Alþýðublaðið - 30.04.1965, Qupperneq 6
TIL að skýra hvers vegna ungversk blöð höfðu um tíma glatað trausti
leeenda sinna vegna of harðrar ritskoðunar, segir eitt vikublað í
Budapest frá eftirfarandi atviki:
M. a. hafði ritskoðarinn strikað út veðurspá frá veðurstofunni á
þeirri forsendu, að orðin „á svæðinu austan Úralfjalla ræður kaldur
vindur" væru röng, þar eð allir vissu, að á svæðinu austan Uralfjalla
réðu Sovétríkin.
— ★ —
BREZKI stórleikarinn Sir John Gielgud hélt nýlega ræðu við skóla-
slit í leikskólanum „The American Academy of Dramatic Art“ og
ræddi þar nokkuð um leiklist á grundvelli 44 ára reynslu sinnar sem
leikara. Lagði hann m. a. áherzlu á nauðsyn
aga hjá leikurum, stundvísi og reglusemi og
að kunna að hegða sér. Hann sagði m. a.:
„Mér virðist nauðsynlegt fyrir leikara að
virða fyrir sér annað fólk. Það er betra en
að virða sjálfan sig fyrir sér, því að þá er
hætt við, að manni finnist maður sjálfur svo
athyglisverður, að maður geti ekki haft
áhuga á öðrum“.
Ennfremur sagði hann: „Það er stór-
kostlegt fyrir leikara að fella raunveruleg tár á leiksviði, en ég hef
’þá dýrkeyptu reynslu, að geri maður það, grætur enginn af áhorf-
endum með manni“.
“ ★ —
EIGANDI benzínstóðvar einnar í Nebraska í USA læsti aldrei pen-
ingaskápum í fyrrrtæki sínu, þegar hann fór heim á kvöldin. Hann
var þeirrar skoðunar, að menn í héraðinu væru svo heiðarlegir, að
þeim dytti ekki ínnbrot í hug. Þess vegna skellti hann bara útihurð-
inni í lás, og lét þar við sitja.
En hérna um kvöldið var samt brotizt inn hjá honum, og auð-
vitað fóru þjófarnir beint að peningaskápnum. Þeir tóku að sjálf-
sögðu að djöflast í stafalásnum á skápnum, því að ekki datt þeim í
hug, að hann væri opinn. Og niðurstaðan varð sú, að þeir ramm-
læstu honum svo. að þeir urðu að snúa frá.
_ ★ _
MARGMILLJÓNUNGURINN Aristotle On-
assis, sem er grískur, hefur ekki látið við
jþað sitja að fá grísku stjórninni. stórfé til
;ráðstöfunar vegna hinna miklu jarðskjálfta.
jHeldur fór hann af stað á snekkju sinni,
hlaðinni af skófatnaði og pálmatrjám til
þeirra staða, sem verst urðu úti. Hans trú-
fasta vinkona, Maria Callas, er í för með
honum.
_ ★ _
Hín nýja furstadóttir í Monaco var skýrð nýlega og hlaut
nafnið Stéphanie. Eftir skírnina var hún svo sýnd undirsátum sín-
um, en tók þeim ekki betur en svo, að hún hágrét svo, að móðir
hennar, Grace, virðist rétt beþenkjanleg af því . . .
-sT . ■ -vi
fiÍnÉgÉgil
wiI IsÉ
. v
,
llt|§sÍll§l
V -Ml.VA,V /í;
«,
■ f f
k ■' ■/ ’
» ;í í. ÍA'.V
'ffih, • ■ '■ Jss&sMStt ■"
;
:■*•'•
■ ■>. : •:
IpMÉÍI
II W|
wmm
;;:■;■■■
Kvikmyndafélagið 20th Century Fox hefur fengið leyfi dómstóla til að sýna gamanmyndina „Með opn-
um örmum“ í kvikmyndahúsum. Forsaga þessa er sú, að Notre Dameháskólinn í Bandaríkjunum taldi sig
móðgaðan af því, að í myndinni væri gert grin að hinu virta fótboltaliði skólans. í myndinni er liðið
látið bíða lægri hlut fyrir ómerkilegu liði, sem drifið hefur verið saman á síðustu stundu í einhverju
ímynduðu, arabísku furstadæmi, ef til vill vegna þe ss, að Notre Dame-strákarnir eru látnir skemmta sér
með dömunum úr kvennabúri sheiksins. Þetta tók Notre Dame óstinnt upp og hóf grafalvarlegan mála-
rekstur með það fyrir augum að fá sýningar á mynd inni stöðvaðar. Það tókst sem sagt í átta mánuði,
en svo féll dómur í málinu, og hann hljóðaði svo, að frjálst væri að senda myndina, sem er gerð af
Peter Ustinov og er með Shirley MacLaine í aðalhl utverki, á markaöinn — og svo fékk kvikmyndafélag-
ið þar að auki mikla auglýsingu út á allt saman. Málið hafði nefnilega vakið mikla athygli í Ameríku.
Notre Dame fékk að sjálfsögðu líka mikla auglýsingu, en sagt er, að þar hafi ánægjan með hana
ekki verið eins mikil. — Á meðfylgjandi mynd sjást Shirley MacLaine og Richard Creima í hlutverkuni
sínum í „Með opnum örmum“.
FORSTJÓRI einn í Stokkhólmi,
sem tekið hafði út líftryggingu
fyrir 200.000 sænskar krónur,
áður en hann færi í flugferð, olli
miklu uppistandi á Arlanda-flug-
velli um daginn.
Eiginkona forstjórans hafði
hringt út á Arlanda og tilkynnti
flugstjórninni um þessa ráðstöf-
un mannsins, jafnframt því sem
hún skýrði frá því, að maður
sinn væri taugaóstyrkur og hefði
ef til víll gert eitthvað í fljót-
færni. *
HRÆÐSLA
Af öryggisástæðum var SAS-
vélin, sem komin var út á flug-
brautarenda, köiluð aftur að
flugstöðvarbyggingunni og far-
angur forstjórans rannsakaður.
Ekki fannst nein sprengja í hon-
um. Maðurinn skýrði frá því, að
hann hefði verið áhyggjufullur
af því, hvað verða mundi um
fjölskyldu sína, ef hann yrði fyr-
ir slysi, og þegar engin fannst
sprengjan, var flugvélinni leyft
að halda áfram för sinni til
Kaupmannahafnar.
Bob Kennedy á
Kennedytindi
Eins og komið hefur fram í frétt
um, tók Robert Kennedy, öld-
■ungadeildar maður og bróðir
forsetans sáluga, það í sig að
klifa Kennedytindinn, sem er
4.630 m. hár og var skírður eft
ir bróður hans. Og honum tókst
það. í skínandi sólskini klifraði
hann upp á tindinn á milli þeirra
Jim WhiÞakers — fyrsta Banda
ríkjamannsins sem klifið hefur
Everest — (á neðri enda reipis
ins) og Barry Prathers, sem ár
ið 1963 var yngsti maðurinn í
Everest leiðangrinm. Robert
Kennedy reisti bandaríska fán
an á fjallstindinum.
Lundúnum 29. 4. (NTB-Reuter).
Brezka ríkisstjórnin tók í dag í
taumana í lánamálum í Bretlandi
með því að frysta 90 milljónir
punda áf útlánsfé bankanna. —
Fréttin um þessa ráðstöfun, sem
gerð er til að takmarka útlán bank-
anna, kom aðeins nokkrum mínút-
um eftir að Englandsbanki til-
kynnti að hann hefði ákveðið að
msMÉ
95 ÁRA gamall Japani held-
ur þv: fram, að hann eigi
heimsmet í að taka í hendina
á fólki. Hann hefur verið
hótelstjóri í 70 ár og liefur
reiknað út, að á þeim tíma
liafi hann tekið í hendina á
ekki færri en 250.000 manns.
Blað í Yokohama, sem birtir
þessa frétt,.. styður kröfu
mannsins til heimsmetsins m.
a. með því að benda á, að
jafnvel forsetar og dinlómat-
ar komizt ekki yfir að taka í
hendina á fleirum en 100.000
manns á ævinni.
1
☆
MAÐUR sem fyrir skemmstu
var sektaður um 25 dollara
fyrir brot á lögum um fi-sk-
vciííar í ám í Sedona í Ari-
zona, sendi dómaranum, Har-
old Longfellow, upphæðina í
kassa fullum af smápening-
um.
Dómarinn sendi honum til
baka með pósti kvittun og
sleikjubrjóstsykur. „Mann,
sem hegðar sér eins og barn,
kemur maður fram við sem
barn“, sagði dómarinn.
£ 30. apríl 1965 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ