BFÖ-blaðið - 01.01.1980, Qupperneq 4

BFÖ-blaðið - 01.01.1980, Qupperneq 4
TfRÁ S-KRlF«rOFOMAU - FRAimHAiIdT i iii 1-1. ■» NÚ er ungmennadeild FBÖ að fara af stað eins og fyrr er greint. Mörg og stór verkefni bíða hinnar nýju ungmennadeild- ar. Má þar nefna vélhjólakeppnir, mögu- leika á að fá inni með efni í Barnablað- inu Æskunni og að koma upp æfingasvæði fyrir vélhjól þar sem aðstaða geti verið fyrir unglinga með hjól sin og e.t.v. fræðslumiðstöð. Þetta er stórt og mikið verkefni og verður unnið að því á næst- unni að fá hjá yfirvöldum svæði, þar sem hægt er að koma þessari aðstöðu upp. E.G. ÁRSÞING BFÖ. Hinn 10. nóvember s.l. var 11. sambands- þing BFÖ haldið að Hótel Esju. Voru þar mættir fulltrúar flestra deilda félagsins stjórn, ásamt öðrum félögum sem boðaðir höfðu verið sérstaklega á þingið. Fyrrverandi forseti félagsins Sveinn H. Skúlason setti þingið og flutti skýrslu sína fyrir síðasta kjörtímabil. Kynntir voru reikningar félagsins og tvær laga- breytingar voru bornar fram. Önnur varð- andi boðun til sambandsþings og hin varð- andi nýja deild innan BFÖ, ungmennadeild- ina. Voru báðar tillögurnar samþykktar samhljóða. Á þinginu var vmgmennadeild- in formlega stofnuð og gengið frá lögum fyrir hana. Allsherjarnefnd bar fram 7 þingsályktunartillögur og voru þær allar saraþykktar og hafa þær verið send- ar til viðkomandi aðila. Ennfremur var áttunda þingsályktunartillagan borin fram og. var hún einnig samþykkt sam- hljóða. Var hún borin fram af félags- mönnum BFÖ. Kosning nýrrar stjórnar fór fram og eru eftirtaldir aðilar nú í stjórn: Gunnar Þorláksson,forseti, Haukur ísfeld, Kristinn Breiðfjörð, Sigurður R. JÓnmundsson, Björn Kristjánsson, Hákon H. Kristjónsson, Jóhann E. Björnsson, Jóhann Ö. Bogason og Leifur Halldórsson. Varastjórn: Reynir Sveinsson, Sveinn H. Skúlason, Vigfús Hjartarson. Einnig var kosin stjórn nýrrar ungmenna- deildar: Jóhann Halldórsson, formaður, Gestur Pétursson og Steinar B. Sigvaldason. Félagsgjöld fyrir næsta ár voru ákveðin á þinginu og munu þau verða 4.000.- kr. Að lokum var gerð stutt grein fyrir undir- búningsstörfum BFÖ-UD og fyrsta verkefni ungmennadeildarinnar, en það er hækkun aldurstakmarks léttra bifhjóla úr 15 og í 16 ár og samræming laga og reglna fyrir tveggja hjóla farartæki á Norðurlöndum. Að lokum sagði hinn nýkjörni forseti þing- fundi slitið. E.G. NÝR F RAMKVÆMNDARS TJÓRI BFÖ í lok síðasta árs sagði Sigurður RÚnar Jónmundsson starfi sínu lausu sem fram- kv.stjóri BFÖ og Einar Guðmundsson, kenn- ari, ráðinn í hans stað. Um leið og við bjóðum Einar velkominn til starfs vill ritnefndin þakka Sigurði fyrir sérstaklega ánægjulegt samstarf. Ritnefnd GRANDAGARÐI 9 - PÓSTHÓLF 3 - 121, REYKJAVÍK BFÖ BLAÐIÐ FÉLAGSRIT BINDINDISFÉLAGS ÖKUMANNA Ritnefnd: Sveinn H. Skúlason, ábyrgðarmaður Jóhann E. Björnsson Reynir Sveinsson Skrifstofa félagsins er að Lágmúla 5, 105 Reykjavík, sími 8 35 33

x

BFÖ-blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: BFÖ-blaðið
https://timarit.is/publication/234

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.