Skólablaðið - 01.03.1915, Qupperneq 13

Skólablaðið - 01.03.1915, Qupperneq 13
SKÓLABLAÐIÐ 45 En skólarnir eiga aö ganga á undan og gæta sín. Þeir mega aö minsta kosti ekki vera orsökin. En eru þeir þaö nú ekki stundum? Síöan fræöslulögin gengu í gildi, hafa kennararnir meira vald gagnvart börnunum en áöur. Skólanefndir og foreldrar dæma dugnaö kennaranna eftir kunnáttu barnanna. Börnin eiga aö læra, nauðug viljug. Sé kenslan ekki góö, er hætt við að margt barnið gangi að náminu sem hverju öðru skylduverki, sem sé lokið, þegar prófið er afstaðið. Ef kennarinn skyldi nú bera svo mikla umhyggju fyrir sjálfum sér, að hann miðaði kensluna leynt og ljóst, eða eitt af tvennu, við prófið, þá er «nn meiri ástæða til þess, að fróðleiksfýsnin dofni. Börnin hugsa til prófsins sem endalokamarks námsins. Eftir það eru þau frjáls. Mega sjálf ráða, hvað þau lesa. Fáir hafa löngun til bóklesturs fyrst eftir að þeir hafa lokið prófi. Sama kend cr í börnunum og varir oft lengi. Ekki er það ætlun min, aðvilja afnema prófin. En börnin rnega ekki hugsa til prófdagsins sem einhvers hræðilegs dóms- dags. Til þess að draga úr ótta fyrir vörprófi eða fullnaðar- prófi, mun reynast vel að láta þau taka próf nokkrum sinn- um á vetrinum, t. d. mánaðarlega. Ætti þá að reyna þau í þvi, sem þau hafa lesið yfir mánuðinn. Mundu þau brátt geta skilið að vorpróf væri samskonar reynsla í þvi sem þau hafa lesið yfir veturinn. Nokkrir kennarar hafa. þessa aðferð og er sögð reynast vel. En andinn, sem hvílir yfir prófinu, ræður mestu um áhrif þess. „Jeg læri af því að jeg á að ganga undir próf,“ og „jeg geng undir próf af því að jeg læri“, 'eru setningar með ólíkri merkingu. Hvorri stefnunni1 vill kennari fylgja? Því mun auðsvarað. En hvað gerir sá kennari, sem alt af er að jarma um pröfið við börnin eða hugsar mest um það, hvernig þau muni reynast við prófið? En ef til vill er enginn til slíkur. Eitt er ótalið, sem ekki ræður minstu í þessu efni: Próf- dómarinn þarf að hafa vit á að dæma um þekkingu barnanna. Það er auðvelt að hlústa á orð bókarinnar endurtekin og pára svo átta á blaðið sitt. Hitt er öðugra, þegar barnið bindur sig lítið við bókina en notar eigin orð. Fyrir hvert af þessu tvenmi skyldu prófdómarar gefa hærri einkunn yfirleitt?

x

Skólablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/236

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.