Vísir - 25.11.1958, Blaðsíða 1

Vísir - 25.11.1958, Blaðsíða 1
48. árg. Þriðjudaginn 25. nóvember 1958 263. tbl. Dönsk blöð ræða við Gunnar Thor- oddsen borgarstjóra. Frá fréttaritara Vísis. Kaupmannahöfn í gær. Gunnar Xiioroádsen, borgar- Btjóri í Beykjavík, er staddur Siér sem gestur félagstamtaka í Jborginni. í dag efndi hann til blaða- jnannafundar í ráðhúsinu á Friðriksbergi, þar sem hann var gestur boi’garstjórans, og var rætt um ýmis atriði norrænnar savinnu, en einkum snerust um- ræður þó um landhelgisdeiluna, sem íslendingar eiga nú í við Breta. Veitti hann biaðamönnum margvíslegar upplýsingar, sem ' gloggvuðu þá á sjónai’miðum Is- lendinga. Hann var spurður um það, hvort Islendingar ætluðu að stækka landhelgi sína enn og svaraði hann þá: Ætluii Islendinga er að miða landhelgina rið landgrunnið, en af því mun leiða, að fisk- veiðilögsagan nær 30 mílur til liafs á sunnmi stöðum en lands menn verða að sætta sig við aðeins 12 mílur annars staðar. Gunnar Throddsen mun flytja hér fyi’irlestra i Dansk-íslandsk samfund og Norræna félaginu. Jensen. Tveir bátar stórskemmast í árekstri í rúrasjó. Lán að ekki skyldí verða slys á mönnum. .4 laugardagskvöldið var jrákust (veir bátar á út af Garð- skaga. Áreksturinn var það harður að báðir bátarnir nrðu ósjófærir og urðu að sigla til íteykjavíkur til viðgerðar. Bátarnir, Reynir frá Reykja- vík og Sæmundur írá Sand- gerði, voru að fara í róður með reknet. Voi’u þeir komnir á xniðin og vai’ð árekstui’inn skömmu áður en Ieggja átti netin. Kom stefni Sæmundar framai’lega á stjórnborðskinn- ung Reynis og molaði hástokk- inn og byrðinginn alveg niður í sjólínu. Stefni Sæmundar laskaðist einnig við árekstur- inn. Var það mikið lán að ekki skyldi verða slys á mönnum, bví hásetar og stýi’imaður voru í lúkaranum. Stýi’imaður lá í koju sinni stjórnborðsmegin rétt þar sem stefni Sæmundar kom á bátinn. Var það stýri- manni til happs að hann lá við bríkina en ekki upp við súðina. Fékk hann samt högg á höfuðið er hann kasíaðist til í kojunni. Aðra menn sakaði ekki. Þrátt fyrir þessar miklu skemmdir á bátnum fyrir ofan sjólínu reyndist hann þó ekki lekur, en sjór var þungur og komu skvettur inn um gatið á. byrðingnum. Urðu bátarnir samferða til Reykjavíkur. Setja þarf nýtt stefni í Sæmund en viðgei’ðin á Reyni tekur einn til tvo mánuði. Er þetta annar áreksturinn á þessari reknetavertíð. Fyrir nokkru síðan varð árekstur milli Hrannar 2. og Óðins. Skemmdist Hrönn mikið og verður viðgerð á henni ekki lokið fyrr en um áramót. KJarnorkuveidin hefa fsrefað nær 4 vikur árauuurs Ræls við Fær- eyinga. Nú eru ekki nema 6 vikur þar til vetrarvertíð liefst og enn hefur ekki verið gengið frá ráðningu sjómanna á fiski- skipin. Fyrii’sjáanlegur skortur er á sjómönnum, því undanfarin ár hafa um 1000 Færeyingar skip- að þau rúm, sem ekki hefur tekist að fá íslendinga í. Und- anfai’ið hafa tveir erindrekar L.I.Ú. dvalið í Færeyjum og rætt við samtök sjómanna þar um möguleika á að ráða fær- eyska sjómenn til íslands. Enn er alveg óvíst hvort þetta tekst. Færeyingar hafa til þessa haldið fast við kröfu sína um að þeir yi’ðu ráðnir með sömu kjörum og þeir höfðu í fyrra og að 55 prósent yfirfærslugjaldið, sem lögum samkvæmt kæmi á laun þeirra, verði að öllu eða mestu leyti lagt niður. Hvað yfirfærslugjaldið snert- ir getur L.Í.Ú. ekki tekið neinar ákvarðanir, og ríkisstjórnin hefur ekki látið uppskátt ninar undanþágur vai’ðandi þetta at- riði. Vafasamt, hve lengi er hægt aö halda ráðstefnunni áfram. B isi.eatí(Ess:&eisa s&bhSíi s'catisé&tisas&nata í gísíiaa'saes. Lítil síidveiði í nótt. Síldveiði var sáralítil í nótt. Af um 70 bátum fengu aðeins fáeinir sæmilegan afla, um 80 tunnur. Margir fengu ekki bröndu. í gæi’kveldi eins og undanfar- ið lóðaði á síld á stóru svæði en á 28 til 30 famða dýpi, en svo djúpt niður ná netin ekki. Kom síldin aðeins upp á litlum bletti og fengu þeir síld sem þar voru] fyrir. Ráðstefnan um bann við til- raunum með kjarnorkuvopn hefur nú setið á rökstólum í Genf í hartnær fjórar vikur og ekki komizt að neinni niður- stöðu. Hefur verið þrefað um það fram og aftur næstum allan tímann, á hvorum enda eigi að byrja, hvort fyrsta skrefið eigi að vera að banna tilraunir meá kjarnorku og athuga síð- an, hvernig haga skuii eftirliti með því að slíkt bann vei’ði haldið af aðilum um þenna samning. Eru það Rússar, sem vilja, að byrjað vei’ði á því að banna sprengjutilraunir, og leggja þeir til, að tilraunirnar verði bannaðar um aldur og ævi, en Bretar og Bandaríkja- menn vilja fara öði’u vísi að. Þeir vilja, að fyrst vei’ði samið um eftirlitskerfi með banni, svo að tryggt verði, að ekki sé hægt að fara í kringum samn- ing um þetta efni, og þeir vilja ekki, að samið verði um bann í lengri tíma en ár í senn. í gær bai-st ráðstefnunni áskorun, sem undirrituð er af 2200 bandarískum vísinda- mönnum, kjarnorkufi’æðingum og fleiri, þar sem skorað er á ráðstefnuna að komast nú þeg- ar að samkomulagi um að banna fyrst tilraunir en gera síðan samþykkt um eftirlit með þvi, að staðið verði við gerða samninga um þetta efni. Einnig krefjast vísindamennii’nir þess, að hætt sé framleiðslu á kjarn- orkuvopnum. í erindi vísindamanna er komizt svo að orði, að kjarnorkuveldin ei^i nú svo miklar birgðir af kjarnorku- og vetnissprengjum, að ef þær væri sprengdar, mundi jörðin sveipast geislavirkum hjúp, svo að engu lífi yrði vært á jörðinni í 10 ár. — Bæri því að komast að nið- urstöðu L bessum mikilvægu málum. Þar sem enginn árangur hef- ur orðið á ráðstefnunni enn, eru menn farnir að örvænta, að til nokkurs gagns sé að halda þrefinu áfram. Brezka stjórnin | hefur til dæmis ákveðið að kalla aðalfulltrúa sinn, Ormsby- Gore, heim um sinn til að ræða við hann um það, hvort ástæða sé til að ræða um þetta lengur. Blöð víða um heim ræða mikið um ráðstefnuna og hversu lítill árangur hafi oi’ðið af henni, því að eiginlega sé ekki áróðursárangur af henni frekar en annar. — Þó hafi kommúnistum eins og svo oft áður tekizt að leika á vestur- veldin á áróðurssviðinu, því að þau sé heldur ekki alltaf að hugsa um áróður en rnættu gjarnan gera það, til þess að setja ekki sífellt niður í aug- um heimsins. Tilboð kommún- ista um bann um aldur og ævi spyi’jist vel fyrir en andúð þeirra á eftirliti spilli aftur fyrir þeim. □ Diefenbaker, forsætisráðherra Ivaiiacla, er koininn til Ceylon á lmattför sinni. □ Arnold Zweig, þýzlii ritliöf- undiu’inn, hefur fengið Len- inverðlaunin. Hann er orðinn 71 árs gamall. Drengur verður fyrlr bíl. Um tólf leytið í gærdag varð drengur á reiðhjóli fyrir bifreið á Sörlaskjólinu. Sjúkrabifreið kom á staðinn og flutti drenginn á Slysavarð- stofuna, en hann hafði skrámast í andliti og á fæti. Drengurinn heitir Eysteinn Haraldsson og á heima að Sörla- skjóli 9. i Boeing-707 skauzt fram fyrir Comet á leiHinsil Fór af sta5 á eftir, kom s endastöð á undan. Samkeppnin milli Breta og Bandaríkjanna á flugleiðum yfir Atlantsliaf hefur orðið enn á- kafari við tilkomu þotanna nýju. Eins og menn rekur minni til, tókst Bretum að vei’ða fyrri til að hefja áætlunarflug með Com- et-vélum milli Lundúna og New York, en i síðustu viku unnu Bandaríkjamenn stórsigur, sem þeir fagna ákaflega. Þá tókst einni af þotum Pan American- félagsins, sem er af gerðinni Boeing-707 að fara fram úr brezkri Comet-vél, er þær voru á leið vestur um haf. Comet-vélin lagði af stað frá London 36- mínútum á undan Bocing-vélinni, en báð- ar áttu að fljúga i einum á- fanga til New Yorlt Kom Bandariska vélin til New York ellefu mínútum á undan lieirri ensku, og hafði þri verið 47 minútiun skemur á leiðinni. Þess má geta, að Comet-IV, sem um er að ræða, er heldur minni en Boeing-707.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.