Vísir - 14.12.1959, Qupperneq 12
Ekkevt blað er ódj'rara í óskrift en Vísir.
Látið hann færa yður fréttir off annað
lestrarefni heim — án fyrirhafnar af
yðar hálfu.
Sími 1-16-60.
Mánudaginn 14. dcsember 1959
Munið, að þeir sem gerast áskrifendur
Vísis eftir 10. livers mánaðar, fá blaðið
ókeypis til mánaðamóta.
Sími 1-16-60.
Eisenhower í Teheran, fer HjÓlíð SílýSt VÍð Effa-Fall.
svo þaðan tii Aþenu.
Fyrsta túrbínan sett af stað í gær.
Undirbúningur Parísarfundarins í fullum
gangi og fara fram miklar stjórnmáfaumræður
Sundrung vestrænna þjóða
áhyggjuefni.
IndJandsheimsókn Eisenliow-
©rs er nú loltið.
Eisenhower Bandaríkjaforseti
lagði í morgun af stað frá Dehli
til Teheran, höfuðborgar Irans
(Persíu), þar sem hann dvelst
nokkrar klukkustundir. Er
mikill viðbúnaður til þess að
taka sem virðulegast á móti
honum. Frá Dehli flýgur hann
til Aþenu og þaðan til Tunis og
ræðir við Bourgiba forseta, en
að því búnu hvílist hann á
bandaríska herskipinu Des
Nýja Loftleiðavélin
afhent.
Hin nýja flugvél Loftleiða,
TF-LLA af Cloudmaster-gerð,
var aflient við liátíðlega athöfn
á Miamiflugvelli á mánudag-
inn var.
Flugvél þessi, sem tekur 80
farþega í sæti, er búin öllum
nýjustu öryggistækjum, svo
sem ratsjá, og mun vera fyrsta
íslenzka vélin, sem hefur slík
tæki^ Starfsmennj Loftleiða
hafa undanfarið dvalist vestra
til að þjálfa sig í flugi hinnar
nýju vélar, og fljúga henni til
Reykjavíkur, fullskipaðri far-
þegum. Mun hún koma hingað
21. desember, og fer þá fram
móttökuathöfn hér á flugvell-
Moines, þar til Parísarfundur
[æðstu manna Vesturveldanna
hefst laugardag næstk. 19. des.
í kveðjuorðum til indversku
þjóðarinnar sagði Eisenhower,
’að báðar þjóðirnar, Indverjar
og Bandaríkjamenn leituðust
við, að ná sama marki, marki
réttlætis og friðar.
Áður hafði verið birt sam-
eiginleg tilkynning í lok við-
ræðna hans og Nehrus, að þeir
hefðu rætt vandamálin og verið
aJgerlega sammála um, að öll
deilumál bæri að leysa friðsam-
lega.
Deila Indlands
| við Kína.
Um deilu Indlands við Kína
út af landamærunum hafði
Hagerty einkaritari forsetans
áður svarað fyrirspurn, og sagt,
að enginn ágreiningur væri um,
að reyna bæri að leysa deilumál
þetta frimsamlega. Er hann var
spurður að því hvort Banda-
ríkin myndu styðja Indland, ef
á það væri ráðist, svaraði hann
því, að ekki hefði verið beðið
Um neina aðstoð, ef til slíks
kæmi, né hefði aðstoð verið
boðin.
Stálframleiðslan á Bretlandi
náði nýju hámarki í sl. mán-
uði, komst upp í 458.000
lestir á viku.
Tækið, sem maðurinn bendir á, er einskonar sólarrafhlaða —
þegar sólskin fellur á plöturnar, breytist það sjálfkrafa í raf-
orku, sem geymist í þeim eins og rafhlöðum. Rafmagnið má
síðan nota til ýmissa liluta, eins og gefur að skilja, og er það
skoðun manna, að þessi uppfinning muni verða ómetanleg fyrir
manninn í framtíðinni, þegar fer að ganga verulega á birgðir
mannkynsins af kolum, olíu o. þ. h.
Bíífarþegi skerst ifla á höfði.
Kona daff á hitavcitustokk 014
komst við illan leik í mrr-
Fyrsta túrbínan í raforku-
verinu við Efra-Fall byrjaði
að snúast í gær, undanfari að
prófun annarrar vélasamstæð-
>' , .
unnar, sem taka mun um eina
viku, og standa vonir til, að
hægt verði að taka eitthvert
álag um næstu helgi.
Eins og áður er sagt hér í
blaðinu, verður aðeins hægt að
hefja prófun annarrar véla-
samstæðunnar að sinni, en hún
er 13500 kílóvött, og mun ör-
ugglega vera gleðiefni mörg-
um, ef hún kemst í gang fyrir
jól, eins og ganga má að vísu,
ef ekkert óhapp kemur fyrir.
ísfirÖingar í
jéfaskapi.
Frá fréttaritara Vísis. ..
Isafirði í morgun.
Jólablær er nú kominn á bæj-
arlífið. Er aðalverzlunarsvæðið
skreytt og upplýst og verzlun
er svipuð og í fyrra, en reynsl-
an er sú að mest er verzlað síð-
ustu jólavikuna.
Tíðarfar er ágætt og er bíl-
fært til Bolungavíkur, Hnífs-
dals og og Súðavíkur. Hefur
komið fram nokkur óánægja
með að ekki hefur verið gert
bílfært til Súgandafjarðar.
Arn.
Góð aflasala.
Kaldbakur seldi í Grimsby í
morgun 158 lestir fyrir 10884
sterlingspund.
7 aðrir togarar selja á næst-
unni.
Sovátflugvélin fórst
líklega fyrir löngu.
Hefur sennllega verið í flutningum
tii heimskautsbækistöðva.
Menn hallast nú að þeirri
■skoðun, að sovétflugvélin, sem
sást á ísjaka nærri Grænlands-
strönd, muni hafa hrapað fyrir
löngu. .
. Bandarískar flugvélar hafa
flogið yfir staðinn í þrjá daga,
og gengið úr skugga um, að
þar er engan mann að finna.
Flugvélin hefur brunnið, er
hún kom niður, svo að skrokk-
urinn er eyðilagður, en eldur-
inn hefur ekki komizt í væng-
ina eða stélið, svo að hægt er
að lesa einkennisstafi og tölur,
sem þar eru letraðar, eins og
venja er.
Eins og getið hefur verið,
sáust för eða rákir á jakanum,
og hallast menn að því, að þær
muni hafa komið, þegar flug-
vélin lenti á ísnum. Það er einn-
úg skoðun manna í varnarliðinu
að flugvélin muni hafa farizt
fyrir löngu, mörgum mánuð-
um, ef til vill einu eða tveim
árum, og hafi hún verið við
birgðaflutninga til bækistöðva
sovétvísindamanna á ísjökum
nærri heimskautinu, er óhapp-
ið varð. Síðan hefir jakann rek-
ið suður á bóginn, unz hann var
kominn svo nærri Grænlandi,
að hann rak suður með strönd-
um þar.
Komið hefur til orða, að
flytja þyrlu í risaflugvél til
Kulusuk á Grænlandi og láta
hana síðan skreppa yfir á jak-
ann, þar sem flakið er, en nú
munu menn hættir við það, þar
sem það þykir af áhættusamt.
Dagur er stuttur og m. a. yfir
60 krii. breitt belti áf opnum
sjó að fara, en hinsvegar vitað,
að lítið er á ferðinni að græða.
Ii<4l»jan(Eí liúsi
Tvö slys urðu í Reykjavík
tímabilinu kl. 3—4 síðdegis
gær.
Annað þeirra var umfei'ðar-
slys, sem varð á Útvarpsstöðv-
arvegi móts við Meltungu rétt
um þrjúleytið í gærdag. Tvær ^
bifreiðir voru þar á ferð, önn-
ur var R-1022, en hin var með
erlendu skrásetningarmerki, og ■
rákust þær harkalega á. Far-
þegi í fyrrnefndu bifreiðinni,
Laufey Jónsdóttir til heimilis
að Kleppsvegi 57, er sat í
framsæti, skarst illa af rúðu-
brotum, bæði hlaut hún stór-
an skurð á andliti og skarst
einnig á hálsi. Sjúkrabifreið
var fengin til að flytja hana til
læknisaðgerðar.
Hitt slysið varð nokkru
seinna — klukkuna vantaði
stundarfjói’ðung í 4 þegar lög-
reglu og sjúkraliði var gert að-
vart um það.
Hafði kona, Guðlaug Jónas-
dóttir til heimilis að Hamra-
hlíð 31 verið á gangi eftir hita-
veitustokk, en varð fótaskortur
og skarst mjög illa á fæti. Ekk-
ert fólk mun hafa verið á ferli
í námunda við þann stað þar
á sem slysið skeði svo Guðlaug
í varð, þrátt fyrir meiðslin, að
I halda för sinni áfram. Komst
hún að húsinu Háhlíð 10 og
gat þar gert vart við sig, en
féll þá um leið í ómegin sök-
um blóðmissis. Símað var strax
eftir sjúkrabifreið, sem flutti
konuna í slysavarðstofuna.
Tvö slys urðu einnig í Reykja
vík á laugardaginn. Ungur
drengur klemmdist í lyftu í
barnaheimilinu Laufásborg og
marðist eitthvað á handlegg.
Þá varð maðujr, Sigurður
Pijörnsson frá Veðramóti, fyr-
ir bifreið á Fríkirkjuvegi,
meiddist nokkuð á höfði og
hlaut heilahristing.
Þyrla setur
hæðarmet.
Bandaríkjaflugher seglst hafa
sett met í hæðarflugi á þyrlu.
Komst þyrla, sem knúin er
gashverfli og því af nýrri gerð,
uþp í 29,770 feta hæð (rúm-
lega 9 km.), og mun engin
flugvél af þessari gerð hafa
komizt svo hátt.
Alkirkjuráðið
veitir styrki.
Alkirkjuráðið veitir eins og
um nokkur undanfarin ár guð-
fræðistúdentum og kandidöt-
um styrki til námsdvalar við
háskóla í ýmsum löndum há-
skólaárið 1960—61. Umsóknar-
eyðublöð og nánari upplýsing-
ar eru á skrifstofu biskups,
Reykjavík. Umsóknir þurfa að
berast í janúar.
Fjörugt félagsfíf á
ísafirði.
Leikfélag ísafjarðar frum-
sýndi s.l. fimmtudagskvöld
gamanleikinn Gimsteinar og
brjóstahöld.
Sveinbjörn Jónsson þýddi
leikinn. Leikstjóri er Þorvald-
ur Helgason.
Leiknum var ágætlega tek-
ið og sýndur föstudag og laug-
ardag við góða aðsókn. Þetta
er fyrsta leiksýning Leikfélags-
ins á þessu vetri. Upp úr ára-
mótum ætlar leikfélagið að
sýna annað leikrit.