Alþýðublaðið - 01.12.1964, Síða 6
ÞAÐ er ósennilegt, að menn upplifi nokkurn tíma r,reiki-draum“,
segja vísindamenn við Kaliforníuháskóla, sem undanfarið hafa unnið
á kðnnunurn á svefngöngu.
Þoir hafa lengi haft til athugunar átta menn, sem ganga í svefni,
og þegar menn þessir sofa, hafa verið settir á þá alls konar mælar,
sem gefa eiga merki um breytingar á ástandi heilans í svefni. í öll-
um ti’fellunum gengu mennirnir aðeins í svefni, þegar þeir höfðu
faliið í svokallaðan „djúpan svefn“ eða draumlausan svefn. Hins veg-
ar gengu þeir aldrei, þegar þá dreymdi.
Þetta skyldu glæpasagnahöfundar taka til athugunar.
MONTGOMERY lávarður á í garði sínum í
Hampshire eyprusvið, sem hann annast sér-
lega vel um. Hann klippir tréð þannig til,
að það er í laginu eins og vindill, og hann
í stærra lagi.
— Með þessu móti, segir Monty, —
hef ég alltaf fyrir augunum nokkuð, sem
minnir mig á minn góða vin Sir Winston
Churchiil.
§ Hér sést brezka stórskipið
§§ Queen Mary vera að sigla und
jj ir hina nýju stórbrú Verrazno
| Narrow- brú, sem liggur yfir
H innsiglinguna til New York
1 Að meðtöldum aðkeyrsluleiðum
g er brúin meira en tvær og
1 hálf míla að lengd og hefur
H mesta haf milli stöpla, sem
nokkum tíma hefur verið smíð
að af mönnum. Er hafið 60
fetum lengra en á Golden
Gate-brúnni í San Francisco.
Verrazano - brúin er skýrð
eftir landkönnuði frá Flórens
á Ítalíu, se«i talinn er hafa
fundið staðinn, þar sem New
York stendur nú, árið 1524.
Þegar brúin er fullgerð, verða H
á henni 12 akgreinar á tveim p
hæðum. Kostnaður við bygg- j
ingu brúarinnar er um það bil ||
14.4 milljarða íslenzkra króna, 1
og mun vera sjö sinnum meiri j
en kostnaðurinn við hina nýju H
stórbrú Breta yfir Forthfjörð B
Skotlandi.
- ★ -
IlliilllliilllllllililÉ
ENGLENEHNGUR, sem var á stuttri ferð í New York, fór inn í verzl-
un og bað um litla túbu af tannkremi.
Afgreiðslustúlkan rétti honum túbu, sem merkt var „stór“.
— Ég er hræddur um, að þér hafið misskilið mig, sagði hann.
— Ég bað um litla-
Alveg rétt, svaraði hún. — Þær eru til í þrem stærðum:
„stór , „risastór ‘ og „tröllaukin". Ég lét yður hafa eina litla _
„stóra“.
— ★ —
FRÉTT frá Washington: í yfirfullri lyftu í þinghúsinu rakst maður
á vi'n sinn, öldungadeildarmann, og spurði hann hvernig hann hefði
haft það síðasta árið.
— Bezta ár, sem ég hef upplifað, sagði öldungadeildarmaðurinn,
en kom rétt í því auga á einn af starfsmönnum skattaeftirlitsins og
flýtti sér að bæta við:
— Ja, ég á náttúrlega við andlega, ekki líkamlega, kæri vinur.
-★-
HINN mynduglegi menningarmálaráðherra
Frakka, André Malraux, sem jafnvel de
Gaulle treystist tæplega til að mótmæla,
hélt fyrir skemmstu eins konar fyrirlestur
yfrr ungum starfsmönnum sínum um listina
að skipa fyrir.
— Þegar maður gefur fyrirskipun,
sagði hann meðal annars, — má maður al-
drei gleyma æðstu ánægju Frakka — nefni-
lega ánægjunni af að hlýða ekki.
— ★ —
LUDMILLA Yefremova, helzti tízkuskapari Sovétríkjanna, boðar stór-
fréttir. Hún segir:
—» Árið 1965 verður árið, þegar engin velklædd, rússnesk kona
gengur í ullarsokkum. Og við munum hefja samkeppni við vesturlönd
á alveg nýju sviði: I fyrsta sinn síðan hin sósíalistíska b.vlting varð
munu rússneskir karlmennr sem ganga um götuna, sannfærast um,
að á kvenmannslíkama eru ávalar línur.
— ★ —
HERRA ETCHETO, 28 ára gamall maður með talsvert af bláu blóði
í æðum, var því miður dálítið veikúr fyrir því að fá sér alltaf annan
whiskysjúss á eftir þeim næsta á undan. Þetta hefði svo sem allt
verið í stakasta iagi, ef hann hefði ekki starfað í leyniþjónustu
lands síns.
Dag nokkurt voru yfirmenn hans að ræða um hann:
— Hann kann að visu talsvert fyrir sér, en hann er orðinn
hættuiegur, sagði einn þeirra.
— Hvað áttu við? spurði annar.
— Jú, hann sér fvöfalda njósnara alls staðar. ✓
ÞÓTTUST GETA
LÆKNAÐ KRABBA
STÓRSVIK í sambandi við lyf
hafa nýlega komizt upp í Banda-
ríkjunum. Þrír læknar og einn
lögfræðingur hafa verið kærðir
fyrir svik í sambandi við „töfra-
lyf“, sem átti að geta læknað
krabbamein, en hefur reynzt hafa
engar verkanir, segir í frétt frá
Washington.
Þremenningarnir, sem komu
fram með lyfið Krebiozen, eru sak-
Rafeindaheili í Purdueháskólan
um í Bandaríkjunum er um þess
ar mundir að læra að lesa rit-
hendur: Ilann er afskaplegá sam
vizkusamur, en ekki að sama skapi
heppinn nemandi.
tað gekk ágætlega hjá honum
að Iæra að lesa ritliendur barna,
þar náði hann uppí 93% réttan
lestur. En það gekk verr með
rithendur próíessora. Þar náði
hann ekki nema 86%..... En það
getur svo sem verið, 'að það sé
frekar að kenna prófessorunum
en heilanum..
aðir um að hafa verið jafnvel svo
ósvífnir að hafa lýst því yfir í
einkaleyfisumsókri sinni til heil-
brigðisyfirvaldanna, að lyfið hefði
læknað krabbameinssjúkling — þó
að hann hafi verið dauður í átta
ár.
í öðrum tiifellum lýstu þeir því
yfir, að sjúklingar hefðu læknazt
af krabbameini, þó að þeir hafi
þjáðst af allt öðrum sjúkdómum,
t. d. lungnabólgu. Krebizon-fyrir-
tækinu tókst að senda frá sér rúm
lega 500 vottorð, sem flest voru
fölsuð.
Ákæruvaldið telur svikin því
viðbjóðslegri sem þau gáfu ýmsu
sjúku fólki falskar vonir, auk þess
að blekkja hið opinbera. Hin efna
hagslega hlið svikanna er ekki
hvað rninnst athyglisverð.
Kostnaðurinn við að finna
„undralyfið" var talinn 7.2 millj-
ónir króna á gram, en var raun-
verulega 12 krónur á gram. Fyrir
j ucan fyrírtækið sjálft, Krebiozen
I Foundation, eru hinir ákærðu
i stofnandi fyrirtækisins dr. Stevan
FRÁ Kaupmannahöfn berast þær fréttir, að hugur sé
H mikill í kaupmönnum að selja fyrir jólin og skreytingar all-
B ar komnar upp. Það er víðar hugur í kaupmönnum og hér
1 sjást fyrstu skreytingarnar í Regent Street í London, risa-
j stór hreindýr með kerti ofan á.
Durovic, bróðir hans Marco, sem
er lögfræðingur, dr. Andrew C.
Ivy og dr. William Phillips. Duro-
vic bræðurnir eru fæddir í Júgó-
slavíu, en liafa búið í mörg ár í
Bandaríkjunum. Dr. Ivy, sem er
71 árs gamall, var árum saman
þekktur vísindamaður og dósent,
og var um skeið vara-rektor ríkis-
háskólans í Illinois.
I
Q 1. des. 1964 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ