Vísir - 12.11.1958, Blaðsíða 1

Vísir - 12.11.1958, Blaðsíða 1
12 síðut 12 síðut 48. árg. Miðvikudaginn 12. nóvember 1958 252. tbl. Síldveiðitilraunir: vðrpu austur í hati. Ksnadlska vsrpan reynist vsl. Fannsy fékk 40 tn. í stuttu togi. Fyrir nokkru fór togarinn Neptúnus í síldarleitarleiðang- Wr en för hans var þó fyrst og fremst gerð til að reyna að Veiða síld í flotvörpu. Veður bcfur verið óhagstætt Iiér við land undanfarið en þó voru nokkrar tilraunir gerðar við Suðv'esturland. Neptúnus er nú farinn austur og mun tilraun- linum verða haldið áfram nærri Færeyjúm á svipuðum slóð- llm og rússneskir togarar eru Kagðir afla vel í troll um þcssar ínundir. Að því er Vísir hefur frétt fcáru tilraunirnar hér við land fekki mikinn árangur en nokk- Vð veiddist þó í trollið, enda er þegar fengin vissa fyrir því eð veiðarfærið virkar rétt. M.b. Fanney, sem er við síldarleit fyrir reknetabátana var með Neptúnusi og aðstoðaði við til- raunirnar með því að finna BÍldartorfur og þá sérstaklega við að ákvarða dýpt vörpunnar í sjónum. Enn eru ekki komin á rnarkað tæki sem sýna hvað varpan er djúpt í sjónum, eða á sama dýpi og dýptarmælar sýna síldartorfuna. Fanney sigldi því í kjölfar Neptúnusar gaf upp dýpi vörpunnar. Talsvert magn af síld er út af Faxaflóa og í Miðnessjó. Rannsóknir benda til þess að mikið sé um smásíld, því síld- arbátar hafa lagt í svartar lóðningar en ekki fengið neina síld, en ekki er hægt að greina á dýptarmæla hvort um smá- síld eða stórsíld er að ræða. Síldin virðist vera að færast sunnar og nær landi og aðal- magnið virðist vera að nálgast Húllið, en þar var mesta síld- ’ veiðin um þetta leyti í fyrra. Síldin er talsvert dreifð enn ( en líkur eru fyrir því að hún þéttist er kólna tekur. Sjávar- . hiti er óvenju mikill 9 til 10 stig | en er venjulega ekki nema 6 ' til 7 stig. I r Vandalaus ^ veiðiaðferð. I i Það er álit þeirra sem bezt ’þekkja til um veiði með síld- arvörpu að vandalaust sé að veiða síld í kanadisíku vörp- juna, þegar síld heldur sig við botn á daginn. Þannig fengust nýlega 40 tunnur í stuttu togi sem gert var í tilraunaskyni á m.b. Fanney. Það sýnir að þessi veiðiaðferð sem tíðkast hefur í Norðursjónum í ái'atugi hentar einnig á vissum svæðum og árs- tímum hér við land og er á- rangursríkari og kostnaðar- minni en þær veiðiaðferðir sem nú tíðkast. Galli fylgir gjöf Njarðar, togveiðar eru bannað á þessu svæði nema þegar um Framh. á 11. síðu. Hvergi þvílíkar hrossa- kjötsætur sem á Isíandi. Borðað svipal magn af hrossa- og nautakjöfi. í aths. ritstj. Árbókar land- búnaðarins við grein um hross, sem birtist í nýútkominni Ár- bók, segir að íslendingar neyti árlega um 9 kg. af hrossakjöti á mann árlega eða álíka sem af nautakjöti „og mun þvílíkur jöfnuður ekki þekkjast annars- staðar“. Athugasemdin var við þau ammæli m. a., að „ósæmilegt þyki nú“ hér á landi „að leggja sér hrossakjöt til munns“. Seg- ir ritstj. svo: „Hitt er heldur, að hvergi séu nú slíkar hrossakjötsætur sem hér á íslandi, þó að þeir menn séu líka til hér, sem ekki borða hrossakjöt. Eftir því sem ráða má af tölu og þyngd húða hefur á síðustu árum verið borðað svipað magn af hrossakjöti og náutgripakjöti (þar sem talið kálfakjöt) hér á landi árlega, um 1500 tonn af hvoru, eða um 9 kg. á íbúa og mun þvílíkur jöfnuður ekki þekkjast annars- staðar. Þetta hrossakjötsát hef- ur sízt farið þverrandi, en hins vegar hefur framboð hrossa- kjöts farið vaxandi, enda leiðir slíkt af því, að gengið hefur á hrossastofninn og að hrossa- ræktin hefur með ári hverju snúizt meir og meir að því að framleiða folöld og tryppi til slátrunar.“ Hér birtist mynd af nýju skipi, sem senn tekur höfn hér á landi. Þetta er nýi Selfoss, sem verið hefur í smíðum í skipasmíðastöð Álaborga" — Álborg Værft — oy er myndin tekin, þegar skipið var á reynsluförinni í síðustu viku. Self Jss á að leggja af stað frá Álaborg í lck vik- unnar, og siglir hann fyrst til Kaupmannahafnar og Ilamborgar, áður en stefnan vcrður tekin til íslands. Jónas Böðvarsson er skipstjóri á Selfossi, eins og getið hefur verið í Vísi. — Gullfoss tefst lítilsháttar. Frá fréttaritara Vísis. K.höfn í morgun. Gullfoss varð fyrir smávægi- legri vélarbilun við^ brottförina héðan í gær. Skipið leysti landfestar á til- settum tíma, klukkan tólf á há- degi, en fór ekki nema á ytri höfnina. Þar var því snúið við og haldið beina leið til skipa- smíðastöðvar Burmeister & Wain. Hafði komið í ljós smá- vægilegur leki á bullustrokki. Skipasmíðastöðin gerði ráð fyrir, að skipið mundi verða ferðbúið árdegis í dag. Sofandi manni bjargaö úr reyk. Slökkviliðið varð að brjóta upp hús til að kæfa eld. Hríð á efstu hæð, rigning á götunni. Fyrsti vetrardagurinn í New York var á mánudaginn, að því er segir í fregnum þaðan. Ekki snjóaði þó að neinu ráði, nema á efstu hæðum skýjakljúf anna. Var hörkubylur á útsýn- ispallinum á Empire State- byggingunni, sem er hæsta bygging heims, og niðri á göt- unni fyrir neðan var rigning, og komst ekki nema eitt og eitt snjókorn „heilu og höldnu“ niður á jafnsléttu. Hæðarmun- urinn er líka 86 hæðir eða 301,5 metrar. Látlaus skothríð á Kvemoj. Kínverskir kommúnistar hafa birt tilkynningu þess efnis að skotið verði dag og nótt á Kvemoj og aðrar eyjar undan Kínaströnd á valdi þjóðernis- sinna. Að undanförnu hefur verið lát á skothriðinni annan hvern sólarhi'ing. Um sama leyti og þetta var tilkynnt voru væntanlegir til Kvemoj nokkrir bandarískir hershöfðingjar. Litlu munaði að illa færi í húsi einu við Hjarðarhaga í gærkveldi, cn slökkviliðið brauzt þar inn í læst hús, bjargaði sofandi manni og kom í veg fyrir eldsvoða. Það var á 9. tímanum í gær- kveldi að hringt var vestan frá Hjarðarhaga til slökkviliðsins og því skýrt frá að reyk mikinn lagði frá ákveðnu húsi þar við götuna en hinsvegar engin við- brögð sjáanleg né lífsmark frá íbúum sjálfum. Slökkviliðsmenn flýttu sér á staðinn, en þegar þangað kom var húsið læst, svo brjóta vai’ð upp hurðina til þess að komast inn. Inni í íbúðinni fannst sof- andi maður, sem svaf fast og var mjög miður sín þegar hann loks vaknaði. Annað fólk var ekki heima. Reykurinn átti hinsveg- ar rót sína að rekja til prjóna- fata, leppa eða vettlinga, sem skilin höfðu vei'ið eftir á elda- vél, er kveikt hafði verið á. Af þessu lagði mikinn reyk, en tjón varð ekki á húsinu nema af völdum reyksins. Hinsvegar hefði getað oi’ðið þarna mikið; slys ef slökkviliðinu hefði ekki verið gei't aðvart í tíma. Slökkviliðið var einnig kvatt á vettvang í gær að Knoxbúð- um vegna óvenju mikils i-eyks, sem lagði frá einum bragganna. Ekki var þar þó um íkviknun að ræða, heldur hafði reyk slegið illa niður í olíuofni. Þar varð ekki annað tjón en af sóti, sem lagði um braggann. Kona ver&ur fyrir masntausri bifreið og sEasast. Alaöiii' fótlii'otiiaöi á liálkn í gærkvöldi. í gœrkveldi, eftir að snjóa tók, myndaðist víða hálka á göt- um bœjarins, og af völdum hennar mun. maður hafa fót- brotnað á Kleppsvegi. Maður þessi, Bryngeir Guð- mundsson, var á gangi fyrir ut- an hús númer 46 við Klepps- veg, þegar hann datt illa og fótbrotnaði við fallið. Hann var þegar í stað fluttur í slysavarð- stofuna. Annað slys vildi til hér í bæn- um með einkennilegum hætti, skömmu eftir hádegið í gær. Þannig var mál með vexti, að laust fyrir kl. 2 í gærdag kom maður akandi Njarðar- götu, og þar eð hann átti erindi í hús númer 5 við götuna, lagði hann bíl sínum þar fyrir utan, á meðan hann skrapp erinda sinna inn í húsið óg dvaldist þar um það bil 10 mínútur. Þegar maðui'inn kom út aft- ur og ætlaði að halda för sinni áfrarn, var bíllinn á bak og burt og sást hvergi. Eigandinn hóf þá leit og eftir nokkra stund fann hann bílinn suður í Hljóm- skálagarði, beint suður af Njai'ð- Frh. á 11. síðu.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.