Vísir - 05.03.1959, Page 2
VlSIB
Fimmtudaginn 5. marz 1953!
WVW^WWVWVWWWW
■ PWWWVWV
r'Útvarpi}S í kvöld.
Kl. 18.30 Barnatími: Yngstu
j hlustendurnir. (Gyða Ragn-
i arsd.). — 19.05 Þingfréttir.
i —• Tónleikar. — 20.00 Frétt-
J ir. — 20.30 Spurt og spjall-
! að í útvarpssal: Þátttakend-
!; ur eru: Katrín Smári, Sig-
' ríður J. Magnússon, Har-
aldur tollvöi’ður og Harald-
| ur Ólafsson iðnverkamaður.
) Umræðustjóri: Sigurður
j Magnússon fulltrúi. — 21.30
j Útvarpssagan: „Ármann og
| Vildís“ eftir Kristmann
! Guðmundsson; III. (Höf-
! undur les). —* 22.00 Fréttir
og veðurfregnir. — 22.10
Passíusálmur (32). — 22.20
íslenzkt mál. (Dr. Jakob
! Benediktsson). —■ 22.35
) Symfónískir tónleikar (nýj-
í ar plötur). — Dagskrárlok
). kl. 23.25.
ífmiskip.
Dettifoss er í Ríga; fer það-
i an til Helsingfors, Gdynia,
K.hafnar, Leih og Rvk.
Fjallfoss fór frá Reyðarfirði
f 28. febr. til Hull, Bremen
f og Hamborgar. Goðafoss fór
) frá Gautaborg 3. marz til
f Rvk. Gullfoss fer frá Ro-
) stock í dag til Khafnar.
í Lagarfoss fór frá Hafnar-
f firði 3. marz til K.hafnar
í Lysekil, Rostock, Rotterdam
[ og Hamborgar. Reykjafoss
} fór frá Rotterdam í morg-
F un til Hull og Rvk. Selfoss
F fór frá New York 26. febr.
F til Rvk. Tröllafoss fór frá
f Hamborg í gærkvöldi til
F Rvk. Tungufoss fór frá
I Vestm.eyjum 28. febr. til
» New York.
Bkípadeild SÍS:
Hvassafell er í Gdynia.
3 Arnarfell fór frá Vestm.-
B eyjum 3. þ. m. áleiðis til
F Sas van Ghent. Jökulfell fór
F í gær frá Rvk. áleiðis til
F New York. Dísarfell losar á
[ Húnaflóahöfnum. Litlafell
F KROSSGÁTA NR. 3730.
er á leið til Faxaflóa frá
Raufarhöfn. Helgafell fór
frá Gulfport 27. f. m. áleið-
is til Akureyrar. Hamrafell
fór frá Batumi 21. f. m. á-
liðis til Rvk. Huba fór 23.
f. m. frá Cabo de Gata á-
leiðis til fslands.
Ríkisskip.
Hekla er á Vestfjörðum á
suðurleið. Esja er á Vest-
fjörðum á norðurleið.
Herðubreið er á Austfjörð-
um á suðurleið. Skjaldbreið
er í Rvk. Þyrill fór frá Rvk.
í gærkvöldi til Norðurlands-
hanfa. Helgi Helgason fei
frá Rvk. á morgun til
Vestm.eyja. Baldur fer fra
Rvk. í kvöld til Sands og
Ólafsvíkur.
Eimskipafél. Rvk.
Katla átti að fara frá Glom-
fjord í gær áleiðis til Tarra-
gona. — Askja átti að fara í
gær frá Halifax áleiðis til
Stafangurs og Oslóar.
Flugvélarnar.
Flugvél Loftleiða er vænt-
anleg frá London til Glas-
gow kl. 18.30 í dag. Hún
heldur áleiðis til New York
kl. 20.00.
Tímarit
iðnaðarmanna, nr. 2 af 32.
árgangi hefir borizt Vísi. —-
Helztu greinar í þessu hefti
eru: Innlend skipasmíðþ Um
ákvæðisvinnutaxta, Tíma-
mót í bifreiðasmíðaiðnaðin-
um, Nýtt efni til bátasmíða.
Þá ’-er og tala og flokkun á
iðnnemum íslands í árslok
1958.
Úrval,
18. árg., 1. hefti er komið
út. Þetta hefti Úrvals er 108
blaðsíður og flytur að venju
fróðlegt og margbreytilegt
efni. Fyrirsagnir á greinum
og sögum eru; Hugleiðing-
ar um stjórnmál. Strákur
aiia ævi. Rafeindatækin í
þjónustu læknavísindanna.
Maðurinn, sem far.n upp
gúmiríímálninguna. . vik-
myndahúsin geta orðið 'nlust
eri listarinnar. Félagar í
baráttu við dauðann. Leym-
vopnið mikla. XioðmusaræKt
til loðskinna
Klæðnaður og k;
Auk þess er sag; r, Jim'our-
ljósið, eftir A. J. Gromr. oirt
allmikið stytt í •
oo aðgerðir Breta.
Lárétt: 1 baujur, 6 blauður,
8 félag, 9 mók, 10 fornafn, 12
ú.tl. nafn, 13 verkfæri, , 14
gangur, 15 stafur, 16 líkams-
hlutann.
Lóðrétt: 1 þræl, 2 ... .samur,
3 á hvílu, 4 ósamstæðir, 5 nag,
7 skipshlutann, 11 ..feti, 12
nafn, 14 talsvert, 15 stafur.
' Lausn á krossgátu nr. 3729.
Lárétt; 1 hrafna, 6 polls, 8
-ár, 9 ló, 10 far, 12 ask, 13 NV,
14 æf, 15 ell, 16 meisar.
Lóðrétt; 1 hrefna, 2 apar, 3
for, 4 nl, 5 alls, 7 sóknar, 11 av,
12 afls, 14 æli, 15 ee.
isUfc-
Freyr.
Marzheftið er ko;n.
Efni: Véla- og '
prófanir í nágrann
um, eftir Har'ald
Kastdr.eifari. Enh ui
eftir Bénedikt B
Ábendingar u
ingu peningshúsa,
um nythæstu
griparæktarfélag
mæðraþáttur. ■ j
og svör o. fl.
Haukur Jörundsson,
fyrrum kennari á
eyri, vann sl. ár á skrimtotu-
landnámsstjóra, eh-/lmfir nu
fengið fast hlutveik sem
fulltrúi í landbúnaðarraðu-
nyetinu, við þá deild, ^t.m
fyrr hét „Jarðeignir ríkis-
ins“, en þær voru um síðusiu
áramót gerðar að sérstakri
ráðuneytisdeild. (FreyT).
Niðurl.
Hér skal nokkuð minnzt á
tvö atriði úr síðustu heims-
styrjöld. Þeir tóku Hvalfjörð
og gerðu hann að herbækistöð.
Til þess gat nauðsyn brotið lög.
Það var loforð Breta, hátíðlegt
og skjallegt, að allur miski og
tjón, sem hernaðaraðgerðir
þeirra kynnu að valda, skyldi
að fullu bætt. Bretar gerðu
ýmiskonar umbúnað í Hval-
firði, eins og kunnugt er. Þeg-
ar íslendingar voru þar á síld-
veiðum á hinni miklu Hval-
fjarðarvertíð eyðilagði umbún-
aður Bréta síldarnætur fjölda
veiðiskipa. Flestir, ef ekki allir
aðrir en Bretar, hefðu talið
sjálfsagt að þetta yrði bætt,
fyrst og fremst veiðarfæratjón
að fullu, og einnig aflatjón að
fullu eða nokkru. En það er
eitthvað öðru nær en bætur
hafi fengist. Þær hafa alls eng-
ar komið. Máske hefir ríkis-
stjórnin aldrei krafist bóta.
Talið sjálfsagt að íslendingar
hafi tjón eitt óbætt, þar sem
brezkir hagsmunir eru annars-
vegar.
Bretar lokuðu fiskveiða-
svæðinu út af Vestfjöi’ðum, að
sögn af hernaðarástæðum og
lögðu þar fjölda tundurdufla.
Geta má enn nærri, að Vest-
firðingar fyrst og fremst hafi
beðið mikið tjón við þessa ráð-
stöfun, þar sem mikill hluti
venjulegra' fiskimiða þeirra var
lýstur bannsvæði. Engar bæt-
ur hafa verið boðnar né goldn-
ar fyrir þetta.
Meðan stóð á þessum hern-
aðaraðgerðum fórst vélbátur
héðan af Vestfjörðum með
allri áhöfn. Mjög var um það
talað manna á milli, að bátur-
inn hefði farist vegna hernað-
araðgerða. Þótti til þess benda
ummerki á ýmsu lauslegu sem
úr bátnum fannst. Ekki mun
bóta hafa verið krafist fyrir
þetta slys, og auðvitað ekki
boðnar heldur.
III.
Er nú ekki kominn tími til
þess að íslendingar geri upp
við Breta? Heimti þann rétt,
sem þeir eiga, og hætti alveg
að setja brezka hagsmuni í fyr-
irrúmið? Er það rétt að fórna
meiru af íslénzkum byggðum
vegna brezkra hagsmuna. Bret
ar eiga hér engan enskan fisk.
. Þorskurinn við ísland er hér
' gofir.n og uppfóstraður, einmitt
a grunnsvæðunum við ísland.
Hann er því réttmæt eign ís-
lendinga einna, innan þeirra
takmarkana, sem íslenzk lög
setja. Bretar eiga þar ekkert
tilkall til. Yfirgangur og of-
beldi Breta við íslendinga hefir
ávallt verið illþolandi, og er nú
óþolandi. Bretar verða að gera
sér sjálfum ljóst, að hernaðar-
aðgerðir, sjóræningjaháttur og
dólgsleg framkoma gagnvart
Islendingum nær engum öðrum
tilgangi en þeim, að skapa hat-
ur og' heift, sem hlýtur að enda
á þann hátt, að íslendingar
leita sér skjóls og stuðnings hjá
þeim, sem bæði þora og vilja
binda endir á dólgskap og
hernaðaraðgerðir Breta við ís-
land, sem þegar eru orðnar
ævarandi blettur á Nato og
hugsjón hinna Sameinuðu
þjóða.
IV.
Það yrði oflangt ' mál, að
ræða ýtarlega yfirstandandi of-
beldi og siðleysi Breta. Þó skal
hér vikið að þremur atriðum.
Fyrsta atriðið kemur okkur ís-
lendingum ekki beint við. En
það sýnir ljóslega hve grátt
Bretar leika bandamenn sína
og samherja, ef þeim býður svo
við að horfa. Það er kviðar-
sparkið, sem Anderson aðmíráll
gaf bandaríska varnarliðinu
með því að setja herteknu
varðskipsmennina á land í
Keflavík og sigla dulbúnu her-
skipi inn í landhelgi fslands.
Hvað átti þetta kviðarspark
að þýða? Átti það að sýna mik-
illeik Stór-Bretans, sem ekk-
ert tillit tæki til Sams frænda?
Átti það að sýna, að Banda-
ríkin væru einskonar skó-
þurrka í þessu máli, sem létu
sér á sama standa hvernig
brezkt yfirlæti hagaði sér? Um
þetta hafa engar skýringar
komið fram. En kviðarsparkið
varð mikið vatn á myllu kom-
múnistá og launkommúnista,
sem í blöðum sínum ófrægðu
mjög varnarliðið fyrir tiltæki
Andersons.
Eskulýðsfélag
í I .augarnessóknar.
Fundur í kirkjukjallaranim'i
í kvöld kl. 20.30. Fjölbreytt
! fundarefni. Síra Garðar
Svavarsson.
wmm
SNiÓSKOFLUR
nýkomnar.
veiðarfæradeildin.
„GiYSIR" H.F.
Veiðarfæradeildin.
Annað atriðið er hótun Breta
um að sökkva varðskipinu Þór,
ef það sleppi ekki tafarlaust
brezkum togara, sem staðinn
var að lögbroti innan 3ja
mílna markanna, sem Bretar
tönnlast á að þeir viðurkenni
að fullu. Ríkisstjórnin og flokk-
arnir rumska og senda mót-
mælaorðsendingu. Hún er af-
hent sendiherranum brezka í
Reykjavík með kveðjuorðun-
um: „Eg fullvissa yður um
virðingu mína“, og undirskrift
utanríkisráðherrans. Ekki hef-
ir heyrst, að þessari mótmæla-
orðsendingu liafi verið anzað,
hvað þá heldur að lögbrjótur-
inn hafi verið sendur til
Reykjavíkur til þess að þola
dóm, eins og krafist var.
Sjálfsögð er kurteisi alls-
staðar,. ekki sízt milli diplo-
mata. En er hægt að svara lög-
brotum og dólgshætti með því
a'ð segja: „Eg fullvissa yður
um virðingu mina!“ — Skrítin
kurteisi það.
Þriðja atriðið og jafnframt
það alvarlegasta eru dar-
teknar tilraunir brezkra tógara
jtil ásiglingar á íslenzku varð<
skipin. Þetta hefir verið gertj
undir brezkri herskipavernd ó-*
átalið. j
Vitað er að enginn getur sé'iS
fyrir afleiðingar ásiglingar. Þag
getur verið ekki eingöngu umj
eyðileggingu skips að ræða!
heldur einnig um líf fleiri eða’
færri af áhöfn skipsins. Slíkap
aðfarir eru bert vitni um ein-
stakt siðleysi. Þær skapa ekkil
ótta heldur hroll og viðbjóð.
Vel mega Bretar líka minn-«
ast þess, að dólgsh:ttur þeirra’
hefir komið fram við fleiri ert
fslendinga. Norðmenn segja
ljótar sögur af framferðil
brezkra togara, sem stunda
veiðar við ísland. Ekki eiga
Bretar og Norðmenn í land-
helgisdeilu eða neinum úti-.
stöðum almennt. Virðist Bret-
um vera tamt, að sýna dólgs-;
hátt alveg að ósekju.
V.
Það er svo sem auðvitað, aS
Bretar þykjast geta leikið við
íslendinga eins og þeim sýnist.
Þeir hafa aldrei um það hirt
að vanda okkur kveðjurnar.
Um það dugar ekki að fást. Viði
breytum ekki framferði og inn-
viðum Bretans. Hitt er svo
augljóst, að vart þarf að ræða,
að það er bæðd nauðsyn og
skylda að við komum hvergi
fram við Breta með neinni
minnimáttarkennd, hvorki
yfirlýstri né óyfirlýstri. Gagr.-
vart Bretum höfum við ekk-
ert að virða. Þá samúð eða vin-
áttu, sem Bretar kunna að hafa
átt hér, hljóta þeir að hafa
misst fyrir löngu.
Anderson aðmíráll virðist
vera dálítið skrítinn og
skemmtilega tilfundinn stund-
um. Svo var er hann bað varð-
skipsmennina íslenzku að færa
vinum sínum í Reykjavik
kveðju, og kvaðst eiga marga
vini á íslandi. Hvað þýða þessi
ummæli aðmírálsins umbúða-
laus? Þau eru yfirlýsing um að
Anderson sé það fullkunnugt,
að fjöldi íslendinga vinni að
málstað Breta, einkum í
Reykjavík. Yfirlýsing Ander-
sons er einnig freklegasta
móðgun í okkar garð. Hann
fullyrðir við íslenzka löggæzlu-
menn að þeir skuli nú fara sér
hægt. Hann eigi vinahóp í
Reykjavík og víðar um land.
Löggæzlumennirnir áttu að
vera boðberar hans til vina-
hópanna og hafa sennilega ver-
ið það að einhverju leyti.
En hvaða íslendingar vilja
eða þora að játa, að þeir séu'
vinir Andersons aðmíráls? Eg
held enginn. Þó eru þeir eflaust
til í skúmaskotum og leita
leynilega færis til þess að
vinna fyrir Breta. Trúlega er
vinafjöldirin bara brezkt gort
hjá Andersen, því ótrúlegt er
að margir íslendingar hafi á-
netjast í því að vinna fyrir
brezka hagsmuni á íslandi.
VI.
Þessi atriði, sem rædd eru
hér að framan og fjöldi ann-
ara sýna okkur að baráttan við
Breta fyrir útfærslu landhelg-
innar verður eflaust löng og
Framh. á 7. síðu.