Vísir - 06.07.1959, Blaðsíða 6

Vísir - 06.07.1959, Blaðsíða 6
6 flSlK Mánudaginn 6. júlí 1959 WÍSXR. DAGBLAÐ Útgefandl: BLAÐAÚTGÁFAN VlSIR H.F. Tlnir kemur út 300 daga á ári, ýmist 8 eða 12 blaBííður. Rltstjórl og ábyrgðarmaður: Hersteinn Pálsson. y Skrifstofur blaðsins eru í Ingólfsstræti S. Ritstjórnarskrifstofur blaðsins eru opnar frá kl. 8,00—18,00,. Aðrar skrifstofur frá kl. 9,00—18,00. Afgreiðsla: Ingólfsstræti 3, opin frá kl. 9,00—19,00. Sími: (11660 (fiinm línur) VÍBÍr kostar kr. 25.00 í áskrift á mánuöi, kr. 2.00 eintakið í lausasölu. Félagsnrentsmiðian h.f. Rúmur helmingur mann- kyns býr í 4 löndum. Ibúar þessara landa eru alls 1400 milljónir. Bágar horíur á síidveiðum. Engum þarf að segja, að síldin hefir reynzt hinn mesti kenjafiskur hér við land. Það er nú liðinn hálfur mannsaldur, síðan hér kom gott síldveiðisumar, síðan síldarhallærið gekk í garð, en það hefir þó ekki dregið úr löngun manna eða vilja , til að reyna einu sinni enn, ; gera enn eina tilraun til að veiða síld, svo að um mun- ar, fyrir Norðuriandi. Og það er ekki einungis, að afl- inn hefir jafnan verið miklu minni en áður tíðkaðist und- , anfarin 15 ár — sum árin ! eiginlega alls enginn — heldur dreifðist hann að auki á miklu fleiri skip en áður, svo að meðalafli á nót hefir minnkað enn meira en heild- arafiinn kann að gefa til kynna við fyrstu athugun. Flestir þeirra útgerðarmanna eða félaga, sem hafa gert út á síld síðustu fimmtán árin, hafa orðið fyrir meira eða minna tapi. Sum skip hafa ; skilað hagnaði ár eftir ár, en þau hafa verið mjög fá. Önnur hafa skilað nokkrum hagnaði sum þessarra hall- ærisára, en þau munu vera langflest, sem rekin hafa verið með tapi, jafnvel miklu tapi, á hverju sumri, svo að venjulegum mönnum finnst það næstum ótrúlegt, hvað sumir útgerðarmenn hafa verið þolinmóðir við að senda skip sín á síld. Það væri vissulega fróðlegt, ef áthugað væri með nokkurri nákvæmni, hversu miklu íslendingar eru búnir að eyða í að reyna að veiða síld fyrir norðan land hvert sum- arið á fætur öðru að undan- förnu. Varla fer hjá því, að það sé geysileg fjárhæð, sem búið er að fleygja bókstaf- lega í sjóinn með þessu móti. Happdrættið fyrir norðan seiðir menn jafnan á hverju væri, því að hagnaðurinn er svo fljótur að koma, ef um einhvern afla er að ræða. Ef menn vissu fyrirfram, að hagnaðarvonin væri ekki meiri en hún hefði reynzt áður, er ekki ósennilegt, að einhver, hefði hætt við að senda skip sitt norður. Það mun hinsvegar einnig reka á eftir mönnum, að verkefni eru eiginlega engin fyrir vélbátaflotann að sumarlagi hér við land, eins og afla- brögðum er háttað. Hans aðalstarfstími er um vetrar- mánuðina og' svo aftur við reknetaveiðar á haustin, en miðhluta ársins verður að leggja bátunum, ef ekki er talið tiltækilegt af einhverj- um ástæðum að senda þau norður á síldarmiðin. Væri nú ekki ráð, að við verð- um einhverju af því fé, sem færi ella í sildarhappdrættið nyðra á næsta sumri, til að leggja í annað happdrætti? Við ættum að athuga, hvort það er gersamlega útilokað að halda út leiðangri vélbáta á Grænlandsmið. Aðrar þjóð ir gera þetta ár eftir ár, svo að einhver hlýtur ábatinn að vera, en ef til vill er aðstöðu- munur mikill, þótt aðrir eigi lengra að sækja. Hvernig væri að athuga þetta? Það virðist nokkurn veginn sama, hvort peningunum er „fleygt í sjóinn“ fyrir vest- an Grænland eða austan. Ráðhúsmálið þokast áfram. Á föstudaginn var efnt til fund- ar í ráðhúsnefnd bæjarins, og þar voru lagðar fram teikningar þær af væntan- legu ráðhúsi Reykjavíkur, sem unnið hefir verið að undanfarið. Er þá málið komið á nýtt stig og má segja, að nú fari sú stund að nálgast hröðum skrefum, er hafizt verður handa um að reisa sjálfa bygginguna. Ráðhúsið hefir oft verið til um- ræðu á undanförnum árum, bæði hjá bæjarvöldunum og almenningi. Talar almenn- ingur um það, að ekki gangi nógu vel að hrinda því í framkvæmd, en menn verða að athuga það, að ekki má kasta höndunum til þessa verks. Það heyrðist víst ramakvein, ef rokið hefði verið til undirbúningslítið eða nær undrbúningslaust, því að árangurinn hefði vart orðið veruleg bæjarprýði. Hér á að rísa bygging, sem á um langan aldur að vera einkenni bæjarins, tákn um smeltkvísi bæjarbúa og stór. hug. Menn hafa svo sem heyrt það, að komið hafi verið upp ráð- húsi í Hafnarfirði, en sú bygging er ekki slík bæjar- prýði, að ástæða sé til að státa mjög af henni. Reyk- víkingar vilja gera betur, og þeir gera sér þá væntanlega einnig ljóst, að í þessu efni er flas ekki til farnaðar. Rúmur helmingur af íbúum jarðarinnar býr í aðeins fjór- um löndum. í Kína, Indlandi, Sovétríkjunum og Bandaríkj- unum búa nú 1400 milljónir manna. Þessar upplýsingar eru í skýrslu, sem Sameinuðu þjóð- irnar hafa nýverið birt. í henni segir að samanlögð íbúatala heimsins sé 2800 milljónir. Skýrsluna er að finna í „Demographic Yearbook“ fyrir árið 1958. Hún tekur til 270 landssvæða, þeirra á meðal allrá sjálfstæðra ríkja og svo landsvæða sem ekki hafa sjálfs stjórn. í umræddum fjórum löndum eru íbúatölurnar eins og hér segir: Kína 640 milljón- ir, Indland 400 milljónir, Sov- étríkin rúmar 200 milljónir og Bandaríkin rúmar 170 milljón- ir. Þar næst koma lönd með yfir 50 milljónir íbúa í þessari röð: Japan, Indónesía, Pakistan Brasilía, Bretland og Vestur- Þýzkaland. „Demographic Yearbook" er 550 blaðsíður og er samin af hagstofu Sameinuðu þjóðanna. Frá þeim löndum, þar sem kleift hefur verið að afla heim- ilda um þessi efni, flytur bókin upplýsingar um stærð land- anna, íbúatöluna, fæðingar- og dauðsfalla-skýrslur og skýrslur um hjónabönd og hjónaskilnaði 85 á mínútu. Þegar litið er á heiminn í heild kemur í ljós að fólksfjölg unin hefur verið nokkurn veg- inn stöðug síðustu sex árin, þ. e. a. s. 1,6 af hundraði eða 45 i millj. árlega. Með öðrum orðum fjölgar íbúum jarðarinnar ár- . lega um jafnmarga og byggja I land eins og Frakkland. 45 j miiljónir á ári svara til 5000 á tímann eða 85 á mínútu. Rúmur helmingur af íbúum jarðarinnar býr nú í Asíu, og búizt er við því, að árið 2000 muni um 60 hundraðshlutar af j íbúum heimsins eiga heima í ! Asíu. í Evrópu eru nú aðeins 14 hundraðshlutar mannkynsins í Evrópu, Verði þróunin fram- j vegis svipuð því sem hún hefur verið, verður þessi hundraðs- hluti kominn niður í 10 um næstu aldamót. Sé sleppt „borgríkjum“ eins og Monaco og Hongkong, þar sem þéttbýlið er milli 2000 og 13.000 á ferkílómetra, þá er þéttbýlið mest á eyjum eins og Möltu, Bermuda og Ermar- sundseyjunum, þar sem þétt- býlið er rúmar 500 íbúar á fer- kílómetra. Þar næst koma Hol- land, Mauritius, Belgía, For- mósa og Puerto Rico, sem hver um sig hafa yfir 250 íbúa á fer- kílómetra. Á hinum enda stigans eru landsvæði eins og Spænska Sa- hara, Grænland, Alaska og Ástralía, þar sem að jafnaði býr einn maður á hvern fer- kílómetra. Sé reiknað í álfum er Evrópa þéttbýlust. Þar eru 84 íbúar á hvern ferkílómetra. Að vestan: Sigrar Sjálfstæðimanna. Grassprelfa yfirleift góð. — Þorskafli í betra lagi. ísafirði 30. júní. Sigrar vestfirzkra sjálfstæð- ismanna í nýafstöðnum kosn- ingum vekja verðskuldaða at- hygli. Engir hafa staðið fastara ‘í flokki, og gerningarveður Fram sóknar um kjördæmabreyting- una hafa hvergi haft jafnlítil áhrif og hér vestra. Hvort tveggja er vestfirzkum Sjálf- stæðismönnum sæmdarauki, sem lengi mun minnzt. Sláttur er almennt hafinn. Flestir byrjuðu laugardaginn 20. júní. Einstaka um miðjan júní. Tún meiga heita fullsleg- in á nokkrum bæjum. Gras- spretta er víðast ágæt, þar sem tún eru í góðri rækt. Nýrækt hefur sjaldan verið svo vel sprottin sem • nú. Almennt munu tún verða tvíslegin, ef ekki kemur alvarlegur hnekk- ir. Horfur um afkomu bænda hér eru því almennt hinar. beztu. - : I Þorskafli almennt góður. Erfitt tíðarfar hefur að vísu dregið mikið úr handfæraveið- um, einkum við ísafjarðardjúp. Frá syðri Vestfjörðum, einkum Patreksfirði, hefur tíð verið hagstæðari. Hæstu handfæra- bátar hér á ísafirði hafa aflað um 40 lestir í júní. Áhöfn 3—5 menn. Má telja það góðan afla, þótt engin uppgrip séu. Enn er bezti handfæratíminn framund an og má vænta vaxandi afla. Togarar, sem stunda veiðar á heimamiðum, hafa fengið góð- an afla undanfarið, einkum í Víkurál og á Strandagrunni. Arn. Ný söngkona í Lido. Veitingaliúsið Lido við Miklubraut hefir fengið nýja söngkonu, sem mun skemmta gestum í júlímánuði. Heitir söngkona þessi Jackie Lynn og hefir hún sungið víða um lönd, en auk eþss hefir hún sýnt dans. Hún kom fyrst fram í Lido á fimmtudaginn, og var henni óspart klappað lof í lófa fyrir söng sinn. Hún hefir þægilega rödd og mjög viðkunn anlega framkomu, og er ekki að efa, að hún verður vinsæl hjá gestum i Lido á næstu vik- um. Hreindýrin. Öllum landsmönnum er kunn ugt eða ætti að vera kunnugt um hinn mikla áhuga Helga Valtýssonar rithöfundar og kennara fyrir framtíð hrein- dýrastofnsins. Lesendum Vísis fyrr og síðar ætti að vera vel um þennan áhuga kunnugt, svo oft hefur Helgi Valtýsson skrif- að um hreindýrin fyrir þetta blað, stundum að beiðni þess, stundum að eigin hvötum, en alltaf fúslega og af brennandi áhuga. I Lætur enn til sín lieyra. j Helgi Valtýsson er nú orðinn aldraður maður — en síungur í anda — og hefur enn látið heyr- ast rödd sína um hreindýrin. Og það er allra hluta vegna mak- j legt, að Vísir bendi lesendum | sínum og raunar öllum lands- mönnum á það, sem Helgi hef- ur nú að segja, í eins konar j ,,loka-ávarpi“ til „landa sinna“ Múlsýslunga, en hvatningar- greinin fjallar um hreindýrin, „örlög öræfahjarðarinnar miklu“ — og hún á vissulega erindi til fleiri en Múlsýslunga. „Barnalærdómurinn“. Helgi kveðst hafa prédikað um allmarga áratugi fyrir „lönd um ,sínum“ eystra og öðrum I landsmönnum „um auðæfi ör- æfanna austfirzku, varðveizlu : þeirra og hagnýtingu. Og nú 1 hætti ég þessu rausi (Bergmál l.vonar, að enn verði þar fram- ,hald á). Þar er engu við að bæta, sem ekki er margsagt áð- ur (Góð vísa er aldrei of oft kveðin. Bm.). En þið, landar mínir, hafið reynzt harla tor- næmir. Og það svíður sárt. Að [lokum vil ég þó taka saman í stuttar setningar „barnalær- dóm“ þann, sem ykkur var ætlað að læra á einni kvöld- vöku. í stuttu máli. Og hér er þá barnalærdómur- inn, í stuttu máli: 1. Öræfahjörðin mikla og hraðfjölgandi skiptir nú þús- undum og er ótvíræð eign Múla sýslna, þótt frumstofninn kæmi með „Norðurlandsskipi“ (var landsettur á Vopnafirði 1787). 2. Þessi litli stofn reyndist ódrepartdi (var 35 dýr), svo að ekki hefur tekizt „að tortíma honum til fulls á 150 árum, þrátt fyrir fullan vilja og rækilega aðstoð harðæra og fellivetra." 3. 20 ára reynsla hefur nú sýnt óvenju mikinn þroska hjarðarinnar og nær eindæma .fjölgunarhæfileika. 4. Reynslan sýnir, að hrað- fjölgun hjarðarinnar verður ekki haldið í skefjum með mis- ráðnum leyfum s^jórnarvalda, enda með þeim geysi miklum verðmætum varpað á glæ. 5. Eina leiðin til varðveizlu öræfahjarðarinnar er sameigin- leg hjarðmennska (reynsla í Grænlandi og Alaska) og eina ráðið til dreifingar hjarðarinn- ar til annarra landshluta. 6. Stofnhjörð sennilega hæfi- leg 2000 dýr. 7. Árlegur arður slíkrar stofn- hjarðar með nútíma verðlagi myndi óefað nema fullri millj. kr. og fara vaxandi (góður markaður erl. fyrir hreindýra- kjöt). 8. Vetrarhagar yrði í S.M., þegar um svo stóra hjörð er að ræða, en sumarhagar á Vestur- öræfunum. 9. Á svo víðlendum hrein- dýraslóðum mætti sennilega fjölga stofnhjörðinni upp í 3000 i dýr.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.