Brautin - 01.04.1962, Blaðsíða 3
„Promille"-ákvæðin
Það dregur ekki úr drykkjuakstr-
inum. Fimm ökumenn teknir við
stýrið undir áhrifum áfengis eina
vikuna. Tiu þá næstu. Það sýnir al-
veg örugglega, að hér sé ekki um af-
brot að ræða, sem menn óttist svo
mjög að drýgja.
Færast ökubytturnar í aukana,
vex drykkjuskapurinn meira en
svarar aukningu ökumanna. Ég veit
þetta ekki, enda ekki kannske aðal-
atriðið hér. Þó að ökubyttum fjölgi
kannske ekki hlutfallslega, fjölgar
þeim þó, sem þetta afbrot drýgja,
þar eð fjöldi ökumanna fer hrað-
vaxandi. Og því fleiri bílar í um-
ferð, því hættulegri er drykkjuakst-
urinn eins og gefur að skilja. Hitt er
aðalatriðið, að afbrot þetta skuli
vera það léttvægt í augum öku-
manna, að heilir hópar séu staðnir
að því á einum eða tveim dögum.
Og eitt er líka víst: drykkjuakstur-
inn er of mikill á meðan hann yfir-
leitt hendir nokkurn mann.
Það er sýnilegt, að hér verður að
taka ákveðnar á hlutunum framveg-
is en verið hefur til þess. Skilorðs-
bundinn dómur má ekki eiga sér
stað. Það verður að beita stórsekt-
um, jafnvel ofan á varðhaldsdóm.
Tímabil ökuleyfissviftingar verður
að lengja. Mönnum verður að skilj-
ast, að á þá, sem þetta afbrot
drýgja, sé litið sem óbreytta afbrota-
menn og annað ekki, því annað eru
þeir ekki. Það er engin ástæða til að
taka á þessum mönnum með siiki-
hönzkunum og ökumönnum verður
að vera ljóst, að það sé ekki gert.
Að auki verður að stórauka opin-
beran áróður gegn þessu afbroti þar
til fólki skilst, hvað við liggur að
aka undir áhrifum áfengis.
Blöðin hafa hér til farið með þetta
afbrot sem hálfgerð feimnismál og
það er ekki von á góðu á meðan svo
er. Fólki hefur ekki verið gert ljóst
hvernig áfengið verkar á hæfni öku-
manns og lítið um áhrif þess yfir-
leitt. Menn eru almennt ófróðir á
þessu sviði. Það þyrfti að gefa út
smábækling um þessi atriði, og sem
menn væru skildir að kynna sér und-
ir ökupróf. Hér er verkefni fyrir
Bindindisfélag ökumanna.
Að auki er nauðsynlegt að taka
það til endurskoðunar, hvort ekki er
þörf á að lækka ,,promille“-ákvæðin
og fella burt efri mörkin. Við eigum
ekki að vera að dragast með þau
frekar en aðrar Norðurlandaþjóðir.
Þau eiga ekki rétt á sér frekar en
hjá þeim þjóðum sem bezt hafa rann-
sakað þessi mál.
Nýjustu vísindalegar rannsóknir
hafa sýnt að 0,5 mörkin eru of há í
mörgum tilfellum, ekki sízt er tekið
er tillit til „öryggismarka“ við blóð-
prufuna, 0,15-0,20 promille. Það er
BRAUTIN
3