Skólablaðið - 01.03.1915, Qupperneq 12

Skólablaðið - 01.03.1915, Qupperneq 12
44 SKÓLABLAÐIÐ var ótæmandi. Á eftir komu skammirnar, því Gróa kom aö vitja um strákana. Hafði þótt þeir óskiljanlega lengi í fjósinu. Nonni haföi nóg umhugsunarefni um kvöldiö. Og tilhlökk- unin að veiöa meira upp úr Gvendi annaö kvöld geröi hann léttari í lund. Þessi Gvendur var þrettán ára. Nonni var fimm árum yngri. Þeir voru tvö ár saman, drengirnir. Þaö mætti eins.segja: Nonni var viö nám hjá Gvendi í tvö ár. Þá var Nonni búinn aS læra margt. Hugsun hans var oröin auöug af myndum, og löngunin til að fá meira að vita, meira að hugsa um, meira að reyna, var orðin sterk. Þó var ekkert próf tekið . að loknu námi. , Dæmi lík þessu kannast víst margir við frá bernskunni. Nú kemur þrumudómur reynslunnar yfir okkur, kennar- ana, að við náum ekki því, sem Gvendur gerði í hjáverkum. Þegar börn yfirgefi skólana, þá sé mest öll löngun til náms dauð. Séu fegin lausninni, og andinn ekki þroskaðri en svo, að best seljist „rómanaruslið" hjá bóksölunum. ,,Rómanaruslið“ slær á strengi forvitninnar og ímyndunar- aflsins, og þá er auðvelt að fylgjast með, einkum, ef ást er með í leiknum. Bækurnar, sem kalla á skilning og dómgreind verða á hakanum. Þykja örðurgri viðfangs. Löngunin ekki svo mikil, að hugsunin um fyrirhöfnina hverfi. Börnin ekki orðin svo þroskuð, að þau kenni þæginda við að reyna á æðri sálarhæfileika. Ekki þarf að vænta þess að börnin leggi sig eftir öðru, þegar þau koma úr skólanum, en því, sem þau hafa löngun til. Ef þau hafa enga löngun til að fá meiri fræðslu en þá, sem skólinn veitti þeim, þá er engin von um, að þau leyti fyrir sér frekar. Þegar börnin koma í skólann, eru þau á mismunandi stigi. í sumum þeirra er vöknuð löngun til náms en í sumum ekki. Heimta verður af skólunum, að þeir haldi við námfýsi þeirra, sem þegar hafa hana, þó ekki geri þeir meira. Ekki má kenna skólunum einum um deyfðina, því heimilin hafa mikil áhrif í þessa átt. Nuddið um að taka nú skrudduna, „standa sig“ hjá kennaranum á sinn þátt. I mörgu fleira geta heitnilin haft áhrif.

x

Skólablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/236

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.