Vísir - 12.02.1959, Qupperneq 7
Fimmtudaginn 12. febrúar 1959
VlSIB
2f
heit
5KALD5AGA EFTIR MARY ES5EX
— Þér græðið vafalaust milljónir í spilabankanum í kvöld,
úr því aö þér eruð í svona skapi.
— Það held eg varla. Eg hafði alls ekki hugsað mér að spila.
Eg hef enga penihga með mér.
— Vitanlega eigið þér að spila. Það er undarleg tilfinning að
græða, skiljið þér. Og þó að þér tapið svolitlu — og það gerir
maður oftast í fyrstu — er engin ástæða til að fara að skæla
út af því.
Nú komu þau inn í Monte Carlo, frægasta smábæinn í Evrópu.
Candy varð hugsað til Venevia, þangað sem hún hafði átt að
fara í brúðkaupsferð, en sagði ekki orð, því að það var forboðiö
umtalsefni. Nú vildi hún njóta augnabliksins og upplifa Monte
Carlo.
Sefjandi blómailmur barst að vitum þeirra undireins og þau
stigu út úr bílnum, og lágvær hljófærasláttur heyrðist gegnum
myrkrið. Beint fyrir framan þau blöstu inngöngudyr spilabank-
ans við.
— Eg get varla trúað að þetta sé satt, sagði Candy. Hún var
föl af eftirvæntingu.
Hugh tók í höndina á henni. — Reynið að taka því rólega, sagði
hann. — Munið að við erum komin hingað til að' skemmta okkur,
við eigum gleðikvöld í vændum.
Candy hló. — Bara að eg falli ekki í öngþvit af eftirvæntingu.
Þér hafið séð líða yfir mig fyrr — í réttinum.
— Og þá var það mér að kenna. Eg vona að það endurtaki sig
ekki.... annars höfum við bannað okkur að tala um þetta.
> Candy ætlaði varla að ná andanum þegar þau komu inn. Allt
var svo óvirkilegt. Salirnir voru minni en hún hafði haldið, og
þarna var ekki mjög margt fólk. Og húsgögnin voru ekki með
nýtízkusniði, heldur þvert á móti, henni fannst hún vera í um-
hverfi frá aldamótunum.
Þarna var kvenfólk og karlmenn í smáhópum — allir prúð-
búnir, en líktust einna mest statistum í leikhúsi. Þarna var þungt
loft og erfitt að draga andann. Hugh hélt enn í höndina á henni.
— Er þetta alltaf svona hérna, Hugh, spurði hún.
— Svona loftþungt, eigið þér við það? Já, því miður, — þér
vitið að fólk hérna syðra er ekki jafn hrifið af góða loftinu og
við sem eigum heima norðar. Loftið er lokað úti, svo aö liér andar
maður aðallega að sér eim af ilmvatni, farða og tóbaki.
Það fór hrollur um Candy. — Maður venst þessu fljótt, Candy,
þér skuluð bara hugsa um eitthvað annað. Margt fólk getur yfir-
leitt alls ekki án svona andrúmslofts verið. Komið þér, við skul-
um freista gæfunnar hérna við eitthvert spilaborðið.
— Eg tek það ekki í mál! Getum við ekki eins vel horft á hitt
fólkið? Þetta er eins og að fleygja peningum út um gluggann.
Og eg hef ekki efni á því heldur.
— En þá getið þér spilað fyrir mig! Maður hefur ekki komið
til Monte Carlo ef maður hefur ekki spilað þar. ‘
Hann tók í handlegginn á henni og þegar á reyndi var ekki
erfitt að telja henni hughvarf. Það var ekki laust við að hún
fyrirliti sjálfa sig fyrir að vera svona leiðitöm við þennan mann
— en hann var svo hjálpsamur og nærgætinn að það var ekki
auðvelt að hafa i minni hve ómannúðlega hann hafði farið með
hana í réttinum. En hún mátti ekki gleyma til fulls að hann
var sá Jackson málaflutmngsmaður sem hafði að fullu eyðilagt
fyrir henni tilVeruna, og....
Jafnvel hérna, innan um fólk sem alls ekki þekkti hana — skraut-
búið fólk með óhagganleg andlit eins og grímur úr steini — og i
þessu einkennilega umhverfi, gat hún ekki gleýmt réttarhöld-
unum. Var ómögulegt að gleyma þessu — hafði það brennimerkt
hana æfilangt?
Þau fóru að innsta borðinu í .salnum, og Hugh hvíslaði aö
henni að hún skyldi taka eftir andlitunum á fólkinu, sem hafði
hópast kringum borðið.
Spilastjórinn hreýfði sig eins og sprellikarl, litla kúlan sem
hringsnerist með lukkuhjólinu — þetta voru örlög þessa fólks.
Skammt frá Hugh og Candy stóðu fullorðin hjón.
Gamli maðurinn nötraði af eftirvæntingu, augun stóðu í hon-
um hvert sinn sem hjólið fór að snúast. Það stansaði, kúian varð
hreyfingarlaus og hann hristi vonsvikinn silfurhvítt höfuðið.
Hann var auðsjáanlega forfallinn spilamaður.
Skömmu síðar sáú Hugh og Candy að hjónin voru að tapa
síðustu skildingunum sínum. Þau spyrntu stólunum sínum hart
til baka og stóðu upp, svo sneru þau sér snúðugt frá borðinu og
strunsuðu út án þess að líta til hægri eða vinstri.
— Nú skulum við taka sætin þeirra og sjá til hvort þér verðið
ekki heppnari, sagði Hugh.
Hann hafði tekið í stólana til þess að sýna að hann ætlaði að
nota þá, og tók svo upp veskið sitt og keýpti handfylli af spila-
peningum. Candy starði spyrjandi á spilamerkin, sem hann lagði
fyrir framan hana.
— Hvað á eg að gera við þetta? spurði hún.
— Þér læriö það fljótt, sagði hann. — Lítið þér á! Hann ýtti
nokkrum spilamerkjum á reit á græna borðinu. Svo biðu þau og
eltu hjólið með augunum eins og hinir, kúlan stanzaði og hann
hafði lagt undir.
— Eg á bágt meö að sætta mig við þetta, sagði Candy og
hristi höfuðið. — Það gengur alltof fljótt. Þessi stutta ánægja
borgar ekki fjárútlátin! En um leið sá hún að kona andspænis
henni við borðið hafði stóra hrúgu af seðlum fyrir framan sig, og
nú tók hún við enn meiri peningum, sem hún sópaði að sér með
græðgl.
A
KVÖLDVÖKUNNI
x
Dansskemmtanir fyrir
ungt fólk.
Æskulýðsráð o.fl. stofna dansklubba.
í fyrravetur efndu Æsku-
Iýðsráð Reykjavíkur, Áfengis-
varnanefnd Reykjavíkur og
Þingstúka Reykjavíkur til
dansskemmtana fyrir æsku-
fólk. Mæltist þetta yfirleitt vel
fyrir og mikill fjöldi unglinga
sótti skemmtanirnar. Sú gagn-
rýni kom þó fram, að eigi væri
æskilegt að unglingar 14 og 15
ára væru á skemmtunum á
sunnudagskvöldum.
Nú hafa Æskulýðsráð og
Áfengisvarnanefnd ákveðið í
samvinnu við skátafélögin í
Reykjavík að efna til dans-
skemmtana fyrir æskufólk 13
til 16 ára. Munu sérstakir dans-
klúbbar taka til starfa í Skáta-
heimilinu við Snorrabraut á
sunnudaginn kemur, kl. 4—7
síðdegis.
Klúbburinn mun halda fimm
skemmtanir hálfsmánaðarlega
fyrst um sinn. Klúbbgjald er
kr. 50,00 eða 10 kr. hverju
sinni. Stjórnandi og aðal-leið-
beinandi á skemmtunum
klúbbsins verður Hermann
Ragnaf Stefánsson, en í fram-
kvæmdanefnd eru Bragi Frið-
riksson, Finnbogi Júlíusson og
Óskar Pétursson. Skátar munu
selja veitingar vægu verði og
annast dyravorzlu.
Á skemfntunum þessum
verður leitast við að kynna
ungu fólki ýmsa dansa, en auk
þess munu ýms æskulýðsfélög
annast skemmti- og kynning-
aratriði. Klúbbmiðar verða
seldir í Skátaheimilinjfc n. k.
föstudag og laugardag kl. 5—6
báða dagana, en uppl. um
starfsemi þessa verða fram-
vegis veittar hvern föstudag kl.
3—4 e. h. í síma 15937.
Maður, sem vann í stórri
sögunarmylnu á Englandi, kom
einu sinni af kæruleysi of ná-
lægt söginni og skar af sér einn _
fingur. Hann datt ofan í stóra
saghrúgu.
Verkstjóri hans sagðið:
„Sandy, það er bezt fyrir þig
að fara til læknis. Þér blæðir
út.“
„Nei, nei -eg ætla að finna
fingurinn minn. Kannske
læknirinn geti saumað hann
við.“.
„Hvers vegna varstu svona
kærulaus?“
„Eg var ekkert kærulaus. Eg
gerði bara svona.... “ og ann-
ar fingur fór af.
Verkstjóri hans varð ennþá
áhyggjufyllri og sagði höst-
,ugur: „Komdu til læknis undir.
eins — þér blæðir út.“
„Nei, nei, eg ætla að finna
fingurna mína“ og hann rótaði
í saginu.
Húsbóndinn fann þá rétta
ráðið. Hann henti shillingi í
saghrúguna: Fingurnir komu
samstundis upp og gripu pen-
inginn.
★
— Jæja, pabbi, sagði sonur-
inn, — ef þú vilt ekki gefa
mér launahækkun, þá tek eg
fram hjá þér og bið hana
mömmu um það.
ÖMóður ..
mmmm
■ ■
£. R. Burroughs
CONCE^NEC7 by A KESOUNPINS
SdZEAhA, THE FOUE COM-
FANIIOrsS RANi QU'C<LY TO
INVESTISATE
- TARZAN -
2822
SOON THEY HALTER CRINGINO
BEFORE A SRUESOVÆ SISHT—
!‘SO BE IT,* TARZAN
f COAWENTEP STEENLY
/L '"TLJCr II I I NIA'TIWCÆ
Þetta hryllilega neyðaróp
sem barst úr skóghaum vákti
forvitni fólkséna, — EBir
skamma stund komu þau í
rjóður þar sem blasti við
þeatí sýn, svo hrytlileg að
orð fá ekki lýst. „Það er
gert,“ sagði Tarzan. Wa.. ilii
náennknir Hafa kal«Ufð íóf-
örð sitt og rðWvísi frumskóg-
arias Kðfi* verið feillnægt.
Frh. af 1. s.
Árásarmaðurinn slapp út og
komst undan, en hinn slasaði
maður var fluttur í slysavarð-
stofuna, þar sem gert var að
meiðslum hans.
Nú víkur sögunni aftur að
árásarmanninum. Hélt hann, að
loknu afreki sínu í Adlon á
Laugavegi 11, inn í veitinga-
stofuna Vöggur við Láugaveg.
Þá mun klukkan hafa verið
átta eða því sem næst.
Maðurinn var sýnilega ölv-
aður og auk þess í mjög æstu
skapi, þegar hann kom inn í
veitingastofuna og var honum
af þeim ástæðum synjað um af-
greiðslu. Greip hann þá glas af
einu borðanna og varpaði því
af afli að afgreiðslustúlku, sem
stóð fyrir innan afgreiðsluborð-
ið. Fyrir snarræði fékk stúlkan.
vikið sér til hliðar, þannig að
glasið lenti á dyrastaf að baki
hennar.
Greip stúlkan þá til símans
og ætlaði að kalla á aðstoð lög-
reglunnar. En þegar komumað-
ur sá hvað stúlkan hafði í
h<yggju, vippaði hann sér yfir
afgreiðsluborðið, sló stúlkuna
hnefahöggi í andlitið svo á
henni sá, þreif af henni símann,
sleit hann úr sambandi og grýtti
honum í gólfið svo hann brotn-
aði í mél. Að því búnu hafði
maðurinn sig á brott og slapp.
En stúlkan, sem fyrir árás-
inni varð, bar kennsl á mann-
inn og gat skýrt lögreglunni
frá því hver hann væri. Röskrí
klukkustundu síðar hafði lög-
reglan uppi á manninum, hand-
tók hanc og flutti í fangageymsl
urte. Maðúr þessi er sagður ekki
Meill á geði, a. m. k. ekki alltaf,
og verður æstur og uppivöðslu-
saifiUT uxjífLr áhrifum áféngis-