Skólablaðið - 01.08.1919, Qupperneq 1

Skólablaðið - 01.08.1919, Qupperneq 1
SKOLABLAÐIÐ ÚTGEFANDI: HELUI HJÖRVAR XI. ÁR AOÚST 1019. 8 KLAÐ. Stefnuskráin.’ ii. í upphafi þessarar greinar hefir verið nokkuð vikið að þeirri nauðsyn, að hverjum manni gefist kostur á einhverri undirstöðu almennrar mentunar, og að því, hversu auknar kröfur um fræðslu og kunnáttu og breyt- ing á lífsháttum þjóðanna hefir smámsaman leitt af sjer almenna barnaskóla og skólaskyldu. Ekkert skipulag í þjóðfjelaginu hefir nokkurntíma þótt gefast allskostar vel; skólar og' skólaskylda ekki heldur. Uppstroknar landeyður og heimskir spjátrungar þykjast engan hlut vita lítilmótlegri en barnaskóla og barnakenslu; hálærðir menn fella um þessi mál fávíslega sleggjudóma; kennararnir þykjast góðir fyrir sínum bæjardyrum, en meðal uppeldisfræðinganna kemur einn öðrum meiri og þykist loksins hafa fundið lausnina á öllum vanda. pessi •eður hin „aðferðin“ eða „kerfið“ á að gera alla hólpna. En svo vill verða um þessar nýjungar flestar, hversu góð- ar og viturlegar sem eru, að þær reynast ekki einhlítar, þótt margar verði til stórkostlegra framfara. Barnaskólunum er fundið margt til foráttu, og þó ekki ætið á eina leið. Margar algengustu aðfinslurnar eru svo * Fyrirsögnin á ekki allskostar við. Greinin er að eins almenn- ar hugleiðingar iim nokkur atriði skólamálanna; frá tilefni henn- •ar er sagt í upphafinu, og þvi er nafnið.

x

Skólablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/236

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.