Alþýðublaðið - 22.04.1965, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 22.04.1965, Blaðsíða 1
II. BLAÐ •BírWnjA fCtooccstkr KWTKPST • &nrt/T London South 0mf»Tof\ 45. ávg — Fimmtudagur 22. apríl 1965 — 90. tbl, Gleðilegt sumar! Þarna koma Lancclot og Vik- t*ria með börnin sín tvö, þau virðast ætla að setjast, sagði Peter Scott og benti út um stofu- gluggann. Sjónaukar voru þegar á lofti og fylgdust með fjórum, hvítum svönum, sem flugu lágt yfir húsið. Þau eru að kanna landið, svo fljúga þau f hring og setjast, sagði Scott. Utan við gluggann er allstór tjörn, sem er morandi af fugli. Þar eru‘ gæsir frá Kanada og Tíbet, endiu* frá Ástralíu og ekki fáir ferðalangar úr norður- vegi, sem gætu vel átt sér hreið- ur við Mývatn eða á Arnarvatns heiði. Þessi tjöm er hlutl af andaparadís eða andagarði Scotts, og allur þorri fuglanna getur ekki flogið burt. Þó er þarna gestkvæmt, og kemur fjöldi farfugla við í garðinum, eins og svanirnir, sem nú renndu sér til lendingar ú tjöminnt — Þeir vora raunar alls yfir 40 talsins, heimilisfastir austur I Sovétríkjum, en leituðu vestur að ströndum álfunnar og til Bretlandseyja til vetursetu á hlýrri stöðum. Peter Scott upplýsir fáfróða gesti sína um álftina. Hún hefur svartar skellur á gulu nefni, og eru skellurnar ekki eins á nein- um tveimur fuglum. Þessir frjálsu og langfleygu sovétsvanir höfðu verið lokkaðir til með matgjöfum, og komust brátt að raun um, að bæ$i var þar gnægð matar og engin hætta á ferð. Nú hefur Scott ^staðið við gluggann sinn og teiknað andlits svipl svananna inn í Jbækur, — lært að þekkja þá súndur alla fjörutíu talsins, hefur gefið -þeim nöfn og talar um þá rétt eins og hverja aðra kunningja. . Það er raunar einkenni á Pet- er Scott — eins og mörgum miklum náttúrufræðingum — að hann virðist unna öllu, sem er kvikt, á sama hátt, og lifa í heimi Hinn frægi, enski náttúrufræðingur, Peter Scott, sonur heimskautafar- ans, hefur komið upp merkilegum andagarði í Slimbridge á Vestur-Englandi. í þessari grein segir Benedikt Gröndal frá heimsókn í þennan garð og starf- semi í samhandi við hann. — Myndin til hægri er af grafönd í Slimbridge. dýranna, sjá umhverfið frá þeiiTa sjónarmiöi. Kemur þetta jafnt er hann talar um ástir og fjölskylduvandamál rússnesku svananna, og er hann kjassar vlð kvikindi, sem liann hefur f gróS- urhúsi áföstu við stofuna. Andagarður Scotts er í Slim- bridge í Gloucestershire 1 Vest- ur-Englandi. Þar rennur eitt a£ siðu.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.