Vísir - 19.03.1959, Page 7

Vísir - 19.03.1959, Page 7
Fimmtudaginn 19. marz 1959 VfSIB & SLIBAN INGLIB: & & & * Hj [<?ödd ar I aN ☆ ☆ ☆ ASTARSAGA ☆ ☆ ☆ " " N ^☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆’ 16 Svo kom eftirskrift, og Penny hitaði í kinnarnar er hún las hana: „Mér þyJcir leitt að ónáða yður, en eg tel það eigi að síður við tölurn saman, ef þér óskið þess.“ Henni fannst hún sjá drembna glottið á honum, er hann var að skrifa síðustu orðin. Æ, hann var óþolandi. Stofan sem Juana fylgdi henni í, var einskonar sambland bókastofu og vinnustofu. Þar sat Andrew Brand við heljarstórt skrifborð. Hann stóð upp þegar hún kom inn. „Þetta var fallega gert af yður, ungfrú Mayne. Viljið þér ekki íá yður sæti?“ hann benti henni á stól, sem stóð andspænis hon- um við skrifborðið. Og — Juana....“ Penny fann að hún roðnaði. Hvað mundi þessi stúlka hugsa, «f hann bæði hana um að bíða, meðan þau væru að tala saman? „Það var hugsunarsemi af yður að stinga upp á þessu, en....“ Hann kinkaði kolli en brosti svo til Juönu og lét hana fara. Svo settist hann aftur, eins og hann vildi undirstrika, að breitt skrifborðið væri fullnægjandi skilrúm milli þeirra. Hann horfði alvarlegur á Penny. „Eg bað yður um að tala við mig, vegna þess að eg er í óþægi- legri klípu, ungfrú Mayne,“ sagði hann. Penny hleypti brúnum. „Þegar eg kom hingað í gærkvöldi hélt eg vitanlega að þið Tína væruð í E1 Paradiso. Þess vegna sagði eg fólkinu, að eg ætlaði að verða hérna í viku eða kannske lengur. En úr því að þér eruð komin ætti eg, samkvæmt samkomulagi okkar, að fara þegar í stað. Eg mundi líka gera það, ef ekki — hann yppti öxl- unum — ef það liti ekki grunsamlega út — og mundi sýnast mesta ókurteisi, í augum þeirra, sem ekki þekkja til. Miðvitundin um spanska kurteisi er mjög næm hér um slóðir, að það mundi þykja ósvífin mógðun að húsbóndin færi sama daginn sem gest- ir hans koma.“ „Æ,“ svaraði Penny lágt. „Hinsvegar mundi okkur reynast ómögulegt að sniðganga hvort annað algerlega, ef eg yrði hérna áfram, án þess að það vekti «ftirtekt.“ „Eg skil,“ sagði Penny. „Undir þessum kringumstæðum,“ hélt Andrew Brand áfram með alvörusvip, „ætla eg að biðja yður um að lofa mér að verða hér áfram í svo sem tvo daga. Og fái eg að þeim loknum orð- sendingu um að eg verði að koma strax, þá tekur enginn til þess þó eg fari. En ef þér álítið að yður sé ekki fært að ganga að þessu — hann yppti öxlum — verð eg að reyna að finna mér ein- hverja afsökun og fara þegar í stað. En....“ Penny vatt á sér fingurna. Það var erfitt að fást við þennan mann! „Eg veit ekki....“ byrjaði hún. „Og eitt enn,“ greip hann fram í, „Ef eg verð hérna, verðum við að láta sem við séum góðir kunningjar. Eg.held að eg geti lofað yður því — nú lék bros um munninn — að eg skal ekki tapa mér aftur.“ Penny starði vandræðaleg á hann. Hann hafði rétt fyrir sér. Auðvitað hafði hann rétt fyrir sér. Hann gerði enga tilraun til að fá hana til að ganga að þessu. Hann bar aðeins fram staðreyndirnar og ætlaðist svo til að hún réði sjálf. Undir þessum kringumstæðum gat hún aðeins gert eitt. „Jæja, þér getið verið kyrr, herra Brand,“ sagði hún. Hann brosti og andlitið varð unglingslegt. „Eg hef með öðrum orðum leyfi yðar til að verða hérna nokkra daga? Og við getum talið að vopnahlé verði á milli okkar þessa daga?“ Hún kinkaði kolli. „Þér eruð göfuglynd. Þakka yður fyrir, ungfrú Mayne.“ Hann stóð upp og rétti fram höndina. Ósjálfrátt tók hún í hana — og hver taug í líkama hennar fann hve fast hann þrýsti. „Eg skal gera mitt bezta til þess að heimsókn yðar hérna verði yður ekki til skapraunar, mín vegna,“ sagði hann. Augnabliki síðar höfðu dyrnar lokast eftir Penny. Andrew Brand var einn þarna í stóru stofunni. Hann settist hægt við stóra skrifborðið aftur. Svo dró hann eitthvað upp úr vasanum. Hann breiddi úr velktu bréfi. A KVÖLDVðKUNNl illð ■-H „Kceri herra Brand! Mér finnst rétt að láta yður vita, að við Tína œtlum til Los Quebranchos á morgun og verðum þar viku, að minnsta kosti. Ef þér viljið verða hjá yður á meðan... Hann andaði djúpt og glampi kom í augun. Mikil heppni að Tomaso skyldi skila bréfinu svona fljótt, og að Gomez var ekki sá eini í E1 Paradiso, sem átti flugvél. Hann hugsaði sig um. Tveir dagar, kannske þrír.... skyldi honurn geta tekist — á þessum stutta tíma — að láta henni lítast ofurlítið betur á sig en henni gerði nú? Og nú fóru augun að ljóma aftur — hugsum okkur hve fjúkandi vond Mercedes Herrera hefur orðið, þegar hann kom ekki á stefnumótið þeirra! Vopnahlé milli þeirra.... Hún gat vitanlega ekki annað en fallist á þetta. En taugar hennar voru enn í æsingi, er hún kom inn i herbergið sitt og lokaði eftir sér. Hvað svo sem hann sagði, hvað svo sem hann lofaði, vissi hún að kvöldið þarna í Casino mundi jafnan verða eins og hyldýpi milli þeirra. Hún gat heldur ekki gleymt rimmu þeirra í stofu lafði Kathleen ef til vill gat hún fyrirgefið honum að hann þvingaði hana til að halda samninginn. En kossinn.... Roðinn brann í kinnum hennar er hún hugsaði til þess hvernig sterkir armar hans höfðu haldið utan um hana, er hún minntist brosandi munnsins og varanna, sem snertu hana. Hvernig átti hún nokkurn tíma að geta treyst honum? Eina úrræðið sem henni gat dottið í hug, var að forðast hann sem mest. Fyrst og fremst að forðast að vera ein með honum. Penny teygði fram hökuna í þráa. Þaö yrði kannske erfitt, en hún varð að gera það. Meðan Andrew Brand væri á Los Queb- ranchos, urðu Tína og Luis að sætta sig við að hún yrði alltaf með þeim. Forstjórar í auglýsingastofi? voru að ráðgera stóra auglýs-i ingu sem átti að setja við inn-J gang búða. En þeir gátu ekkil orðið á eitt sáttir um það hvortí auglýsingin skyldi standa tiB vinstri eða hægri. Hvort snýri fólk fremur til hægri eða vinstri þegar það kemur inn fl búð? Loks stakk einn forstjór- inn upp á því að gera tilraun' með lítið kaffihús, sem var andspænis þeim. Þar voru tvöi búðarborð annað til vinstri og hitt til hægri. Þeir komust að því að miklu fleiri biðu til vinstri en hægri og „vinstrimenn“ voru sigri hrósandi. En einn af þeim sem) barðist fyrir hægri hlið fór til kaffihússeigandans ag spurðist fyrir. „Ojá, eg get sagt yður hvar fólk stillir sér helzt upp. Það er ekki alltaf á sama stað. Sjáið þér þessa Ijóshærðu, gjaldker- ann þarna. Það er undir því komið hvar hún er, hvar fólk stillir sér upp.“ ★ Kanada getur hrósað sér af höfundi, sem heitir Francois 'Sainte Marie, og þegar hann er beðinn um eiginhandaráritun segir hann hryggur: — Það er mér ómögulegt, eg kann því miður ekki að skrifa. Hann er nefnilega 4ra ára og verður að lesa móður sinni fyrir það sem hann yrðir. — Hann hefir stungið út Minon Drouel í Frakklandi! Núna í dag voru þau horfin eitthvað út í buskann, svo að hún varð að sætta sig við að „hvíla sig“, þó það væri það, sem hana larigaði sízt. Nú vall ný reiðialda út af Andrew Brand upp í henni, er hún hugsaði til hesthúsanna og gripagirðinganna og hins dásamlega landslags, sem hún hefði getað skoðað núna, ef hún hefði fullt frelsi. Ekkert truflaði siðdegiskyrrðina fyrir henni nema hvað Eust- acia frænka sendi tebakka upp til hennar. Sólin leið hægt fram sína braut, en svalt var í herberginu vegna grænu hleranna, sem voru fyrir gluggunum. Penny varð angu.vværari og óeirnari með hverri stundinni sem leið, en hún hélt sig þó inni í herberginu þangað til klukkan varð sjö. Þá var loks komin tími til að tygja sig undir miðdegisverðinn. Hún fór í bað og klæddi sig hægt og vandlega. Hún. valdi sér Hafnarfjarðar 30 ára. £• R. Biirrouáhs T 411 p p® §PI. Æu. 2850 THE wrrcn POCTOR, FUWKEP’ By TWO HANP- MAIÞENS, PEAMATICALLy AFT’KOACHEP’ AN ENTHKALLEP AUÞIENCE. láL UGtrTrUnTtta FMtoir8r^lMtf1a£ Töfralæknirinn gekk til áheyranda sinna og í fygld með honum voru meyjar tvær, sín til hvorrar handar. Hann tók fram flÖsku sem rauk úi og skipaði stúlkun- um að leggja fjórar ausur á borðið. Takið vel eftir sagði hann. Nú ætla eg, Sobito, að sýna ykkur töfra mína og mátt. A niorgun — föstudag — minnist Málarafélag Hafnar- fjarðar 30 ára afmælis síns, með samsæti í Alþýðuhúsinu í Hafnarfirði. Málarafélag Hafnarfjarðar var stofnað 27. febrúar 1929, og voru stofnendur 5 starfandi málarar í Hafnarfirði. Tilgangur félagsins var, samkvæmt 2. gr. félagslaga: Að gæta hagsmuna félagsmanna í hvívetna og efla samvinnu þeirra á meðal. Að stuðla að því, að félagar beiti ekki hver annan órétti, eða verði beittir órétti af öðr- um óviðkomandi, hvorki per- sónulega eða fjárhagslega. Fyrsta stjórn félagsins var skipuð þessum mönrium: Magnús Kjartansson formaður, Kristinn J, Magnússon vara- ! forroaður, Ásgeir Einarsson ritari, Árni Árnason g'jaldkeri. Magnús Kjartansson var fer- maður félagsins um 20 ára skeið, og var gerðui' heiðurs- félagi þess árið 1950. Einar Risberg, sem éinnig var einn af stofnendum féla; ins var kjörinn heiðursfélagi á 15 ára afmæli félagsins 1944. Félagar eru nú 17. í núverandi stjórn .eni: Björn Bjarnason formaður, Sigurður Kristinsson varafe'- maður, Hermann Ólafsson ri ari og Eyþór Júlusson gjald- ! keri.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.