Vísir - 09.07.1959, Síða 5
Fimmtudaginn 9. júlí 1959
VlSIt
Guðrún Á. Símonar fær
lof fyrir söng í NewYork.
Hefur sungið víða í Bandarikjunum viÖ
góðan orðstír.
ITALSKA SKYRTUPEYSAN
Guðrún Á. Símonar óperu-
söngkona hefir frá því í októ-
bermánuði sl. dvalizt í Banda-
ríkjunum og Kanada og haldið
þar hljómleika. Ennfremur hef-
ir hún komið fram í útvarpi og
sjónvarpi. Hún hefir lilotið
mikið lof fyrir söng sinn og
túlkun á viðfangsefnum.
í tímaritinu Musical Courier
í New York er t. d. birt samtal
við hana eftir Lillian Kraff,
þekkta söngkonu. Segir þar
m. a.:
_,,Guðrún A. Símonar, sópr-
ansöngkona, hefir blæbrigða-
og hljómmikla rödd með hin-
um sjaldgæfa hreim og eðlis-
eigind hins sanna lirico-spinto
sóprans. Auk þess hefir hún
Ijúfa framkomu.
Ungfrú Simonar hóf söng
sinn með ljóðaflokki eftir Dvo-
rák, sem hún söng af innlifun
og stilþokka. í næsta ljóða-
flokki eftir Falla kom í Ijó.s
yndislegt pianissimo í lögunum
„Nana“ og „Cancion", sem hún
söng af hlýju og innileik. En
meðal þess, sem mesta athygli
vakti, voru sex lög frá íslandi.“
Og um hina sömu hljómleika
Guðrúnar i Town Hall farast
George Christy í National Her-
ald oi'ð á þessa leið:
,.Á miðvikudagskvöld veitt-
ist mér sú mikla ánægja að upp
götva ,,stjöi'nu“ á konsert í
Town Hall. Guðrún Símonar,
fremsta óperusöngkona íslands,
er að öllu leyti stjarna á sama
hátt og Pocelle og Patti. Þetta
var glæsileg samkoma. Og þess
er vert að geta, að frammistaða
ungfrú Símonar var minnis-
stæð.
Það gefur að skilja, að hún
söng einnig þjóðlög frá ættlandi
sínu, íslandi. (Þau bera einföld
Tvær hetgarferðlr
Páis Arasonar.
Á vegum Ferðaskrifstofu
Fáls Arasonar verður efnt til
ferða bæði í Þórsmörk og Land-
mannalaugar um næstu helgi.
— Lagt verðúr af stað í báðar
f erðirnar kL 2 e., h. á. laugar-
daginn og komið til baka á
sunnudagskvöld.
Sarna dag efnir Páll til lang-
ferða, þ. e. 8 daga ferðar t’il
Véstfjarða og fimm daga ferð-í-
a_r norður og austur- um land
til Hornafjai’ðar. Þaðan verður
flógið til Reykjavíkur.
Næstkomandi miðvikudag
efnir fei'ðaski'ifstofa Páls til
ferðar inn á Þórsmörk og úr því
hvern miðvikudag a. m. k. út
þenna niánuð. Verður lagt af
stað kl. 9 árdegis í þær ferðir og
verður staðið við í 3 klst á
Möi'kinni, en úr því haldið aft-
ur til Reykjavíkur,
Til þessarar Þórsmerkurferða
um miðja viku efnir skrifstofa
Páls í því skyni, að fólk geti
komizt til . baka úr Mörkinni
eftjr hálfa viku, ef það kærir
sig ekki um, sökum veðui’s eða
af öðrum ástæðum,; að vera
lengur innfrá. Tjöld'-verða látin
í té þeim, er.þess óska.
en skáldleg heiti — ,,Kom eg
upp í Kvíslarskarð“, „Fífil-
brekka, gróin grund“ og „Sortn
ar þú ský“). Þessi lög söng hún
á hinu víða söngsviði í Town
Hall, eins og sá sem valdið
hefir.
Ekki tókst henni síður upp
við hinar erfiðu aríur úr ,,Ma-
non“ eftir Puccini og „Valdi
örlaganna“ eftir Verdi. Lófa-
klappið var ofsalegt og hún var
þrábeðin um aukalög.
----9----
OÍÉuntáiið á
fundi StS
Á aðalfundi SÍS, sem haldinii
var í Bifröst í Borgarfirði,
ræddi Helgi Þorsteinsson
framkv.stj. innflutningsdeildar
SIS um rannsóknina á íekstri
H.Í.S. og olíufélagsins h.f. á
Keflavíkurflugvelli, vegna
meintra brofa gegn lögum um
tollheimtu, tolleftirlit, skipan
innflutnigsmála, gjaldeyris-
mála, fjárf.estingarmála o. fl.
Segir'm. a. í fréttatilkynn-
ingu SÍS af fundinum. áð Helgi
hafi sagt, að stjórn félaganna
og framkvæmdastjórum þeirra
hafi verið tilkynnt, og þeir
einskis spurðir um ranns.ókn,-
ina, sem hófst meðyfirheyrslum
nokkurra • starfsmanna olíufé-
laganna ■ í -sakadómi Keflavík-
urflugvallar 17. 'des. 1958, fyi-r
en 12. til 16. mai 1959, er fram-
kvæmdastjórar félaganna, þeir
Haukur Hvannberg og Vil-
hjálmur - Jónsson voru yfir-
heyrðir.
Sagði Helgi, að helzta kæru-
atriði sé, að H.Í.S. hafi selt
innlendum aðilum af olíu-
birgðum á Keflavíkurflugvelli,
er tilheyrðu' varnarliðinu og
ennfremur að H.Í.S. hafi selt
einn kassa af frostlegi; sem
hefði verið ætlaður til nota
varnarliðsins og ekki verið
greiddur tollur af honum. —
„Vitanlegá voru þessar vörur
tollafgreiddar, en að því ei'
varðar frostlagarkássann má
verá, að. um mistök starfs-
manna hafi verið ;að ræða,“
Helgi. . :
„SMART KESTON
Jcnas Jcnasson þulur segir:
Smart Kestcn peysan er fyrir karlmenn á öllum
aldri, enda mjcg falleg og þægileg.
HeildsölubirgStr :
UMBOÐS- & HEILDVERZLUN
Grettisgötu 3. — Sími 10483.