Vísir - 03.12.1959, Blaðsíða 4
X
TlSIfc
Fimmtudaginn 3. desember 1959
WEBMWL
D A G B L A Ð
Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VtSIR H.F.
▼íiir kemur út 300 daga á ári, ýmist 8 eCa 12 blaSsíSur.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Hersteinn Pálsson.
Skrifstofur blaðsins eru I Ingólfsstræti 3.
Rit8tjórnarskrifstofur blaðsins eru opnar frá kl. 8,00—18,00.
' Aðrar skrifstofur frá kl. 9,00—18,00.
Afgreiðsla: Ingólfsstræti 3, opin frá kl. 9,00—19,00.
Sími: 11660 (fimm linur).
Vísir kostar kr. 25.00 1 áskrift á mánuSi,
kr. 2.00 eintakið í lausasölu.
Félagsprentsmiðjan h.f.
Langferð Eisenhowers.
Eisenhower Bandaríkjaforseti
hefir lagt upp í langferð sína
: um fjölmörg lönd Evrópu,
1 Afríku og Asíu, og verður
' hann á faraldsfæti næstu
J vikurnar. Hefir það sjaldan
j komið fyrir, að ríkisleiðtogi
j fer svo langa för og heldur
j fundi með eins mörgum leið-
j togum annarra þjóða og Eis-
enhower hyggst gera í þetta
j skipti. Þetta er annars bein
afleiðing af þeirri þróun, sem
j orðið hefir á undanförnum
I mánuðum, að stefnt er að
j fundi æðstu manna, og þá er
j hentugt og nauðsynlegt, að
j reynt sé að kynnast skoðun-
i um og afstöðu sem flestrá
j leiðtoga þjóða innan hins
frjálsa heims.
Sú skoðun hefir verið ríkjandi
víða um heim, að auðveldara
j mun að eiga við kommúnista
: nú en oft áður, því að þeir sé
! greinilega vinsamlegri í öllu
! viðmóti en áður. Af þessu
j leiðir að margir ætla, að
I unnt verði að komast að ein-
J hverjum samningum við þá,
j svo að heimurinn búi við
! heldur meira öryggi en áður,
! stríðshættan sé ekki eins
! mikil og hún hefir verið.
J Þeir, sem þannig hugsa,
j virðast gleyma því, hversu
j brátt varð um „andann frá
! Genf“, þegar Ungverjar
j héldu, að hann táknaði, að
þeir gætu heimtað sinn rétt
og hlotið aftur nokkuð af
því frelsi, sem þeir höfðu
verið sviptir.
Það var fyrir þrem árum, sem
menn fengu greinilegast að
kynnast innsta eðli og hugs-
unarhætti kommúnista og
fyrst og fremst foringja
þeirra. Þá var sannað svo,
að ekki varð um villzt, að
kommúnistar voru engir vin-
ir frelsis og mannréttinda,
enda þótt þæir væru reiðu-
búnir til að brosa breitt og
mæla fagurlega, þegar þeim
fannst það við eiga. Með til-
liti til þess er mjög vafasamt
— svo að ekki sé dýpra tekið
í árinni — að þeim sé frek-
ar trúandi og treystandi nú
en fyrir fáeinum árum, Lýð-
ræðisþjóðirnar verða því að
halda vöku sinni og þeim er
nauðsynlegt að búast við
hinu versta, því að hið góða
skaðar ekki. Með það í huga
er nauðsynlegt, að Eisen-
hower, forseti stærstu lýð-
ræðisþjóðarinnar, geri sér far
um að kynnast sem bezt
þeim, sem standa í fylkingu
með honum. Þess vegna er
ferð hans bæði nauðsynleg
fyrir þær þjóðir, sem hann
ætlar að heimsækja og hin-
ar, er hann kemur ekki við
hjá að þessu sinni.
ÞRJAR BÆKUR,
„Hetjur í hafróti“ eftir Hartog, er
samdi leikritið „Rekkjan“.
í kappi við kommúnista.
Það alvarlega atvik gerðist fyr-
ir nokkru suður á Keflavík,-
urflugvelli, að fjórir varnar-
liðsmenn réðust að tveim ís-
! lendingum og munu hafa
! viljað misþy.i*ma þeim, þótt
J þeir kæmu ekki fram þeim
J tilgangi sínum. íslending-
arnir komust undan, en ann-
! ar varð að skilja eftir jakka
sinn í höndum árásarmann-
! anna og í honum voru átta
' hundruð krónur, sem urðu
! ránsfengur varnarliðsmann-
anna.
Atburðir sem þessir eru vitan-
leg'a fordæmdir af öllum, og
! að sjálfsögðu koma þeir ekki
í síður illa við stjórnendur
1 varnarliðsins en aðra, en. í
! sambandi við þetta vekur af-
! staða Tímans talsverða at-
! hygli og mikla furðu. Það
! blað hefir nefnilega gengið
! fram fyrir skjöldu og skrif-
f að um öll mál varðandi varn-
! arliðið með sérkennilegum
f hætti, síðan Framsóknar-
f menn hrökkluðust úr valda-
! stóli fyrir tæpu ári. Á und-
! anförnum árum hafa komm-
únistar verið manna ötulastir
við að reyna að æsa til úlf-
úðar í sambandi við árekstra
milli landsmana og varnar-
liðsmanna og oftast gert úlf-
álda úr mýflugunni. Nú mega
kommúnistar vara sig, að
þeir missi ekki frelsishetju-
nafnbótina til Framsóknar-
manna.
Það er viðkvæði Framsóknar-
manna, að síðan þeir létu af
stjórn varnarmálanna, sígi
allt á ógæfuhlið í því efni —
og sé það vitanlega íhaldi og
krötum að kenna. Sannleik-
urinn er þó sá, að Framsókn-
armenn gengu kappsamlega
fram í að halda öllum
hneykslum og árekstrum
leyndum, meðan þeir höfðu
aðstöðu til, en blása allt upp
nú,- til þess að skapa glæsi-
legan samanburð. Þetta
verða menn að hafa hugfast,
þegar lesin eru skrif Fram-
sóknarmanna um varnar-
málin nú og kapphlaup
þeirra við vildarvini sína,
kommúnista, í því efni.
Prentsmiðja Guðmundar Jó-
hannssonar gefur út um þessar
mundir þrjár góðar bækur, og
eru tvær þeirra fyrir unga fólk-1
ið, en hin þriðja, „Hetjur í
hafróti“ eftir hinn kunna rit-
höfund Jan de Hartog, mikil
bók og skemmtileg aflestrar.
Guðmundur Jóhannsson hef-,
ur á hverju ári gefið út nokkr-
ar bækur, og er þekktur fyrir
að vanda val sitt á bókum.
og þeir sem til þekkja, þurfa
ekki að spurja um smekkvísi
hans í prentun og frágangi öll-
um.
Hetjur í hafróti er bók, sem
seint gleymist þeim, sem hana
lesa. Eins og nafnið ber með
sér, fjallar hún um sjómenn og
sjóferðir. Hún lýsir á áhrifa-
mikinn hátt lífi og starfi holl-
enzkra dráttarbátasjómanna,
baráttu þeirra við óblíð nátt-
úruöfl, einmannakenndinni í
langri útivist o. þ. h.
Hún lýsir lífi s.öguhetunnaf,
sem hefst upp í skipstjórastöðu
af eigin rammleik, baráttu hans
við forstjóra stærsta dráttar-
skipafélags Hollands, sem lýkur
með algjörum sigri hans. Bókin
er hrjúf og sönn, tildur og gerfi-
mennska eiga þar ekkert at-
hvarf. Hún er hrein og fersk
eins og sjávargustur. Lýsing-
arnar á lífi skipshafnanna eru
öðrum þræði bráðfyndnar, en
að hinu leytinu þrungnar inni-
legri samúð og skilningi á hög-
um þeirra.
Jan de Hartog er einn þekkt-
asti nútímrithöfundur Hollend-
inga, og á þessi bók einn mest-
an þátt í frægð hans, enda hef-
ur hún verið gefin út 32 sinn-
um. Meðal annara verka hans
má nefna leikritið „Rekkjan11,
sem sýnt var í Þjóðleikhúsinu
fyrir fáum árurn við mikla að-
sókn.
Jólasögur er lítil — og ódýr
—- bók, fyrir litlu börnin. í bók-
inni eru sex smásögur, ljúf og
falleg ævintýri fyrir börnin til
að lesa eða hlýða á um jólin.
í bókinni eru margar myndir
og sumar þeirra prentaðar í
öllum regnbogans litum.
Ævintýri músanna er barna-
bók eftir danska höfundinn og
prestinn Karl Henrik With.
Ævintýri þettá var fyrst birt
1866 og er því næstum hundrað
ára gamalt. Næstum hvert ein-
asta mannsbarn í Danmörku
þekkir söguna af litlu músun-
um á prestssetrinu í Hrukkubæ.
Mömmur þeirra og ömmur
hafa sagt þeim hana, og hún
hefur verið lesin aftur og aft-
ur í lesbókum skólanna frá
fyrstu tíð. En oftast hefur hún
verið stytt og úr henni fellt.
Hér birtist • sagan í sinni upp-
runalegu mynd, og er ekki að
efa að hún verður kærkomin
öllum börnum, sem hana lesa.
Bókin er 80 blaðsíður i mynd-
skreyttri kápu, en teikningar
fylgja sögunni. Verði er mjög í
hóf stillt.
Ný bók frá Sig.
urði Haraíz.
Sigurður Haralz hefur sent
frá sér enn eina bók — Hvert
er ferðinni lieitið? — sem gef-
in er út hjá bókaútgáfunni
Muninn.
Eru þetta þættir úr ýmsum
áttum, eins og síðasta bók höf-
undar, „Sjö skip og sín ögnin
af hverju.“ sem út kom á síð-
ári. Sú bók varð vinsæl, eins
og annað, sem frá Sigurði hef-
ur komið, því að hann segir
skemmtilega og hispurslaust
frá. Nöfn þáttanna í þessari bók
eru m.a. þessi: Miðið, Þrír bát-
ai' og flækingur um fjöll og
fjöru, Hvert er ferðinni heitið?,
Hugboð, Nótt í Bojbnny, Álaga-
bræður., Eitt ár o. fl. Að end-
ingu birtir Sigurður nokkrar
stökur eftir sig.
Þessi bók er nær 200 síður í
frekar litlu broti, vönduð að
frágangi.
Þjóðleikhúsið minnist aldar-
afmælis Einars H. Kvarans.
Ræða, upplestur, söngur og leikrit á sunnlidag.
Á sunnudaginn minnist Þjóð-
leikhúsið 100 ára afmælis Ein-
as H. Kvarans skálds.
Þjóðleikhússtjóri og Ævar
Kvaran, sonarsonur skáldsins
hafa valið efnið, sem flutt verð-
ur og hafa þeir í sameiningu
annast allan undirbúning. Það,
sem flutt verður á þessari ald-
arminningu skáldsins er í að-
alatriðum þetta:
Dr. phil. Steingrímur J. Þor-
steinsson flytur inngangser-
indi. Þá verður upplestur úr
ljóðum skáldsins, Ævar R.
Kvaran les. Einnig les Guð-
björg Þorbjarnardóttir smá-
söguna „Fyrirgefning“. Þuríð-
Pálsdóttir óperusöngkona syng-
ur lög við ljóð eftir skáldið.
Síðast verður fluttur þáttur úr
leikritinu „Jósafat" undir
stjórn Ævars Kvarans en leik-
endur verða Haraldur Björns-
son, Arndís Björnsdóttir og
Regína Þórðardóttir. Lárr
Pálsson leikari verður kynnir.
Einar H. Kvaran er eins o
kunnugt er einn af vinsælust
rithöfundum þjóðarinnar og e
óhætt að fullyrða, að ekkert í;
lenzkt skáld hafi verið jafi
mikið lesið og hann í byrju
þessarar aldar. Hann var eim
ig mjög fjölhæfur því han
samdi langar skáldsögur, sm;
sögur, orti Ijóð og skrifaði leil
rit. Sum leikrit hans hafa ori
ið mjög vinsæl en ekkert þeirr
hefur verið leikið jafn oft o
„Lénharður fógeti“, enda haí
flest leikfélög landsins sett þa
á svið.
Einar H. Kvaran tók einni
virkan þátt í stjórnmálum o
stundaði blaðamennsku ur
langt skeið og má segja a
h'ann hafi verið einn ritfæras
blaðamaður sem við höfum át
, Hann var mikill áhugamaða
Jólablær á bæmmi.
Desember er genginn í garð og
að vanda, um þetta leyti, er að
i byrja að koma jólablær á bæinn
' okkar. Jólavörurnar eru settar í
búðargluggana og gluggasýn-
ingar í desember verða æ smekk-
legri. Byrjað er að skreyta með
grænu aðalverzlunargöturnar og
gangi menn um bæinn dylst eng-
um, að hinir forsjálu eru margir,
það er ös á pósthúsinu, og í bóka
og ritfangaverzlunum er þröng
manna að velja sér jólakort, jóla-
jólapappír og sitthvað fleira
smávegis. Og menn eru byrjaðir
að kaupa jólagjafirnar t. d. bæk-
ur — og þar verður úr nógu að
velja — og það er ánægjulegt að
geta sagt frá því, að í ár eru
mjög margar góðar og eigulegar
bækur á jólamarkaðnum, en eng-
in breyting er á því, að i desem-
ber kemur á markaðinn mikill
hluti þeirra bóka, sem út eru
gefnar árlega. Ekki skal um það
rætt frekar að sinni, en það er að
minnsta kosti gleðilegt,. hve
margt góðra bóka er komið og
að koma á markaðinn nú, en góð
bók er jafnan góð gjöf, og ekki
sízt vel þvegin á jólunum. Þá er
gott að geta haft til lesturs eina
eða fleiri góðar bækur, sem eru
meira en stundargaman, skilja
eitthvað eftir hjá manni.
Næði.
En til þess að geta notið góðr-
ar bókar — og til þess að geta
notið jólanna, segja margir, þarf
næði, og menn kvarta yfir að allt
| sé ónæðissamara um jólin en
j forðum daga, og menn minnast
kyrðar og næðis jólanna á
bernskudögum, en það er með
þetta eins og fleira, að timarnir
hafa breyzt, og menn verða allt-
1 af að meira eða minna leyti að
samlagast sínum tíma, en vissu-
lega væri æskilegt, að nokkru
meiri kyrrðarblær gæti komist á
allt, tíminn fyrir jólin og á sjálf-
um jólunum. En sennilega verða
jólin næðissömust hjá þeim, sem
geta byrjað undirbúning þeirra í
tæka tíð og gera það, en auðvit-
að hafa ekki allir ástæður til
þess. Eirikanlega er annasamt
hjá húsmæðrunum rétt fyrir jól-
in, og vafalaust á mörgu heim-
I ilinu hægt að létta undir með
| þeim, ef allir hjálpuðust að. Yf-
irleitt mun það reynast hollráð
við allan jólaundirbúning, að
reyna að hafa fyrra fallið á öllu,
bæði með innkaup og annað.
Jólag'leðin.
Lesendur hafa beðið um, að
óskað væri eftir tvennu í þessum
dálki fyrir jólin:
í fyrsta lagi, að byrja ekki eins
snemma, hvorki í barnatíma né
i á öðrum útvarpstímum, að út-
varpa jólasálmum. Þeir tilheyri
sjálfum jólunum, og gleðin inni-
legri og meiri yfir að heyra þá
sungna þá, ef ekki væri verið að
útvarpa þeim jafnsnemma og oft
og áður hefur átt sér stað.
I öðru lagi hefur verið óskað
eftir, að jólapósturinn verði ekki
borinn út fyrr en á Þorláks-
messu og aðfangadagsmorgun.
Fái menn jólapóstinn mörgum
dögum fyrir jól séu menn svipt-
ir þeirri ánægju, að fá jólakveðj-
frá vinum sínum, þegar jólin eru
að ganga í garð. — Þeir, sem á
þetta hafa minnzt, telja, að skylt
sé að taka til greina almennings-
viljann í þessu máli. — 1.
um leiklist og var um langan
tíma ein aðal máttarstoð Leik-
félags Reykjavíkur. 7