Vísir - 13.02.1960, Síða 4

Vísir - 13.02.1960, Síða 4
I Laugardaginn 13. febrúar 1960 vtS II;., wsxr. D A G B L A Ð Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F. Tltór kemur út 300 daga á ári, ýmist 8 eða 12 blaðsíður. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Hersteinn Pálsson. Skrifstofur blaðsins eru í Ingólfsstræti 3. Ritatjóníarskrifstofur blaðsins eru opnar frá kl. 8,30—18,00. Aðrar skrifstofur frá kl. 9,00—18,00. Afgreiðsla: Ingólfsstræti 3, opin frá kl. 9,00—19,00. Sími: 11660 (firnm línur). Vísir kostar.kr. 30,00 í áskrift á mánuði. Kr. 2,00 eintakið í lausasölu. Félagsprentsmiðjan h.f. Hagsýsia — Sjálfstæðismenn hafa fyrr og síðar haldið því fram, að hagsýni skorti hér mjög í ! opinberum rekstri. Oft hefur verið á það bent í blöðum flokksins, að endurskoðun á : starfskerfi ríkisins sjálfs og stofnana þess væri nauðsyn- leg, til þess að draga úr ým- .' is konar óþarfri eyðslu á al- mannafé. í>að hefur því eflaust glatt marga hlustendur útvarps- ins á mánudagskvöldið var, þegar fjármálaráðherrann skýi’ði frá fyrirhuguðum ráð- stöfunum ríkisstjórnarinnar til stóraukins sparnaðar í opinberum rekstri. Fyrir forgöngu Gunnars Thor- oddsen var komið á stofn hjá ^ Reykjavíkurbæ, fyrir 2 ár- | um, starfsemi þeirri, sem nefnd er hagsýsla. Þar vinna saman færustu kunnáttu- menn úr hópi hagfræðinga, ! reksturí'ræðinga, yerkfræð- jnga og annarra, sem hafa valið sér hagsýslu að sér- grein. Og samstarf þessara manna miðar að því, að finna leiðir og ráð til þess að ná raunhæfum árangri um sparnað á opinberu fé, með bættu skipulagi og hag- kvæmari starfsháttum. Þessi tilraun hefur þegar gefið góða raun í Reykjavík, og hagsýni. má því hiklaust vænta hins sama af hagsýsiustarfsemi, sem tekin yrði upp á vegum ríkissjóðs. Fjármálaráðherra hefur kynnt sér þessa starfsemi hjá ná- grannaþjóðum okkar og afl- að sér gagna um hana víða að. Og með hliðsjón af þeirri reynslu sem fengin er, þykir ríkisstjórninni rétt að koma hér á skipulagðri hagsýslu í þágu ríkisrekstursins. Er sá undirbúningur þegar hafinn á vegum fjármálaráðuneytis- ins. Reynslan hefur sýnt það, hér á íslandi a. m. k., að svokall- aðar sparnaðarnefndir, sem skipaðar eru af ríkisstjórn- um, koma ekki að miklu gagni í þessu efni. Þær geta að vísu lagt ýmislegt gott til, ef í þær veljast glöggir menn, en um heildaryfirsýn getur vart orðið að ræða hjá slíkri nefnd. Slík yfirsýn fæst ekki nema með miklu og vel skipulögðu samstarfi manna, sem sérfróðir eru í öllum þeim greinum, er að hagsýslu lúta. Þeirrar þekk- ingar er ekki að vænta hjá nefnd, sem oft og tíðum hef- ir eingöngu verið valin með hliðsjón af því hvaða flokks'- menn þóttu maklegastir bitl- inga. Frantsákn og nefndafarganíð. Nefndafarganið er að mestu leyti verk Framsóknarflokks- ins. Það hefir löngum þótt ,,góð pólitík" í þeim herbúð- um, að endurgjalda góða þjónustu við Framsóknar- flokkinn með bitlingum á kostnað ríkisins. Hefir þá f reynzt auðvelt að búa til einhverja nefnd, sem að 1 nafninu til skyidi vinna t fyrir ríkið, en í framkvæmd fyrir Framsóknarflokkinn. Með þe$sum hætti hefur orðið til fjöldi óþarfra nefnda, sem samanlagt kosta ríkið mikið fé bæði beint og óbeint, því hin pólitíska þjónusta sumra nefndarmanna við flokk sinn, getur stundum kostað rikið margfalt meira en launin fyrir hið svokaliaða starf þeirra i nefndinni. Venjulega verða Framsóknar- menn æfir, þegar á þetta er minnzt. Þeir mega ekki til þess hugsa að sú spilling, sem þróast hefir í skjóli ; þessa fyrirkomulags, verði upprætt. Þeir vita sem er, að með þessum hætti hafa þeir tryggt sér margan trúan starfsmann víða um land, enda mun aldrei hafa staðið á, að skipa nýjar nefndir og ný embætti, ef með því hef- ir verið hægt að styrkja að- stöðu Framsóknarflokksins á einhverjum stað. Enginn vafi er á þvi, að leggja má niður ýmsar óþarfar nefndir, sem stofnaðar hafa verið í pólitískum tilgangi, svo og ýmiskonar embætti og bitlinga aðra, sem hafa orðið til með sama hætti, eða vegna óhentugs starfskerfis og staríshátta. Með skipulagðri hagsýslu standa vonir til að útrýma megi mörgum af þeim mein- semdum, sem nú há opin- berum rekstri hér á landi; og undir forustu núverandi fjármálaráðherra má vænta mikilla og varanlegra end- urbóta á þessu sviði. KIRKJA OG TRUMAL: Verkamenn. A morgun verður rætt um verkamenn í kirkjunum. Þar verður sagt frá manni, sem réði til sín hóp manna til erfiðis- vinnu. Þeir gengu að erfiðis- vinnunni, er þeir höfðu verið ráðnir, og unnu til kvölds. Að vinnu lokinni voru daglaunin goldin. „Verkamenn í víngarði“ kallaður til starfs, til vinnu i kirkjunni, ekki aðeins prestur- inn, fastir starfsmenn kirkjunn- ar, söngfólk og sóknarnefnd. Verkefnið er miklu meira en svo, að sá fámenni hópur anni nema litlu einu af því, sem vinna þarf. Allir skírðir menn eru kallaðir til ábyrgrar þátt- er saga þessi kölluð, ein af töku, eiga að vera þátttak- dæmisögum Jesú, og hana er að finna í upphafi 20. kapítula Mattheusarguðspjalls. Sagan er svo auðug, að hún gefur tilefni til margvislegra hugleiðinga. En það, sem mig langar til að beina athygli að, er hlutverk þeirra, sem ráðnir voru, „Líkt er himnaríki“, þannig hefst sagan. Hún er sögð til þess að skýra eðli Guðs ríkis, endur í lífi og starfi kirkjunn- ar. Henni er ætlað að vera ein lifandi starfandi heild fjöldans. Mennirnir eru misjafnir og hæfileikarnir margvíslegir, enda eru verkefnin margbreyti- leg, svo að hver getur fengið verk við sitt hæfi. Og starfsemi kirkjunnar fer ekki öll fram í kirkjuhúsinu, aðeins vissir þætt ir hennar. Kirkjustarfið fer einnig fram á heimilum, vinnu- trúarlífsins. Guð kallar menn stöðum og sjúkrahúsum, hvar J til trúar, til þess að lifa kristnu lífi í víngarði sínum, kristinni kirkju. Þetta er köllun til helg- unar hugarfars og lífernis. Það veit hver maður, enda hefur verið lögð á það áherzla í pré- dikun kirkjunnar og kristilegu uppeldi. Við erum kallaðir til trúar, sem veitir styrk í lífi, von eilífs lífs og fögnuð hins heil- aga samfélags, trúar, sem er auðug af fyrirheitum og jafn- auðug af uppfyllingu þeirra fyrirheita. j Þetta minnir víngarðsagan á, j þegar verkamennirnir, veittu ^viðtöku daglaunum sínum úr húsbóndans hendi, og hann gaf hverjum og einum það, sem honum nægði og ekki minna en það, án tillits til þess hve vinnu- stundirnar voru fáar hjá sum- um. sem lifandi meðlimur kirkjunn- ar er virkur. Hver velur verkefni við sitt hæfi. Sumir styrkja safnaðar- sönginn með fagurri söngrödd, en þeir, sem ekki eiga hana til, leggja fram sínu veiku rödd í lofsönginn. Sumir geta ekki sungið en mæta samt í kirkj- unni til þess að taka þátt í helgihaldinu, styrkjasamfélagið og láta í ljós hollustu sína. Sum- ir styrkja hið kristilega upp- eldi, kennarar í skólum, for- eldrar á heimilum. Sumir að- stoða við sunnudagaskólastarfið eða æskulýðsstai'fið, við hvorfc tveggja þarf mikið starfslilð, ef árangur á að geta orðið góður. Bræðrafélög og systrafélög safn aðanna hafa ótal verkefni að vinna fyrir kirkju sína. Sumir yitja sjúkra og sorgbitinna vina eða þeirra, sem aðrar þrenging- hr þjá. Allir hafa fengiðköllun bænarinnar, verkefni, sem al- rei þrýtur. Verkamenn i víngarði. Vín- garðurinn er kirkja Krists. Með- al verkamannanna ert þú, kall- aður í skirninni, til starfs, þar hefur þú verkefni, sem þér ber að leggja rækt við. Samverkamenn Guðs erum vér, segir Páli postuli. Svo furðulega sem það kann að hljóma, samverkamenn almátt- ugs Guðs, þá er þessi fullyrðing postulans í algeru samræmi við reynslu kristinna manna. Þann- ig hefur Guði þóknast að haga málefni sínu, fela mönnunum verkefni og eiga nokkuð undir trúmennsku þeirra. Ef þeir vinna ekki erfiðið, fellur garð- urinn i órækt. Guð vinnur verk sitt í starfi okkar. Hann gefur okkur kraft og hjálp og blessun í starfinu, þannig verðum við samverkamenn hans. Mikil gjöf og mikill heiður að mega heita og vera samverkamaður Guðs. Auðvitað byggist allt á hans góða vilja og blessun. En köllun hans gefur fyrirheit um styrk og árangur, því að máttur Guðs fullkomnast í veikleikanum. Guð gefur bæði lífið og vöxt- inn. Það má því vera fullkomin hvatning öllum að vita að það að vera kristinn maður, þýð- ir að hafa skyldur til þátttöku í starfi kirkjunnar og Guðs sam- verkamenn erum við. Næsti aialfundur Ingóifs væntan- lega haldinn í nýja húsinu. Göfgi húsbóndans var örlát, og enginn fékk minna en full- komin daglaun, alla þörf sína. Þannig er Guð, og engum nægir minna en fullkomin náð hans, eilíft líf óskert þótt þjónustan i ríki hans hafi verið skammvinn og mjög fjarri því að hafa ver- ið fullkomið dagsverk. Þessi fagnaðarboðskapur sög- unnar er svo stórkostlegur, að oft sést yfir önnur mikilvæg atriði hennar. Þeir, sem ráðnir voru, áttu ekki aðeins að taka á móti dag- launum að kvöidi. Þeir voru iverkamenn ráðnir til erfiðis. Þeir áttu að bera hita og þunga dagsins. Að vera kallaður til trúar, er ekki aðeins að vera kallaður til fyrirheita trúarinn- ar, fagnaðar og sælu og eilífs lífs. Það er einnig að vera kall- aður til starfs, vinnu, í sveita síns andlitis. Svona er Guðsríki. eins og' sagan segir. Hvernig? Eins og víngarður, sem á að bera á- vöxt. Og skilyrðið til þess, að hann gefi nokkurn ávöxt, er að erfiðisvinnan sé unnin, hin ótal mörgu handtök verði gerð, ef vinnan er vanrækt, fer garður- inn í órækt, illgresið dreifist út yfir alla gróðurreiti, dregur úr vexti góðjurtanna, kæfir þær, og uppskeran verður harla lítil. Garðurinn er stór, og það þarf margar hendur til starfs- ins. Sérhver kristinn maður er Slysavarnardeildin Ingólfur hélt aðalfund nýlega og minnt- ist formaður, séra Oskar J. Þor- láksson, í upphafi fundar, lát- inna félaga og þeirra, er farizt höfðu til sjós og lands. í skýrslu stjórnar gat formað- ur um fjásöfnun og störf björg- unarsveitar, björgunarstöðvar- innar við Grandagarð. unglinga- deildar o.fl. og að stjórnin hefði ákveðið að afhenda björgunar- sveitinni 8 þús. kr. til kaupa hlífðarfötum fyrir sveitina. Þá þakkaði formaður starfsfólki fé- lagsins og sérstaklega Guð- Námskeið fyrir aimenn- ing í hjáip \ viðiögum. Eins og á undan förnum ár- um, mun Reykjavíkurdeild Rauðakross íslands gangast fyr- ir námskeiðum í hjlp í viðlög- um. Námskeiðin eru ókeypis og ætluð almenningi. Þau fara fram í Heilsuverndarstöðinni og hefjast næstk. miðvikudag þ. 17. febrúar. Kennt verður í tveim hópum, annar hvorn dag, kl. 53,0 e.h. og 8,30 e.h., tvær kennslustundir í senn. Kennslu annast Jón Oddgeir Jónsson fulltrúi, en skrifstofa Rauðakrossins í Thorvaldsens- stræti 1 veitir nánari upplýsing- ar og annast innritun þátttak- enda. mundi Péturssyni, er látið hef- ur af störfum. Gjaldkeri gat þess, að safnast hefðu 65 þús. krónur. Deildin afhenti á árinu S.V.F.Í. 95 þús kr. framlag til húsbyggingafélagsins. Vonir standa til, að næsti aðalfundur fari fram í hinu nýja húsi. Stjórnin var öll endurkjörin: Séra Óskar J. Þorláksson for- maður, Gunnar Friðriksson varaformaður, Jón Jónsson gjaldkeri, Baldur Jónsson rit- ari, og Jón O. Jónsson. Vara- menn: Björn Pálson og Sigurð- ur Teitsson, en Þorsteinn Árna- son og Júlíus Ólafsson endur- skoðendur. Þá var forseta S.V.F.f. þakk- að sérstaklega fyrir 20 ára starf Guðbjarts Ólafssonar, er hefur 25. febr. verið óslitið forseti, en þau ár hafa verið stórstígar farmfarir í slysavarnamálum þjóðarinnar. Þess tillaga var samþykkt: Aðalfundur Ingólfs samþykkir, að fiskiskip, sem sigla á fjar- læg mið, ættu jafnan að hafa ney'ðarsendiskeyti um borð, sem nota mætti, ef loftskeyta tæki bila af einhverjum ástæðum. Ennfremur fagnaði fundurinn komu varðskipsins Óðins og tel- ur smíði skipsins marka ánægju leg tímamót í öryggismálum sjómanna við ísland. Ennfrem- ur fagnar fundurinn, að skipið verði búið þyyilvængju, en þær vélar hafi sýnt mikla hæfni við erfið skilyrði.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.