Vísir - 12.01.1960, Síða 1
Á annað hundrað bát
• r
ar voru a sjo i gær.
Aflinn frá 5-14 lestir í lögn. Fleiri
bátar á sjó í dag.
Á anriað hnndrað fiskibátar
voru á sjó í gær á veiðisvæðinu
frá Papey að Horni. Veður víð-
hið bezta og afli svipaður víð-
ast hvar, frá fimm Upp í 14,1
lest í lögn eða róðri.
Frá Austfjörðum var Vísi
símað í gær að hinir stærri bát-
ar hafi aflað vel undanfarið.
Sækja til dæmis Eskifjarðar-
og Norðfjarðarbátar ásamt bát-
um frá Fáskrúðsfirði suður
undir Papey og í Lónsbugt og
fengið þar góðan afla.
Hornafjarðarbátar, 6 talsins
bafa fiskað vel. Hafa þeir í síð-
ustu róðrum verið með um 10
lestir hver. Sigurfari fékk í
gær 12 lestir í róðri og þykir
það mikill afli á þeim slóðum
svo sriemma á vertið.
Frá Vestmannaeyjum voru
ekki nema um 20 bátar á sjö
í gær. Sækja þeir langt aust-
ur, sérstaklega Austfirðing-
arnir. Sigla þeir austur undir
Portland og bíða þar eftir
timamerkinu sem gefið er kl
2 að mórgni, þá slá þeir í og
keyra í kapp kannske alla leið
austur í Meðallandsbugt þar
sem línan er lögð.
Frá Grindavík reru 6 bátar í
gær og fóru flestir austur á
banka: og fiskuðu frá 7 til 11
lestir.-Fleiri fóru á sjó í nótt.
Frá Sandgerði, Keflavík og
Hafnarfirði reru um 50 bátar,
flestir á sömu slóðir. Mestan
afla í þessum hópi mun Víðir 2.
hafa fengið, 14 lestir.
Frá Akranesi reru fimm bát-
ar. Fengu þeir 5 til 8 lestir út
á milli slóða. 12 eru á sjó í dag.
Ólafsvíkurbátar, 10 talsins,
voru með frá 5 til 9 lestir. Til-
íinnanlegur skortur er á land-
verkafólki í Ólafsvík, því þar
hafa borizt á land 60 til 70 lestir
af fiski dagalega.
Afli Vestfjarðarbáta er svip-
aður og annarsstaðar.
Útilegubátar frá Reykjavík
halda sig út af Jökli og hafa
fengið dágóðan afla.
Nína Sæmundsson í Reykjavík.
Þungt áfall, er hafmeyjan
var sprengd í Ioft upp.
Svartaþoka og 50
nt skyggni í morg-
un í Reykjavík.
Reykjavíkurflugvöllur var
lokaður í morgun vegna
svartaþoku, sem skall á í
morgun, og var þar engin
flugumferð laust fyrir kl. 11
í morgun, en þá var að létta
talsvert í lofti.
Keflavíkurflugvöllur var
ekki lokaður og annars stað-
ar á landinu mun hafa verið
þokulaust víðast. í Rvk. var
logn og þriggja stiga hiti í
morgun. Þoka, og skyggni
aðeins 50 metrar.
Veðurhorfur: Norðaustan
gola. Léttskýjað. Dálítið
frost í nótt.
Færeyingar koma ekki.
Refsihótanir Fiskimannafélagsins
stöðva Istandsferðir.
■ - """■
Færeyingarnir koma ekki á
vertíð til íslands. Slitnað hefir
upp úr samningaviðræðum L. I.
Ú. og Fiskimannafélagsins þar
sem kröfur Fiskimannafélagsins
viðvíkjandi kauptryggingu og
Þrettán innbrot npplýst
Fjórir untjÍM• jÞÍltur hufu
kutnið þur við sótju.
Rannsóknarlögreglan í Rvíktveir þeirra, báðir fæddir 1942.
tjáði Vísi í morgun að upplýst Hinir tveir hafa litla hlutdeild
hafi verið síðustu dagana 13
innbrot og þjófnaðir sem fram-
in hafa verið hér í bænum sitt
hvorum megin við áramótin.
Fjórir piltar hafa játað á sig
þessi innbrot, en aðallega þó
Máifiutiiingur Ingimars-
máisíns fiefst í dag.
Eins og sagt var frá í Vísi
fyrir helgina, byrjar málflutn-
ingur Ingimarsmálsins í dag
fyrir Hæstarétti. Hefst hann kl.
14.
Málflutningurinn einn í þessu
flókna máli ákæruvaldsins gegn
Jngimar Jónssyni fyrrv. skóla-
stjóra mun standa yfir meiri
partinn af þesari viku.
átt að þessum innbrotum, en
þó aðeins komið við sögu sitt í
hvort skiptið. Annar þeirra er
fæddur 1943, hinn 1945. Piltar
þessir hafa áður komið við sögu
lögreglunnar en mismunandi
mikið þó.
Innbrotin og þjófnaðirnir,
sem þeir hafa játað á sig eru
m. a. í vörugeymslu Eimskipa-
félags íslands, Borgarskála,
Verzlanasambandið í Defensor
(tvívegis), Hamar, Sindra,
Borgarþvottahúsið (tvisvar),
Byggingafélagið Brú, vinnu-
skúr hjá Sindra, porti Eim-
skipafélagsins, togarann Vött
(þar stolið rakettum) og loks í
einkahús á Laugarás á gaml-
árskvöld. þar sem stolið var
ljósmyndavél og vindlum.
Á engum staðnum var stór-
þjófnaður framinn.
gjaldeyrisyfirfærslu ganga
lengra en hægt er að uppfylla.
Nokkuð á þriðja hundrað
Færeyinga, sem ætluðu sér að
koma með Gullfossi urðu eftir
af skipinu vegna hótana Fiski-
mannafélagsins um refsiaðgerð-
ir gegn þeim sem réðu sig til
Islands í trássi við boð félags-
ins. Að því er Vísir hefur fregn-
að er óánægja meðal færeyskra
sjómanna vegna afstöðu félags
þeirra og myndu margir hafa
fari ðtil íslands og ráðið sig upp
á sömu kjör og í fyrra hefði fé-
lagið ekki hótað refsingu.
Nú mun vera um 200 fær-
eyskir sjómenn á íslenzzkum
skipum. Þar af eru 60 hjá Bæj-
Frh. á 2. síðu.
Nína Sæmundsson á málverka- og höggmyndasýningu, er hún
hélt fyrir fáum árum í Bogasal þjóðminjasafnsins.
Listakonari Nina Sæmundsson kom til landsins í gær-
kvöldi, og hyggst dvelja hér um stundarsakir. Fréttamaður
Vísis hafði stutt viðtal við Iistakonuna í morgun og spurði
m.a. um viðbrögð hennar til þeirrar skrílmcnnsku, er haf-
meyjan var sprengd í loft upp á gamlárskvöld.
„Eg vil sem minnst um 'það tala eins og sakir standa.
Þetta hefur verið svo mikið áfall fyrir mig, að eg er ekki
búin að ná mér eftir það ennþá.“
„Er koma yðar hingað til lands í nokkru sambandi við
þetta atvik?“
„Ekki beinlínis, en þó má e. t. v. segja að svo sé að
nokkru leyti. Annars er aðalástæðan sú, að eg ætla að
halda sýningu á Charlottenborg í Kaupmannahöfn þann 1.
maí, og eg þarf að ganga frá tveim höfuðmyndum hér
heima, sem eiga að vera á sýningunni.“
Listakonan var þreytt eftir ferðalagið, en þurfti samt
ýmsu að sinna, svo ekki vannst tími til að ræða frekar við
hana að sinni, enda er um viðkvæmt mál að ræða fyrir
hana. Var og greinilegt að heyra að henni hefur fallið þessi
atburður mjög þungt. Er það ekki óeðlilegt, og getur hver,
sem reynir að setja sig í hennar spor, skilið hvílíkt áfall
það hlýtur að vera, þegar sköpunarverk, sem tekið hefur
mikinn tíma og hugarstríð að búa til, er vansæmt af sam-
tökum listamanna hér heima, en síðan sprengt í loft upp.
Ef til vill gefst tækifæri til að hafa tal af listakonunni
síðar og heyra hvað hún hefur frekar að segja um örlög
hafmeyjunnar.
Gagngerar endurbætur gerðar
á fiskiðjuverinu á Grandagarði
AV'jaí* iíárvirkar vélar
lengnai* til þess.
Athugaðlr möguleikar á niöurstööu
sjávarafurða.
Eftir að Reykjavíkurbær
festi kaup á fiskiðjuveri ríkisins
á Grandagarði hafa farið fram
gagngerar endurbætur á því,
jafnframt því sem unnið er að
því að auka og endurbæta véla-
kost þess.
Frá þessu skýrði Jón Axel
Pétursson framkvæmdarstjóri
Vísi fyrir skemmstu. Hann
sagði brýna nauðsyn hafa borið
til að gera á húsum og inn-
réttingu þess miklar breytingar
og endurbætur. Hefur verið
unnið að þeim um nokkurt
skeið og er enn gert.
Þá skýrðd Jón ennfremur frá
því að vélakostur fiskiðjuvers-
ins væri yfirleitt gamall orðinn
og næsta fátæklegur. Hann
þyrfti því endurnýjunar við, til
að rekstuiinn stöðvaðist ekki og
hafa þpgar verið gerðar ráð-
stafanir til þess að panta tvær
nýjar vélar erlendis frá til end-
urnýjunar og viðbótar þeim
vélakosti sem fyrir er.
F\-h. á 2. síðu.