Vísir - 19.10.1959, Side 4

Vísir - 19.10.1959, Side 4
VlSIB Mánudaginn 19. október 1959: 1 . . ' . . : ’ . • • • ••• •'• "Á ■■■■■ ' «11111 ■ 6/ •.'••• / grindina í Melbouíne Æ; ÉÉ-i-áÍ; ,sís . ■■■■ :.:.-■■ ; . . . . •>■■ .. •» I ■ Jte;*v ' - ' &■*' ,.■><■;: ■■■■' / 'v . ,. ^pPjj ' SlSiÍtlgfM; Hér sjást þeír spretthlauparer sem síðast kepptu á alþjóðamotum í sumar. Síðustu íþróttamótum sum- arsins úti í Iöndum er nú senn að Ijúka, og mun nú hvergi keppt, nema ef vera skyldi í S- Evrópu. Eitt síðasta mótið var haldið í Róm um s.I. helgi, en nokkru áður stóð í Róm Iands- keppni Þjóðverja og ítala. Þjóð- verjar báru sigur úr býtum með 107.5 stigum gegn 100.5 Verður það að teljast mjög knappt, og sýnir bersýnilega hve gífurleg- um framförum Italir hafa tekið að undanförnu. Þeir eiga nú orðið menn á heimsmælikvarða í mörgum greinum, og einn | þeirra er spretthlauparinn Ber- ■ rutti, sem margir kannast við. j Hann er mjög góður hlaupari, er meðal annars eini maðurinn í Evrópu í ár, sem unnið hefur blökkumanninn Ray Norton í 200 m. hlaupi. — f landskeppn- inni áðurnefndu, leiddu saman hesta sína hann og Manfred Germar hinn þýzki, sem í fyrra hljóp á 10.2 sek. og setti heims- met í 200 m hlaupi á 20.6 sek. Hann hefur ekki verið í sínu bezta formi í siunar, en hefur þó hlaupið á 10.3 og 20.9 sek. Menn biðu þess með eftirvænt- ingu hvernig færi, a. m. k. á- hugamenn víða um álfuna, (reyndar var aðsóknin að mót- inu Iítil sem engin). Menn höfðu að nokkru leyti tvöfalda ástæðu til þess að bíða einvígis- ins með nokkrum spenning. Svo vildi nefnilega til, að er stúd- entamótið var haldið í Torino í haust, stóð til að Germar færi þar til keppni, en af því varð ekki, þar sem hann hefur verið í lokaprófi undanfarið. í ítölsk- um blöðimi var víða minnzt á þetta, og þess getið til, að Ger- mar þyrði ekki í keppni við Berrutti. — En þarna voru þeir komnir. Eftir að tvisvar hafði verið brugðið við of snemma, náði Berrutti forustunni strax, ekki miklu forskoti að vísu, og nú biðu menn eftir því að Ger- mar tæki sitt „Germarfinish“, en það kom aldrei, og hann tap- aði fyrir Berrutti, 10.4 gegn 10.5 sek. Margir höfðu talið, að þar með væri enginn betri en Berrutti á þessari stuttu vega- lengd í sumar, nema Seye hinn franski. En það fór á annan veg. Um síðustu helgi var aftur hald ið íþróttamót í Róm, og þá átti Berrutti við Frakkann Dele- cour. Delecour hefur ekki mik- ið komið við keppni upp á síð- kastið á alþjóðamótum, og tap- aði m. a. nýlega fyrir þýzka spretthlauparanum Gamper. Menn bjuggust því almennt ekki við miklu af honum, en það fór á annan veg. Hann náði strax betra viðbragði en Ber- rutti, (það er hans sterkasta hlið), og því forskoti hélt hann út hlaupið. Báðir fengu tímann 10.4 sek. — Þar með má segja að strik sé dregið undir reikn- ingana í sumar, hvað sprett- hlaupin snertir, a. m. k. og bók- unum lokað. Þessi tvö hlaup voru þau síðustu á alþjóðamæli- kvarða, og hér til ofan sést Ber- rutti vinna Germar, en litla myndin er af Delecour. Jafnir í sumar 400 m grindahlaupið: Glenn Davis, Gerhardus Potgieter Síöan koma Josh Gulbreath og Dick Howard. I síðustur.’ Hann settisvo í fyrra heimsmet í 440 yarda grinda- 400 m. grindahlaupið er erfið grein, en undanfarin 3 ár hefur | sami maðurinn tvisvar sett heimsmet á þeirri vegalengd, og það | er Olympíumeistarinn frá 1956, Glenn Davis. Það ár setti hann ^ fyrra heimsmet sitt, 49.5 sek. og var þar með efstur á afreka- ( skránni. Árið eftir fóru þrír hlauparar fram úr honum, án þess þó að gerast um of nærgönglir við metið hans. Meðal þeirra j var Suður-Afríkumaðurinn Gerhardus Potgieter, sem hafði að vísu verið í úrslitahlaupinu í Melbourne, en datt þá og varð Glenn Davis á Ieið yfir síðustu Ed Southern næstur. lílaupi, hljóp á 49.7 sek., en það svarar til ca. 49.5 sek. j 400 m. gr.hl. — Sama ár setti síðan Davis hið síðara met sitt, 49.2 sek. og stendur það enn. í sumar hafa þeir svo náð sama árangri, Davis og Potgiet- er, 50.1 sek. báðir. Það verður því ekki á milli séð, hvor þeirra er betri, og víst er að ef ekkert óvænt kemur fyrir, verður keppnin milli þeirra hörð næsta ár á Rómarleikjunum. Davis var eitthvað lasinn í baki í vor, og hugðist ekki leggja mikla áherzlu á grinda- hlaupið í sumar, en náði samt þessum árangri. Plann er einnig mjög góður 400 m hlaupari og hefur náð þar 45.6 sek. bezt, en á einnig heimsmet í 440 yarda hlaupi, 45.7 sek., en það svarar til 45.5 sek. í 400 m. — Því ætl- aði hann að einbeita sér að því að setja heimsmet í 400 m. í sumar, en það tókst nú ekki. Potgieter mun hins vegar eiga bezt 47.2 sek. í 440 yarda- hlaupi. Hann er einnig mjög sprettharður (um 10.5 í 100 m). Þó stenzt hann þar ekki Davis, en hann hljóp á tveimur dögum í Osló í fyrra, 10,3 í 100 m., 21.1 sek. í 200 m., 49.8 sek. í 400 m. grindahlaupi og 45.6 sek. í 400 m. Sýnir þetta bezt hve mikill hlaupari Davis er, þegar hann er upp á sitt bezta. Ekki hefur hann þó unnið nærri öll sín hlaup í sumar, og Frh. á 9. s Umkvörtim. Einn af hinum kunnari köst- nrum hér í bæ, kom nýlega að máli við þann er þessar línur ritar, og lýsti óánægju sinni yfir því, að búið er að loka íþróttavellinum á þessu hausti. Benti hann á, að á meðarr innanhússæfingar væru ekki almennt hafnar, væri völlurinn. athvarf þeirra íþróttamanna, sem ekki leggja æfingar á ann- að borðið á hilluna. — Þá sagði hann, að í fyrra hefði vellinum verið lokað um miðjan októ- bermánuð, án þess að veður hamlaði að nokkru leyti úti- æfingum, og væri slíkt torskil- ið, því að þótt margt þyrfti að vísu að lagfæra að loknu sumri, þá mætti sennilega haga því þannig, að æfingar mætti stunda jafnframt, svo lengi sem. veður leyfir. Svo mörg voru þau orð, og skal þeim hér með komið á framfæri, en undir hitt skal tekið, að bagalegt er fyrir íþróttamenn að eiga ekki at- hvarf til æfinga, jafnvel þó að keppnitímabilið sé liðið. — og önnur. Annar maður kom að máll við blaðið ekki alls fyrir löngu, og bað um að fá að bera fram kvörtun varðandi innflutning á íþróttaáhöldum. Sérstaklega vildi hann minnast á gaddaskó (hlaupaskó), þótt hann teldi að ástandið væri svipað hvað við- kemur öðrum íþróttaáhöldum. Hann kvað innflutning á gaddaskóm vera í hinum mesta ólestri. Að vísu er flutt inn eitt- hvað af slikum skóm á hverju ári, en hér er venjulega um að ræða skó frá löndum austan járntjalds, sem lítil eða engin reynsla er fyrir. Hann kvaðst vita um kunningja sinn, er; keypt hefði skó af slíku tagi, og i fyrsta skipti sem hann brá við: í þeim, hrökk einn gaddurinn. undan. Hann fór þegar úr skón- Frh. á bls. 9. Gerhardus Potgieter setti heimsmet sitt í 440 y. gr.hl. á Empire Games í Cardiff í fyrra.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.