Alþýðublaðið - 23.11.1965, Qupperneq 4

Alþýðublaðið - 23.11.1965, Qupperneq 4
Bltstjörar: Gylfl Gröndal (áb.) og Bencdikt Gröndal. - Ritstjómarfull- trúl: Eiöur GuBnason. — Simart 14900-14903 — Auglýsingasími: 14906. ABaetur: AiþýBuhúsiB vlB Hverfisgötu, Reykjavík. — Prentsmiðja Alþýðu- blaBdns. — Askriftargjald kr. 80.00. — 1 lausasölu kr. 6.00 eintakiB. UtgefancU: AlþýSuflokkurinn. Vinstri eða hægri? RÍKISSTJÓKNIN hefur lagt fram á Alþingi frumvarp til laga um hægri hiandar alkstur. Hefur það mál verið mikið rætt undanfarin ár, og virðist yfirgnæfandi meirihluti þeirra man'na, sem bezt ættu . til umferð'armála að þekkja, telja rétt að gera þá breytingu. Alþingi hefur gert ályktun í þá átt, og er frumvarpið samið í samræmi við hana. í greinargerð frumvarpsins er fjallað um kosti þess og galla að breyta til hægri handar umferðar. Eru þar vissulega rök með og móti, og má búast við, að skoðanir kunni að verða skiptar, þegar málið Ikemst á lokastig. Sérstaklega mun ýmsum þykja það miður, að breytingin verður ekki án mikils til- íkostnaður, yfir 40 millj. króna, og það fé er ókleift .að láta aðra greiða en þær bifreiðir, sem breyting- in nær til. Ekki má gleyma því, að þessi kostnaður mun fara hækkandi, því lengur sem breytingin er dregin á langinn, ef hún á annað borð verður gerð. Ríkisstjórnin hefur undirbúið mál þetta mjög vel, eins og Alþingi óskaði eftir. Ólíklegt er, að flokkarnir sem slíkir taki afstöðu til málsins og •geta þá þingmenn ráðið, hvorn kost þeir velja, hægri ,'akstur eða vinstri. En sú afgreiðsla, sem málið fær nú, verður að gilda um langa framtíð. Fjármál sveitarfélaga RÁÐSTEFNA um fjármál sveitarfélaga stendur yfir í Reykjavík þessa daga. Eru þar saman komn- ir fulltrúar víðs vegar af landinu, og meðal ræðu- 'Ttianna, er fram koma á fundinum, verða tveir ráð ■iherrar. Er þessi ráðstefna ein af mörgum, sem Sam- •band íslenzkra sveitarfélaga hefur staðið fyrir, en þau samtök hafa verið málefnum sveitarfélaganna mikil lyftistöng. Lífskjör manna eru ekki aðeins mótuð af tekj- um þeirra sjálfra, fjárhag og húsnæði. Þar koma einnig til sögunnar umhverfi, götur og garðar, skól- ar, sjúkrahús, önnur félagsleg þjónusta, vegir, fl-ug- vellir, hafnir og fleira. íslendingar eru nú á því stigi, að þeir gera stórauknar kröfur til sveitar- félaga og ríkis um margvíslega þjónustu, og verður af þeim sökum að auka opinberar framkvæmdir á vissum sviðum. Fer það mjög eftir fjárhag sveitar- félaga, hve vel þau geta staðið sig við framkvæmd- ir eins og varanlega gatnagerð, skólabyggingar, sjúkrahús, bókasöfn, hafnir o.fl. o.fl. Það mun reynast gagnlegt að ræða þessi mál á sérstakri ráðstefnu. Hins vegar er þess ávallt að (gæta, að fámenn þjóð er takmarkaður skattstofn, sem ríki og sveitarfélög verða að skipta á milli sín ó bróðurlegan hátt, isvo að almannafé komi að sem beztum notum. 4 23. nóv. 1965 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ HAGKAUP auglýsir C8 NÆLON VELOUR NÁTTKJÓLAR Léttir off hlýir. Tilvaldir til jólagrjafa. Litir: Blá og- rauðrósóttir á hvítum grunni, ennfremur ljósbtáir, einlitir. Stærðir: 38, 40, 43, 44, 46, 48, 50. Verð: Ermaiausir Kr. 348.00 Með 1/4 ermurn Kr. 398.00 m m TVEIR RITDOMARAR hafa nú látið' uppi álit sitt um nýjustu skáldsögu Kristmanns Guðmunds sonar, Torgið. Báðir dæma hana hart og bó ekki þannig, að þeir séu sammála. Þetta kemur mér ekki á óvart. Það er alveg sama hvernig skáldsaga Kristmanns hefði verið, dómar, að minnsta kosti sumra ritdómara, hefðu orð ið á eina lund. VITAXLEGA ER hægt að deila um allar bækur. Afstaða lesandans og aðstaða hans, hlýtur alltaf að hafa mikil áhrif á álitið og dóm ! inn. Kristmanni hefur tekist á j enhvern hátt að komast inn á milli | tanngarðanna á fólkinu og hann geldur þess og nýtur þess. Hvor; ugur ritdómaranna minnist á það, I að hvað byggingu og kvcik.iu snert ir, er bókin vel gerð. Það hljóta lesendur að viðurkenna. TORGIÐ ER MIÐDEPILL sög- unnar, um það snúast örlög pers- ónanna og marga aldraða menn hef ég hitt á Austurvelli, Arnar hóli og undir veggnum á kirkju garðínum, þar sem þeir liittast á góðviðrisdögum og tala saman af djúpri lífsreynslu. Ég lief hlust að á þá en alltaf af tilviljun, og setningar þeirra lifa með mér. En dómurinn virðist vera harðastur vegna gamla mannsins í sögunni. Hvaða erindi hann eigi í hana? Hann er dráttur í því málverki, sem skáldið hefur dregið upp og að því er virðist, nauðsynlegur drátt ur. TORGIÐ er skrifuð í hefðbundn um stíl. engin stílbrögð, enginn leikaraskapur. Frásögnin líður áfram hæg og streymin. Við brögð persóna geta vitanlega ork að tvímælis, en er það nokkuð tiltökumál? Bókin fjallar um lífið í Reykjavík eins og við þekkjum það, ahnaðhvort af afspurn eða eigin reynslu. Það kemur manni misjafnlega fyrir sjónir. Þarna get ur að lesa sjónarmið Kristmanns Guðmundssonar. 5 CKXXX^OtKXXíóOOCKXXKXX^OOOOOOOcXKXS ★ TorgiS - og skáldið. ★ Kristmann Guðmundsson og Iffið í Reykjavík. ir Síldin og síldarverksmiðjur ríkisins. Á Atvinnuástandið á Norðurlandi. <xxxxxx><xk><><x><xxx><x><x>ooooooooooo SJOMAÐIJR SKRIFAR: „Nú vantar illa flutningaskip til að flytja síldina frá Austfjörðum til Norðurlandsins t.d. til Siglufjarðar Skagastrandar eða Húsavikur eða bara til Raufarhafnar. SÍLDARVERKSMIÐAN í Reykja vík hefir skip — sitt eigið skip, sem mun líklega koma til með að skila 150—200 þúsund málum að austan hingað suður og fullvíst má telja að megnið af þessari síld hefði aldrei verið veidd eða svip að magn ef þetta ágæta flutninga skip liefði ekki verið keypt. Þá voru aðrar verksmiðjur liér syðra með skip, sem eitthvað flutti af síld að austan, en mun nú hætt. DAGSTJARNAN, áður Þyrill, nú eign Bolvíkinga, hefir alltaf verið í flutningum síðan það kom heim í sumar. Krossanes og Hjalt eyri höfðu og hafa skip til flutn inganna og sagt er að það sé leigt til n.k. mánaðamóta. En livað hafa Síldarverksmiðjur ríkisins flutt mikið af austurmiðum til Norður landshafna? ÞAÐ MUN ENTTHVAÐ vera, en allt of lítið. Þær eiga ekkert skip til þessara flutninga, en munu hafa haft koppa s.l. sumar um takmark aðan tima. Þeir voru forsjálli Reyk víkingarnir að kaupa 20.000 mála skip til þessara flutninga heldur en stjórn ríkisverksmiðjanna. Stærsta fyrirtækið í þessari starfs grein liefir þarna orðið illa aftur úr. Mundi þó ekki hafa af veitt, að flutt liefði verið til Siglufjarðar eða Skagastrandar hrá hráefni, til þess að veita starfslitlu fólki á þessum stöðum atvinnu. SÍLDIN, skip Reykvíkinganna mun hafa bjargað í þjóðarbúið tugum milljóna króna í beinhörð um gjaldeyri. Þannig hefðu ríkis verksmiðjurnar einnig getað gert en þar virðist, liafa vantað útsjón og áræði, sem Reykvíkingarnir liöfðu til að bera. STJÓRN verksmiðjanna ættl strax að fara á stúfana og hefja undirbúning fyrir næstá sumar, ekki eingöngu leigja skip held- ur reyna að eignast tankskip svip að að stærð og Reykvíkingarnir. Og útbúa það þannig að það getl dælt síldinni úr skipum úti á miðun um. Annars tel ég alveg bráð nauðsynlegt að endurskoða lögin um þetta ágæta fyrirtæki, Sildar verksmiðju ríkisins og koma þar inn veigamiklum atriðum tii hag ræðis, bæði fyrir fyrirtækið sjálft og viðskiptamennina, sem eiga mikið undir að það þjóni sínum upphaflega tilgangi, án þess þó að skerða grundvallarhugsjón þeirra mætu manna, sem hornstein inn lögðu að þessu mikla þjóðþrifa fyrirtæki í upphafi." Lesið Áiþýðublaðið Áskrifffasíminn er 14900

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.