Alþýðublaðið - 28.08.1965, Blaðsíða 6
Danwic-
sandwich
LONDON. — Meðan Sandwich lá
varður hvílir í gröf sinni, hefur
upplýsingaskrifstofa danska land
búnaðarins í London hafið volduga
herferð fyrir því, að smurbrauð
verði framvegis nefnt Danwich.
Andstætt fyrirbrigðinu sandwich
sem eru tvær brauðsneiðar lagð
ar saman með einhverju hnoss
gæti á milli, — og hinn veleðla
en Iátni lávarður hámaði í sig
við spilaborðin fyrir 200 árum síð
an — er danwich eins konar lista
verk af brauði, smjöri og áleggi.
Með öðrum orðum: í danwich er
ímyndunaraflinu gefinn laus taum
ur. — Um fimmtíu þekkt veit
ingahús og hótel. hafa þegar tek
ið danwich á matseðla sína.
1». — ■ ' ........ ..
Lélegir leikskólar
í Danmörku.
ÞAÐ er víðar en á íslandi
að rifizt er um lélega leik-
skóla. Á leikhúsráðstefnu, j
sem nýlega var haldin í Dan-
mörku lét Henning Rohde
ráðuneytisstjóri í Mennta-
málaráðuneytinu nefnilega
svo um mælt, að danskir leik-
skólar væru alls ekki starfi
sinu vaxnir. Taldi hann inn-
lenda menntun danskra leik-
ara gjörsamlega ófullnægj-
andi, og benti m. a. á, að
jafn lítið ríki og Austurríki
eyddi t. d. mun meira til leik-
húss- og hljómlistarmála en
til utanríkismála sinna. Taldi
hann Dani mega taka þetta til
athugunar.
Á þessari mynd sjáum við hálf-
guðinn Sillu Black, söngkonuna
frægu, sem heillar alla tánunga um ;
þessar mundir með valkyrjulegri !
söngrödd sinni. Eftir myndinni að ,
dæma iokar hún sund líka. Hum! I
LEIKKONAN Pier Angeli er nú
byrjuff aftur aff leika í kvikmynd
um eftir 6 ára hlé. Þar leikur hún
unga vísindamannsdóttur, sem
fær mikilvæga uppfinningu tatt
óveraffa á magann. Og auffvitaff
byrja svo illgjarnar persónur aff
reyna aff nema hana á brott til
aff komast aff uppfinningunni.
JOANNE WOODWARD kom um
daginn í heimsókn til eiginmanns
síns, Paul Newman, þar sem hann
var viff sína daglegu vinnu í stúd
íóunum., og þar var þessi mynd
tekin. Þau virffast hin lukkuleg
ustu, enda eru þau nýbúin- aff
eignast erfingja.
Umferðarmenning
á Grænlandi
Umferðarmenningin hefur nú haf-
’ið innreið sína í Grænlandi, þar
sem nú er í fyrsta skipti verið að
útbúa þar gangrein yfir akbraut,
vegna mikillar umferðar gangandi
fólks og farartækja. Er þetta í
„höfuðborginni” Godtháb, og
standa framkvæmdirnar í sam-
bandi við nýjan 400 manna skóla,
sem verið er að opna.
185000 sýn-
ingagestir
Á tímabilinu 14. ágúst 1964 til
jafnlengdar næsta árs sóttu 185.-
000 gestir danska Louisiana-lista-
safnið skv. athugun, er stjórn safns
ins hefur nýlega gert, á móti 208.-
! 000 á sama tíma árið áður, en þá
• fór þar fram Van Gaugh-sýning,
I sem dró mjög að sér áhorfendur.
6 28. ágúst 1965 - ALÝÞUBLAÐIÐ
Hætta oð
ferðast
FRÉTT, sem snertir alla Bítla
aðdáendur: Bítlarnir John, George,
Paul- og Ringo hafa nú ákveðið að
hætta öllum hljómleikaferðum fen
setjast í helgan stein ef svo má
að orði kveða. Þeir munu í fram
tíðinni helga sig plötuútgáfu, út
varpi og sjónvarpi að ógleymdum
kvikmyndaiðnaðinum. Bítlamir
vilja hafa einhvern tíma fyrir sig
og fjölskyldur sínar — og Ringo
kvað sérstaklega vera í sjöunda
himni, því að þá gefst honum
tækifæri til að koma sér fyrir
í nýju húsi, sem hann hefur fest
kaup á í Weybridge fyrir utan
London. Hvað segja svo allir að
dáendumir um þessi óvæntu tíð
indi?
ALLT LENGST
OGMEST?
Kona af fslenzkum ætt-
um í dönsku sjónvarpi
ELIZABETH SIGURÐSSON klarinettleikari, dóttir íslendings-
ins Haralds Sigurffssonar píanóleikara, bróffur Jóns heitins frá Kald-
aðarnesi, nýtur mikilla vinsælda í Danmörku sem mikilhæf tón-
listarkona. Þessi unga kona, sem mjög hefur aukið hróffur íslands
í tónlistarheiminum e|ns og hún á kyn til, kom nú í vikunni fram
í sjónvarpinu danska og þá var þessi mynd tekin. Hér sést liún
kynna ýmsar gerffir klarinetta.
JAPANSKIR verkfræðingar telja
sig hafa byggt stærsta skip í heimi
og hraðskreiðustu járnbraut í
heimi. Nú hafa þeir á prjónunum
brú, sem á að verða með lengsta
hafi í heimi. Brúin, sem á að
verða nálega fimm kílómetra löng,
á að liggja frá borginni Kobe yfir
Akashi sund til eyjarinnar Awaji.
Lengsta haf brúarinnar verður
1300 metrar og verður þá um það
bil tveim metrum lengra en
lengsta haf brúarinnar, sem ligg-
ur frá Manhattaney yfir til New
Jersey og er í dag lengsta brúar-
haf í heimi.
Vinna við hina nýju brú á að
hefjast um mitt næsta sumar og
hún að verða fullgerð árið 1970
Undirbúningsrannsóknir hafa þeg-
ar staðið í 3 ár. Borgarstjórinn í
Kobe, sem sjálfur er verkfræðing-
ur, kom fram með hugmyndina að
brúnni fyrir 25 árum. Hann lítur á
brúna sem lið í áætluninni um
vegasamband milli stóru eyjanna
Honshu, Shikoku og Kyushu.
Danski bókamarkaðurinn
DANSKI bókamarkaðurinn í haust
verður allfjörlegur að vanda og
ber þar mikið á nýliðum í rithöf
undastétt. Eru þar a.m.k. 10
menn, er ekki hafa sent frá sé
skáldverk áður og eru þeir á
aldrinum 22—65 ára. Yngsti mað
urinn í hópnum mun vera 22 ára
gamall prentnemi frá Kaupmanna
höfn, Frank Mehr að nafni, sem
sendir frá sér þriðju bók sína, Latt
„Den levende basun“, sögur sem
fjalla um ungar ástir og ærðan
heim, Annars verður langmest um
smásagnasöfn í ár, hvað skáldskap
inn snertir.
IIVAÐ GERIR KVIKMYNDA
STJARNA í FRÍTÍMUM SÍNUM?
Spurningin var lögff fyrir Anthony
Perkins og hann svaraði: „Ég er
piparsveinn, bý til mat og þvæ upp
á mitt bókasafn, nú og plötusafn
svo hugsa ég Iíka um köttinn
minn og hundana mína tvo. Svo
skoffa ég nútíma Iist.“
Hans Hansen, 26 ára gamall
kennari, sendir frá sér fyrstu bók
sína, „Lyd“, sem hefur að geyma
sögur úr sálarlífi manna. Benny
Andersen snýr sér nú frá ljóðlist
að óbundnu máli og gefur út smá
sagnasafnið „Puderne". Ulla Ryum
sendir frá sér þriðju bók ísan„Latt
fuglen“ og hin 92 ára Marie Dine
sen endurminningabókina „Glimt
,va et langt liv“.
1 VIKU IIVERRI koma um það
bil 300 nýjar hljómplötur á mark |
aðinn í Bandaríkjunum, en af j
öilum þessum fjölda eru aðeins
ca. 4, sem vekja verulegt umtal.
Hinar koma bara út — og gleym
ast.
INTERPOL hefur nú tekið til með
ferðar eiturlyfjamál, sem risið er
í Danmörku. Þar koma við sögu
21 árs gamall bandarískur ríkis
borgari og 20 ára gömul dönsk vin
kona hans. Fundust í fórum þess
ara hjúa dextrintöflur og hashish
sem falið var í eldspýtustokki.
Munu hjúin hafa verið búin að
selja allmikið magn eiturlyfjanna.
Málið er talið hið alvarlegasta.
Þessi mynd er birt eingöngu
vegna þess hve stúlkan er sæt.
Hún er fegurffardrottning Dan
merkur 1965.