Alþýðublaðið - 01.12.1964, Qupperneq 10
HROSSASMÖLUN
Öllum hrossum í heimalandi Vatnsleysustrandarhrepps,
sem ekki eru í gripheldum girðingum, verður smalað
laugardaginn 5. des. 1964 og þeim réttað sama dag kl.
13,00 í skilrétt hreppsins.
Sannanlegir eigendur skulu taka hross sín í sina vörslu
og halda þeim í gripheldum girðingum framvegis, samkv.
3. málsgr. 25. gr. lögreglusamþykktar Gullbringusýslu
14. júlí 1943.
Ómerkt hross, sem sannanlegur eigandi finnst ekki að,
verða seld á staðnum.
Oddvitinn í Vatnsleysustrandarhreppi.
Höfum flutt alla starfsemi vora á Suður-
landsbraut 14 og hið nýja símanúmer
er 38600
Bifreiðar og
landbúnaðarvélar h.f.
\ Suðurlandsbraut 14. — Sími 38600.
'i\
íslenzku spilin í ekta skinnhulstri eru tilvalin jóla-
gjöf til vina yðar innlendra sem erlendra. Mannspilin
bera myndir íslenzkra fornmanna og fylgir skýringa-
pési á ensku, þar sem greint er frá hverri sögupersónu
á skílmerkilegan hátt.
Fást í bóka- & ritfangaverziunum,
minjagripaverzlunum og víðar.
Magnús Kjaran
Hafnarstræti 5. — Sími 24140.
J • •
KÖRFUBOLTI
Framh. af 11. síðu.
til árs. Til samanburðar skal samt
getið, að írar og Skotar eru lík-
lega svipaðir að styrkleik, en Skot-
ar sigruðu íslendinga 1962 í lands
leik í Edinborg með 53-48. Óefað
verður leikurinn næstk. laugardag
spennandi og skemmtilegur. Þess
má geta, að þetta er fyrsti leikur-
inn milli íslenzks og erlends liðs
sem fram fer á löglegum velli á
íslandi (ef frá eru taldir leikir
milli íslendinga og varnarliðsm.
á Keflavíkurflugvelli) og markar
hann því tímamót. Fólk er því
hvatt til að fjölmenna i íþrótta-
húsið á Keflavikurflugvelli næstk.
laugardag, 5. desember og sjá
spennandi og skemmtilegan leik.
Ársbing KSÍ
Framh. af bls. 11.
þættu störf sambandsins á árinu.
Reikningarnir báru með sér, að
fjárgæzla öll og fjárhagsleg af-
koma sambandsins hefur aldrei
verið betri en nú.
Umræður um skýrslur og reikn-
inga urðu almennar og létu ræðu
menn í ljós mikla ánægju með
störf sambandsstjórnarinnar.
Fyrir þinginu lágu margar til-
lögur. m. a. um fjölgun liða í
I. deild. Var samþykkt að fela
sambandsstjórninni að skipa milli
þinganefnd í það mál. Þá var sam
þykkt tillaga um skipan fulltrúa-
ráðs KSÍ. Ennfremur að stjórn-
in ynni að því að koma upp æf-
ingabúðum fyrir knattspyrnu-
menn.
Björgvin Schram var endurkjör-
inn formaður sambandsins ein-
róma og' með dynjandi lpfataki.
Er þetta í 10. sinn sem Björgvin
er kjörinn í þessa ábyrgðarmiklu
stöðu. Guðm. Sveinbjörnsson á-
varpaði Björgvin að kosningu lok-
inni í nafni þingheims og knatt-
spyrnumanna almennt í tilefni
þessara merku tímamóta í starfs-
sögu hans fyrir knattspyrnuíþrótt
ina, þar sem hann þakkaði áratugs
forystu hans og örugga hand-
leiðslu á málefnum knattspyrnu-
WELDWOOD
TRÉLÍM
LUDVIG
STÓRR
Sími
1-33-33
íþróttarinnar í landinu. Tóku þing ,
fulltrúarnir undir þetta með marg j
földu húrrahrópi.
Úr stjórninni áttu að ganga
Ragnar Lárusson, Sveinn Zoega
og Axel Einarsson, voru þeir allir
endurkjörnir í einu hljóði. Auk
áðurnefndra eiga Jón Magnússon
og Guðmundur Sveinbjörnsson
sæti í stjórninni.
Ársþing FRÍ
Framh. af 11. síðu.
annars þreyta keppni við lið fjög-
urra þjóða, við Vestur-Noreg, —
Danmörku og Spán í þriggja landa
keppni og loks landskeppni karla
og kvenna í Skotlandi. Það verður
í fyrsta sinn, sem íslenzkt kven-
fólk tekur þátt í landskeppni í
frjálsíþróttum.
Fjárhagur FRÍ er erfiður, en þó
sýndu reikningarnir 30 þús. króna
reksturshagnað á árinu.
Stjórn sambandsins var endur-
kjörin, en hana skipa: Ingi Þor-
steinsson formaður, Þorbjörn
Pétursson, Björn Vilmundarson,
Svavar Markússon, Jón M. Guð-
mundsson, Höskuldur Goði Karls-
son, sem jafnframt er formaður
útbreiðslunefndar — og Örn
Eiðsson, sem jafnframt er for-
maður laganefndar. — Varamenn
eru Sigurður Júlíusson, Hafsteinn
Þorvaldsson og Lárus Halldórs-
son.
Við munum ræða nánar um þing
FRÍ síðai'.
Aðsfoðarlæknisstaða
við sjúkrahús Vestmannaeyja er laust til umsóknar frá
næstu áramótum. Laun samkvæmt launalögum. Jafn-
framt er ætlast til að viðkomandi læknir v.erði sjúkra-
samlagslæknir. Lækningastofa og húsnæði er fyrir hendi.
Umsóknir óskast fyrir 20. desember. Upplýsingar gefur
bæjarstjórinn, Vestmannaeyjum.
Flugfreyjur
Loftleiðir óska að ráða flugfreyjur til starfa frá og með
vori komanda.
Umsækjendur séu ekki yngri en 20 ára. Góð almenn
menntun svo og staðgóð kunnátta í ensku og einhverju
Norðurlandamálanna er lágmarksskilyrði, en æskilegast
að umsækjendur talh að auki annað hvort frönsku eða
þýzku.
Gert er ráð fyrir að þriggja til fjögurra vikna undir-
búningsnámskeið hefjist í byrjun janúar næsta ár.
Umsóknareyðublöð fást í skrifstofum félagsins Lækjar-
götu 2 og Reykjavíkurflugvelli, svo og hjá umboðsmönn-
um félagsins út um land. Umsóknir skulu hafa borizt
ráðingardeild Loftleiða fyrir 20. desember n.k.
10 1- des. 1964 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ