Skólablaðið - 01.07.1908, Blaðsíða 4
48
SKÓLABLAÐIÐ
fyrir næsta þing verði lagt frum-
varp til laga um stofnun styrktar-
sjóðs handa barnakennurum með
þeim ákvæðum, sem hjer segir:
a. Hver kennari greiði í sjóð 2%
af þeim styrk, sem hann fær úr
landsjóði, og skal þeirri npphæð
haldið eftir, er styrkurinu er greidd-
ur til hlutaðeigandi fræðslunefnda.
b. Yfirstjórn fræðslumálanna hef-
ir stjórn sjóðsins á hendi, og veit
ir styrk úr honum eftir tillögum
frá stjórn hins íslenska kennara-
fjelags, eða sambandsstjórn ís-
lenskra kennarafjelaga.
c. Enginn getur fengið styrk úr
sjóðnum, nema hann sje styrk-
þurfi, og hafi verið barnakennari
í 10 ár, nema hann hafi orðið rð
sleppa þeirri stöðu af heilsubil-
un, eða öðrum ósjálfráðum or-
sökum, enda hafi hann borgað í
sjóðinn í 3 ár.
d. Eigi skal verja til styrkveitinga
nema vöxtum sjóðsins þar til er
hann er orðinn 10,000 kr. en síð-
an 3/4 af öllum árstekjunum, en
'/4 bætist við höfuðstólinn.
þá er þrjú ár eru liðin frá stofn-
un sjóðsins skal veita styrk þenna
í fyrsta sinn, og síðan árlega. Eng-
um skal veita minna en 50 kr.
styjk.
e. Alþingi veiti sjóðnum að minsta
kosti 1000 kr. styrk á ári (úr land-
sjóði).
3. Þá var borin upp tillaga um að
breyta lögum fjelagsins, og var
eftir nokkrar umræður samþykt
að bæta nýrri grein við fjelagslög-
in svo hljóðandi:
»Fjelagið géngst fyrir því, að
sem fyrst verði stofnuð kennara-
fjelög um alt land, og þegsr til-
tækilegt þykir verði kvatt til sam-
eiginlegs fundar fyrir öll kennara-
fjeiög landsins og sett á stofn
allsherjar bandalag með fjelögun-
um öllum með sameiginlegri stjórn,
og komi það í stað hins íslenska
kennarafjelags, og taki við sjóði
þess og öðrum eignum.*
4. Var rætt um framhald á útgáfu
»Skólablaðsins«. Um það var
samþykt:
»Fundurinn ályktar, að hinu ísl.
kennarafjelagi sje afhent »Skóla-
blaðið* ásamt öllum skjölum og
skiiríkjum til eignar og umráða
eigi síðar en 1. júlí næstk. og að
stjórn fjelagsins sje falin útgáfa
þess ti! næsta aðalfundar.«
* *
*
Stór mál og merk hafði fundur
þessi með höndum.
Tillagan um stoínun styrktarsjóðs
handa uppgjafakennurum sjálfsagt
tímabær, og getur ekki orðið langt
að bíða framkvæmda. Þrjátíu kenn-
arar víðsvegar af landinu vilja fúslega
leggja á sín litlu laun skatt til þess
að forða samverkamönnum sínum
frá neyð. Varla þarf að efa, að hin-
ir allir, sem ekki áttu kost á að
sækja þenna fund, taki í sama streng-
inn, og þáætti ekki að þurfa að ef-
ast um, að þíngið rjettij þá hjálpar-
hönd, sem hjer er beðið um. En þá
er því máli borgið.
A kennarafjelög hefir nokkuð ver-
ið minst hjer í blaðinu, og samvinnu
milli kennara. Pví máli er hrundið
mjög í rjett horf með tillögunnf hjer
að framan.
Útgáfa »Skólablaðsins« hefir, eins
og mönnum er kunnugt, verið í hönd-
um kennara Flensborgarskólans. Þeir
hinir sömu menn vilja vera styrktar-
menn blaðsins eftirleiðis eins fyrir
það, þó að kennarafjelagið standi nú
fyrir útgáfunni. Hún er látin af hendi
við fjelagið eftir ósk fundarins, með
því að ýmsum þótti rjettara að mál-
gagn kennarastjettarinnar væri eign
fjeiagsins heldur en einstakra manna.
@)
Frarahaldsmentun kennara. —
Tyr$ta nám$$keið is. maí til is. Júní ws.
Þess er áður getið i Sklbl. að líkur
væru fyrir mikilli aðsókn að þessu
námsskeiði, og sú spá hefir ræst. 32
kennarar og kennarakonur tóku þátt
í því: 1. Marta Stephensen, Rvík. 2.
Guðrún Daníelsdóttir Rvík, 3. Margrjet
Porkelsdóttir, Rvík, 4. Kristín Þorvalds-
dóttir Árasen Víðimýri, 5. Hallgrímur
Jónsson, Rvík, 6. Gunnar St. Gunn-
arsson, ísafirði, 7. Einar Magnússon,
Útskálum, 8. Aðalbjörg Sigurðardóttir,
Hafnarfirði, 9. Steinunn Bjartmarsdóttir,
Hafnarfirði, 10. Petrea Sveinsdóttir,
Akranesi, 11. Margrjet Eiríksdóttir,
Fossnesi, 12. Viktoría Guðmundsdótt-
ir, Gýgjarhóli, 13, Sigríður Runólfs-
dóttir, Hruna, 14 .Þorsteinn rinnbogas.
Haukadal, 15. Elín Hjartardóttir, Eystri
Kirkjubæ, 16. Jóhannes Friðlaugsson,
Stórólfshvoli, 17. Björn Guðmundsson,
Rauðnefsstöðum, 18. Eyólfur Gríms-
son, Pjetursey, 19. Stefán Hannesson,
Litla Hvammi, 20. Jón Jóhannesson,
Seyðisfirði, 21. Valdimar Valvesson,
Húsavík, 22. Guðrún Sigurðardóttir,
Blönduósi, 23. Sgurrós Pórðardóttir,
Blönduósi, 24. Pjetur Gunnlaugsson,
Vatneyri. 25. Eyríkur E. Sverrisson,
Deildará, 26. Jón Ólafsson, Vík, 27.
Valdimar Erlendsson, Rvík. 28. Jón
Jónsson, Höfnum, 29. Konráð Vil-
hjálmson, Hafralæk, 30. Elísabet Ás-
mundsdóttir, Dölum, 31. Jarðþrúður
Nikulás dóttir, Hruna, 32. Ásgrímur
Magnúson, Rvík.
Tveir sem sótt höfðu gátu ekki
komið vegna sjúkleika.
Allir fengu nemendurnir fæðispen-
inga, 1 kr. á dag þann tíma sem þeir
voru við kensluna, og 20 þeirra fengu
að auki ferðakostnað greiddan að
nokkru leyti, frá 16 og upp í 47 kr.;
þeir er lengst að áttu að sækja.
Áhugi nemanda var mikill og lofs-
verður; margir tóku þátt í svo að
segja allri kenslunni, 8 stundir ádegi.
hverjum, og fengu þó tíma til að taka
kenslu aukreitis í íslensku (hjá Dr.
Birni Bjarnasyni) og orgelspili (hjá
Sigf. Einarss).
Auk þess hjeldu þeir fjölda mál-
íunda um uppeldis og kenslumál, og
stóðu þeir fundir oft fram á nótt,
þeirra verður ef til vill getið nokkuð
nákvæmar síðar.
Bæarstjórn Reykjavíkur Ijéði ókeypis
húsnæði í Barnaskólahúsinu óg kenslu-
áhöld. Eftirleiðis á þessi kensla að
farafram í kennaraskólahúsinu og kenn-
arar þess skóla aðalleg hafa hana á
hendi,
[
Milli hafs og hliða
6«ð $kólabú$
eru nú að koma upp hjer og hvar á
landinu. Landsjóðsstyrkurinu, sem sein-
asta alþing veitti, hefir gefið hvatning,
þó að smátt væri hann skamtaður —
smátt í samanburði við þörfina.
Nær 20,000 króna styrk hefir verið
sótt um, en einum 6,000 krónum er af
að miðla þetta ár. Enginn efi er áþví að
þingið verður að leysa betur frá budd-
unni.
Kennaraskólimt.
Prjú föstu embættin við hann eru skip-
uð þessum mönnum (frá l.okt. í haustj:
Sjera Magnús Helgason forstöðumað-
ur, Dr. Björn Bjarnason frá Viðfirði
1. kennari og mag.sc. Ólafur D. Daní-
elsson 2. kennari.
KENNARÁSTÖÐDR
með 1000 kr. og 700 kr. launum við
barnaskola ísafjarðarkaupstaðar eru
lausar næstkomandi skólaár. —
Umsækendur snúi sjertil skólanefnd-
ar ísafjarðarkaupstaðar ekki seinna en
15. dag ágústmánaðar næstkomandi.
^nnaraplaða
við barnaskólann í Hnífsdal í Norður-
ísafjarðarsýslu er laus næstkomandi
skólaár. Laun eru 400 kr. og ókeyp-
is húsnæði ljós og eldiviður. —
Þeir (karlar eða konur), sem vilja
sækja um stöðu þessa, snúi sjer til
skólanefndarinnar í Hnífsdal fyrir 15.
ágústmánaðar næstkomandi.
Tveir kennarar
óskast að Látrum og Hesteyri
í ísafj.s. Kenslutími 7 mánuðir;
laun við hvorn skolann um sig 500
krónur.
Menn snúi sjer til ritstj. »Skólabl.«
fyrir miðjan ágústm.
Útgeýendur:
KENNARAR FLENSBORGARSKÓLANS
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
/ÓN ÞÓRARINSSON.
Prentsmiðja D. Östlunas.