Vísir - 05.11.1959, Qupperneq 8
, Ekkert blað er ódýrara í áskrift en Vísir.
' Látið hann fœra yður fréttir og annað
lestrarefni beim — án fyrirhafnar af
yðar hálfu.
Sími 1-16-60.
WÍSIK.
Finimtudaginn 5. nóvember 1959
Munið, að Jjeir sem gerast áskrifendur
Vísis eftir 10. hvers mánaðar, fá blaðið
ókeypis til mánaðamóta.
Sími 1-16-60.
Eisenhower heimsækir níu
lönd i þrem álfum.
Ferð hans til Delhi vekur sérstaka athygli
vegna ofbeldis Kína gegn Indlandi.
Eisenhower Bandaríkjafor-
. seti tilkynnti á fundi með'
. fréttamönnum í gær, að haiin
, ætlaði sér að heimsækja 9 lönd
. í Evrópu, Asíu og Afrík.u í 36
þúsund kílómetra ferðalagi í
næsta mánuði. — Mesta at-
hygli vekur, að hann ætlar allt
.til Afghanistan, Pakistan og
Indlands.
, Forsetinn hyggst leggja úpp
.í ferðina 4. des og hafa heim-
. t
_sott 8 lönd, fyrir Parísarfúnd
■ leiðtoga Vesturveldanna 19. J
des., en heim til Bandaríkjanna
ætlar hann að vera kominn
fyrir jól. Það er í heimleið,
sem hann heimsækir 9. landið
— Marokkó.
Evrópulöndjn eru þessi auk ,
Frakklands: ítalia, Grikkland
og Tyrklandi, Asíulöndin hin
fyrrnefndu og íran.
Aðvörun.
Stjórnmálafréttaritarar telja
Indlandsferðina mikilvægasta
15 nýjar hjúkr-
unarkonur.
í lok október mánaðar braut-
skráðust eftirtaldir 15 nemend-
4ir frá Hjúkrunarkvennaskóla
Islands.
Anna Sigurbjörg Hafsteins-
■dóttir frá Gunnsteinsstöðum,
Langadal, A.-Hún. Auður
Hauksdóttir frá Hafnarfirði.
Bergljót Edda Alexandersdótt-
ir frá Reykjavík, Dóra Sig-
mundsdófctir frá Reykjavík,
Geir Friðbergsson frá Reykja-
vík, Guðrún Bjarnadóttir frá
Reykjav. Halldóra Guðmunds-
dóttir frá Stóru-Drageyri,
Skorradal, Borg. Hrefna Maren
Ólafsdóttir frá Reykjavík, Ingi-
björg Marinsdóttir frá Akur-
eyri, María Guðrún Sigurðar-
dóttir frá Reykjavík, Ólína
Guðmundsdóttir frá Patreks-
firði, Rannveig Sigurbjörns-
dóttir frá Reykjavík, Rögnvald-
ur Skagfjörð Stefánsson frá
Reykjavík, Svala Bjarnadóttir
frá Siglufirði, Una Oddbjörg
Guðmundsdóttir frá Reykja-
vík.
Blóðbrullaup.
„Blóðbrullaup" Lorck verð-
ur sýnt í Þjóðleikhúsinu ann-
að kvöld og er bað 7. sýning
á leikritinu.
,,Blóðbrullaupið“ er talið eitt
mesta skáldverk þessarar ald-
ar og er óhætt að ráðleggja
öllum þeim, sem unnu fögrum
skáldskap að sjá þetta leikrit.
Myndin er af Regínu Þórðar-
dóttur í hlutverki tengdamóð-
tirinnar.
ög eitt helzta Lundúnablaðið
ségir, að hún sé greinilega að-
vörun til kommúnistastjórnar-
innar kínversku um. að Banda-
rikin muni hefja viðræður um
öryggi íslands við stjóriíina í
Dehli, ef Kína haldi áfram að
beita ofbeldi á landamærum
Indlands og reyna ná undir sig'
indversku landi. Heimsóknin
til Evrópulanda, segja blöðin,
sýnir hve mikilvægt hann tel-
ur samstarfið í vestri. D. T.
minnir á, að það hafi komið
greinilega fram hjá Nikita
Krúsév, bæði er hann ræddi við
Eisenhower í Davisbúðum og
Mao í Peking, að hann vill
halda aftur af kínverskum
kommúnistum og fá þá ofan af
að vera með uppsteit við Ind-
verja. Blaðið Scitsman telur, að
viðræður Eisenhowers við leið-
toga á þessu mikla ferðalagi,
muni reynast gagnlegar, og
undirstaða frekari samkomu-
lagsumleitana.
Hcilsufar.
Fregin um, að Eisenhower
myndi fara eins langt og víða
og í ljós kom, vakti undrun
fréttamanna. Yfirleitt furða
menn sig mest á því hve for-
setinn er nú heilsugóður orð-
inn, jafnhætt og hann var kom-
inn um tíma. Hann lagðist ný-
lega i sjúkrahús til skoðunar, i
og var tilkynnt eftir á, að hann
væri við beztu heilsu
Seigur er
Chaplin.
Er á 70. árinu á von
á 7. barninu.
Oona Chaplin, unga og geð-
þekka kona kvikmyndalcikar-
ans Charlic Chaplin, á von' á
aS cignast sjöunda barn sitt
núna í mánaðarlokin.
Hún er hin ánægðasta yfir
hópnum sínum og hefur ekk-
ert á móti að halda áfram, þvi
fleiri því betra og ánægjulegra,
segir hún, en Charlie er nú orð-
inn þreyttur og telur nóg kom-
ið. Hann er nú á sjötugasta
aldursári. Hann er annars að
skrifa endurminningar sínar
um þessar mundir, en ekki
hefur nein ákvörðun verið
tekin um birtingu þeirra.
Þau hjón eiga heima við
Genfarvatn, Svisslandi. Þau
eiga 4 telpur og tvo stráka. —
Þrjár telpnanna eru í heima-
vistarskóla í Lausanne, en sú
yngsta, sem er líkust föður
sínum, er ekki nema fimm
missera.
PPIP.í*' ‘ * ’ 'V,
i’r 'r’ 'r‘,~ré-1 V, J
Pað er ekki nóg, að F-eneyjar sé umflotnar á alla vegu, heldur
geta einnig komið flóð þar, svo að götur og torg fari í kaf.
Þessi mynd var tekin á föstudaginn á Markúsartorgi og sýnir,
hvernig lagðar voru brýr um torgið, en sumir hikuðu þó ekki
við að vaða.
r
Onýtar togvindur í nýju
færeysku togurunum.
Frá fréttaritara Vísis.
Thorshavn í nóv.
Færeyingar hafa verið sér-
staklega óheppnir með togvind-
urnar í togurunum sem þeir
létu smíða í Portúgal. B.v.
Leivur Össurarson hefur verið
frá veiðum af þessum sökum í
hálfan annan mánuð og þykj-
ast eigendurnir illa sviknir og
óánægjuraddir heyrast víða í
ejunum.
Hið sama má segja um Fugla.
fjarðartogarann Ólav helga.
Hann er farinn til Danmerkur
að láta styrkja spilið eftir föng-
um áður en hann leggur af stað
í fyrstu veiðiferð. Hinn nýji
togari, sem þeir í Vági fá, þarf
einnig á lagfæringu að halda.
Það horfir illa í síldarsöltun-
armálum Færeyinga. Enn er
allt óráðið hvernig fer með síld-
ina og birgðir eru óseldar frá
í fyrra. Færeyingar kenna Dön-
um um að ekki hefur tekist
að selja síldina og láta það
fylgja sögunni að hin fyrri ár
hafi færeyska síldin verið seld
Podola hengdur
í morgun.
Náðunarbeiðni Podola hefur
vcrið synjað. — Aftakan fór
fram í morgun með hengingu.
Butler innanríkismálai'áð-
herra Bretlands tilkynnti í
gær, að hann sæi enga ástæðu
til þess að verða við náðunar-
beiðninni.
Podola drap sem kunnugt er
lögreglumann í London í sum-
ar.
fyrir minna verð en önnur síld
á sama markaði.
Geta ekki þurkað kjöt.
Óvenju miklar úrkomur hafa
verið í Færeyjum í haust. Kem-
ur þetta sér illa við bændur
og aðra sem ætla sér að þurka
hvalkjöt, þjóðrétt Færey-
inga sem þykir jafn ómiss-
andi og hangikjöt á íslandi. í
rigningartíð vill kjötið maðka
og verður þá óætt. Sumir hafa
tekið það ráð að þvo það upp
úr saltpækli, en aðrir nota nú-
tíma tækni og hafa keypt sér
viftur til að blása á kjötið.
Elzti leikari Bretlands, A. E.
Matthews, verður 90 ára í
þessum mánuði. Hann leik-
ur enn í sjónvarpi.
Samið um
Nílarvatn.
Á fundi Sudans og Arabiska
sambandslýðveldisins um vatns
réttindi í Níl, vatsmiðlun o.f!.,
hefur að sögn náðst algert sam-
komúlag. - - - :
Fundurinn vár háidinn í
Kairo og er gert ráð fyrir, að
samningar verði undirritaðir
á morgun. -Jaf-nframt værður
undirritaður nýr viðskiftasamn-
ingur milli landanna, sem er
mjög hagstæður Sudan, þar sem
Arab. sambandslýðv.eldið mun
kaupa mun meira frá Sudan ea
Sudan af því verður það til
léttis Sudanbúum, vegna ým-
issa útgjalda, sem leiðir af fram
kvæmdum tengdúm virkjun
Nílar. . _ .
9
S. þj. ræða á-
form Frakka.
Stjórnmálanefndin ræðir á-
fram fyrirhugaðar tilraunir
Frakka með kjarnorkuvopn, en
þeir áforma að sprengja kjam-
orkusprengju í Sahara eftir
áramótin.
„Það sem aðrir hafa gert,“
sagði aðalfulltrúi þeirra, Jules
Moch, á fundinum í gær, „get-
um við alveg eins gert.“ Hann
kvað enga hættu geta stafað
af tilrauninni vegna þess hve
fjarri mannabyggðum hún yrði
gerð og vegna víðtækra ör-
yggisráðstafana. Hann benti á,
að Rússar hefði gert slíkar til-
raunir við Baikalvatn þótt tvær
100 þús. ibúa borgii’ væru þar
ekki nem'a í 100 km. fjarlægð
— og í 1000 km. fjarlægð
byggju 10 milljónir manna.
— • —“■
Góð aflasala
í Grimsby.
Gylfi frá Patreksfirði seldi
afla sinn í Grimsby nýl., 172
lestir fyrir 13.781 sterlings-
pund. Þatta er afbragðs sala.
Gylfi var þriðji togarinn, sem
seldi í Grimsby.Þá seldi 76 lesta
báturinn Stairafell frá Ólafs-
firði 37 lestir fyrir 2755 sterl-
ingspund í Aberdeen í gær.
Hæstiréttur:
StúEka fær yfir 20 þús. kr.
— vegna andlegs áfalls af völdum hermanns.
Ung stúlka, sem var við næt-
urvörzlu í bílstöð í Keflavík,
fyrir nærri 4 árum, kærði yfir
framkomu fjögurra hermanna í
stöðinni, krafðist 42 þús. króna
í bætur, voru dæmdar 10,650
krónur í undirrétti, en fékk það
með Hæstaréttardómi í gær
hækkað í 20,650 krónur.
Tildrög voru þau, að í janúar
1956 var Unnur Aldís Svavrs-
dótíir, 17 ára, frá Laufási í Ytri
Njarðvík á næturvakt 1 Aðal-
stöðinni í Keflavík. Komu 4
hermenn inn saman og tóku að
gera stúlkunni ónæði. Undir-
réttur komst ekki vel að raun
um, hvað gerzt hafði, en þó
sannaðist, að hermennirnir
komu óviðurkvæmilega fram
við stúlkuna, og vottaði læknir,
að hún hafi orðið fyrir andlegu
áfalli af þeirra völdum.
Hæstiréttur hækkaði sem sagt
bótadóm undirréttar um tíu
þúsund krónur, og verður ríkis-
sjóður vegna varnarliðsins að
punga út með 20,600 krónur i
bætur og 6000 kr. í málskostnað.