Brautin - 01.04.1962, Page 1

Brautin - 01.04.1962, Page 1
BRAUTIN FÉLAGSRIT BINDINDISFÉLAGS ÖKUMANNA 1. APRÍL 1962 . 1. ÁRGANGUR BREYTIN G ÁBLADAÚTGÁFU Kœri félagi. Við látum hér með fylgja nokkur orð til þín með fyrsta tölublaði ,,Brautarinnar“. Véra má, að þér bregði í brún, er þú sérð, bve lítið í sniðunum þetta nýfa rit Bindindis- félags ökumanna er og finnist, að við séum að setja niður, bvað blaða- kost félagsins áhrœrir. Við teljum þó ekki að svo sé - síður en svo. Tímaritið Umferð hcettir ekki að vera til. Það mun koma út framveg- is, en fyrst um sinn a. m. k. aðeins einu sinni á ári, í desember. Mun verða vandað til þess blaðs svo sem kostur er á. Það er tvímcelalaust nauðsynlegt fyrir Bindindisfélag ökumanna að gefa út félagsrit sem um leið sé helzt umferðarmálarit. Og það er líka nauðsynlegt, að dálítið f jör sé í þessari útgáfu, þ. e. að ritið komi út oftar en einu sinni til tvisvar á ári, og ennfremur, að útgáfan sé nokk- urnveginn regluleg. Svo hefur ekki verið með Umferð undanfarið, því miður. Blaðið kom út þrisvar árið 1958, jafn oft árið /959, aðeins einu sinni árið 1960, tvisvar í fyrra og á þessu ári hefur það enn ekki látið sjá sig. Etz nú spyrjið þið ef til vill: Því þá ekki að gefa Umferð út oft- ar - og reglulega? Svarið er ein- faldlega þetta: Sökum almennra anna á aðalskrifstofu félagsins - en þar er ekki fullt af starfsfólki til að sitja auðum höndum - hefur ekki unnizt tími til að koma útgáfu Um- BRAUTIN 1

x

Brautin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Brautin
https://timarit.is/publication/233

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.