Alþýðublaðið - 30.04.1965, Qupperneq 7
KOSNINGABARÁTTA HAFIN
BOÐSKAPUR sá,sem Charles de
Gaulle forseti hefur flutt frönsku
þjóðinni táknar í rauninni upp-
hafið að kosningabaráttunni, en
forsetakosningar fara fram í des-
ember. Forsetinn lagði áherzlu á
hina þjóðlegu stefnu sína í utan-
ríkismálum, enda mun þessi
stefna verða honum að miklu liði
í kosningabaráttunni.
Eitt sterkasta vopn forsetans
er það, að andstæðingar hans
leggjast yfirleitt ekki gegn stefnu
hans I utanríkismálum. Einn af
verkalýðsleiðtogum kommúnista,
Le Brun, segir í nýútkominni
bók, að hann muni ekki gagn-
rýna hina þjóðlegu utanríkis-
stefnu de Gaulle.
★ Vietnam-
viðræður.
Heimsókn Andrei Gromykos,
utanríkisráðherra Rússa, hefur
imdirstrikað þessa stefnu. Þetta
er síðasta heimsókn austantjalds-
leiðtoga til Parísar af mörgum.
Vietnam-málið hefur verið eitt
helzta umræðuefnið í viðræðum
Gromyko við de Gaulle og aðra
franska valdamenn. De Gaulle
hefur marga ágæta sérfræðinga í
Vietnam-málinu sér við hlið og
fylgist því vei með öllu. sem fram
fer.
Hann leggur mikla áherzlu á
samskiptin við hlutlausu ríkin,
einkum Alsír, en þar haida Asíu-
og Afríkuríkin ráðstefnu í júlí.
Frakkar hafa viðhaldið gömlum
samböndum sínum í Suður-Viet-
nam, og ef til vill nota þeir sér
þessa aðstöðu til að koma á sætt-
um við Vietcong. í Saigon hefur
verið orðrómur á kreiki um, að
menn hliðhollir Frökkum geri
byltingu.
★ Pompidou í
framboð?
De Gaulle er staðráðinn i að
treysta hin miklu völd sín, sem
hann telur nauðsynleg til að geta
fylgt hinni. óháðu stefnu í utan-
ríkismálum. En að undanförnu
hefur stjórnarandstaðan endur-
vakið baráttu sína, þrátt fyrir þá
óvissu, sem de Gaulle hefur kom
ið til leiðar um það, hvort hann
verði £ framboði eða ekki. Síð-
ustu- fregnir herma, að ef til vill
muni hershöfðinginn ekki geta
haldið áfram störfum af heilbrigð
isástæðum, en skýra þó ekki frá
Charles de Gaulle-
þessu fyrr en á síðustu stundu,
stinga þá upp á Pompidou for-
sætisráðherra sem frambjóðanda
og veita honum fullan stuðning.
í fyrirsögnum dagblaðanna eru
nöfn de Gauiies og Pompidou iðu
lega hlið við hlið. Ýmsir búast
við þvi, að áður en de Gaulle láti
af völdum, muni hann efna til
þjóðai'atkvæðagreiðslu svo að
stefna hans verði sett í stjórnar-
skrána. Síðan verði efnt t;l nýrra
þingkosninga, en í slíkum kosn-
ingum vonar flokkur de Gaulles,
UNR, að hann bæti aðstöðu sína
og vinni fylgi af miðflökkunum.
Hvað sem þesum bollalegging-
um líður er nauðsynlegt fyrir
vinstrisinnaða andstæðinga stjórn
arinnar að marka sameiginlega
stefnu og helzt að ná samkomu-
lagi um sameiginlegan frambjóð-
anda í forsetakosningunum. —
Stungið hefur verið upp á æ fleiri
mönnum en Gaston Defferre,
borgarstjóra Marseilles, í þessu
sambandi.
★ Margar tillögur.
Talið er, að kommúnistar hygg-
ist stinga upp á skáldinu Aragon
eða verkalýðsleiðtoganum Fracli-
on. En þeir vita að margir fylgis-
menn þeirra munu ekki kjósa
Boðskapur sá, sem Charles de Gaulle
forseti hefur flutt frönsku þióðinni
upp á síðkastið, er aðeins upphaf
kosningaharáttunnar í Frakklandi, en
eins og kunnugt er fara þar fram for-
setakosningar í desember næstkom-
andi.
kommúnista í forsetakosningum
og að þess vegna sé betra að
frambjóðandinn verði ekki komm
únisti heldur jafnaðarmáður, t. d.
sósíalistinn Daniel Mayer, sem
Guy Mollet rak úr flokki jafn-
aðarmanna fyrir 20 árum og er
nú formaður „Mannréttindasam-
bandsins".
Auk þess hefur hópur rithöf-
unda og listamanna undir fór-
ystu Jean Vilar beint þeim ein-
dregnu tiimælum, að sameinazt
verði um vinstrisinnaðan fram-
bjóðanda. Þessi áskorun hefur
vakið grunsemdir um, að komm-
unistar standi hér á bak við.
Sumir hafa talið, að möguleik-
ar Defferres hafi minnkað, þar
eð hann fékk ekki stuðning kjós-
enda til miðju og hægri í bæjar-
og sveitarstjórnarkosningunum.
Þetta virðist aftur á móti ekki
rétt. Mikilvægt er talið, að blaðið
„Témignage chrétien", eitt hinna
svokölluðu „nýju afla“, hefur lýst
nú til, að leggja verði stefnuskrá
undir dóm kjósenda en hann
hafnar enn þeirri kosningasam-
vinnu, sem kommúnistar stinga
upp á. Vitað er, að hann gerir
mikinn greinarmun á flokknum
og kjósendum hans, en þetta sést
gagnrýnendum hans stundum
yfir.
Þetta nýja „lýðræðislega
vinstri" var til umræðu á fundi
jafnaðarmanna í aprílbyrjun. —
Guy Mollet hugsar sér þetta sem
„flokkasamband", þar sem allir
flokkar (sósíalistar, róttækir o. s.
frv.) varðveiti sjálfstæði sitt í lík
ingu við aðildarríki Efnahags-
bandalagsins.
★ Einingarviðleitni.
Aftur á móti hefur stjórnmála-
klúbburinVi „Démocratie Nou-
velle“ í Marseilles nokkuð frá-
brugðna skoðun á þessum mál-
um. Hann telur sig ekki geta
stutt kosningaherferð Defferres
um umbætur í stjórnmálum, fé-
lagsmálum og fjármálum, sem
betur verði til þess fallnar cn
stefna gaullistastjórnarinnar að
vinna bug á stöðnuninni í atvinnit
lífinu og tryggja auknar fjárfest-
ingar hins opinbera og einka-
aðila.
Nokkur bið verður á bví áður
en Gaston Defferre kemur fram
með stefnuskrá. Auk þess þarf að
hleypa nýju blóði í jafnaðar-
mannaflokkinn, ef hann á ekki
að verða að flokki þreyttra öld-
unga, — en þetta á einnig við
um kommúnistaflokkinn. Laða
verður ungt fólk í flokkinn, þvi
að annars mun það snúast á
sveif með gaullistum. Flokksþing
ið í sumar mun leiða í Ijós hvórt
þetta er unnt.
Hver svo sem ákvörðun de
Gaulles verður heldur c'ningar-
viðleitni vinstrisinnaðra "ndstæð
inga stjórnarinnar áfram. Það er
að sjálfsögðu á valdi hershöfð-
ingjans að finna upp á einhverju
Þjóðverjum er ekkert afskaplega hlýtt til de Gaulle eins og bezt kemur fram á þesari mynd, en stytturra
hjó þýzkur tannlæknir fyrir kjötkveðjuhátíð.
yfir trausti á Defferre eftir við-
tal, sem birtist við hann í „Le
Monde". — í siðasta tölublaði
„Nouvel Observateur" kemst
Jean Daniel að þeirri niðurstöðu,
að Defferre hafi eftir þessum
ummælum að dæma orðið veru-
lega ágengt. ,
og telur, að flokkabandalag, sem
einkennist af neikvæðum and-
kommúnista og andgaullisma
muni ekki falla £ frjóan jarðveg
hjá kjósendum. Flokkurinn vill
heldur að andstæðingar de Gaull-
es beri fram sameiginlega tillögu
óvæntu, sem lamað gæti andstæð
inga hans. Forseti öldungadeildar
innar, Monnervi’i^, segir að ef
til vill verði engar forsetakosn-
ingar haldnar! Aftur á móti verð
ur kosið til öldungadeildarinnar i
september. — Aktuelt.
★ Ekki eins
hvassyrtur.
í „Le Monde“ er Defferre ekki
eins hvassyrtur í garð kommún-
ista og hann er vanur. Hann sagði
að jákvæðar hugmyndir væru
uppi í röðum kommúnista. eink-
vim meðal stúdenta og mennta-
manna. Hann kvaðst telja, að
fylgi sitt hefði aukizt til vinstri
við miðju eftir kosningarnar.
Defferre heldur því að sjálf-
sögðu fram, að efla beri flokk
hans sjálfs svo að hann geti orðið
kjarni vinstrimeirihluta, sem
komið geti róttækum breytingum
til leiðar í frönskum stiórnmál-
um. Þá mundi staða kommúnista
brcytast. Eins og nú er ástatt
kæmi stjórnarsamvinna við þá
ekki til gx'eina. Defferre leggur
BÓK UM FISKI-
LEITARTÆKI
Reykjavík, 28. apríl ÓTJ,
FISKILEITARTÆKI og notkun
þeirra nefnist ný bók er Fiski
félag íslands gefur út, og kem
ur í verzlanir þessa dagana. Jak
ob Jakobsson fiskifræðingur bjó
bókina til prentunar, og skrifar
sjáifur nokkrar greinar í hana.
Bókin er að nokkru leyti byggð
á norskri bók um sama efni sem
SMHAD stóð fyrir útgáfu á- í
íslenzku útgáfunni er mikill f jöldi
fróðlegra greina sem settar eru
fram á þann tátt að jafnvel forfalln
asti landkrabbi getur skilið þæi'.
Þar er m.a- rætt um hljóðfræði,
eðlisfræði hafsins, byggingu fisk
rita (Fiskríti er nýyrði er fcoma
skal £ staðinn fyrir ox-ðið ASTIÍC),
dýptarmæla, flokkun endurvarpa
leitaraðferðir, og fiskritun í notk
un. Á fundi með fréttamönnvun
sögðu þeir Jakob Jakobsson >og
Davíð Ólafsson fiskimálastóri að
þó að bókinni væri í ýmsu áfiátt
væri í henni margt sem gæti
komið flestöllum skipstjórúm að
góðum notum, ekki sízt þeim i eé
væru nýir í starfinu. í bókinnij er
fjöldi góðra skýringarmynda
ALÞÝÐUBLAÐtÐ - 30. apríl 1965 7