Vísir - 06.07.1959, Page 3

Vísir - 06.07.1959, Page 3
Mánudaginn 6. júlí 1959 V ISIR „Það var helzt hérna í gamla daga, að við lentum í ýmsu .... Við vorum þá svo fáir, lögregluþjónarnir, 13 manns í allt, og margir þeirra orðnir háaldraðir menn, og svo óð hér allt uppi af útlendum sjóurum, sem drukku sig auga-fulla bæði á Öldunni og Fjallkonunni, og stofnuðu til blóðugra slags- mála, sem við urðum að stöðva á einhvern hátt.“ „Þið hafið þá ekki verið margir á vaktinni, ef þið hafið verið tíu alls?“ „Nei. Við vorum venjulega "tveir saman á verði í austur- bænum og allt niður í miðbæ. Þá var bæði Aldan og Fjallkon. an í okkar umdæmi, og við lentum oft í ryskingum og blóðugum bardögum á þeim stöðum.“ „Var ykkur ekki illa við þ)essa staði?“ „Það er víst alveg óhætt að segja það. Ef við vorum kall- aðir þangað, fórum við venju- lega upp á líf og dauða, eða allt að því. Við gátum alltaf reikn- að með því að á okkur réðist hópur grenjandi, bandvitlausra slagsmálahunda, og þá átti maður sannarlega líf sitt að verja.“ Segðu mér sögu af því.“ ■ „Við skulum nú sjá....Já, £að var til dæmis einu sinni, að við vorum kallaðir að Öldunni í Traðarkotssundi. Þar voru gömul hjón, sem gerðu hreint. í þetta sinn voru þarna staddir 7 erlendir sjómenn, Danir og Svíar, voru orðhir ölvaðir og höfðu ráðist á gömlu hjónin. Eg man ekki nú orðið hvaða tilefni var að þessari óþokka- legu árás, en uín það leyti, sem við komíim þarna að, höfðu þeir knúð hjónin í götuna. Náði þeim í Bankastræti. Þegar þeir sáu okkur koma þama að, tóku þeir á rás niður Eaugaveginn, og eg á eftir. Sá, sem með mér var, gat ekki hlaupið eins hratt, því hann var orðinn fullorðinn, svo eg rak flóttann einn. Neðarlega í Bankastræti náði eg í kauðana, og okkur lenti saman. Þrír þeirra fóru í mig, en fjórir héldu hlaupunum á- fram. Eg lét þá hafa kylfuna miskunnarlaust, og þeir lágu allir fljótlega. Eg hélt síðan á- fram á eftir þessum fjórum, en þeir mættu mér með grjót- kasti í Lækjargötunni. Hentu stærðar-hnullur.gum í mig, sem hittu mig margir. Einn þeirra, hnefastór steinn, lenti beint" á enninu, og eg var næstum því rokinn um koll. Það var heljar- mikið högg .... sjáðu bara, eg er ennþá með ör eftir þennan stein .... enda hef eg aldrei náð mér fyllilega síðan. Alltaf verið slæmur í höfðinu. Þeir leituðu læknis. Nú, eg hélt áfram eftirför- inni, en nú höfðu þessir þrír, sem lágu í Bankastrætinu, ris- ið upp aftur, og komu á eftir mér. Þeir réðust aftur að mér, og eg hafði nóg með þá að gera í bili, en skildi samt þarna við þá alla í götunni. Hinir fjórir voru þá horfnir, og eg lét þá eiga sig, því bæði var það að RABBAO VIÐ SÆMUND GÍSLASQN LÖGREGLUÞJDN ☆ imiiium einum eg var illa á mig kominn, og niðamyrkur var allsstaðar nema í miðbænum. Eitthvað lenti eg samt í þessum fjór- um, en líklega hefur það ekki verið neitt alvarlegt, því eg man ekki vel hvernig það fór. Eg var allur orðinn alblóð- ugur að framan og líklega ekki sjón að sjá mig. Fór þá á stöð- ina og lagaði mig til eftir því, sem hægt var í fljótu bragði, en síðan var gengið að því að skrifa skýrslu um þennan at- 'burð. Síðar um morguninn, þegar eg var á heimleið af vaktinni, mætti eg aftur þessum sömu þrem peyjum. Þá var af þeim mestur móðurinn, og þegar eg spurði þá hvað þeir væru nú að bedrífa, sögðust þeir vera að leita að lækr.i, til að gera að sárum sínum og hinna fjög- urra. Eg kvað þá gera bezt í því að verða mér samferða nið- ur á stöð, sem þeir gerðu möglunarlaust. Þar var ‘feng- inn læknir til að gera að sárum þeirra, en þau voru mörg slæm. Nokkrir tannlausir með öllu eftir nóttina, mislit augu, opn- ir skallar o. fl. Þeir sluppu þó um síðir. Nú skeðu þau undur, að þeir gerðu háar skaðabótakröfur vegna sára sinna, en þeir voru að sjálfsögðu ákærðir vegna á- rásar á gömlu hjónin, vegna mótspyrnu við handtöku, ó- spekta á almannafæri, og eg veit ekki hvað- Þetta endaði svo allt með því, eftir því sem eg bezt veit, að þeim var sleppt gegn því að þeir féllu frá öll- um sínum kröfum.“ „Og hverskonar menn voru þetta eiginlega?“ „Mig minnir að þetta hafi verið allt að þvi heil skipshöfn, að undanteknum skipstjóra og fyrsta stýrimanni. Skútan þeirra lá hérna við Verka- mannaskýlið gamla í krikanum hjá kolakrananum.“ „Hvað varstu gamall, Sæ- mundur, þegar þetta skeði?“ „Við skulum nú sjá .... líklega hefi eg verið aðeins lið- lega þrítugur. Upp á mitt bezta, eins og maður segir. Þetta var held eg,' á fýrsta eða öðru ári eftir að eg byrjaði í lögregl- unni.“ ,,Þú hefir þá verið um þrí- tugt, þegar þú byrjáðir þar. Hvað Starfáðir þú áðúr en þángað kom?“ „O — svona við ýmislegt smávegis. Var ú sjónum, og svo fékkst eg líka dálítið við söng.“ Hann söng í landlegum. „Söng?“ „Já. Eg var í tímum hjá Sig- fúsi Einarssyni og Herdísi Matthíasdóttur. Svo var eg í síld á sumrin, og söng í land- legum. Það var prýðilegt. Bæði var að eg vandist af feimni, og svo hafði eg oft gott upp úr því. Hafði stundum meira upp úr söngnum, heldur en á síld- inni. Einu sinr.i tepptist eg á ísafirði vegna íss. Þá hélt eg söngskemmtun þar og tókst vel. Nokkru síðar ætlaði eg að syngja aftur, en fékk þá ekki leyfi hjá bæjarstjóra til þess. Þetta fréttu ísfirðingar, og söfnuðust saman af sjálfsdáð- um og heimtuðu söng, sem þeir fengu síðan fyiir luktum dyr- um, vonandi engum til ama en flestum til ánægju. 1 Það var nú í þá daga .... „Já, að mestu leyti. Eitthvað var ég í karlákór, en hætti því svo.“ Hann xnátti ekki hætta! „Fórstu aldrei utan?“ „Ekki í þeim erindum að læra söng. Nei.......Fór samt einu sinni til Noregs. Það var á végum lögreglunnar. Fór þangað til að kynna mér starfs- háttu þar. Þar var mér tekið með kostum og kynjum, þeir báru mig á höndum sér og vildu allt fyrir mig gerá. Þá var eg upp á mitt bezta. Veizluhöld svo til á hverju kvöldi. Ein- hverju sinni var eg í Bergen og yfirmenn lögreglunnar buðu mér á veitingahús um kvöldið. Þar voru nokkur hundruð manna samankomnir í veit- ingasölunum. Jú, þar var glatt á hjalla, drukkinn norskur mjöður, sungið og glensast. Þá var það að gestgjafar mínir báðu mig að syngja íslenzkan ættjarðarsöng. Eg taldi mig ekki getað skorast undan því, stóð upp og tók að syngja. ^Þarna var fyrirtaks píanóleik- ari, sem lék undir söngnum, |og fórst það einstaklega vel. |Nú, það er ekki meira frá því að segja, nema fólkið ætlaði jallt vitlaust að verða. Eg mátti j ekki hætta að syngja, og kyrj- | aði þarna hvert lagið á fætur öðru, og allt ætlaði um koll að keyra í fagnaðarlátum. Jú, víst var það gaman........ Þegar eg var á Akureyri, skrifuðu þeir Steingrímur Matthíasson og síra Geir Sæ- mundsson vígslubiskup bréf til^ kapelmeistarans við Konung- lega leikhúsið í Kaupinhöfn, [ og fóru fram. á að hann tæki | mig að sér til að' læra söng. j Hann skrifaði aftur og kvað sig fúsan til þess, en .... æ . . • ■ einhvern veginn varð nú aldrei úr þessu.“ „Hættir þú svo alveg að syngja?“ í Nefbotnaði. Eftir þetta huðu þeir mér að kosta mig til náms á söngskóla í Oslo. Líklega hafa þeir álitið að mér veitti ekkert af að læra betur, en hvað um það, þá var eg sá asni að taka ekki boðinu. Mér fannst eg vera bundinn þeim hérna heima og afþakkaði því.“ „. ... og fórst aftur að lög- reglast hérna heima. Annars voruð þið víst kallaðir „Pólití“ á þeim tíma.“ „Já. Pólití vorum við kallað- ir. Það var oft róstusamt þá. Einu sinni var eg að koma vestan úr bæ. Var að fylgja lítilli telpu heim til sín af því hún þorði ekki í myrkinu. Þegar eg kom á móts við Foss- berg, réðist skyndilega á mig maður, sem hafði staðið í fel- um bak við ijósastaur. Hann rak mér geysimikið högg á nefið, svo það mölbrotnaði. Sjáðu bara. .. . Hefi aldrei beð- ið þess bætur.Nú,eg hrökklaðist til baka, og hef líklega dottið við höggið, en jafnaði mig strax og tók á rás á eftir mann- inum. Hann hljóp allt hvað af tók, en eg brá fyrir hann fæt- inum, og við kútveltumst í götunni. Eg lenti ofan á, og gat komið á hann handjárnum. Nú er þetta góður og gegn borgari þessa bæjar. Ekki meira um það.“ Minning úr Suðurgötunni. „Hvað kom til að mann- garmurinn réðist svona á þig alsendis óforvarendis?“ „Jú, líklega vár það vegna þess að honum var illa við mig síðan í Suðurgötunni." „Suðurgötunni?“ „Já. Ólafs Friðrikssonar- málið. Þú manst eftir því?“ „Man ekki, cn hefi lesið úm það. Eg er ekki nógu gamall til að muna það. Það spannst út af dreng, sem Ólafur ætlaði að taka að sér, en var með augnveiki, og iékk ekki land- vistarleyfi fyrir hann. Var það ekki þannig?“ „Jú. Svo skiptust menn í tvo hópa. Sumir fylgdu Ólafi og drengnum að málum, og ætluðu að halda drengnum, hvað sem tautaði, en aðrir fylgdu lögum og reglum og vildu aðstoða við að senda drenginn út aftur. Svo geymdi Ólafur drenginn hjá sér í Suðurgötu 14. Við vorum svo sendir til'að sækja drenginn. Eg fór upp, braut upp til að ná drengnum, og fór með hann út. Þegar eg var kominn með hann út á tröppur, réðist hinn hópurinn að mér með kylfum og grjóti. Eg hélt báðum höndum í handriðið á tröppunum, og kylfurnar riðu á handleggjunum. Þar brotn- uðu báðir handleggir. Sjáðu .... örin eru hér ennþá......“ „Brotnuðu báðir handlegg- ír Oft hörð átök forðum. „Já. Að vísu ekki alveg yfir, en flísaðist úr ]. eim, og pípurn- ar sprungu. Eg tók ekkert eftir þessu í fyrstu, því eg var svo dofinn, en svo iór það að segja til sín.“ „Þú hefur brákast víða um kroppinn um æfina.“ „Já, enda voiu oft hörð átök í gamla daga hérna í bænum.“ „Þú ert nýlega hættur að starfa sem lögregluþjónn?“ „Eg hætti núna um áramótin síðustu. Þá var eg búinn að vera í 38 ár í götulögreglunni.“ „Já, þú hefir víða sést í bæn- um, og fáir munu þeir Reyk- víkingarnir, sem komnir eru til ára sinna, að þeir. kannist ekki við þig í rúninginum.“ ,,Það er ekki ósennilegt .... en það er bölvað að vera svona Frh. á bls. 9. ;

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.