Alþýðublaðið - 23.11.1965, Page 11
Nær 100 fulltrúar á ársþingi KSÍ:
: gur KSI ei með
niklum ágætum
Stjóm KSÍ. Fremri röð frá vinstri. Sveinn Zoegra, Björgvin
Schram, Guðmunrlur Sveinbjörnsson. Aftari röð. Jón Magnússon,
Ragrnar Lárusson, Ingrvar N. Pálsson og Axel Einarsson
ÁRSÞING Knattspyrnusambands
íslands var háð í Reykjavík um
helgina. Þingið sátu nær 100 full-
trúar víðsvegar að af landinu.
Formaður sambandsins, Björg-
SUNDMÓT
í KVÖLD
Haustmót Sundráðs Reykjavík-
ur fer fram í Sundhöll Reykja-
víkur í kvöld og hefst kl. 20,30.
Keppt verður í eftirtöldum
greinum:
200 m. skriðsund — karlar
100 m. skriðsund — konur
100 m. bringusund — karlar
100 m. baksund — konur
50 m. bringusund — drengir
50 m. bringusund — stúlkur
Auk þess fer fram úrslitaleikur
haustsmótsins í sundknattleik, og
leika Ármann og KR til úrslita.
vin Schram setti þir.gið með ítar-
legri ræðu, þar sem hann m.a.
drap á ýms framtíðarverkefni
þess.
Skýrsla sambandsstjórnar hafði
verið send aðildarfélögunum
nokkru fyrir þingið. Br skýrslan
hin ítarlegasta greinargerð um
margslungin verkefni og fram-
kvæmdir hinnar ötulu sambands-
stjórnar á liðnu starfsári. Reikn-
ingar sambandsins báru vott um
góða afkomu, og gætni og aðhald
á fjármálasviðinu eða sem sagt
góða fjármálastjórn. Gjaldkeri
KSÍ er Ragnar Lárusson.
Miklar umræður urðu um skýrsl
una og reikningana og hnigu all-
ar að því að þakka sambands-
stjórninni örugga forystu í mál-
efnum knattspyrnuhreyfingarinn-
ar á kjörtímabilinu.
Ýmsar merkar upplýsingar
komu fram í þjálfunarmálunum
í framsöguræðu Guðm. Svein-
bjarnarson um þau mál en segja
má, að þau séu „dagsins mál“ hjá
Enska deildakeppnin hélt á-
fram sl. laugardag. Að þeirri um-
ferð lokinni heldur Liverpool for-
ystunni með 25 stigum, en í öðru
sæti með sama stigafjölda er Bur-
nley. Úrslit urðu annars sem hér
segir.
Arsenal — West Ham 3:2
Burnley — Aston Villa 3:1
Chelsea — Sunderland — frestað
Everton — Leeds 0:0
Manchesteer U — Sheffield U 3:1
Newscastle — Leicester 1:5
Northamton — Tottenham 0:2
Notthingham F Blackpool 2:1
Sheffield W — Fulham 1:0
Stoke — Liverpool 0:0
West Bromwich — Blackburn 2:1
í Skotlandi fóru leikar sem hér
segir:
Celtic — Hamilton 5:0
Dundee — St. Johnstone 3:1
Dunfermline — Clyde 6:4
Hearts — Morton 2:1
Motherwell — Dundee U 0:3
Rangers — Kilmarnock 5:0
St. Mirren — Partick Thistle 2:0
Stirling — Hibernian 1:2
hreyfingunni Þá var nefnd skipuð,
þeim Karli Guðmundssyni, Reyni
Karlssyni og Óla B. Jónssyni til
frekari athugunar á málum þess-
um. Einnig var samþykkt skipun
III. deiidar.
Björgvin Schram var einróma
endurkjörinn formaður sambands-
ins, einnig voru endurkjörnir þeir
þrír sem úr stjóminni áttu að
ganga, en þeir voru: Guðmundur
Sveinbjörnsson, Jón Magnússon
og Ingvar N. Pálsson í stjórninni
eru fyrir Sveinn Zoega, Axel Ein-
arsson og Ragnnr Lárusson.
Gestir þingsins voru: Forseti
ÍSÍ Gísli Halldórsson, heiðurs-
forseti ÍSÍ Benedikt G. Waage,
formaður ÍBR, Baldur Möller.
Fluttu þeir allir í þingbyrjun á-
vörp og árnaðaróskir sambandinu
til handa.
Forseti þingsins var Hermann
Guðmundsson, framkvæmdastjóri
ÍSÍ og ritari Einar Björnsson for-
maður KRR.
Esbjerg varð Danmerkurmeist-
ari í knattspyrnu 1965
Liðið gerði jafntefli 1:1 við
B 1903 í síðustu umferð og hlaut
þar með 31 stig.
í öðru sæti varð Vejle með 30
stig.
★
Kínverski hástökkvarinn Ni-Chi-
Chin stökk um helgina yfir 2,25
m. á móti í Wuhanhi. Árangurinn
er nýtt kínverskt met, en fyrra.
metið átti Ni-Chi-chin sjálfur og
var það 2,24 m. Gildandi heims-
met er 2,28 m. og er handhafi
þess Rússinn V. Brumel.
★
Rúmenía sigraði Portúgal með
2:0 í undankeppni í heimsmeist-
arakeppninni í knattspyrnu. í
sama riðli vann Tékkóslóvakía
Tyrkland.
Portúgal sigraði í riðlinum og
tekur því þátt í úrslitakeppninni
í Englandi.
★
Enska 1. deildarliðið Stoke
reynir nú að fá keyptan fyrirliða
sænska landsliðsins Sven Gunnar
I.arson. Larson dvaldist í Stoke
um helgina og sýnir mikinn áhuga
á því, að komast í hið fræga lið.
Einu vandkvæðin eru þau, að
enska knattspyrnusambandið leyf-
ir ekki, að útlendingar leiki með
enskum liðúm.
Sigríði Sigurðardóttur afhentur blómvöndur
i tilefni 100. leiia
hennar með meistaraflokki Vals.
Valur og Ármann
skildu jöfn 12:12
Valsstúlkurnðr sigruöu Fram 6:2
MEISTARAMÓT Reykjavíkur Næsti leikur var á milli Valg
í handknattleiek liélt áfram á og Ármans og fyrri hálfleikur var
laugardag og sunudag Á laugar-
dagskvöldið voru ma. háðir tveir
leikir í meistaraflokki kvenna,
Valur sigraði Fram með yfirburð-
um skoraði 6 mörk gegn 2. Sig-
ríður Sigurðardóttir fyrirliði Vals
og landsliðsins lék sinn 100 leik
með Val og stóð sig vel að vanda.
Þá sigraði Víkingur KR með 10
mörkum gegn 4.
, í 2. flokki kvenna gerðu Ár-
mann og Fram jafntefli 4:4. Þá
fóru fram einn leikur í 3. flokki
karla, Fram sigraði ÍR 7:5. í I.
flokki karla sigraði Víkingur KR
9:4 og Þróttur Val 6:3. Víkingur
og Þróttur hafa sigrað í riðlum
I. flokks og leikatilúrslita.
ÞRÍR I.EIKIR voru háðir í meist-
araflokki karla á sunnudag. Leik-
irnir voru ekki sérlega tilþrifa-
miklir, en þó kom á óvænt jafn
leikur KR og ÍR og jafntefli Vals
og Ármanns.
irÍR — KR 10:12
Fyrsti leikur kvöldsins var
milli ÍR og KR og handknattleiks-
unnendur hafa áreiðanlega búizt
við auðunnum sigri KR, en það
fór á annan veg. ÍR-ingar börð-
ust eins og hetjur og leikurinn
var mjög jafn lengst af, þó að
KR-ingar hefðu yfirleitt heldur
betur. í hléi var staðan 5:4 fyrir
KR. í síðari liálfleik tókst ÍR tví-
vegis að jafna, 7:7 og 8:8, en þá
gerðu KR-ingar 3 mörk í röð án
þess, að ÍR tækist að svara fyrir
sig og sigur KR var trygður. Loka-
tölurnar voru 12:10.
★ VALUR - ÁRMANN 12:12
mjög glæsilegur af Vals báll'u.
Liðið lék hratt og af öryggi Og
staðan í hléi var 10:4. í siðávi
hálfleik snerizt þetta við, Ármeniv
ingar draga jafnt og þétt á for-
skot Vals og á síðustu mínútunnl
tekst þeim að jafna, 12:12. Vals-
liðið getur sýnt mjög góðan hand-
knattleik. þegar því tekst vel upp,
en það er eins og vanti yfirvegun
í leik liðsins. Ef Valsmenn ætla
að komast á toppinn verða þeir atf
leika fyrsta flokks bandknattlejh
frá fyrstu til síðustu míútu leiks-
i;
ins.
j
★ VÍKINGUR — ÞRÓTT-
UR 19:10
Víkingur hafði yfirburði i leikiv
um við Þrótt og það var aldrei
neinn vafi á því hvor var sterív
ari aðilinn í þeirri viðureign.
Lokatölurnar voru 19:10, mjög
verðskuldaður sigur og góðtw
leikur hjá Víking.
Áður en meistaraflokksleikirnir
hófust vann Ármann KR i 2 fl
kvenna 6:5.
Aðalfundur FIRR
Aðalfundur Frjálsíþróttaráðs
Reykjavíkur verður haldinn niið-
vikudaginn 24. nóvember n.k. I
íþróttamiðstöðinni í Laugardal og
hefst kl. 20,30
Dagskrá skv. starfsreglum
Rússneska landsliðið, sem er' núk
á keppnisferðalagi. lék um helgina
við Brasilíu og lauk þeim leik me'ð
jafntefli 2:2.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 23. nóv. 1965