Vísir - 14.12.1959, Blaðsíða 6

Vísir - 14.12.1959, Blaðsíða 6
Mánudaginn 14. desember 1959 B VI SIR irism D A G B L A Ð Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F. Vísir kemur út 300 daga á ári, ýmist 8 eða 12 blaðsíður. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Hersteinn Pálsson. Skrifstofur blaðsins eru í Ingólfsstræti 3. Ritstjórngrskrifstofur blaðsins eru opnar frá kL 8,30—18,00. Aðrar skrifstofur frá kl. 9,00—18,00. Afgreiðsla: Ingólfsstræti 3, opin frá kl. 9,00—19,00. Sími: 11660 (fimm línur). Vísir kostar kr. 25,00 í áskrift á mánuði, kr. 2,00 eintakið í lausasölu. Félagsprentsmiðjan h.f. fínilitn og hagfræðfn. Tíminn var með vangaveltur um það í forustugrein fyrir j helgina, hve mikið mark í mætti taka á hagfræðingum. ]' Var minnst á ræður Einars Olgeirssonar um þá, á Al- | þingi, og komist að þeirri ; niðurstöðu, að „sannleikur- j inn um hagfræðingana j mundi vera mitt á milli skoð- ’ ana Einars og ráðherranna“ í í núverandi ríkisstjórn. Ekki var þó tekið fram að útkom- an yrði „brjóstvit“. Þetta er athyglisverð niðurstaða hjá Tímanum. Þrátt fyrir I sálufélag þeirra Einars Ol- j geirssonar og Eysteins Jóns- ; sonar í stjórnarandstöðunni } og sameiginleg áform þeirra j um að vinna núverandi rík- j isstjórn allt það ógagn, sem j þeir mega, treystir Tíminn j sér ekki til þess að leggja J blessun sína yfir orð Einars j eins og þau voru í ofstækis- ! ræðum hans á Alþingi. 1 Hitt skín í gegn um skrifin, að afstaða Einars, og j annarra í forustuliði kom- múnista, gegn þeim til- lögum, sem færustu hag- fræðingar landsins gera til viðreisnar í efnahags- málum, er Tímanum mjög þóknanleg. Föðurlands- ástin er ekki meiri en svo, að allt sem gæti skaðað ‘ áform núverandi ríkis- stjórnar, er vel þegið af t- forustuliði Framsóknar- flokksins. Það var vitanlega ræða Jónasar Haralz, sem olli því, að Ein- í ar Olgeirsson sleppti sér í þetta sinn. Þau viðreisnar- * sjónarmið, sem þar komu ! fram, eru ekki til í hagfræði kommúnista, a. m. k. ekki ! þegar þeir eru í stjórnarand- I stöðu. En þau ættu ekki að I vera Framsóknarmönnum ó- ! kunn eða óskiljanleg. * Tímanum bar skylda til að taka afdráttarlaust undir I öll meginatriðin í ræðu hagfræðingsins og lýsa því yfir, að Framsóknar- f'' flokkurinn myndi styðja viðreisnaráform hinnar nýju ríkisstjórnar, ef þau yrðu i samræmi við þá ræðu. Framsóknarmenn hafa ekki treyst sér til að mótmæla neinu af því sem Jónas Har- alz hélt fram, en þeir hafa heldur ekki tekið undir orð hans. Þetta sýnir svo ljóst sem verða má, að þeir ætla sér að fylgja kommúnistum í skemmdarstarfinu gegn til- lögum ríkisstjórnarinnar, þegar þær koma. Eysteinn Jónsson óskapaðist mikið út af því á Alþingi, að nú hefði þurft ,,að samstilla kraftana“, eins og Tíminn hafði eftir honum, og hafa samvinnu við minnihlutann á Alþingi um lausn vanda- málanna. En hvernig sam- starfsvilja sýndi þessi minni- hluti þann tíma sem þingið sat? Hann hélt uppi endalausu mál- þófi nætur og daga, án þess að koma nokkru sinni að því, sem- máli skipti. Eysteinn Jónsson hélt sjálfur manna mest uppi illdeilum, en á- vitar svo ríkisstjórnina fyrir að hafa ekki komið í veg fyrir „stórdeilur og illindi“. Eins og Framsóknarmenn og kommúnistar hegðuðu sér á Alþingi í þetta sinn var ekki nema um eitt að ræða fyrir ríkisstjórnina, ef hún átti að geta borið fram viðreisnartillögur sínar upp úr áramótum. Hún varð að tryggja sér vinnufrið. Og það er vand- séð að hún hafi átt til þess aðra leið betri en „að koma í veg fyrir“ að Ey- steinn Jónsson og Einar Olgeirsson gætu haldið uppi stórdeilum og ill- indutn á Alþingi. Þetta var líka skoðun meiri, hluta þingsins, og hefur hann í ef til vill talið að gott væri fyrir þessa foringja báða, að, fá hvíld fram yfir áramótin, því að ekki er grunlaust um að ýmsir þingmenn hafi tal- ið framkomu þeirra benda til, að taugarnar væru orðn- ar óstyrkar, svo ekki sé fast- ara að orði kveðið. íbúðarlán. GEæsílegasta gfafabókin i ár: ÞJÓÐSAGNABÓK ÁSGRÍMS JÓNSSONAR 50 heiisíðumyndii" af hstaverkum, 30 bjcðsögur. Inngangsntgerð eftir dr. Einar 01. Svemsson. —- Einhver íegursta bök, sern gehn heíur venð út á Islandi. Ekki kann ég' út á þessa bók að setia. Hún er að öhu leyti fallega að heiman búin.“ Dr. Kristján Eldjárn, Alþbl. 25. nóv. „Bókin er prýðilegt skrautverk, smekklega gerð og hið eigulegasta og á forlagið þakkir skilið fyrir útgáfu "hepnar.“ Kristmann Guðmundsson, Mgbl. 25. nóv. „Bókin er hreirin dýrgripur.“ Hannes á Ilorninu, Alþbl. 15. nóv. , Þjóðsagnabók Ásgiíms er ein þeirra bóka, sem ætti að vera sjálfsögð á hverju heimili á landinu.“ I, . f Þjóðviljinn 3. nóv. „Æíti að vera til á hverju íslenzku heimili.“ TLiiinn 4. nóv. Verð kr. 240,00 í vönduðu bandi. BÓKAÖTGÁFA MENNINGARSJÓÐS OG ÞJÓffVINAFÉLAGSINS f>að kom úr hörðustu átt, þegar Eysteinn Jónsson fór að tala i um að stjórnarflokkarnir ! sýndu áhugaleysi fyrir hús- ! næðismálum. Frammistaða F vinstri stjórnarinnar var þar ! með slíkum endemum, að f furðulega ósvífni þarf til ! þess, að ráðherra úr þeirri J stjórn fari að brigsla öðrum um vanækslu í því efni. Þegar vinstri stjórnin tók við, var veðlánakerfið, sem kom- ið var á fyrir forgöngu Sjálf- stæðismanna, orðið þess megnugt að veita 55 þús. kr. að meðaltali á íbúð, og hafði þó aðeins starfað í 8 mánuði. Gert var ráð fyrir að há- markslán yrði 100 þús. kr. á íbúð og að því stefnt. Jafnskjótt og vinstri stjórn- in tók við, lækkuðu lánin niður í 36 þús. kr. á íbúð að meðaltali, og á valda- tíma hennar hækkaði verð á 100 ferm. íbúð úr 280 þús. kr. í 375 þús. kr. Væri ekki Framsóknarmönnum sæmast að þegja um hús- næðismálin? Móðir okkar og tengdamóðir, KRISTÍN JÓNSDÓTTIR, andaðist að heimili sínu Fálkagötu 13, sunnudaginn 19. desember. Börn og tengdabörn.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.