Vísir - 07.07.1959, Blaðsíða 1
q
k
I
y
41. ái.
Þriðjudaginn 7. júlí 1959
142. tbl.
Skarðið við Efra Fall hafur Vátiisflóð rýfnr varnar
garð á Mýrdalssáiidi.
verið fyllt grjóti.
Þó seytlar enn talsvert vatnsmagn
gegnum garðinn.
Adkoma að Þingvallavatni
. þessa dagana er eins og að
koma niður að sjó um stór-
• straumsfjöru, og þó er heldur
. farið að stíga í vatninu á ný
eftir hina miklu „hlóðtöku“.
Stíflan, sem sprakk, hefur nú
. aftur verið fyllt grjóti. Þó seitl-
ar enn talsvert vatn þar í gegn
og inn í göngin. Enn er eftir
að réka niður járnþilið, en það
. á að hálda, hvað sem á dynur.
Fréttamaður Vísis heimsótti
,,slysstaðinn“ á sunnudagskvöld
. Blæjalogn var á, og það var eins
og við manninn mælt: Mýflug-
urnar höfðu víst sjaldan kom-
izt í annað eins æti og þann,
. er þessar linur párar, svo að
þa|5 má mildi kallast, að hann
skyldi sleppa með lífi og lim-
um aftur hingað á blaðið.
Ströndin við Vellankötlu er
einija áþekkust fjöruborðinu í
Stórasaltvatni í Útah, breiður
' kragi hyíur flæðarmálið milli
vatns og lyngvaxinna bakk-
anna. Lónið sunnan vegarins
heim að Valhöll er skraufþurrt,
milljónir silungsseiða hafa týnt
lífi, Valhallarbátarnir standa á
þurru, án þess að hafa verið
settir upp.
Annars tjáir ekki að vera með
málskrúð í kringum þetta, því
að það er í rauninni ekki það
rómantískt og gefur ekki tilefni
til slíks. Það er skemmst af að
segja, að aftur er kominn grjót-
garður í stifluna. Mikið vatn
hefur þaðan runnið til sjávar
um þetta skarð síðan á þjóðhá-
tíðardag.
Ekki hefur enn tekizt að fá
tölur um allt það magn vatns,
sem missts hefur. Það mun
reyndar orðum aukið, sem geng-
ið hefur manna á milli, að
fyrstu þrjá stundarfjórðungana
hafi streymt 90 milljónir ten-
ingsmetra um skarðið, það var
raunverulega rúm milljón (1,1),
sem rann í gegn. Nú, eftir að,
Frh. á bls. 5.
Hefur rofið 20C-300 m. breitt skarð í garð-
inn og kaffært bifreið Brands Stefáns-
sonar verkstjóra.
Erlendu skipin leita inn
til Siglufjarðar.
Síldarieitarskipin hafa ekki orðið vör við síld
Frá fréttaritara Vísis.
■ Siglufirði í morgun.
í morgun voru skip enn að
koma inn undan brœlunni. Eru
það aðallega erlend skip, því
að íslenzku bátarnir eru allir
komnir í landvar. Veðrið er
ekki sérlega vont, en það er
ekkert veiðiveður.
Norðaustan sterkkingur með
þoku og súld er yfir öllu veiði-
svæðinu. Þetta veður mun hald-
ast þennan sólarhring, enda er
ekkert ferðasneið á bátunum.
Norska sílldarleitarskipið kom
inn í gærmorgun, en fór strax
.aftur út. Ægir er um þessar
mundir einhversstaðar við Kol-
beinsey. Hvorugt leitarskipið
hefur tilkynnt, að síldar hafi
orðið vart, og ráða menn af því,
að ekki muni vera nein síld í
torfum á svæðinu.
Eins og að líkum lætur, er
mannmargt á Siglufirði. Það er
mikið dansað og mikið sungið,
og þótt veðrið sé ekki sem á-
kjósanlegast, leggja ýmsir leið
sína upp í Hvanneyrarskál, lík-
lega til að rifja upp gamlar end-
urminningar um yndisstundir á
þeim stað, þegar sól var á sumr-
in og síld um allan sjó.
Um helgina rofnaði breitt
skarð í varnargarð, sem átti að
bœgja vatnsrennsli frá vegin-
um austan Hafurseyjar á Mýr-
dalssandi, og er þar nú orðin
ófœr leið að nýju.
Frá því hefur verið skýrt áð-
ur hér í blaðinu, að i fyrra-
haust og í vor hafi verið byggð-
ur langur varnargarður austan
frá Langaskeri og allt vestur
að Hafursey, en það er um 5
km vegarlengd. Jafnframt því
sem varnargarður þessi átti að
verja jökulvatni, sem undanfar-
ið hefur fallið niður Myrdals-
sand á þessu svæði, frekara
framrennsli niður sandinri, á að
nota garðinn sem vegarstæði.
Búið var þegar að grjótléggja
garðinn á nokkrum kaflá.
Samkvæmt upplýsingum frá
vegamálastjóra í morgun, hefur
vatnið, sem fellur niður Mýr-
dalssand milli Skálmar og Haf-
urseyjar stöðugt verið að fær-
ast vestar á sandinn og vatns-
magnið auk þess farið vaxandi
Bátar frá Hellissandi
Frá fréttaritara Vísis.
Hellissandi 1 morgun.
Reknetabátarnir sem héðan
eru gerðir eru ekki byrjaðir
rðra, en munu sennilega hefja
veiðar í lok þessarar viku.
Enn er ekki um neina veiði
að ræða við Jökul og Ólafsvík-
urbátar sem byrjaðir á reknet-
um halda sig um þessar mundir
við Reykjanes.
Unnið er að dýpkun hafnar-
innar í Rifi. aSnddæla frá Vest-
mannaeyjum er að dýpka inn-
siglinguna. Verkinu hefur mið-
að vel undanfarið og er inn-
siglingin nú orðin sæmilega
greiðfær.
með hlýandi veðri. Þar kom, að
vatnið skall á garðinn þveran
og bar jafnframt fram ógrynni
af sandi, sem hlóðst upp við
varnargarðinn. Þetta varð til
, þess, að vatnið náði að flæða
yfir garðinn og síðan að brjóta
l skarð í hann á 200—300 metra
kafla. Er nú verið að athuga
aðstæður til þess að fylla upp
I í skraðið að nýju, og fór Ásgeir
Markússon verkfræðingur hjá
Vegagerð ríkisins þeirra erinda
austur í gær.
Á sunnudaginn varð að draga
bíla yfir skarðið þar sem vatnið
brýzt í gegnum það, því að
einda þótt vatnið sjálft sé ekki
djúpt, er sandurinn svo laus, að
bílar hafa sig ekki af sjálfsdáð-
um í gegn. Vildi þá það óhapp
til, að þegar verið var að draga
bifreið Brands Stefánssonar
vegaverkstjóra yfir, slitnaði
dráttartaugin og tókst ekki að
festa henni í bifreiðina aftur.
Gróf sandinn síðan undan bíln-
um, og í gær sá aðeins ofan
á þak hans upp úr vatninu.
Eyjólfur sundgarpur ætlar að þreyta
Vestmannaeyjasund um miðjan mánuðinn.
Hann hefur þjálfað sig á Drangeyjar- og Viðeyjarsundi að undanförnu.
Sundgarpurinn Eyjólfur
Guðmundsson þjálfar sig af
kappi um þessar mundir, og
synti til dæmis Viðeyjarsund í
gær.
Er þetta í fjórða sinn, sem
Eyjólfur syndir milli Viðeyjar
og lands. Lagði hann upp frá
Viðóy að þessu sinni og lauk t
sundinu við verbúðabryggju.
Hann var alveg óþreyttur, enda
synt lengri og erfiðari vegar-
lengdir, án þess að láta sér
bregða. Fyrir skemmstu synti
hann til dæmis Drangeyjar-
sund og gekk ágætlega, þótt illt
væri í sjóinn.
ólfur að synda Vestmanna-
eyjasund, og er það mun
lengra en Drangeyjarsund
og miklu erfiðara vegna
strauma. Ætlar hann að
synda frá Eyjum til lands.
Viðeyjarsundið í gær var
| þjálfuri fyrir Eyjasundið, sem
Kvor vinnur
í kvðld?
Hvernig heldur þú að leik-
urinn fari? Þetta var spurn-
ingin, sem heyrðist oftast í
morgun hjá þeim, sem áhuga
hafa fyrir knattspyrnu. Vísir
hringdi þess vegna til all-
margra þeirra manna, sem
bezt vit hafa á knattspymu
»g hafa gert sér far um að
fylgjast með íslenzka lands-
liðinu og spurði þá um álit
þeirra á úrslitunum í kvöld.
Flestir svöruðu greiðlega, og
svörin birtist á bbs. 5.
-4~- v, •
hann gerir'ráð fyrir að þreyta
Innan skamms ætlar Eyj- um miðján'mánuðinn.
Þessi mynd sýnir greinilcga. hversu mikið vatn seitlar enn
gegnum fyrirhleðs'luna ofan við göngin gegnum Dráttarhlíðina.
Fyrirhleðsla þessi var fullgerð aðfaranótt laugardags, en myndin
var tekin á sunnudag. Á morgun eru 3 vikur síðan óhappið
varð þar eystra.