Alþýðublaðið - 08.04.1965, Qupperneq 16
MENNTASKÓLUM
FJÖLGAÐ UM ÞRJÁ
Reykjavík, 7, aprit. — EG.
Menntaskólafnimvarpitf, sem
AtþýðubJaðið skýrði frá á sunnu-
dag, var lagt fram á Alþingi í
WHMUumvmMmHmm
Frá Sambandi
íslenzkra
sveitarfélaga
★ Fulltrúaráðsfundur Sam-
bands íslenzkra sveitarfélaga
verður haldinn í fundarsal
borgarstjórnar í Reykjavík í
dag og á niorgun. Páll Lín-
dal, varaforniaður sambands-
ins, setur fundinn klukkan 10
í dag, en síðan fiytja ávörp:
Géir Hallgrlmsson borgar-
stjóri, Gunnac Thoroddsen
fjármálaráðherra og Hjálm-
ar Vilhjálmsson ráðuneytis-
stjóri.
Flutt verða framsöguerindi
um tvö mál. Gylfi Þ. Gísia-
son menntamálaráðherra tal-
ar um skólana og sveltarfélög
in og Bjarnt Bragi Jónsson
hagfræðingur flytur erindi,
sem hann nefnir: Staða svett-
arfélaganna í þjóðarbúskapn
um og hlutverk þeirra I
stjórn efnahagsmála.
HHHMHHmmMHmwm
dag. í fyrstu grein frumvarpsins,
segir, að menntaskólar skuli vera
sex, tveir í Reykjavík, einn á Ak-
ureyri, einn að Laugarvatni, einn
á Vestfjörðum og einn á Austur-|
landi. Tvo síðastnefndu skólana
skal stofna þegar fé er veitt Vl
þess á f járlögum. Gerir frumvarp- j
ið því ráð fyrir að menntaskólum .
verði fjölgað um helming hér á
landi. í frumvarpinu er heimild
til að stofna fleiri menntaskóla í
Reykjavik og nágrenni, þegar fé
er tíl þess veitt á fjárlögum.
Stjórnarfrumvarplð til breyt-
inga á menntaskólalögunum ger-
ir ráð fyrir ofangreindri fjölgun
menntaskóla, og segir í 1. grein.
að menntaskólarnir utan Reykja-
vikur skuli vera heimavistarskól-
ar. Þá er og menntamálaráðuneyt-
inu gefin heimild til að koma á
fót kennslu í námsefni 1. bekkj-
ar menntaskóla við gagnfræða-
skóla, þar sem nemendaf jöldi og
önnur skilyrði gera slíka ráðstöf-
un eðlilega og framkvæmanlega.
Kostnaður við stofnun og rekstur
menntaskóla skal greiðast úr rík-
issjóði, svo og kostnaður við
menntaskóIadeUdir, sem kann að
verða komið á fót. Heimild er í
frumvarpinu tU þess að koma fyr-
irhuguðum menntaskólum á fót í
áföngum, bæði hvað varðar
kennslu og byggingu húsnæðis.
Vortónleikar
Reykjavík, 7. april, — OTJ.
HINIR árlegu vortónleikar Pólý-
fónkórsins fyrir styrktarfélaga og
almenning verða haldnir í Krists-
kirkju dagana 9.-11 april. Fyrst
á efnisskrá þeirra verða tvær mót-
ettur fyrir sex raddir, „Haec dies”
eftir enska tónskáldið WUliam
Byrd, og „Ich bin ein reohter
Kínverskur
matur í Hábæ
Reykjavík, 7. apríl. — OÓ.
#iÝIR cigendur hafa tekið við veit-
jpgahúsinu Hábæ við Skólavörðu-
stíg og verður það eftirleiðis rekið
»neð öðru formi en hingað til. Ný-
tnæli i rekstri veitingahússins eru
einkum þau, að nú verður það op-
ið allen daginn frá kl. 10 á morgn-
ana til kl. 11,30 að kvöldi, og verð-
.tir þar framreiddur matur allan
j^aginn. , _ .
Aðaláherzlan verður lögð á kin-
verskan mat og hafa verið ráðnir
tií veitingahússins tveir kínverskir
matreiðslumenn, sem munu ann-
ast matargerðina. Annar þeirra er
fæddur í Kína og hinn í Hodg
Kong. Hafa þeir báðir unnið í Erig
landi undanfarin ár, verður áreið-
anlega enginn sælkeri, sem leið
sína leggur £• Hábæ, svikinn af mat
argerðarlist þeirra. .
Núverandi framkvæmdastjóri
Framh. á 14. síðu.
Málverka■
uppboð
Reykjavík, 7. april. — OÓ.
Listmunauppboð Sigurðar
Renediktssonar verður haldið í
Súlnasal Hótel Sögu á morgun,
fimmtudag og hefst kl. S e. h.
Á uppboðinu eru 55 númer, olíu-
myndir, vatnslitamyndir og teikn-
ingar.
Þarna verða seldar myndir eftir
marga af beztu málurum íslend-
inga, og er myndavalið óvenju-
lega fjölhreytt að þessu sinni.
Myndirnar eru m. a. eftir Sverri
Haraldsson, Jón Engilberts, Svein
Þórarinsson, Jón Helgason bisk-
up, Gunnlaug Blöndal, Þórarin
B. Þorláksson, Gunnlaug Schev-
ing, Kristínu Jónsdóttur, Mugg
óg Kjarval, en eftlr hann verða
boðnar upp .11 myndir.
45. árg. — Fimmtudagur 8. apríl 1965 — 82. tbl.
HHHHHHtHHHHUMHHHtHHHHHHUHHHVHHHHHH
✓ /
BALLET I HASKOLABIOI
Elena Rjabínkína hefur
þrátt fyrir ungan aldur
reynzt verðugur arftaki við
ballettflokk Bolshojleikhúss-
ins í Moskva. Hún er ein
þeirra Iistdansara af yngri
kynslóð þar í landi, sem
einna mest orð hefur getið
sér og hlotið heiðurstitil-
inn „þjóðlistamaður.”
Rjabínkína heimsækir Is-
land og skemmtir ásamt
fleiri rússneskum lista-
mönnum í Háskólabló í
næstu viku, þar á meðal
barytonsöngvaranum Alexeí
Ivanof og pianoleikaranum
Vladimir Viktorof.
Weinstock,” eftir Heinrirh Schiitz.
Hið merkasta við tónleikana verð-
ur þó að teljast flutning „Stabat
Mater" eftir Palestrina. 1
Þyklr snilli meistarans óvíða
hafa komið eins skýrt fram og í
þessu verki. Var það jafnan flutt
a páímasunnudag í kapellu páf-
ans í Róm, en þess á milli vand-
lega varðveitt og afritun ekki
leyfð. Loks tókst þó að koma ein-
taki undan, og var verkið gefið út
í London árið 1771. Á selnni hluta
efnisskrárinnar eru tvö nútíma-
verk. „Agnus Dei,” eftir Þorkel
Sigurbjömsson, og þýzk messa
eftir Johan Nepomuk David.
Söngstjóri Pólýfónkórsins er
Ingólfur Guðbrandsson. Tónleikar
þessir eru fyrst og fremst fýrir
styrktárfélaga, en nokkrir að-
göngumiðar verða seldir í bóka-
verzlun Sigfúsar Eymundssonar.
STARFSEMI VERZLUNAR-
BANKANS VEX STÖÐUGT
AÐALFUNDDR Verzlunar-
bankans var haldinn í veitinga-
húsinu Sigtún sl. laugardag og
hófst hann kl. 14,30.
Fundarstjóri var kjörinn Geir
Ilallgrímsson borgarstjóri, en
fundarritgrar þeir Gunnlaugur J.
Briem, verzlunarmaður, og Knútur
Bruun, lögfræðingur.
Þorvaldur Guðmundsson, for-
stjóri, flutti skýrslu bankaráðs um
starfsemi bankans síðastliðið ár.
Kom fram í henni að starfsemi
bankans fer vaxandi frá ári til
árs. Unnið er nú að stofnun stofn-
lánadeildar við bankann og er
stefnt að því að undirbúningsstarf-
inu verði lokið á þessu ári. Þá
standa nú yfir breytingar á hús-
næði bankans að Bankastræti 5
og mun hann þegar þeira er lokið
fá til afnota rýmri og betri húsa-
kynni. í skýrslU bankaráðs kom
fram, að óskir bankans um gjald-
eyrisréttindi hafa enn enga á-
heym hlotið, þrátt fyrir stöðugfc
batnandi ástand í gjaldeyrismál-
um.
Höskuldur Ólafsson, bankastjóri
lagði fram endurskoðaða reikn-
Framhald á 13. síðu.
Fengu togar-
ann fyrir lítið
Reykjavík, 7. aprB. — GO.
ÖLLUM tilraunum tU að ná
brezka togaranum Donwood á
flot, hefur nú verið hætt. Norskt
björgunarskip, sem reynt hefur
aó þétta togaranu og ná honuia
út, hétt beim í gwr. 1
Framh. á 14. siðu.