Vísir - 01.07.1959, Blaðsíða 8
Ekkert blatt «r édýrara í áskrift en Tfair.
KiátiS fcann fœra yður fréttir »g annað
lastrarefnl heint — án fyrirhafnar aí
ySar hálfu.
Síml l-ie-8B.
WÍSMM.
Munið, að þeir, sem gerast áskrifendnr
Víii* eftir 10. hveii mánaðar, fá blaðið
ákeypis til mánaðaméta.
Sími 1-16-et.
Miðvikudaginn 1. júlí 1959
Forsetakjör í V.-Þýskatandt
fer frant í V.-Beriín í dag.
Forsetaefni kristilegra demokrata
sigrar sennilega.
r Forsetakjör « Vestur-Þýzka-1
landi fer fram í dag. Kemur j
sambandsþingið saman til þess ^
í Vestur-Berlín, og hafa kom- j
múnistar komið af stað úlfaþyt j
út af ákvörðun um það, þótt
forsetakjör hafi áður farið 'þar
fram, og var mótmælum kom-
múnista ekki sinnt.
Forsetaefni flokkanna eru:
Lúbke þingforseti, foresta-
efni Kristilegra lýðræðissinna
(flokks Adenauers), Otto
Schmidt prófessor, forsetaefni
jafnaðarmanna, og Max Beck,
forsetaefni frjálsra demokrata.
Baráttan kemur að sjálfsögðu
til með að standa milli Lubkes
og Otto Schmidts, forsetaefna
aðalflokkanna. Sagt er, að öll
forsetaefnin hafi verið mjög
treg til þess að fallast á, að
verða í kjöri, enda hafa staðið
miklar deilur í landinu varð-
andi forsetakjörið, einkanlega
í flokki Kristilegra lýðræðis-
sinna, eftir að Adenauer hætti
við að vera í kjöri, og er það
allt í fersku minni. Yfirleitt er
talið, að Lúbke muni bera sigur
úr býtum þar sem þýzki flokk-
urinn mun styðja hann.
Við forsetakjörið eru kjör-
menn þingmenn sambands-
þingsins allir og jaínmargir
kjörmenn fylkisþinganna.
Horfur á, að öll blaða-
útgáfa Breta stöðvist.
Engin skilyrði til samkomulags
eins og stendur.
Enn vofir yfir, að útgáfa aðal-
'blaðanna brezku stöðvist í viku-
lokin, vegna vinnudeilu, sem
þau eru ekki aðilar að, — deiht,
sem af leiðir, að þau geta eklci
endurnýjað prentsvertubirgðir,
sem eru á þrotum.
Blöðin koma þegar út í minna
broti en áður. Eigendur blað-
anna hafa með sér félag, og er
það samkomulag í félaginu, að
ef eitt blaðanna neyðist til að
hætta að koma út vegna afleið-
ingar vinnudeilu, skuli hin einn-
ig hætta.JEitt blað er utan við
félagsskapinn, og ekki bundið
,★ Um 3.000,000 Túnisbúar
heita aðeins einu nafni, ekki
i eftirnafni, en frá 1. sept.
i 1960 verða allir að hafa
I fengið sér eftirnafn einnig.
af samkomulaginu, en það er
DAILY WORKER, málgagn
kommúnistaflokksins, og mun
það geta komið út nokkru leng-
ur, enda smáblað og upplag
sáralítið á erlendan mæli-
kvarða.
Að tilhlutan McLeods, vinnu-
málaráðherra, var fundur hald-
inn í gær og mættu þar full-
trúar aðila. Fulltrúi ráðherra
kvað hann hafa áhyggjur af
horfunum og hvatti menn til
þess að reyna að leysa deiluna,
en af beggja hálfu var svarað,
að skilyrði til samkomulagh
væru ekki fyrir hendi, eins og
sakir stæðu. Talsvert hefur ver-
ið um fundahöld í vikunni, en
engan árangur borið.
Aðalfyrirsagnirnar í brezku
blöðunum í morgun eru um
þetta mál.
A Heklu um
helgina.
Um næstu helgi, 4.—5. júní,
efna Farfuglar til skemmti- og
gönguferðar á Heklu.
Á laugardag verður ekið
austur að Næfurholti og slegið
upp tjöldum þar, en kvöldið
notað til gönguferðar niður í
Hraunteig og hann skoðaður.
Sunnudagsmorgun verður
ekið upp á Bjalla og að hraun-
röndinni gegnt Litlu-Heklu, en
þaðan er um hálftíma gangur
að fjallinu.
Verður þá fyrst haldið að
axiargígnum, en þaðan upp
eftir að sjálfum Heklutindi,
sem er í tæplega 1500 m. hæð.
Útsýni þaðan er sérstaklega
fagurt, og sézt um meginhluta
Suðurlands, allt frá Öræfajökli
að Esju.
Skrifstofa Farfugla að Lind-
argötu 50 er opin á miðviku-
og föstudagskvöld, kl. 8,30—
10, og eru bæði félagar og aðr-
ir vinsamlega beðnir að til-
kynna þátttöku esm fyrst. Sími
skrifstofunnar er 15937.
Mestu flotaæfingar
vi5 SA-Asíu.
Meslu flotaæfingar fyrr og síð-
ar í Suðaustur-Asíu fara fram
frá 25. júií—30. ágúst á Ind-
landshafi.
Brezk, áströlsk, nýsjálenzk
indversk og ceylonsk herskip
taka þátt í flotaæfingunum,
alls 38 herskip frá SEATO-
löndum.
Farfuglar í Hekluhlíðum.
Síldin ekki enn söitunarhæf.
Fitumagn mælist 14,1.
Frá fréttaritara Vísis.
Siglufirði í morgun.
Fitumagn þeirrar síldar, sem
nú berst á land hér, hefir ver-
ið mælt og reynst vera 14,1,
Sovesk aðstoð við her-
þjálfun á Kúbu.
Dominikanska lýðveldið seg-
ir sovéska sérfræðinga þjálfa
3000 manna her á Kúbu.
Sé verið að æfa lið þetta til
stuðnings við undirróðursöfl.
Ennfremur hafi Kúba fengið
12 sprengjuflugvélar og gefið
í skyn, að þar sé einnig um
stuðning frá kommúnistalandi
að ræða.
ILO-ráðstefnu í Genf nýíokið.
Samþykktir geröar um bætt kjör fiskimanna o.fl.
Ráðstefnu Alþjóða vinnu-
málastofnunarinnar (ILO), sem
hófst 3. júní í Genf, er nýlega
lokið. Þetta var 40. áriega ráð-
stefna ILO.
Á ráðstefnunni voru m. a.
Bandaríkjameitfi láta smíða fjögur
100,000 I. farþegaskip í Holtandi.
Hvert á að geta flutt 8000 farþega
yfir Atlantshaf fyrir 25 stpd.
Gert er ráð fyrir, að banda-
rískur auðjöfur undirskrifi í
þessari viku samning við hol-
lenzka skipasmíðastöð um smíði
jjögurra risaskipa.
Það var á síðasta ári, að mað-
ur þessi, Edgar Detwiler, til-
kynnti þá ætlun sína, að láta
smíða fjögur hafskip, sem ættu
að flytja menn yfir Atlantshaf-
ið fyíir brot af því, sem það
kostar nú. Þetta er hægt með
því móti, að eiginlega verður
aðeins um „skrínukost11 að ræða
S skipunum, Engin tilraun verð-
ur gerð til að laða farþega að
með íburðarmiklum mat eða
slíku, heldur verður matreiðsl-
an með svonefndum „cafeteria“-
stíl. Þá verða allir farþegar á
sama farrými og þótt vistarver-
ur verði vandaðar, verður ekki
um neinn íburð að ræða.
Með þessu móti gerir Det-
wiler ráð fyrir, að skipin
geti flutt menn yfir hafið fyr-
ir aðeins 25 pund, en nú er
minnsta gjald með skipi 50
sterlingspund.
Skipin, sem verða öll jafn-
stór, munu verða langstærstu
farþegaskip í heimi. Þau eiga
að verða 100.000 lesetir, eða um
fjórðungi stærri en „drottning-
arnar“ brezku, og 1275 fet á
lengd, en brezku risaskipin eru
um 1030 fet. Hraðinn verður
um það bil 35 hnútar á klukku-
stund, eða fjórum hnútum meiri
en á brezku skipunum.
Fyrsta skipinu, United Na-
tions, verður vœntanlega
hleypt af stokkunum að
þrem árum liðnum. Það get-
ur flutt — eins og hin —
8000 farþega, og í því verður
m. a. „gata“ með 30 verzl-
unum.
gerðar þrjár alþjóðasamþykktir
varðandi bætt kjör fiskimanna
o. fl. og tillögur sem miða að
bættum heilbrigðiskilyrðum á
vinnustöðum.
Þá voru gerðar samþykktir
um undirbúningsráðstafanir til
verndunar verkamönnum gegn
áhrifum geislunar, og er miðað
að því, að um það verði gerð
alþjóðasamþykkt á ILO-fund-
inum á næsta ári.
Almennar umræður fóru
fram um ýmis vandamál, m. a.
verkamanna sem ekki stunda
erfiðisvinnu, aðstoð við tækni-
lega þjáifaða verkamenn o. m.
fi., svo sem aðstoð við þjóðir
skammt á veg komnar.
Frakkar setja
flugmet.
Frönsk flugvél hefir sett
met í 100 km. flugi á markaðri
hringbraut.
Var þetta orustuþota af gerð-
inni Mystere III, sem náði 1665
km. hraða á klst. á þessari leið,
'en gamla metið var 16.38 km.
og er hún því ekki enn söltun-
arhæf. Hins vegar síldin stór,
meðallengdin 36 sm.
Þessi skip komu inn í nótt:
Vonin önnur KE með 328
mál, Reynir 190, Guðmundur á
Sveinseyri 636, Sigurvon Akra-
nesi 84, Tjaldur 140, Sæljón
458 og Faxaborg 408, en hafði
áður látið 150 í íshús. Muninn
frá Hnífsdal er á leið í land
með 460 mál, og Jón Kjartan-
son einnig með sæmilega veiði.
Mikill fjöldi
drukknar.
Mikil flóð hafa orðið í Vene-
zueia.
A.m.k. 100 manns hafa far-
ist í flóðum, flestir í þorpi,
þar sem flest hús skoluðust
burt, er fljót sem það stendur
við, flæddi yfir bakka sína.
Matvæli eru send loftleiðis
til fólks, sem er í nauðum statt
á umflotnum svæðum.
Menn óttast, að manntjón
reynist meira en kunnugt er
um.
Handbók veltunnar.
Þar sem nokkrir eiga eftír
að gera skii í happdrætti velt-
unnar, verður dregið • veltu-
happdrættinu n.k. laugardng.
Aðeins dregið úr seldum
miðum.
Gerið vinsamlega skil strax.
Áskorunarseðlarnir verða
sóttir til þeirra, sem þess óska.
Morgunblaðshúsinu, 2. hæð,
Fjáröflunarnefnd
Sjálfstæðisflokksins,
simar 24056 og 10179.