Vísir - 22.02.1960, Side 7
Mánudaginn 22. febrúar 1960
VISIR
Frá Squaw-dal:
Nýtt heimsmet í 1500 m.
skautahlaupi kvenna.
Kússnesk stsíilka. Svi**si Svíi
k'ensju sjullverðlaiBii ■ aær.
. í gær var keppt á Vetrar-
Olympíuleikunum « Squaw-
dalnum í stórsvigi karla, 1500
m. skautahlaupi kvenna, og
sameiginlegri keppni í skíða-
göngu og skotfimi.
Bókmenntakvöld
í ameríska bóka-
safninu.
Næsta bókmenntakvöldið í
ameríska bókasafninu að
Laugavegi 13 verður haldið á
morgun, þriðjudag 23. febrúar,
og hefst að venju kl. 8,30 e.h.
Svo sem kunnugt er hafa all-
mörg slík bókmentakvöld ver-
ið haldin að undanförnu í vet-
ur og þau reynzt mjög vinsæl.
Á þesum kvöldum hefur verið
lesið á víxl upp úr verkum
bæði enskra og amerískra höf-
unda og sum verkin skýrð að
nokkru.
í þetta sinn verður kvöldið
tileinkað tveimur af merkustu
forsetum og stjómmálaskörung-
um Bandaríkjanna, þeim Ge-
orge Washington, fyrsta for-
seta Bandaríkjanna, og- Abra-
ham Lincoln, en svo vill til að
báðir eru fæddir í þessum mán-
uði, Lincoln 12. febrúar 1809,
en Washington 22. febrúar ár-
ið 1732. Verða lesnir nokkrir
valdir kaflar úr merkustu skrif-
um þeirra, sem teljast mega
perlur í stjórnmálabókmennt-
um á enskri tungu, en einnig
verður lesið upp úr verkum
þekkti-a höfunda, sem ritað
hafa um ævi og starf þessara
merkismanna.
Öilum er að sjálfsögðu heim-
ilt að sækja þessi bókmennta-
kvöld.
MMSK veitti 33.000
kr. á s.l. ári.
Frá mcnningar- og minningar-
sjóði kvcnna
Á síðastliðnu ári bárust sjóðn
um minningargjafir um eftir-
taldiar konur:
Valgerði Þórðardóttur frá
•Kolviðarhóli, Kristbjörgu Jóns-
dóttur, Stokkseyri. Guðrúnu
Guðmundsdóttur. Þórdísi Carl-
quist, ljósmóður. Svanlaugu
Björnsdóttur, Sigríði Jónsdótt-
ur. Ingibjörgu Zakaríasdóttur.
Signýju Jóhannsdóttur, Kristiu
Pétursdóttur Guðjohnsen. Re-
bekku Jónsdóttur. Guðrúnu
Jónsdóttur. Susie Briem. Sú-
límu Stefánsdóttur. Elínu Guð-
björgu Guðmundsdóttur. Ás-
laugu Torfadóttur. Sigríði
; Pálsdóttur.
Tuttuggu konur hlutu náms-
.sty-rk á árinu, samtals kr.
33.000,00.
Minningarspjöld sjóðsins eru
_í bókaverzlun ísafoldar, bóka-
búð Braga Brynjólfssonar,
Hljóðfærahúsi Reykjavíkur,
bókabúð Helgafells, Laugaveg
100 og í skrifstofu sjóðsins að
Skálholtsstíg 7.
Stórsvig karla.
Sigurvegari varð Roger Stahl
jfrá Sviss á 1 mínútu 48.3 sek.
og vann fyrstu gullverðlaun
Svissara á mótinu. Annar varð
Steigler og þriðji Hinstersier,
báoir frá Austurríki.
Skautahlaupið.
í 1500 m skautahlaupi kvenna
varð Lydia Skuplekova frá Sov-
étríkjunum hlutskörpust, og
setti nýtt heimsmet á 2 mín.
25.2 sek. Skautakonur frá Pól-
landi fengu 2. og.3. verðlaun.
Skíðaganga og skotfimi.
í hinni sameiginlegu keppni
i skíðagöngu og skotfimi varð
hlutskarpastur 23. ára gamall
trésmiður frá Svíþjóð, en 2.
verðlaun hlaut Finni og 3. verð
laun Rússi.
Gullverðlaun snikkarans
voru önnur guUverðlaun Svía á
mótinu. Fyrri gullverðlaunin
unnu þeir í 30 km. skíðagöng-
unni.
Hockcy.
Einnig fór fram keppni í
hockey, en frétt um úrslit hafði
ekki borizt, er þetta er ritað.
8 söttu um
námsdvöl vestra.
Fyrir nokkru voru auglýstir
hér styrkir ihanda íslenzkum
framhaldsskólanemendum til
námsdvalar í Bandaríkjunum
og bárust 80 umsóknir, helm-
ingifleiri en í fyrra.
Þetta er fjórða árið, sem ís-
lenzkum nemendum er gefinn
kostur á að sækja um náms-
dvöl þessa og nú eru níu ísl.
nemendur vestra, dreifðir um
landið, búa hjá þarlendum fjöl-
skyldum og stunda nám í skól-
um. Næsti hópur, 8—10 nemend
ur, fer héðan seint í ágúst og
dveljast vestra fram í júni
næsta ár. Stúlkur hafa ætið
verið í miklum meirihluta með-
al umsækjenda og eru það enn,
en þó fer piltuni fjölgandi og
eru nú með flesta móti.
Aðilinn, sem býður útlendum
nemendum upp á námsdvöl
i þessa, heitir American Field
jService (stofnað af uppgjafa-
hermönnum í fyrri heimsstyrj-
öld), en hér hefur íslenzk-ame-
ríska félagið haft meðalgöngu.
Allir íslenzkir nemendur, sem
j farið hafa vestur, láta mjög vel
af dvölinni.
Neptúnus —
Frh. af 1. síðu.
Sildin fer öll í frystingu. Skip-
ið fór ekki eingöngu til að veiða
síld, en Bjarni Ingimarsson,
sem einna mestan þátt á í þvi,
að tilraunir með flotvöruna
bera árangur, hafði flotvörpuna
með sér um áframhald þessarar
veiði verður ekki sagt í bili, en
Bjarni hefur sannað og sýnt að
fyrir hendi eru miklir mögu-
1 leikar með þetta veiðarfæri.
%
Bohdan Wodiczko-.
Kátíðartóníeikar
í kvöld.
Hljómsveitarstjóri Pólsku
fílharmóníunnar í Varsjá,
Bohdan Wodiczko, kom til
Reykjavíkur fyrir viku í tilefni
af hátíðatónleikum á 150 ára
afmæli Chopins og > kvöld
stjórnar hann. Sinfóníuhljóm-
sveit íslands • Þjóðleikhúsinu,
en einleik með hljómsveitinni
annast Jórunn Viðar og Rögn-
valdur Sigurjónsson.
Á undjan tónleikunum fly.tur
dr. Páll ísólfsson ávarp. Síðan
verða flutt verk eftir tvö pólsk
tónskáld, að sjálfsögðu Chopin,
en þar eð eftir hann liggja
fá hljómsveitarverk, verður
fyrri hluti tónleikanna verk
eftir samtíðarmann hans og eitt
af öndvegistónskáldum Pól-
lands, Stanislav Moniuszko. —
Fyrst verður flutt eftir hann
konsertforleikurinn „Bajka“,
en síðan ,,Mazur“ (sem er dans
skyldur mazurka) úr óperunni
,,Halka“, en það er þjóðarópera
Pólverja á sarna hátt og „Selda
brúðurinn“ eftir Smetana er
hjá Tékkum. Að loknu hléi
verða svo flutt tvö verk eftir
Chopin, fyrst Polonaise fyrir
píanó og hljómsveit, og leikur
Jórunn Viðar á píanóið. Loks
er svo píanókonsert nr. 1 í E-
moll, en þar verður einleikari
Rögnvaldur Sigurjónsson.
Hingað kom Wodiczko gagn-
gert til að stjórna Chopinhátíð-
artónleikunum í kvpld. En á
blaðamannafundi fyrir helgi
harmaði hann að hafa ekki
tíma til að hafa hér lengri1
dvöl og stjórna fleiri tónleikum.
Því vonaði hann að koma hing-
að aftur áður en langt liði.
Hver er maðurinn?
Þáttakendur myndagetraunarinnar í síðustu viku fylli
út eftirfarandi eyðublað og sendi Vísi fyrir miðvikudags-
kvöld — merkt: ,.Hver er maðurinn?“
Myndirnar eru af:
1)
2)
3)
4)
5)
6)
7)
8)
9)
10)
Sendandi:
Nafn
Heimilisfang
Marokko kallar heim sendi-
herra sitin í París.
Adenaiier vill mí banna «»il
kjarnorkiBVopii.
Marokko hefur kvatt heim
ambassador sinn frá París.
Ennfremur hefur Marokko-
stjórn fellt úr gildi samninga
frá 1956 þess efnis, að sendi-
herrar Frakklands í nokkrum
iöndum korni fram fyrir hönd
Marokko. — Hvorttveggja ráð-
stöfunin eru til mótmæla vegna
tilraunarinnar í Sahara.
Parísarfregnir herma, að það
sé nú búist við, að Frakkar geri
aðra tilraun með kjarnorku-
sprengju til, innan hálfs mán-
aðar.
Parísarblaðið France Soir
segir, að líklegt sé, að Frakkar
framieiði vetnissprengju og gerl
tilraun með hana á Kyrrahafi
1961.
Engra geislaverkana hefuc
orðið vart eftir tilraunina s.l.
laugardag.
Adenauer kanslari Vestur-
Þýzkalands fiutti ræðu á fundi
stúdenta í Köln í vikunni og
kvað nú stóraukna hættu vofa
fir öllu mannkyni, ef áfram-
hald yrði á því, að fleiri þjóðir
öflðu sér kjarnorkuvopn, og
þeirri hættu yrði aðeins afstýrt
með alþjóðasamkomuiagi um
bann við framleiðslu og notkun
kjarnorkuvopna.
NYTT GENGI I DAG
Fundu ekki
snjómann!
Nefnd japanskra vísinda-
manna er komin til Katmandv
ofan' úr Himalajafjíöllum; en
hún var að leita sannana fyrir
tilvefu „snjómanna“.
Ekki varð hún neins vísari,
— fann ekki einu sinhi spor
eftir þá. Ogawa, formaður
nefndarinnar, kennir því um,
að óvenjulega sn-jólítið er í fjöll-
unum. Hann er sannfærður um,
að ,,snjómenn“ séu til-, eða risa-
apar, „tíu sinnum skynsamari
en goriliaapar".
Nefndin heidur nú heim, en
Ogawa lét í ljós ósk um, að
geta-komið aftur að ári, til frek-
ari rannsókna.
Frh. af 1. síðu.
Á ávísanasparisjóðsbókum
6%.
Á hlaupareikningi 4%.
Sömuleiðis ákvað banka-
stjórnin að útlánsvextir iána-
stofnana skuli frá. sama tíma
ekki vera hærri en hér segir:
Forvextir 11%;
Framlengingarvextir eftir 3
mán. 11 Vz %.
Vextir af yfirdrætti á hiaupa-
reikningum, reikn. mánaðarlega
eftir á 12%.
Vextir af reikningslánum og
viðskiptalánum, auk viðskipta-
gjaids 1% á ári 11%.
Fasteignaveðslán og hand-
veðslán til langs tíma með
breytilegum vöxtum 11%.
Sömu lán með föstum vöxt-
um 10%.
Vextir af afurðavíxlum 9%.
Framlenging sömu víxla eftir
3 mánuði 914%.
Ákvörðun þessi gildir, þar til
öðruvísi verður ákveðið.
3.
Bankastjórnin ákvað enn.
fremur, eftir að hafa haft sam-
ráð við ríkisstjórnina, að nota
heimildir í lögum til að skylda
innlánsstofnanir til að leggja
inn á bundinn reikning i Seðla-
bankanum helming aukningar
á innlánsreikningum frá 1. jan.
1960.
Reykjavík, 21. febr. 1960. i
(Fréttatilkynning frá 1
Landsbanka íslands 1
Seðlabankanum). J