BFÖ-blaðið - 01.01.1979, Side 1
Félagsrit Bindindisfélags Ökumanna
VIÐTAL VID ÓLA H. ÞÓRÐARSON
FRAMKVÆMDASTJÓRA UMFERÐARRÁÐS
Um mitt sl. ár tók nýr framkvæmda-
stjóri við starfi hjá Umferðarráði.
Okkur datt í hug að taka hann tali
og forvitnast eilítið um starfsemi
ráðsins og hvað þar er efst á baugi
um þessar mundir.
En fyrst, óli, hvernig kanntu við
þig í þessu starfi?
"Nú, að þessum fyrstu kynnum mínum
af starfinu verð ég að segja að ég
kann að mörgu leyti ágætlega við
mig. Hér er við margvísleg verkefni
að fást og svo sannarlega nóg að
gera. Stundum svo margt að mér finnst
ég ekkert gera af viti."
Geturðu skýrt frá, í stuttu máli,
hvert verksvið Umferðarráðs er?
"Já, það er auðvelt og þarf ekki
annað en vitna beint í 84. grein
umferðarlaganna til að fá það svart
á hvítu. ÞÚ gætir nú hreinlega birt
þá grein orðrétta, til að ekkert
fari milli mála, en þar stendur að
hlutverk Umferðarráðs sé:
1. Að beita sér fyrir því, að haldið
sé uppi umferðarfræðslu í landinu.
2. Að vera fræðsluyfirvöldum, umferðar-
nefndum sveitarfélaga og samtökum,
er vinna að bættri umferðarmenn-
ingu til hjálpar og ráðuneytis,
eftir því sem óskað er og aðstæður
leyfa.
3. Að standa fyrir útgáfu fræðslurita
og bæklinga um umferðarmál og hafa
milligöngu um útvegun kennslutækja
og annarra gagna til nota við
fræðslustarfsemi.
4. Að hafa milligöngu um xamferðar-
fræðslu í RÍkisútvarpi (hljóðvarpi
og sjónvarpi) og öðrum fjölmiðlunar-
tækjum.
5. Að beita sér fyrir bættum umferðar-
háttum.
6. Að sjá um, að á hverjum tíma sé til
vitneskja um fjölda, tegund og or-
sakir umferðarslysa í landinu.
Umferðarráði ber að hafa samvinnu við
fræðsluyfirvöld, lögregluyfirvöld,
umferðaryfirvöld sveitarfélaga, Slysa-
varnafélag íslands, samtök bifreiðaeig-
enda og bifreiðastjóra, vátrygginga-
félög, svo og önnur félög og stofnanir,
sem fjalla um umferðarmál í landinu og
láta sig umferðaröryggi skipta.
NÚ, inni í þessum stóra verksviðsramma
hringlum við svo hér örfáar hræður og
reynum að gera eftir bestu getu það,
sem í okkar valdi stendur til að láta
eitthvað sæmilegt af okkur leiða, en
hér er nú einum starfsmanni færra, en
verið hefur, upplýsingafulltrúi er nú
ekki til staðar."
NÚ hafið þið útnefnt "ökumann ársins
1978", hvað vilt þú segja um þann þátt
í starfi ykkar?
"Þetta meginatriði, sem lögð var áhersla
á í keppninni, mikilvægi gagnkvæmrar
tillitssemi í umferðinni, held ég að
hafi að mörgu leyti skilað sér. Ég var
satta að segja búinn að ganga með hug-
mynd áþekka þessari í mörg ár og þar af
leiðandi löngu áður en ég hóf þetta
starf hér.