Vísir - 12.11.1958, Page 9

Vísir - 12.11.1958, Page 9
Miðvikudaginn 12. nóvember 1958 V I S I B 9 Stjarna í skugganum, Elizabeh Taylor var líklegust til að vera kjörin ,,Stjarna árs- ins“ af leikhúseigendasam- bandinu amerískaj unz sögurn- ar um það, að hún hefðu spillt hjónaband Eddies Fisher og Debbie Reynolds fóru að berast út. — „Það kom ekki til mála að veita henni þessa viðurkenn- ingu eftir að þessir atburðir urðu kunnir,“ sagði talasmaður sambandsins. En þegar meðlim- ir sambandsins hittust síðan á Miami kusu þeir Deborah Kerr sem „stjörnu ársins“. Hún hafði þá nýlega höfðað mál gegn manni sínum, Anthony Bartley, og krafizt skilnaðar, en hann sakaði hana um að liafa verið að dufla við rithöf- undinn Peter Viertel þegar hún dvaidi í Vínarborg síðast. irinit, sem gerir myndina um Ben Húr. SaS ZémbaSfst segfr Irá myndísiBii, sem á aB Scosta 10 mflSj. dolfara. Vinsælust austan hafs. Á heimssýningunni sem ný- afstaðin er í Bruxelles, var kos- ið um vinsæl'ustu kvikmynda- dísina, vinsælasta stjórnmála- manninn og vinsælasta hljóm- listarmanninn. Loks var líka kosið um merkilegasta innflytjandann til Bandaríkjanna. Allir, 'sem komu á sýriihguna hofðu at- kvæðisrétt, hvaðan úr heimin- um sem þeir voru. Kim Novak var kosin vin- sælasta kvikmyndastjarnan — fékk 32787 atkv. óg helmingi fleiri en Marilyn Monroe. — Sjónleiki getur fólk séð í sjónvarpinu, sagði Sam Zim- balist. Kvikmyndin verður að bjóða ýmislegt annað, sem sjónvarpið getur ekki fært því af tækni- iegum ástæðum. Þess vegna búum við til þessar miklu, dýru kvikmyndir, þar sem fjöldi fólks kemur fram, litir fá að njóta sín, og sjónarsviðið get- ur verið geysistórt. Kallið það hvað sem þér viljið — „show‘ eða hvað annað, en það er „show“, sem fólkið vill . .. Zimbálist er einn hinna þekktu manna í Hollywood. Hann stjórnar framl. hjá Metro-Goldwyn-Mayer, ber á- byrgð á fjármálum kvikmynda félagsins, ræður listamenn og vakir yfir þessu öllu saman. Fáir forstjórar velta stærri fjárhæðum en Sam, en enginn forstjóri hefir haft eins mikil umsvif og hann. — Munið þér eftir Námum Salómons? Eg gerði þá kvik- mynd, segir Sam. — Og Mo- gambo með Clark Gable, Ava Gardner og Grace Kelly. Og Quo Vadis, sem kostaði 7 mill- jónir dollara, en sem þegar hef- ir fært 25 milljónir dollara í fjárhirzluna? Og nú erum við að gera nýja Ben Hur mynd. Gífurleg peningaupphæg. Zimbalist vár nýlega í Kaup- mannahöfn ásamt konu sinin. Það var eingöngu skemmtiferð og nokkurrá daga alger hvíld. Undanfarna mánuði hefir hánn Abraham Lincoln var kjörinn vinsælasti stjórnmálamaðurinn. — Louis Armstróng vinsælaáti hljómlistarmaðurinn og Albert Einstein merkilegasti innflytj- andinn. Hann fékk 49632 atkv. luster Keaton o§ broslð. Hann Seíkur jafnvel jéfasvsin án þess að þr®sa. Buster Kcaíon er orðinn 63 ára. Hann er enn við sama lieygarðshornið og ekki brosir hann. í 40 ár er hann búinn að vera einhver mesti gamanleik- ari kvikmyndanna. Um þessar mundir eru reynd- ar 60 ár síðan hann kom fyrst fram opinberlega — hann var þá þriggja^ára. „Charlie Chaplin,< Harold Lloyd og eg,“ segir ICeaton, „skutum öllum alvarlegum leikurum ref fyrir rass.“ Ekki er Keaton néitt að hugsa iim að hætta að leika. Hann er nú að æfa hlutverk, þar sem hann leikur jólasvéin. ,,En jólasveinn verður að brosa, þegar hann réttir börn- unum gjafirségjum ýér. „Eg brosi aldrei,“ segir Kea- ton. „Eg segi bara hó ,hó, hó, og brosi ekki. Þegar eg var urig ur rak eg mig á það, að ef ég hló, urðu allir grafalvarlegir. Svo komst eg að raun um, að því alvarlegri sem eg var, þeim mun meira hlóu allir og þegar eg lék svo í fyrstu myndinni, var það orðinn vani minn að brosa ekki.‘ Hann sér nú enga ástæðu til þess að breyta út af þessum fasta vana eftir öll þessi ár. „Þeir hlæja að því sama bæði í Englandi, Indlandi og Frakk- landi, Suður-Amerku og ann- ars staðar,'“ og hann ætlar að láta þá alla halda áfram að hlæja. Svo kvöddum vér hinn al- varlega mann — og þá brosti hann í fyrsta sinn. Sam Zimbalist. verið í Rómaborg, þar sem hann stjórnar upptöku kvikmyndar- innar Ben Hur, mestu kvik- myndar, er nokkru sinni hefir verið tekin. " Ekki verður' myndatökum lokið fyrr en und- ir áramót og þá á eftir að klippa niður ög hljóðrita o. s. frv. Þáð er míkiðrverk. BEN' IÍUR kemur til með að kosta yfir 10 milljónir dollara, sagði Sam Zimbalist. En ef húri ] v'efðár' e'iris góð, og við gerum I okkúr vonir úfn, ætti hún að igefa 75 milljónir dollara í' brúttótekjur. Það er gífurleg peningaupphæð. Það eru nú liðin um 33 ár síðan Ben Hur kvikmyndin meðj Ramon Novarro' og : Francis; Bushmán var tekin. Þá várj Fred Niblo léikstjórinn. Sú; mynd vakti geysiathygli á sín-'j um tíma. Sýningin tók tvö kvöld. í fyrra hlutanum, fyrra . sýningarkvöldi, var sjóorustan i á milli galeiðanna aðalatriðið, í seinni hlutanum var það kapp- aksturinn. — Eg sá gömlu myndina ný- lega. Hún var ágæt, sagði Zimbalist. — Þögul mynd er auðvi-tað dálítið skrýtin — finnst manrú nú — það er eitt- •hvað óeðlilegt við það, að sjá mann hreyfa munninn, án þess að heyrá orðin, en stóru atrið- in eru prýðilega gerð. Húgsið yður að það var á þriðja tug aldarinnar,' sem sú mynd var gerð. Nú verður gaman að sjá, hvað fólkið, sem var upp á sitt bezta í þá daga, segir um mína mynd. Bæði Rafnon Novarro og Bushman búa við b'eztu kjör í Kaliforniu og það hlýtur að vera gaman fyrir þá að sjá hvað við höfum nú getað gert úr sögu Lewis Wallaces. Ný efnilég kvilunyndastjarna. Carleton Heston á að leika Ben Hur. Hann lék Moses í „Boðorðunum tíu.“ — Aðrir leikarar eru Stephen Boyd og Jack Hawkins, en í aðalkven- hlutverkið hef eg ráðið óþekkta konu, hina ungu, israelsku leikkonu Haya Harareet, sem er mjög athyglisverð. Hún hef- ur starfað við leikhús í ísrael og aðeins leikið í einni kvik- mynd. Við fréttum af henni og létum hana koma til reynslu. Eg segi ekki að hún sé nein fegurðardís, en hún er mjög aðlaðandi persónuleiki eins og hinar góðu, ítölsku leikkonur. Við bindum miklar vonir við leik hennar í Ben Hur. William Wyler er leikstjór- inn. Betri mann er ekki hægt að fá til þess starfs. Við höfum byggt geysimik- inn leikvang fyrir utan Róma- borg og -þar erum við nú að kvik-mynda síðustu atriðin í kappakstrinum. Alls munu um 30.000 manns hafa komið fram í myndinni, þegar henni verð- ur lokið. Það er mikið verk að halda reiður á slíkum fjölda og greiðslum til hans. Hugsið ykk- ur bara að hafa 5000 manna lið leikara og aðstoðármanna, tæknisérfræðinga og annarra sitjandi á leikvanginurp og svo fer að rigna! Það getur nefni- legá rignt í Róm eins og ann- arsstaðar. Slíkur rigningadag- ur getur kostað okkur 50.000 dollara og við fáum ekkert í aðra hönd. Slíkt getur komið fyrir við kvikmyndatökur. Rafmagnsgirðing í ffumskóginum. Sam Zimbalist þekkir erfið- leika kvikmyndagerðarmanns- ins. Hann hóf starf sitt sem sendill lijá ■ Metro-Goldwyn- Mayer og hafði fimrn dollara í larin um vikuna. Það ér riú orðið langt síðan það' var, segir hann. ' - Hanri er búinrt að taka marg- ar myndir. — Ein sú fyrsta var Tarzan- mynd. Hún var tekin í Kali- forniu, en síðan höfum við tek- ið myndir í Afríku og það er ólíkt skemmtilegra. Það var oft erfitt að taka atriðin í Nám- um Salómons þegar górilla- aparnir áttu að vera aðalleik- endurnir. Frumskógurinn var svo þéttur, að erfitt var að koma kvikmyndatökuvélunum fyrir og fá nóg Ijós. Ekki var auðveldara að hemja apana. Hinir innfæddu gátu að vísu rekið þá saman, en ekki ráðið við þá að öðru leyti. Um leið og birti að morgni hlupu þeir í all- ar áttir. Þá datt okkur í hug að girða svæðið af með raf- magnsgirðingu. Það gat ekki orðið þeim að tjóni, en varnað því að þeir hlypu frá okkur. Þetta gafst vel. Þegar þeir ætl- uðu að flýja, rákust þeir á girð- inguna, og fengu í sig straum, og þá reyndu þeir ekki oftar að hlaupa frá okkur. Ruddu menn okkar þá svæðið og myndatak- an gat hafist. Það voru skemmtilegir dagar. Dráttarvél og hervagn. Kappaksturinn í Ben Hur olli okkur ekki eins miklum heilabrotum, en hann varð okkur dýrari peningalega. Okkur vantaði hesta. Nothæfi'r hestar voru ekki á hverju strái. Það er hætt að nota þá í nú- tíma landbúnaði og dráttarvélin tekin við hlutverki þeirra. Ekki gátum við spennt dráttarvél fyrir stríðsvagnana. Við fund- urri' loks iierituga hésta í Júgó- slavíu og keyptum 69 plóghesta. Svo kom Glen Randall frá Hollywood, en hann er snilling- ur að eiga við hestá. Eftir fjórar vikur var hann búinn að temja þá eins og þurfti. Glen spennti þá fyrir stríðsvagnana og lét þá hefja hlaupið. Eg geri ráð fyrir áð við getum selt þá með ágóða að myndatökunni lokinni. Glen er búinn að gera úr þeim stólpagripi. Sam Zimbalist og fjölskylda hans kom til Ameríku frá Rúss- landi. Nafnið ef fágætt, en þó á hánn nokkra riafriá,’ þár á meðal einn, sém er þekktur fiðlusnillingur. Nú bíðrim við þess, að þessi mikla mýnd korni hingað — eftir tvö' til þrjú ár:kánrislté? Hvernig skyldi leikstjór- num vsra þegar konsa Seikur ástaratriðl á móti ungum, fallegum manni? „Það hefur engin áhrif á mig“, scgir IVIel Fcrrer, sem er að stjórna myndatöku, þar em konan hans, Audrey Hepburn, leikur ástaratriði á móti Tony i’erkins. „Eg reyni að sjá um að ást- aratriðið verðd eins áhrifaríkt eins og niögulegt er. Það truflar mig aldrei að sjá Audrey í róm- antískum atriðum á leiksviðinu því að eg óska þá einskis annars en : að henni takist leikurinn vel.“ Hann hugsar sig um og þætir svo við: „Grundvöllur hjóna- þands okkar er það tryggur að engiri hætta er á féfðuiíi.“ Annars er því ekki að neita að margir leikstjórar eiga erfitt með að horfa á konu sína leika ástaratriði fyrir framan þá. „Tony hefur gert allt til að auðvelda töku þessara atriða,“ segir Ferrer, „og það hefur ekki komið fyrir að eg hafi orðið af- brýðisamur. Tony veit líka að það ríður mest á honum hvort þessi mynd tekst eða ekki. Audrey kemur ekki fram fyrr en urri þriðjung- ur er búinn af myndinni. Anp- ars reyni e'g bara að sjá svo uim að gáfur þeirra og leikarahæfi- leik'ar fái- sem bezt að. nj,óta sín!“ . . ' i

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.