Alþýðublaðið - 29.12.1964, Page 1

Alþýðublaðið - 29.12.1964, Page 1
[§[j£ílul> 44. árg. — Þriðjudagur 29. desember 1964 — 287- tbl. Hundruð bíla sátu fastir á leiöinni milli Reykjavíkur og- Hafnarfjarðar í hríðinni í gær. Þessa mynd tók ljós- myndari Alþýðublaðsins, Jó- hann Vilberg á Arnarness- hálsi í gærkvöldi, en þar var ástandið hvað verst. Kafnaði um borð Reykjavík, 28. des. — ÓTJ. MAÐUR BEIÐ BANA er eldur kom upp í vélbátnum Páli Páls- syni GK 360, þar sem hann lá við ÓFÆRT MILLI HAFNAR- Reykjavík, 28. desember. SÍÖDEGIS í DAG var iiríð um allt Vesturland og með suðurströnd- inni austur að Fagurhólsmýri. Miklar umferðartruflanir urðu á göt- um Reykjavíkur og milli Reykjavíkur og Hafnarfjarðar varð ófært með öllu, er líða tók á daginn. Seint í kvöld mátti heita að illfærar væru flestar leiðir frá Reykjavík. Djáp lægð var vest-suð-vestur af Reykjanesi um miðjan daginn, og gerðu veðurfræðingar ráð fyr- ir, að hún mundi fara austur með suðurströndinni í nótt. Vindur ivar aust-norð-austlægur með snjó- komu um allt land. Er blaðið hafði samband við vegaeftirlit Vegamálastjómarinn- ar var færð þegar tekin að versna hér á Suðurlandi. Talsverður laus snjór var fyrir á vegum á Snæ- fellsnesi, og má því búast við, að vegir þar hafi oröiö ófærir, þegar hvessti. Á Hellisheiði var blindbylur og einnig í Hvalfirðl og Mosfellssveit og talið, að allár þessar leiðir yrðu ófærar í nótt. í Reykjavík urðu miklar um- ferðatrnflanir vegna snjókomu og skafrennings. Víða í úthverfum stóðu bílar fastir hér og þar og ferðir strætisvagnanna fóru úr skorðum. Leiðin milli Reykjavíkur og Hafnarfjarðar tepptist með öllu nm fimm leytið og þegar þetta er ritað hafði enn ekki tekizt að opna haúa. Vegheflar HAB Á ÞORLÁKSMESSU var dreg-. ið í Happdrætti Alþýðublaðsins um tvo bíla, Rambler fólksbifreið og Landrover bifreið. Enn er ó- komið uppgjör frá nokkrum stöðum utan af landi og verð* vinningsnúmerin því ekki birt Rafmagnslaust varð £ Hafnar- Framhald á 4. síðu fyrr en 3. janúar. IWMMWMVWVWMWWMMMWWUWWV WWtWHWWWWMWWWWWWWVMMI 4 ÁÆTLUNARBfLAR TEPPTIR I SJÖ TÍMA voru þegar sendir á vettvang, en svo margir bílar sátu fastir á leið inni, að heflarnir gátu lítið sem ekkert aðhafzt. firði um klukkan hálf sjö í kvöld og ekki vitað, hvað biluninni olli. Rafmagnið kom aftur um klukkan hálf átta og hefur Hafnarfjörður Framhald á 4. síðu af reyk í báfi Grandagarði. Slysið varð snemma á aðfangadag jóla. Slökkviliðið var kvatt á vett- vang kl. 6 um morguninn, en þeg- ar það kom að, var eldurinn svo mikill, og reykurinn, að ekki var hægt að freista niðurgöngu lengi vel, og heil klukkustund leið, þar til niðurlögum eldsins var að fully ráðið. Þegar slökkviliðsmenn. loks gátu komizt niður í bátinn, fundu þeir Kristófer Kriátjánsson, (42 ára, til heimilis að Grettis- götu 64) í einni kojunni, og var þá ekkert lífsmark með lionum. —• Hann var hið bráðasta fluttur £ Slysavarðstofuna, en er þangaS kom, var staðfest, að hann værl lát'nn. Hafði hann kafnað af reyk. Miklar skemmdir urðu á bátnura, en um eldsupptök er ókunnugt. Kristján var ókvæntur maður. Vísitðlan hækkaði um 1 stig í nóv. Kauplagsnefnd liefur reiknað vísitölu framfærslukostnaðar I byrjun desember 1964, og reynd- ist hún vera 165 stig eða einu stigi hærri en í nóvember. Samkvæmt bráðabirgðatölum frá Hagstofu íslands hefur vöruskipta jöfnuðurinn fyrstu 11 mánuði árs- ins verið óhagstæður um 46? milljónir króna, en var á sama tíma í fyrra óhagstæður um 525 milljónir króna. í nóvembermán- uði voru fluttar út vörur fyrir 508 milljónir en inn fyrir 3Ö1 milljón króna. SÍÐUSTU FRÉTTIR: KLUKKAN EITT I NOTT tókst að ryðja Ieiðina mUli Hafnar- fjarðar og Reykjavíkur á Arnarnesliæðinni og var bílum hleypt þar í gegn til að byrja með í einstefnu, ým'ist til Hafnarfjarðar eða Reykjavíkur. Vonir standa til að takast muni að halda leiðinni opinni og greiðfærri eftir að versti umferðarhnúturinn er leystur. Reykjavík, 28. des. LÖGREGLAN í Hafnarfirði átti heldur betur annríkt í kvöld. Númer stöðvarinnar var á tali stanzlaust í tvær klukku- stundir er viö reyndum að ná við þá sambandi. Gizkað er á, að hátt á ann- að hundrað bílar hafi setið fastir á leiðinni milli Reykja- víkur og Hafnarfjarðar í kvöld, þegar ástandið var hvað verst. Meðal þeirra voru fjórir á- ætlunarbílar fullir af farþeg- um. Tveir þeirra voru frá Steindóri, R-1482 og 1483 og lögðu þeir af stað tU Keflavík- ur klukkan 5 í dag. Hinir 2» voru áætlunarbílar á leið frá Keflavík, Ö-104 og Ö-106. Hjálparsveitir skáta í Reykja vík og Hafnarfirði gerðu út leiðangra fólkinu til aðstoðar og höfðu meðferðis teppi, mat- föng og annan varning. Stöð- ugt var unnið að því að reyna að losa áætlunarbUana, en sóttist erfiðlega, sérstaklega vegna smærri bíla, sem tepptu leiðina aftur og aftur. Það var ekki fyrr en laust fyrir mið- nætti, sem tókst að losa áætl- unarbUana og voru þeir á leið tU Reykjavfkur síðast þegar til fréttist. Þegar blaðið fór í prentun var enn iðulaus stórhríð og mikill fjöldi bifreiða tepptur milli Reykjavíkur og Hafnar- fjarðar. Verst var ástandið á Arnarnesshálsi. Unnið var stöðugt að því að opna leið- ina og aðstoða þá, sem teppt- ir voru. tWWWWVMMWWVMWWMMVtVMMlMMV

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.