starfsemi. Hlutafé er kr. 2.000.-
000,00. Stofnendur eru 54, víðsveg
ar af landinu, aðallega úr hópi út-
gerðarmanna, iðnaðarmanna og
kaupsýslumanna.
Stjórn félagsins skipa: Þórhall-
ur Pálsson, lögfræðingur, Reykja
vík, formaður, Steingrímur Aðal-
steinsson, fulltrúi, Reykjavík. Odd
bergur Eiríksson, skipasmiður,
Ytri-Njarðvíkum, Hulda Sigur-
hjartardóttir, frú, Reykjavík og
Eggert Þorbjarnarson, skrifstofu-
maður, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri félagsins er
Björn Bjartmarz, Reykjavík, áður
fulltrúi í Sjódeild Samvinnutrygg
inga.
Skrifstofa félagsins er að Lind-
argötu 9, hér í borg.
Félagið mun hefja starfsemi sína
í næsta mánuði.
Útrýming fátæktar
Washington, 16. marz
(NTB - Reuter).
JOHNSON forseti sendi í dag
þinginu víðtækt frumvarp um al-
gjöra útrýmingu fátæktarinnar,
eins og það er orðað. Frumvarpið
felur í sér kostnaö er nemur um
það hil 40-50 milljónum ísl. króna.
Stjórnandi þess verður fyrrver-
andi yfirmaður bandarisku friðar-
sveitanna og mágur Kennedy heit
ins forseta, Sargent Shriver.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 17. marz 1964. 3