BFÖ-blaðið - 01.01.1980, Blaðsíða 2

BFÖ-blaðið - 01.01.1980, Blaðsíða 2
ÖKULEIKNI 1979~Úrslitakeppni í Englandi ÁRNI ÓL! FRIÐRIKSSON, sigurvegari á Islandi, varð í ööru sœti! Þeir Árni óli Friðriksson, sem hafði orðið í fyrsta sæti og Guð- mundur Salómonsson, sem hafði orðið í öðru sæti hér heima, unnu sér rétt til að keppa við jafnaldra sína frá Noregi, Svíþjóð og Finn- landi. Keppnin fór fram á vegum Vauxhall bílaverksmiðjanna í Luton i Englandi. Flogið var til London seinni part laugardags 10. nóvember. Þann dag var ekki annað gert en að finna hótelið og fá þar inni. Þennan sama dag komu Svíarnir sem voru á sama hóteli og við og Finnarnir sem voru annars staðar. Norðmennirnir komu svo daginn eftir. Sunnudagur 11. Þann dag var frí og og var hann notaður til að líta aðeins á mannlífið í næsta nágrenni m.a. götumarkað og ræðimenn á Spikers Corner sem var skammt frá hótelinu. Mánudaginn kl. 9 var kynning á dagskrá vikunnar og þátttakendum. Þar á eftir var farið í rútuferð með fararstjóra um London og endað við vaxmyndasafn Madame Tusseauds, sem var skoðað. Að því loknu var frí. Þriðjudagur 13. Allir voru komnir í an- dyri hótelsins kl. 8.30 því farið skyldi að skoða Woborn Animal Kingdom sem er dýragarður þar sem dýrin eru laus en gesturinn í búri (bíl) sem ekið er um garðinn. Ekki kom rútan þó fyrr en kl. 9.30 vegna mismunar í dagskrá, tíminn var því notaður til að skoða mjög öflug- an lögregluvörð sem var um hótelið því einn af foringjum deiluaðila i Rodesiu var þar. Þegar rútan kom, var ekið í dýragarðinn sem er norður af London. Þar á eftir var farið til Luton þar sem Vauxhall verksmiðjurnar eru, þar borðuðum við hádegismat í boði GM. Að því loknu skoðuðum við bílaverksmiðjuna og sáum bíla á öllum stigum framleiðslunnar. Einnig voru okkur sýndir gamlir bílar í eigu Vauxhall. Um kvöldið var svo farið í boði Vauxhall á stað sem heitir "The Talk óf the Town". Þar var fram- reiddur matur og á sviði var skrautleg kabarettsýning. Seinna um kvöldið komu síðan fram hjón og sungu. Voru við- staddir mjög ánægðir með það sem fram fór þó sérstaklega sönginn. BROSHÝR ‘5ILF~L)fíV£.RÐLAUMF\UAFI Miðvikudagur, nú var runnin upp sá dagur sem flestir ef ekki allir höfðu beðið eftir. Það er dagurinn sem skyldi keppt. Við fórum með sömu rútu og daginn áður, var nú ferðinni heitið til Millbrook þar sem GM er með tilraunabraut fyrir bíla. Fyrst var ekið um svæðið og það skoðað og síðan endað þar sem keppnin skyldi vera. Var straks hafist handa við undir- búning keppenda en keppnisbrautir sem voru tvær voru tilbúnar. Eftir mat sem étinn var á staðnum hófst keppnin, sem er í þvi fólgin að fara ákveðna braut á sem skemmstum tíma og gera sem fæstar villur. Veður á keppnisstað var súld og fremur kalt, þannig að brautin var nokkuð hál. Eftir fyrstu umferðina hafði Mats Ivars- son frá Svíþjóð sem var fyrstur 398 stig en Árni Óli 399 stig og Stig Aa frá Noregi 452 stig. Var því ljóst að hart yrði barist um fyrstu sætin ef ekkert óvænt gerðist. Árni var fyrstur í seinni umferð og eftir að stigin hans höfðu ver- ið reiknuð út sást að hann hafði bætt sig Jókst nú spennan og biðu allir spenntir eftir að Mats færi brautina. Þegar að því kom fylgdust allir spenntir með. Honum virtist ganga allt í mót og var auðséð að hann myndi fá mun lakari tíma. Töldu nú margir að Árni væri búinn að sigra. Um leið og Mats var í brautinni hafði Stig verið á hinni brautinni og náði hann það góðum árangri að það nægði honum til sigurs og urðu endanleg stig þannig: Stig Aa frá Noregi 758 no 1, no 2 Árni Óli Friðriksson, íslandi 733 stig, Leif Hagelstam, Finnlandi no 3

x

BFÖ-blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: BFÖ-blaðið
https://timarit.is/publication/234

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.