Vísir - 03.12.1959, Blaðsíða 8

Vísir - 03.12.1959, Blaðsíða 8
n&kert blað er ódýrara í áskrift en Víair. I, Látið hann fœra yður fréttir eg annað lestrareíni heim — án fyrirhafnar af yðar hálfu. Símí 1-16-60. dmmpcbB /flps ram ramm WI8X WL Munið, að ]>eir sem gerast áskrifendnx Vísis eftir 10. hvers mánaðar, fá blaðið ókeypis til mánaðamóta. Sími 1-16-60. Fimmtudaginn 3. desembcr 1959 Varatitdstyrjöld vestra. Viss litarefni í varalitum talin baneitruð. Virðast þó skaÓlaus, nema etin séu. ,,Varalitastyrjöld“ er hafin í Bandaríkjunum. Viss efni í þeim eru talin baneirtuð — og verða tekin til rarinsóknar. Það hefur oft hvesst hressi- lega í bandarísku þjóðlífi að undanförnu þegar ný hneykslis- mál hafa komið til sögunnar, og verið tekin til rannsóknar, jafn- vel áf' þingnefndum, og orðið umrséðuefni um land allt. Má þar til nefna spurningarþátta- hneykslið í bandarísku sjón- varpi, „plötuhneykslin", eða mútugjafir til þeirra, er velja plötur til flutnings, en það er bezta leiðin til að tryggja sölu á grammófónplötum og fleira má nefna s.s., að svo horfði um skeið, að trönuberjarækt- endur í landinu færu á hausinn upp til hópa, er birtar voru fregnir um, að „eitruð“ trönu- ber væru á markaðinum — Og það rétt fyrir þakkarhátíð- ina, en þá eru trönuber notuð um alit land til matargerðar. Framleiðslan átti sem sagt að hafa spillst vegna þess, að akr- ar höfðu verið úðaðir með hættulegu eiturefni, er jafnvel gæti valdið krabbameini. Róttur drápust. Og hvað skyldi nú vera kom- ið í Ijós? Hvorki meira né minna en það, að varalitir séu baneitraðir, þ.e. að viss efni í þéim, er gefin voru tilrauna- dýrum, urðu þeim að bana. Róttum var gefið tjörukennt efni, sem notað er sem iitunar- efrii við gerð varalita og dráp- ust þær í hópum, eftir 90 daga, en aðrar fengu lifrar- og nýrna- veiki, og aðra kvilla, sem höfðu áhrif á vöxf þeirra og þroska. 200 millj. varalita. Það er heilbrigðismálaráðu- néytið við forustu Flemmings heilbrigðismálaráðherra, sem lætur allt til sín taka, sem varð- ar heilbrigði manna, og það var ráðuneyti hans, sem lét banna sölu á trönuberjum af ekrum, sem úðaðar höfðu verið úr skað- legu efni. Ein deild ráðuneytis hans er hefur eftirlit með lyfjum og snyrtivörum o.fl., hef- ur nú barinað frá 1. marz n.k. að telja 17 tegundir litunarefna, sem notuð eru r 200 milljónir varalita, sem seljast árlega i Randaríkjunum — nema til- raunir afsanni, að þessi litun- arefni séu óskaðleg. Varnaraftgerðir snyrti- vöru-framleiðenda. Varaforseti Félags snyrtivöru framleiðenda. S. L. Mayham, hefur boðað gagngsókn og lagt fram mótmæli gegn banni á varalitunm. Hefur hann lagt mótmælin fram í rétti og bíður tækifæris að fá að leggja fram rök sín. Mayham spurði brezk- an kvenfréttaritara, er átti tal við hann um þetta: „Etið þér varalit?“, og svaraði sjálfur: Nei þér gerið það ekki, það fer ekki ofan í yður nema svo lítið magn, að það er skaðlaust með öllu“. Kaupendurnir. En hver eru viðbrögð kaup- enda — kvenna sem nota vara- liti — og það gera þær vel flest- ar, því að það tízkufyrirbrigði, að lita ekki varirirnar, er úr sögunni að mestu. Þær taka sér stöðu með snyrtivörufram- leiðendum, að þvi er virrðist, og margar bera lítil merki i rauðgulum, gulum og rauðum lit (hættulegustu litunarefnin að því er menn Flemmings segja) til þess að allir megi sjá, að þær séu „hvergi bangnar“ — og flykkjast í hópum í búð- irnar á Broadway og Fifth A- venue, til þess að birgja sig upp af varalitum. Fjórir Öivaðir aka lít af. Höfðu farartækið að láni. „Og mundu nú, aft eyða ekki of niiklu í ferðinni!“ (Teikningin er úr skopblaðinu Tarantell-Press í Vestur-Berlín). Gerast Egyptar og Irakar nú fráhverfir Rússum ? Stjórnmálasamband komið á milli Bretlands og Arabalýðveldisins. I gærmorgun lyktaði akstri blöðra manna með útafakstri á Reykjanesbraut hjá Straumi, fyrir sunnan Hafnarfjörð. í bílnum voru fjórir drukkn- ir ménn og þegar Vísir átti tal Við Hafnarfjarðarlögregluna rétt fyrir hádegið í gærmorgun lá ekki ljóst fyrir hver þeirra fjörmenninga hafði ekið. Tekið yar af þeim blóðsýnishorn og yerða þeir geymdir í vörzlu lögreglunnar, unz vitað er hver ekið hefur. í fyrradag fengu piltar þess- ar- ’sem éru úr Keflavík, bílinn að’iiáni á-þeim forsendum, að þéfr ætluðu að skréppa á hon- juih’r'milli húsa. Það var leyft. Vissi bíleigandinn síðan ekki söguna meir fyrr en honum var tilkynnt, að bílnum hafi verið ekið út atveginum í grennd við Straum. Bíllinn mun ekki skemmdur að ráði. Bílar skemmdir. í fyrrinótt voru brotnar rúður í tveim bifreiðum sem stóðu á Norðurbraut í Hafnarfirði. Auk þes^a var annar bíllinn mikið skemmdur. Væntir Íögreglan í Hafnar- firði þess að hafi einhverjir séð til sökudólgsins eða geta gefið aðrar upplýsingar varðandi mál þetta, láti þeir hana vita þegar í stað. Stjórnmálasamband er komið á milli Bretlands og Arabíska Sambandslýðveldisins. Fyrst um sinn verða skipaðir sendi- fulltrúar (charge d'affaires), en síðar ambassadorar. Stjórnmálasambandið var rofið eftir árásina á Egypta- land 1956. — Selwyn Lloyd sagði í gær, að hann vonaðist eftir, að nú yrði traust endur- „Músagiidran". 16. sýning í kvöld. Hinn bráðsnjalli sakamála- leikur Agötu Christie hefur ver ið sýndur 15 sinnum við ágæta aðsókn í Kópavogi. Næsta sýning verður í kvöld kl. 8,30 og eru nú aðeins eftir þrjár sýningar á leiknum fyrir jól. Óhætt er að hvetja alla þá, sem vilja eiga skemmtilega kvöldstund til þess að sjá þenn- j an spennandi leik, þeir verða á- j reiðanlega ekki fyrir vonbrigð- i um. Umferðarslys á Hringbraut. Slys varð í gær á Hringbraut móts við Gamla stúdentagarð- inn. Fjögurra ára drengur, Sigmar Reynisson, Barmahlíð 30, varð þarna fyrir bíl og meiddist nokkuð. Við athugun í Slysavarðstofunni kom í ljós að drengurinn hafði skrámast á enríi og gágnáuga óg áuk þess íríeiðst á fnjöðm, erí þó 'ekki áívarléga,- vakið og óskaði, að samkomu- lagið mætti verða báðum þjóð- unum til farsældar. Brezk blöð skrifa um þetta og láta vel yfir. Þar kemur fram að ekki aðeins Egyptar, heldur og Irakbúar gerast nú fráhverfir Rússum, og beri að stuðla að þróun í þessa átt — í kyrrþei. Egypzkir námsmenn flykkjast nú til náms í Bretlandi og hef- ur straumurinn greinilega beinzt þangað að undanförnu. Colin Growe, formaður brezku samninganefndarinnar, sem verið hefur í Kario að und- anförnu, verður sendifulltrúi, en Kamal Eddin Khalil úr ut- anríkisráðuneytinu A. S. sendi- fulltrúi í London.. íslenzkur brautryðjandí látinn. Skeyti barst til íslands um það í gær að Sveinn Oddsson prentari í Winnipeg hafi látizt í fyrradag. Sveinn Oddsson var þjóð- kunnur maður á sínum tíma hér heima á íslandi því að árið 1913 kom hann frá Vestur- heimi með fyrstu bifreiðina, sem flutt var til landsins og not- hæf var talin til flutninga al- mennt, og var það upphaf bíla- aldar á íslandi. Sveinn hélt þá um nokkurt skeið uppi áætl- unarferðum austur í sveitir, svo langt sem vegir náðu. Þótti þetta nýlunda mikil á þeim ár- um. í tilefni af þessu braut- ryðjendastarfi buðu bifreiða- innflytjendur og bifreiðaeig- endur Sveini heim til íslands í hitteðfyrra og dvaldi hann þá hér rúmlega um eins mánaðar skeið. Sveinn Oddsson fæddist i Reykjavík 14. jan. 1883. Hann nam prentiðn í Reykjavík en fluttist vestur um haf 1903, átti þar lengst af heima og starfaði að prentverki. Vestan hafs gaf Sveinn sig að menningar- og framfaramálum ýmsum og gaf út tímarit bæði á enskri og íslenzkri tungu. Sveinn lézt að elliheimilinu Bethel að Gimli eftir skamma legu þar, en hafði áður legið í sjúkrahúsi í Winnipeg um árs skeið. Dagur og KEA — Frh. af 1. síðu. verulega verið að fá þessu kaupfélagi rekstrarfé, sem nam milljónum, af almannafé. Slíkt er vitanlega hneyksli, en þetta var auðvitað sjálfsagt, meðan fi'amsóknarsiðgæði var öllu ráðandi. Er harla gott, að þetta skuli nú úr sögunni, og þá einn- ig, að KEA skuli bera sig illa yfir að þurfa að skila rekstrar- fénu. Skoöanir Jónasar Haralz mega ekki heyrast. Einar Olgeirsson telur 1. des. ræðu hans „afglöp“. Það er greinilegt, að komni- únistuin er ekki um það, að almenningi sé gerð grein fyrir þeim hættum, sem yfir vofa í efnahagsmálunum, ef ekkert er að gert. Það kom fram á þingi í gær, er Einar Olgeirsson kvaddi sér hljóðs utan dagskrár og talaði mikið um embættisafglöp Jón- asar Haralz, er hann hélt ræðu 1. desember. og sagði þjóðinni afdráttarlaust, hvemig efna- hagsmálin stæðu og með hverj- lim hætti mætti komast hjá skip- bróti. ' “ ............ °y Var greinilegt af ræðti Einars Olgeirssonar, að þótt liann vilji gjarnan hafa mál- frelsi fyrir sig, vill liann meina öðrum að tala, ef hon- um Iíkar ekki mál þeirra. Bjarni Benediktsson tók til máls að lokinni ræðu Einars og minnti meðal annars á það, að þótt E. Ol. þætti harla lítið til Jónasar Haralz koma nú, hefði þó sú ve.rið tíð, að Einar og fleiri hefðu teflt honum fram og þó’tt hann hagfræðinga beZt- ur, þótt nú væri kómið annað hljóð' í strokkinn:

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.