Vísir - 09.07.1959, Page 4
VlSlK
Fimmtudaginn 9. júlí 195D
irism
j'T ' * DÁGELAB
Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VlSIR H.F.
yislr kemur út 300 daga 6 ári, ýmist 8 sða 12 blaOsíöur.
Bitstjóri og ábyrgðarmaður: Hersteinn Pálssor
Skrifstofur blaðsins eru í Ingólfsstræti á.
Bitstjórnarskrifstofur blaðsins eru opnar frá kl. 8,00—18,00
Aðrar skrifstofur frá kl 0,00—18,00
Afgreiðsla: Ingólfsstræti 3, opin frá kl. 0,00—19,00.
Sími: (11660 (fimm línur)
Vísir kostar kr. 25.00 í áskrift á mánuöí,
kr. 2.00 eintakið í lausasölu.
Félagsprentsmiðian h.f
Sýningar, sem gleymdust.
í fyrradag var útbýtt til út-
varps og blaða tilkynningu
um aðalfund Sambandsins,
sem hófst að Bifröst í Borg-
arfirði þá um daginn. Var
þar að sjálfsögðu drepið á
, ýmis atriði varðandi starf
fyrirtækisins, en þó var það
næsta lítið, þegar tekið er
tillit til þess, að þarna er
um stærsta fyrirtæki á. land-
inu að ræða og það meðal
. annars sagt eign 30.000
manna. Fundafregnirnar eru
nefnilega einu tilkynning-
arnar, sem eigendurnir fá
um starfsemi þessa fyrir-
tækis síns.
I gær barst svo tilkynning um
það, hvernig málin stæðu, að
því er snerti vafasöm við-
skipti Olíufélagsins og Hins
íslenka steinolíuhlutafélags.
Einn af forstjórum SÍS flutti
ræðu og samkvæmt út-
drætti, sem sendur var blöð-
um og útvarpi, hefir svo sem
ekkert komið fyrir hjá
þeim, sem fer í, bága við
lög. Að.sögn forstjórans hafa
SÍS og þessi dótturfélög
þess hreinan og skyggðan
skjöld.
I sambandi við slíkar fullyrð-
ingar hljóta menn að spyrja
spurninga eins og þessarrar:
Hvers vegna tilkynnti SÍS
almenningi þetta ekki fyrr?
Var það ef til vill af ótta, að
hægt væri að svara þessum
fullyrðingum of auðveld-
lega? Af hverju voru for-
stjóraskipti látin gerast
svona skyndilega? Hvers
vegna var þessi SÍS-þvottur
ekki framkvæmur fyrir
kosningar? Það hefði víst
mátt fá fáein atkvæði út á
hann.
Fleira þarf ekki að segja að
sinni. Síðasta_ orðið verður
ekki sagt af forstjórum SÍS
í þessu máli, og þeim verður
ekki trúað eftir fyrri göngu
Olíufélagsins — að óreyndu.
Þeir, sem hafa hreina sam-
■ viku bíða rólegir dómsins.
Hinir reyna að móta al-
menningsálitið, snúa þvi sér
1 vil fyrir fram.
Syníshorn á Indlandi.
Á síðasta ári gerðist það í fylk-
inu Kerala á Indlandi, að
kommúnistar náðu þár meiri
hluta í frjálsum kosningum.
Almenningur er þar fá-
kunnandi og gekkst upp við
gyllingar kommúnistafor-
ingjanna, sem hétu auði og
allsnægtum, ef þeir fengju
• völdin. Fyrir nokkrum vik-
um dundu svo ósköpin yfir
þar eystra.
Kommúnistar beittu svo völd-
um sínum, að almenningur
hefir fengið sig fullsaddan á
því sýnishorni af sæluríkinu,
sem þar hefir Verið brugðið
upp. Almúginn hefir risið til
varnar réttindum sínum og
komið hefir til blóðugra ó-
eirða, en þúsundir manna
hafa verið hnepptar í varð-
hald af lögreglu stjórnarinn-
ar.
Nehru, forsætisráðherra Ind-
lands, hefír jafnan reynt að
sneiða hjá væringum við
kommúnista, en jafnvel
honum ér nóg boðlð eftir að
hann hefir heimsótt Kerala.
Honum hefir fundizt kom-
múnistar ganga svo langt í
kúgunaraðgerðum sínum og
ofbeldi, að hann hefir kom-
izt svo að orði, að ef til vill
verði ekki hægt að sitja
auðum höndum, stjórnin í
Delhi kunni ef til vill að
neyðast til að skerastú leik-
inn til að hindra frekara of-
beldi kommúnista. Það væri
sannarlega meðmæli með
stjórnarhattum þeirra.
Yfir 95 þús. manns fóru í
Þjóðleikhúsið á leikárinu.
Flestir sáu „Rakarann", hátt á 18. þús.
Tíunda leikári Þjóðleikhúss-
ins lauk síðastliðinn sunnudag,
5. júlí, með sýningu leikflokks
frá Det Norske Teatret í Oslo á
leikritinu „Kristin Lavrands-
datter“. Sýningar á leikárinu
urðu alls 214, þar af 193 í
Reykjavík og 21 utan Reykja-
víkur.
Á leikárinu voru sýnd 16
sjónleikir, þar af 1 gestaleikur.
Leikrit voru 14, söngleikir 2.
Leikflokkur frá Det Norske
Teatret í Oslo sýndi norskt
leikrit. Flestar sýningar voru á
óperunni „Rakaranum í Sev-
illa“ eða alls 31. Sýningargestir
17.685.
Hér fer á eftir skrá yfir sýn-
ingar og tölu leikhúsgesta á
leikárinu:
1. „Horft af brúnni“ eftir
Arthur Miller. Leikstjóri: Lár-
us Pálsson. Sýningar 6 úti á
landi, 2 í Reykjavík. Sýningar-
gestir 1722 úti á landi, 824 í
Réykjavík. — Tekið upp aftur
frá fyrra ári.
2. „Haust“ eftir Kristján Al-
bertsson. Leikstjóri: Einar
Pálsson 7. sýningar. Sýningar-
gestir 1893.
3. „Faðirinn“ eftir August
Strindberg. Leikstjóri: Lárus
Pálsson. 5 sýningar í Reykja-
vík, 11 úti á landi. Sýningar-
gestir í Reykjavík 1455, 1792
úti á landi. — Tekið upp aftur
frá fyrra ári.
4. „Horfðu reiður um öxl“
eftir John Osborne. Leikstjóri:
Baldvin Halldórsson. Sýningar
23 í Reykjavík, 4 utan Reykja-
víkur. Sýningargestir 9597 í
Reykjavík, 966 utan Reykja-
víkur.
5. „Sá hlær bezt“ eftir
Howard Teichmann og George
Kaufman. Leikstjóri: Ævar R.
Kvaran. Sýningar 15. Sýning-
argestir 6388.
6. „Dagbók Önnu Frank“
eftir Frances Goodrich og Al-
bert Hackett. Leikstjóri: Bald-
vin Halldórsson. 9 sýningar.
Sýningargestir 4071. — Tekið
upp aftur frá fyrra ári.
7. „Rakarinn í Sevilla“, ó-
pera eftir G. Rossini. Leik-
stjóri: Thyge Thygesen. Hljóm
sveitarstjóri: Róbert A. Ottós-
son. 31. sýning. Sýningargestir
17.685.
8. „Dómarinn“ eftir Vilhelm
Moberg. Leikstjóri: Lárus Páls-
son. 9 sýningar. Sýningargestir
2232.
9. „Á yztu nöf“ eftir.Thorn-
ton Wilder. Leikstjóri: Gunnar
Eyjólfsson. 16 sýningar. Sýn-
ingargestir 6915.
10. „Undraglerin“, leikrit
fyrir börn, eftir Óskar Kjart-
ansson. Leikstjóri: Klemenz
Jónsson. 22 sýningar. Sýning-
argestir 12902.
11. —12. „Fjárhættuspilarar“
eftir Nikolaj Gogol og „Kvöld-
verður kardinálanna“ eftir
Julio Dantas. Leikstjóri: Lárus
Pálsson. 4 sýningar. Sýningar-
gestir 816.
13. „Húmar hægt að kveldi“
eftir Eugene O’Neill. Leik-
stjóri: Einar Pálsson. 11 sýn-
ingar. Sýningargestir 3151.
14. „Tengasonur óskast“ eft-
ir William Douglas Home.
Leikstjóri: Gunnar Eyjólfsson.
11 sýningar. Sýningargestir
5526.
15. „Betlistúdentinn“, óper_
i etta eftir Karl Millöcker. Leik-
stjóri: Prófessor Adolf Rott.
Hljómsveitarstjóri: Hans Anto-
litsch. 24 sýningar. Sýningar-
gestir 15.073.
16. „Kristin Lavransdatter“,
leikrit eftir Tormod Skagestad,
gert eftir samnefndri sögu Sig'-
rid Undset. Gestaleikur frá Det
Norske Teatret í Oslo. Leik-
stjóri: Tormod Skagestad. 4
sýningar. Sýningargestir 2365.
Sýningar á leikárinu alls
214. Sýningargestir í Reykja-
vik 90893. Sýningargestir úti á
landi 4480. Samtals 95.373.
LandheSgismálið ofar
öðrum málum.
• Við eigum víða góða vini.
Norðmenn sigraiir.
Fleiri hafa áhuga á knattspyrnu
en þeir, sem sækja íþrótta-
völlinn að staðaldri, og
varla hefir það farið fram-
hjá nokkrum manni, að ís-
lenzku piltarnir létu ekki
Norðmenn sækja gull í
greipar sér að þessu sinni.
Það var eins og almenningur
rétti úr sér í fyrrakvöld og
gær, þegar allir höfðu frétt
um sigurinn á Norðmönnum,
því að svo langt var liðið,
síðan íslendingar áttu sigri
. að fagna í landsleik í knatt-
| spyrnu.
Þótt margir hafi löngum verið
vondaufir um, að við yrð-
um nokkru sinni hlutgengir
á þessum vettvangi, kemur
þó við og við í 1-jós, að við
eigum efnivið í sæmilegt lið.
Hinsvegar er þjálfuninni
mjög ábótavant, -að því er
kunnugir segja, og einkum
lítið um samþjálfun hjá
landsliði. Ef það starfar af
kappi, þegar þörf er, ættum
við vonandi að geta orðið út-
lendingum skeinuhættari, er
fram líða stuhdir.
- Landhelgismálið á þá sér-
stöðu, að því sé skipað ofar
öðrum málum og utan við
flokkadeilur.
Við kosningarnar var þetta
lífshagsmunamál dregið ó-
þyrmilega inn í flokkadeilurn'-
ar. Höfðu Framsókn og 'komm-
únistar þar forustuna. Slíkt
verður að hætta hjá þeim öll-
um, sem er málið alvörumál.
Það er að níðast á sjálfum sér
og öðrum að blanda landhelg-
ismálinu í baneitraða flokka-
pólitík.
Nú er talað um að Alþingi
geri sameiginlega ályktun um
-landhelgismálið, er það kemur
næst saman, væntanlega 20. þ.
m. Ekki skal því mótmælt, að
slík ályktun verði gerð, ef
henni fylgir heill hugur. En
jafnframt þarf að fylgjast meiri
vinna fýrir okkar málstað, inn
á Við ög" út;á við. í landhelgis-
málinu 'eigum við marga vini
og meðhaldsmenn. erlendis. Það
hefir þegar komið í ljós. En
fleiri þarf- að finna og vinna.
Inn á við verður einnig að vera
vel á verði. Það á ekki að sýna
Bretum neina linkind. Við
hljótum að svara þeim í sama
mæli og þeir mæla okkur ís-
lendingum.
Það er grundvallaratriði í
landhelgismálinu, að hamra sí-
fellt á því ofstopa- og æsinga-
laust.
Það er þegar komið fram, að
frá Bretum getum við ekki
vænt neinnar sanngirni. Þeirra
aðferð er hnefinn og herskipa-
stóll Hennar Hátignar.
En það eru fleiri í veröldinni
en Bretar og íslendingar. Þeir
geta einnig haft sitt að segja
um kúgun þá, sem Bretar béita.
Þótt Bretar þykist vera stórir
og öflugir, og eru það vissulega
móts við okkur íslendinga, er
þeim það óhæfa, að halda uppi
kúgun og ofbeldi til langframa.
Hinn siðmenntaði heimur mun
Hér fer á eftir pistill frá
,,Borgara“:
„Eins og menn muna, var
talsvert rætt á tímabili um er-
lend nöfn á gistihúsum og veit-
ingastöðum um tíma, eða um
það leyti, sem „City Hotel“ og
„Lido“ komu til sögunnar, en
svo duttu þessar umræður nið-
ur, þar til aftur var farið að
ræða um þetta í útvarpsþætti
nýlega. Eg held, að það sé þarft
að halda þessu máli vakandi,
því að það virðist engin þörf
á því, að vera að velja slíkum
stöðum erlend nöfn, og eg held,
að það sé á misskilningi byggt
hjá þeim, sem valið hafa þessi
erlendu heiti og önnur, að þau
hafi nokkurt auglýsingagildi.
Eg er alveg sammála þeim, sem
halda því fram, að svona nöfn
hæni ferðamenn að þeim frek-
ara en íslenzk nöfn myndu
gera, en úr mörgum fallegum
og munntömum heitum er
vissulega að velja. Hefir áður
verið bent á nokkur í þessum
dálki. — Er nú eftir að vita,
hvort viðræðuþáttur sá í út-
varpinu, sem hér var minnzt á,
kemur skriði á umæður um
þetta af nýju.
Verzlanir
einnig.
Það má þá líka ræða um er-
lendu nöfnin á verzlunum eða
sölubúðum. Hví ekki að velja
þeim íslenzk nöfn líka? Það
mun hafa verið um og upp úr
aldamótum, þegar Reykjavik
fór að byrja að vaxa örara,.sem
allmjög fór að bera á þessu,
vafalaust af því, að það sem
var útlent þótti fínt —• og vissu-
lega eimir eftir af þessum hugs-
jUnarhætti enn. Það, sem er
þjóðlegt og gott, þarf enginn
að skammast sín fyrir, og eitt
af því eru stutt og falleg nöfn
á staði slíka sem þá, er hér hef-
ir verið minnst á, gistihús, mat-
stofur, verzlanir o. fl. Borgari“.
Vætið oft
göturnar.
„Að undanförnu hefir verið
borinn mjög fínn ofaníburður
ofan í götur sumra úthverfa.
Þörf er að minna á, að núna í
úrkomuleysinu þarf að. valta
þessar götur og vökva, því að
annars fýkur þessi salli inn yfir
bletti og garða og inn í hús um
opna glugga eða óþétta. Það
þarf ekki að blása mikið til þess
að mikið af þessum ofaníburði
þyrlist upp og verði til tjóns og
ama. Ef ekki er annar betri of-
aníburður fyrir hendi þarf að
þjappa honum saman — nota
til þess valta, en ekki bíða eftir
að vegirnir troðist af bílum og
fótgangandi mönnum. — Ut-
hverfisbúi“. ___ -
Ný frímerki.
Fimmtudagimi 3. sept. 1959
mun póst- og símamálastjórnin
gefa út tvö ný flugfrímerki í
tilefni af 40 ára afmæli flugs-
ins á Islandi.
Verður jafnframt notaður
sérstakur útgáfudagsstimpill í
Reykjávík af þessu tilefni.
Merkin eru prentuð af Tho-
mas de la -Rue & Co., Ltd. Lon-
don.
Póst- og símamálastjórnin,
7. júlí 1959.
dæma slíkt atferli að verðleik-
um.
ísafirði, 4. júlí.
Arn.