Vísir - 13.11.1958, Blaðsíða 8

Vísir - 13.11.1958, Blaðsíða 8
Ekkert blað er ódýrara í áskrift en Vísir. Látið hann færa yður fréttir og annað lestrarefni lieim — án fyrirliafnar af yðar hálfu. Sími 1-16-60. WfiSlB. Fimmtudaginn 13. nóvember 1958 Munið, að þeir, sem gerast áskrifendur Vísis eftir 10. hvers mánaðar, fá blaðið ókeypis til mánaðamóta. Sími 1-16-60. Ádenauer hvetur til sam- komulags um Kýpur. Tveir unglingar skotnir til bana og hermaður veginn. Adenauer kanslari Vestur- Þýzkalands er sagður hafa ein- dregið hvatt til þess, í viðræð- unum við grísku ráðherrana, Karamanlis forsætisráðherra og Averov utanríkisráðherra, er nú er nýlokið, að þeir vinni að samkomulagi um lausn Kýpur- vandamálsins innan vebanda Norður-Atlantshafsbandalags- ins. Fréttamenn leiða athygli að því, að gríska stjórnin muni taka mikið tillit til ráðlegginga vestur-þýzku stjórnarinnar, en hitt sé óráðin gáta, hvort það rætist, sem Adenauer sagði, en hann lét í ljós einlæga ósk og von um, að samkomulag næð- ist, ef áfram væri reynt að fara þessa leið. í brezkum blöðum kemur fram sú skoðun, m. a. í Times, •að nýtt tækifæri til samkomu- lags um Kýpur ætti að skapast, þegar allsherjarþingið tekur Kýpurmálið fyrir. Blaðið Yorkshire Post telur, að það hafi komið skýrt fram .í greinargerð Harolds Macmill- ans, að hann vilji í einlægni frið samlega lausn málsins, en án þess að beygja sig fyrir ofbeld- isaðgerðum. 140 Bretar drepnir. í gær beið brezkur hermað- ur bana á Kýpur og 7 særðust, er herbifreið var ekið þar yfir, sem sprengja hafði verið lögð í jörðu. Alls hafa 140 Bretar verið drepnir á eynni frá því ógnaröldin þar hófst 1955. Verkalýðsamtökunum á Kýp- ur hefur verið tjáð, að Kýpur- búar verði ekki ráðnir til starfa á ný í brezkum stofnunum á eynni meðan haldið sé áfram ofbeldisaðgerðum. — í gær kom til eyjarinnar fyrsti hópur hins brezka fólks sem ráðið ( hefur verið í stað þess, sem sagt var upp störfum. Korporálnum sleppt — dómurinn felldur úr gildi. Fyrir nokkru var brezkur korporáll á eynr.i dæmdur til |9 mánaða kyrrsetningar, vegna þess að hann hafði dreift flug- miðum. Leiddi það itl eindreg- inna mótmæla og harðra, m. a. íhaldsþingmanna, og var þá hegningin milduð í 56 daga, en áframhald var á mótmælum, og nú hefur dómurinn verið látinn niður falla. Unglingar skotnir til bana. Herstjórn Breta á Kýpur til- kynnti síðdegis í gær, að tveir unglingar hefðu verið skotnir til bana. Annar hafði ekki hlýtt fyrirskipun um, að nema stað- ar, og skaut þá hermaður hann umsvifalaust til bana, en hinn var að gera tilraun til flótta úr fangabúðum á eynni er hann var skotinn. Vopn frá Grikkjum? Leiðtogi tyrkneska þjóðern- isminnihutans á Kýpur dvelst nú í Ankara, þangað kvaddur af stjórninni til skrafs og ráða- gerða. Hann hefur lýst yfir, að gríska stjórnin hafi lagt EOKA til matvæli, vopn og skotfæri. Fr« liausintúiiatu : Keppni lokið í 2. flokki og 6 efstu menn færast upp. Rcimar Sigurðsson efstnr í mcist- araflokki með 6 v. og biðskák. Eftir sjö umferðir í Haust- móti Taflfélagsins er Reimar Sigurðsson efstur með 6 vinn- inga og l.iðskák, en ncestur hon- um Jóna.s ÞorvarlJjson með 5 vinninga. Sjöunda umferð var tefld í gærkveldi. Þá vann Sigurður Gunnarsson Ólaf Magnússon, Haukur Sveinsson vann Kristj- án Theódórsson og Gunnar Ól- afsson vann Eið Gunnarsson. Jafntefli gerðu Jón Pálsson og Jónas Þorvaldsson. Aðrar skák- ir fóru i bið, og verða biðskákir tefldar á sunnudaginn í Grófin 1, en áttunda umferð n.k. mánu- dagskvöld. 1 2. flokki Haustmótsins er keppni þegar lokið. Keppt var þar I fjárum 9 manna riðlum. Úrslit í A-riðli urðu þau, að Ant- on Sigurðsson varð hlutskarp- astur með 8 vinninga af 8 mögu- legum, næstur lionum Benedikt Halldórsson með 7 vinninga. 1 B-riðli sigraði Þorsteinn Skúla- son með 7 vinningum og næst- ur varð Egill Valgeirsson með 6V2 vinning. 1 C-riðii varð Guð- mundur Lárusson efstur með 7 vinninga og í D-riðli Högni is- leifsson með IV2 vinning. Allir þessir 6 menn færast upp í 1. flokk. 1 1. flokki er Sigurður Jóns- son efstur eftir 7 umferðir með 5% vinning. 1 unglingaflokki er Ólaíur H. Ólafsson efstur með 6 vinninga að loknum 8 skákum. KaEsi nyrðra í gær. Reyndi að stela bíl. Ilér er svo enn ein mynd af þessum fræga ofni sem kardinálarnir notuðu til að brenna í atkvæðaseðla sína. Myndin er tekin þegar verið er að setja ofninn í kirkjuna. Þjóðminjavörður talar um gamlar byggingar - á kvöldvöku Ferðafélagsins annað kvöld. Annað kvöld (föstudag) kl. 9 .íslands, Ivar Orgland, hefir efnir Ferðafélag íslands til . tekið norður við Mývatn. Eru kvöldvöku í Sjálfstæðishúsinu þær allar haustmyndir, sumar þar sem Kristján Eldjárn þjóð- minjavörður flytur m. a. er- indi um gömul liús í vörzlu Þjóðminjasafnsins. Er þarna bæði um endur- byggingu gamalla kirkna og torfbæja að ræða og mun þjóð- minjavörður gefa hlustendum yfirlit um hvað gert hefir ver- ið í þessum efnum á síðustu árum. Af kirkjum má fyrst og fremst nefna Hólakirkju, en auk hennar torfkirkjurnar á Víðimýri í Skagafirði, Hofi í Öræfum og Gröf í Skagafirði, ennfremur bænhúsið á Núps- stað í Skaftafellssýslu. Torfbæirnir, sem þarna hafa komið til greina, eru Burstar- fell í Vopnafirði, Grenjaðar- staður og Laufás í Þingeyjar- sýslu, Glaumbær, Hólabærinn gamli og hluti af húsi Skúla fógeta, sem enn er talið að standi uppi á Ökrum í Skaga- firði. Loks er svo bærinn á Keldum á Rangárvöllum, sem nýlega hefir verið byrjað á. Með erindi þjóðminjavarðar verða sýndar skuggamyndir af þessum byggingum, en þær eru í röð fegurstu torfbygginga landsins og jafnframt hinar merkustu. Á eftir þessu erindi verða sýndar litskuggamyndir, sem norski lektorinn við Háskóla- gullfallegar, enda er Orgland listrænn maður og fátt er feg- urra á voru landi en tærir haustdagar, en færri njóta þeirra en skyldi. Myndagetraun verður ,á eftir og að lokum stiginn dans. Húsið verður opnað kl. 8.30 síðdegis. í nótt handtók lögreglan drukkinn mann sem var að reyna að ræsa stolnum bíl. Veittu lögreglumenn athygli manni, sem var að reyna að koma bíl í gang í miðbænum en fórst það hálf óhönduglega. Gáfu þeir sig þá á tal við mann- inn og kom í ljós að hann var mjög drukkinn. Fóru þeir þá með hann í lögreglustöðina og við athugun þar kom í ljós að maðurinn átti ekkert í bílnum sem hann var að reyna að koma í gang, og vissi heldur ekki hver eigandinn var. Maðurinn var færður í fanga- geymsluna. Slys. Síðdegis í gær, eða klukkan rúmlega hálf sjö varð maður, Bjarni ísólfsson, BaldursgÖtu 1, fyrir bifreið á Tryggvagötu og' meiddist svo að flytja varð hann í slysavarðstofuna. Blað- inu er ekki kunnugt um hve mikil meiðsli hans voru. Gomulka styður Krúsév varðandi Þýzkaland. — Vesturveldin taka ekki í mál aB fara frá Berlín. Talsmaður franska utanríkis- ráðuneytisins hefur skýrt frá því, að Frakkar muni alls ekki skila af sér í Berlín £ liendur austur-þýzku stjórnarinnar. Hann kvað afstöðu frönsku stjórnarinnar vera hina sömu sem ríkisstjórna Bretlands og Bandaríkjanna. Gomulka, pólski kommún- istaleiðtoginn, sem hefur verið í heimsókn í Moskvu, hefur lýst pólsku stjórninni algerlega fylgjandi sömu stefnu og Sovét- ríkin varðandi Þýzkaland. Grotewohl forsætisráðherra A.Þ. hefur skýrt frá því, að viðræður muni brátt hefjast um brottflutning rússneska her- liðsins úr landinu. Af hálfu vestur-þýzku stjórn- arinnar hefur verið lýst yfir, að hún sé algerlega andvíg því, að allir erlendir herir verði á brott frá Berlín. Minnti hann á yfirlýsingar varðandi Berlin fyrr og síðar. Formælandi kvað stjórnina hafa ráðgast við stjórnir Þríveldanna, Bret- lands, Frakklands og Banda- ríkjanna, áður en samþykkt var að taka þessa afstöðu. Mintov fyrrv. forsætisráð- herra Möltu er kominn til Lundúna til þess að leita sér lreknishjálpar. Frá fréttaritara Vísis. —• Akureyri í morgun. I gær var kuidaveður af norðri um Eyjafjörð og Þing- eyjarsýslur með 3—4 stiga frosti, dimmviðri og nokkurri snjókomu. Varð jörð alhvít, en kom þó hvergi til samgöngutruflana í hvorugri sýslunni. Hraðferðar- bíllinn frá Reykjavík kom á venjulegum áætlunartíma til Akureyrar og þurfti hvergi að setja keðjur á. Vegna dimmviðrisins var ekki flugfært til Akureyrar í gær, en árla í dag var flugvél lögð á stað norður og var henni ætlað að fara til Kópaskers og' Húsavíkur, auk Akureyrar.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.