Alþýðublaðið - 23.11.1965, Qupperneq 9
í Bandalagi kvenna
ingu • verzlana á ýmsum nauð-
synjavörum, s. s. búsáhöldum,
leirvöru, barna- og kvenskófatn-
aði, heimilisvélum, byggingavör-
um og krefst þess, að aftur verði
sett ákvæði um hámarksálagningu
á þessar vörur.
10. Fundurinn beinir því til
stjórnarvaldanna að gera þegar í
stað ráðstafanir til þess að tryggja
það, að landbúnaðarframleiðslan
verði.sem fjölbreyttust og í sem
mestu samræmi við neyzlu íslend-
inga sjálfra, svo að stórfelldir
neyzlustyrkir til erlendra þjóða
því fást aðeins rúmlega- tveir
fimmtu af framleiðsluverðinu, en
afganginn greiða neytendur með
söluskatti á öðrum vörum. Ætla
mætti, að heppilegra sé að selja
eitthvað af þessari umframfram-
leiðslu á lægra verði til íslenzkra
neytenda.
11. Fundurinn leggur áherzlu
á, að leitað verði allra tiltækra
leiða til þess að lækka húsnæð-
iskostnað, sem er mjög veruleg-
ur hluti af útgjöldum fólks og fer
sífellt hækkandi, og fagnar því,
að borgarstjórn hefur hafið bygg-
síðastliðinn var haldinn aðalfundur Bandalags kvenna.
ir frá 22 kvenfélögum í Reykjavík, með samtals yfir
félagsins skipa' Aðalbjörg Sigurðardóttir, formaður,
:i og GuðlaugBergsdóttir, gjaldkeri. Eins og undanfar-
i margar tillögur og fara þær hér á eftir:
verði ekki til þess að magna verð-
bólguna í landínu.
Greinargerö:
íslenzkar landbúnaðarvörur Iiafa
hækkað gífurlega í verði á undan-
förnum árum. Útflutningsfram-
leiðsla á búvörum veldur veru-
legum, almennum verðhækkunum.
— Um þessar mundir eru í
landinu ársbirgðir af smjöri, yfir
200 milljón króna virði af fram-
leiðsluverðmætum. Verði sá vandi
leystur með útflutningi á mjólk-
urafurðum, munu aðeins fást 40
milljónir króna fyrir þetta magn.
Mismuninn eða fjóra fimmtu af
verðmætinu greiða neytendur
með söluskatti og þar með hærra
verði á öðrum nauðsynjum. Svip-
uðu máli gegnir með útflutning á
kindakjöti; fyrir útflutning á
ingu leiguhúsnæðis fyrir gamalt
fólk og einstæðar mæður, — en
væntir.þess, að hraðað verði eins
og mögulegt er að ljúka þessum
aðkallandi framkvæmdum. - Jafn-
framt verði haldið áfram bygg-
ingu leiguhúsnæðis, sem ætlað er
öldruðu fólki, einstæðum mæðr-
um og einnig ungu fólki, sem er
að býrja búskap.
Greinargerð:
Óhóflegur gróði er tekinn af
sölu húsa og sést það gleggst á
því, að rúmmeter í sambýlishúsi
kostar samkvæmt útreikningi
Hagstofu íslands kr. 2.478,84, en
rúmmeter í slíkum húsum sé seld-
ur á milli þrjú og fjögur þúsund
krónur — eða með ea. 20% —
60% gróða. Þetta brask veldur
síhækkandi húsaleigu.
venna vill endurskoðun á fræðslulöggjöfinni frá 1946.
12. Fundurinn fagnar tillögu
til þingsályktunar um setningu
húsaleigulaga, sem fram er komin
á Alþingi, og skorar á borgarstjóra
að láta fara fram athugun á því,
hvort ekki -sé hægt að setja á
fót stofnun, sem hafi milligöngu
með sölu og leigu húsnæðis í
borginni til þess að fyrirbyggja
húsabrask og okur. Jafnframt
skorar fundurinn á Alþingi og
borgarstjórn að stuðla að því, að
byggingarsamvinnufélögum verði
gert kleift að annast byggingu
verulegs hluta þess húsnæðis,
sem byggja þarf, og tryggja, að
íbúðir, sem þannig verða byggð-
ar, lendi ekki í braski, en verði
seldar eða leigðar á kostnaðar-
verði.
13. Fundurinn fagnar sam-
komulagi verkalýðsfélaganna og
ríkisstjórnarinnar frá sl. vori um
byggingu 250 íbúða árlega næstu
fimm árin, (þ. e. 1250 ibúðum
alls), þar sem 80% af verðmæti
íbúðanna er lánað með lágum
vöxtum til 33 ára og tilraun gerð
til þess að lækka byggingarkostn-
aðinn með fjöldaframleiðslu,
og nýjum tækniaðferðum. Fund-
urinn vill skora á ríkisstjórn, borg
arstjórn og bygginganefndina að
vinna ötullega að því, að fram-
kvæmd þessi standist áætlun.
14. Fundurinn vill benda á
nauðsyn þess, að byggingarlán
verði veitt til langs tíma, þar sem
óeðlilegt má teljast, að ein kyn-
slóð verði að greiða að fullu hús-
næði, sem ætlað er fyrir margar
kynslóðir.
i
★ ÁFENGISMÁL.
I. Fundurinn harmar hin sí-
fjölgandi umferðarslys og afleið-
ingar þeirra. Sérstaklega telur
fundurinn ámælisvert, hve margir
menn virðast aka bifreiðum und-
ir áhrifum áfengis og valda með
því mikilli hættu og slysum í um-
ferðinni. Beinir fundurinn því
til ríkisvaldsins og löggæzlu að
gera allt, sem unnt er til að koma
í veg fyrir þennan voða.
II. Fundurinn bendir á, hvort
ekki væri ástæða til að birta
í öllum blöðum undanbragða-
Iaust og á áberandi stað nöfn
allra, sem teknir eru ölvaðir við
akstur. Er ástæða til að halda,
að þetta hafi nokkur áhrif til
góðs. Einnig það að taka ökuskír-
teini af mönnum og afhenda
þau ekki aftur fyrr en dómur er
genginn í málum þeirra.
III. Fundurinn tekur undir
frumvarp það, sem alþingismað-
urinn Skúli Guðmundsson flytur
á Alþingi því, sem nú situr, um
að þyngja verulega refsingu
þeirra manna, sem aka bifreið-
um undir áhrifum áfengis, jafn-
vel með því að svipta þá ökuleyfi
ævilangt.
53 konur af 66 fulltrúum lögðu
fram eftirfarandi áskorun til Al-
þingis: — Fundurinn beinir því
til Alþingis og ríkisstjómarinn-
ár að láta fara fram allsherjar
atkvæðagreiðslu um aðflutnings-
bann á áfengum drykkjum.
FRAIWHALD Á MORGUN.
JÖNAS
ÞORBERGSSON
ÍHATUGA KYNN3
KÖFUNOAR AF
DULRÆNJM FYRIRBÆRUM
UÓS YFIR
LANDAMÆRIN
Þessi bók Jónasar Þorbergssonar, LJÓS YFIR LANDA-
MÆRIN, greinir* frá öllum megindrátfum eíginreynslut
höfundar á miðilsfundum og i samstarfí með ýmsum
beztu miölum. Höfundur fjallar einníg um frúarbrögíS
mannsins, - hvernig ijós híns vfsíncfatega spírifisma
rennur upp yfir mannkyn um míðbík 19. aldar, - ogj
um framgang spiritismans í ieit að sannleikanum.
LlðS YFIR
1ANDAMÆRIN
ÁRATUGA KYNNI
HÖFUNDAR AF
DULRÆNUM FYRIRBÆRUM