Vestri


Vestri - 09.08.1902, Side 1

Vestri - 09.08.1902, Side 1
I. árg. ÍSAFIRÐI, 9. AGUST 1902. Nr; 40. Kaupendur og lesendur YESTRA eru beðnir að gefa gaum að auglýsing- !"•; "'T 'il i'lHVm'lii'M'1 1 ■' ''l 'mi." ; "■ ' 1 ■’BjiilliMiíjjlM.ii^aiá.ljjjji.iiÍM-j unni um Vestra á síðustu síðu, benda nágrönnum sinum á hana og lofa þeim ---: —.' : __------------------------......; ----------;— að sjá hana. Frjettir frá útlöndum. —o— Salisbury lávarður lagði niður stjórn- arformennsku á Englandi í fyrrihluta f. m. vegna ellilasleika. Eptirmaður hans er Arthur Balfour, systursonur hans, sem lengi hefir veriðleiðtogi íhaldsmanna í neðri málstofunni. Nokkrir ráðgjatar hafa sleppt völdum en flestir halda þeim þó áfram. Krýning Játvarðar konungs var ráð- gerð í dag (9. ágúst). Margir af útlend- um stórmennum, sem ætluðu að vera við krýninguna eru nú komnir heim og verða þar ekki viðstaddir. Yfir höfuð verður miklu minna um dýrðir, heldur en hefði krýningin getað farið fram eins og upphaflega var ætlast til. Frjettir af fiskmarkaðinum. —o— 8. f. m. kom út í »Berlinske Tidende« brjef frá danska konsúlnum í Genúa til utanríkisráðherrans í Danmörku um út- litið þar syðra fyrir sölu á ísl. saltfiski. Brjef þetta er að mörgu leyti merki- legt og eptirtektarvert. Saltfiskurinn er nú orðin einhver þýðingarmesta verzl- unarvaran hjá oss Islendingum og það hlýtur því að hafa mikil áhrif á hags- muni þjóðarinníir hvernig útsala hans gengur á heimsmarkaðinum. >Vestra« þykir því vel við eiga að flytja aðal- atriðin úr brjefi þessu, til athugunar fyrir lesendur sínar. I'yrst er þess getið, að aðflutningur á ísl. fiski, þ. e. a. s. smáfiski frá íslandi °g Færeyjum sje upp á síðkastið ávallt að aukast. Degar fyrstu farmarnir komu, kom sú fregn eins og vant er, að fiskaflinni hefði verið talsvert minni en síðastl. ár, einkum á íslandi, og þurkur og af- greiðsla væri erfið vegna ótíðar. Dessi fregn, sem konsúllinn segir að sje út- breidd árlega, líklega í því skyni að reyna að auka eptirspurn eptir fiskinum og fá hann til að hækka í verði, álítur hann sje skaðleg og nái alls ekki til- gangi sínum, því aðflutningur á fiski sje svo mikill allstaðar að, að framleiðslan á hverjum einstökum stað hafi engin áhrif á fiskverðið, því aðflutningurinn sje þá þeim mun meiri frá öðrum stöðum. Og þótt einstakar tegundir af fiski sjeu teknar fram yfir aðrar, sleppa menn því alveg ef lítið er um þær eða þær þykja of dýrar í samanburði við annan fisk. Fiskimeginið vex stöðugt á heims- markaðinum. Yms lönd, svo sem Canada, New Brunswick, Nova Scotia og Prins Edvard Island geta bráðlega, þótt þau sjeu það ekki sem stendur, orðið hættu- legir keppinautar á fiskmarkaðinum. I Canada voru síðastl. ár ekki nfinna en 1200 skonnortur á fiskveiðum og aflinn var 21,557,639 shillings virði, sem var þó 300,000 shillings minna en árið áður. Aflinn í Nova Scotias var 7,809,152 shillings virði; í New Brunsvich 3,768,542 shillings virði og í Prins Edvard lsland 1,059,193 Sh. virði. Og í ár hefir útbún- aður þessara landa til fiskveiðar verið aukinn stórkostlega. Uað má því búast við að þau leiti bráðum á útlendan mark- að með afla sinn. Oáreiðanlegar frjettir um fiskaflann á íslandi og það sem honum viðkemur, er því mikið meira til skaða en gagns. Af hálfu Frakka er starfað ótrautt að því að útrýma íslenskum fiski af markaðinum í Genua, eða í það minnsta að takmarka sölu haus sem mest. Á síðastliðuu ári var Jannig í Fécamp, — þeirri höfn sem flest skip ganga frá til fiskveiða við Island — myndað stórtog ríkt hlutafjelag- til þess að koma upp stórkostlegu verzlunarhúsi, til að verka og þurka þann fisk, sem veiddur er við ísland. Aðferðin verður sú að framleiða kalt loft, til þess með því að geta gert fiskinn líkan Islenzkum fiski. Með því að verka fiskinn þannig. spara útgerðarmennirnir talsvert fje og geta því selt fiskinn langt um ódýrara en verzlunarhúsin í Bordeaux. Þetta hlutafjelag hefir nú þegar kom- ið upp einu sliku húsi í Martipues, sem er bær í nánd við Marseille. Fiskurinn er sendur þangað blautur með járnbraut- arlestum bæði frá Fécamp og Bordeaux, til þess að láta verka hann og þurka eins og ísl. fisk, og gert ráð fyrir að hann verði hæfur til að keppa við ísl. fisk, bæði á Ítalíu og Spáni. Hlutatjelagið >La sécherie de la Bouche du Rhóne«, sem myndað varfyr- ir mörgum árum, er einnig farið að starfa að þesssari nýju fiskverkun. Fiskur, sem verkaður er á þennan hátt, hefir nú þegar verið sendur til Ítalíu, og er því nærómögulegt að þekkja hann frá Islenzkum fiski, svo líkur er hann honum að útliti. Yegna hinna afarmiklu hlunninda sem franska stjórnin veitir fiskveiðaút- gerðinni, er með þessu móti mynduð afar- hættuleg samkeppni við islenzkan fisk, sem ekki er sjeð fyrir endann á, og það er mjög áríðandi spursmál hvað tiltæki- legast er að gera, til þess að verjast þeirri hættu. íslenzkur fiskur hefir hingað til, að minnsta kosti á vissum stöðum, verið tekinn fram yfir annan fisk, en heppnist Frökkum vel þessi nýja fiskverkun, er hætt við að eptirspurn eptir ísl. fiski minnki. Þeir, sem er umhugað um Isl. fisk, verða því að taka þetta mál, sem er veruleiki en ekki hugarburður, til alvar- legrar íhugunar, svo framarlega sem þeir vilja koma í veg fyrir að ísl. fiski verði bolað út af markaðinum eða útsala hans hjer líkt og á Spáni verði miklum mun minni. Enn sem komið er hafa að eins komið hjer sýnishorn af fiski sem verk- aður hefir verið eptii þessari nýju að- ferð, en þau hafa náð góðu áliti og kaupmenn hjer, sem hafa með innflutn- ing á ísl. fiski að gera hafa sagt að þessi nýi fiskur yrði hættulegur keppi- nautur fyrir ísl. fisk. Síðastl. ár komu að minnsta kosti 2788 tonns af fiski, sem fiskaður var við Island, til Frakklands, og þesserað vænta að í ár verði það talsvert meira, með því útgerðin hefir verið aukin. Sam- keppnin af þessum fiski verður enn meiri sjerstaklega vegna þess að þar sem þessi fiskur áður hefir verið seldur útaf fyrir sig sem sjerstök vörutegund, verður hann nú, verkaður eins og áðurer getið, seldur á sömu stöðum og íslenzk- ur fiskur. Fiskur frá Frakklandi hefir allt af verið slæmur keppinautur ísl. fisks vegna þess, að kaupmenn geta fengið hann þaðan í hverri viku eptir þöfum. Ept- irleiðis geta þeir eins fengið þaðan fisk, verkaðan eins og ísl. fisk, eptir þörfum og þurfa því ekki að leggja útstórfjetil þess að kaupa heila skipsfarma frá ís- lundi. Meðan tollur af óverkuðum saltfiski er 6 frck. pr. 200 pd. eða hærri en af þurkuðum fiski (5 frck. pr. 200 pd.) sýn- ist ekki fært að flytja fiskinn hingað ó- verkaðan og verka hann hjer eins og

x

Vestri

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vestri
https://timarit.is/publication/235

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.