Brautin - 01.04.1962, Blaðsíða 5
c ~\
FÉLAGSMÁL
V______________________________)
Húsnæði aðalskrifstofu
Mikil breyting er nú enn að verða á hús-
næðismálum félagsins. Eins og kunnugt er,
fékk BFÖ allgóða aðstöðu til starfa í hús-
næði Ábyrgðar hf. að Laugavegi 133 strax
og það félag opnaði skrifstofur sínar. Enda
þótt þetta væri stórkostleg breyting til bóta
frá því, sem áður var, var þó sýnt, að fyrir-
komulag þetta gat aðcins staðist til bráða-
byrgða. Athafnapláss ckki til frambúðar og
skrifstofa BFÖ einnig nýtt af tryggingafé-
laginu.
Nú hefur Ábyrgð tckið á leigu alla 2.
hæð húss þess, sem hún til þessa hefur leigt
í á 3. hæð. Vcrður því mikil aukning á at-
hafnaplássi. Bindindisfélag ökumanna fær
nú stórt forstofuherbergi alveg fyrir sig með
mjög hagstæðum kjörum. Er herbergi þetta
svo rúmgott, að ekki verður annað séð en
að það muni duga BFÖ í náinni framtíð.
Geymslupláss ágætt, hægt að halda þar
allstóra fundi, sýna kvikmyndir nokkrum
hóp manna ef vill og fleira. Að auki er
flutningur beggja félaganna af 3. hæð á 2.
hæð út af fyrir sig mikil cndurbót.
Húsnæðismál BFÖ hafa undanfarin ár
verið hálfgerð hrakningasaga. Eru nú horf-
ur á, að henni sé að ljúka og félagið að
komast í góða höfn að þessu leyti. Með því
er mikið fengið, því góð vinnuskilyrði skapa
léttari vinnu, aukinn áhuga, meiri afköst.
Okkur mun heldur ekki af veita nú, því að
ýmislegt er að hlaupa af stokkunum hjá
okkur sem krefst mikillar fyrirhafnar og
bættrar aðstöðu á ýmsum sviðum. Þrátt fyr-
ir nokkur áföll, sem félagið hefur fengið,
einkum vegna þcss, að sum sæti voru ekki
nógu vel skipuð, er skútan enn ofansjávar
og siglir nú hraðbyri. En við höfum ekki
alltaf verið í sléttum sjó og verðum það
sjálfsagt heldur ekki framvegis. Það er líka
hlutur, sem við hvorki kærum okkur um né
höfum búizt við. Góð áhöfn bjargar öllu.
Staðsctning skrifstofunnar í bænum er
ákjósanleg.
Vegaþjónusta
Sambandsstjórn Bindindisfélags ökumanna
hefur undanfarið haft til athugunar mögu-
leika á að hefja vcgaþjónustu í líkingu við
það, sem verið hefur hjá FIB undanfarin ár.
Er nú svo komið, að ákveðið hefur verið að
hefja starf þetta á sumri komandi. Er gcrt
ráð fyrir, að þrír viðgerðarbílar gcti verið á
vegum úti allt að 14 dögum yfir sumarið.
Vcrði þeir greinilega merktir, með skilti á
toppi, þannig: Vcgaþjónusta BFÖ. Stjórn
Ábyrgðar hf. hefur boðizt til að leggja fram
all myndarlegan styrk til starfseminnar. Er
þctta tryggingafélaginu til mikils sóma og
spursmál, hvort þcssi starfsemi hefði getað
hafizt svo fljótt án þessarar hjálpar.
í starfsemi BFÖ er þctta nýjung og hún
mcrk. Enda þótt annað félag hafi unnið á-
gætt starf á þcssu sviði undanfarið, má efa-
laust við bæta og auka í þessa þjónustir
áður en hún nær fullum tilgangi. Og það
gerir hún raunar heldur ekki mjð þessu.
Hér er aðeins um viðbót að ræða við þaðr
sem áður hefur verið.
í sambandi við þetta mál þarf scnn að>
fara að tryggja sér bíla og viðgerðamenn.
Eru félagar, sem til greina geta komið, og
myndu vilja vinna fyrir okkur í sumar,
bcðnir að gefa sig fram við aðalskrifstofuna
hið fyrsta. Síminn cr 17947.
Einhverjir munu sjálfsagt spyrja scm svo,
hvort ekki væri hcppilegt að BFÖ hefði
nokkra samvinnu við FIB um þcssi mál -
og víst má ímynda sér að svo gæti orðið.
Félögin bæði vinna að umferðarmálum.
BFÖ er byggt upp, svo sem er mcð bræðra-
BRAUTIN
5